Pressan - 03.05.1990, Side 9
9
Fimmtudagur 3. maí 1990
geta að Davíð Oddsson borgar-
stjóri tengist þessum tveimur ættum
náið, þar sem Astríður kona hans
er dóttir Þorsteins Thorarensen
og Unu Petersen. Ættin Thor-
steinsson er skrifuð fyrir Austur-
stræti 16 (Reykjavíkur apótek), þar
sem fasteignamatið er í heild um
140 milljónir. Ættin Johnson (Ó.
Johnson og Kaaber) er skrifuð fyrir
Hafnarstræti 1, hvers fasteignamat
er 110 milljónir, og sama ætt er að
hluta eigandi Geysis hf., sem á Aðal-
stræti 2 og er metið á 81 milljón. Og
ættin Valfells er eigandinn að
Hafnarstæti 15—17, þar sem m.a. er
að finna Hornið og Svörtu pönnuna.
Þrír þingmenn eiga fasteignir við
göturnar sem skoðaðar voru, ýmist
í heild eða að hluta, einir eða með
öðrum. Guðrún Agnarsdóttir, fv.
þingmaður, er ein af tíu ættingjum
Hans Petersen sem skráðir eru fyrir
áðurnefndum fasteignum. Geir H.
Haarde er ásamt Kristjáni Stein-
dórssyni skráður fyrir „Aðalstræti
3", þar sem Hlöllabar er. Matið
hljóðar upp á 26 milljónir. Og Ás-
geir Hannes Eiríksson er stjórn-
arformaður Victors hf„ sem er eig-
andi Laugavegs 33, 33a og 33b.
Ymsa aðra fróðleiksmola má láta
fljóta með. Herluf Clausen heild-
sali er eigandinn að Laugavegi 95,
þar sem áður var Skóverslun Þórðar
Péturssonar. Fasteignamat samtals
33,5 milljónir. Knútur Bruun lög-
fræðingur er skrifaður fyrir eigninni
Lækjargötu 2, þar sem til húsa eru
m.a. Viva strætó, framköllunarfyrir-
tæki, Daman og Smáréttir. Þessi
eign er metin á 70 milljónir'króna.
Brennivín í
húsakynnum KFUM
Magnús Þorgeirsson hf„ einn
stærsti eignaraðilinn í Flugleiðum
og hvers stjórnarformaður er Leif-
ur Magnússon, er eigandi Lauga-
vegs 4 og Skólavörðustígs la, ásamt
Þóri Skarphéðinssyni, Skarp-
héðni Þórarinssyni og fleirum, en
á hina síðarnefndu er einnig skráð
eignin Skólavörðustígur 3. Lauga-
vegur 10 og Laugavegur 28b eru
skráð á Sjanghæ hf. og síðari eignin
einnig á „Laugaveg 28b hf.“, þar
sem stjórnarformaður er Bergur
Guðnason lögfræðingur. Eignin
Hafnarstræti 5 er skráð á Kaupvang
hf„ þar sem í stjórn sitja Jón H.
Bergs, fv. forstjóri SS, og Gísli V.
Einarsson, sem mikið hefur verið í
sviðsljósinu að undanförnu.
Að lokum má geta þess að Austur-
stræti 20, þar sem er gleraugna-
verslun og Kaffi Hressó, er eign
KFUM og er matið í heiid 118 millj-
ónir. Aður var minnst á Davíð Odds-
son og hann kemur aftur við sögu
vegna Austurstrætis 18, sem var
skráð á Stuðla hf. og Fjólu Ólafs-
dóttur. Stuðlar heita nú Almenna
bókafélagið hf„ þar sem borgar-
stjórinn er varastjórnarmaður sam-
kvæmt núgildandi hlutafélagaskrá.
PRESSAN SK0ÐAR HNIGNANDI
KJARNA B0RGARINNAR
Heimsókn Pressunnar til fasteignamatsins leiðir i Ijós að
eignarhald i gamla miðbænum er dreift, en nokkrir aðilar
eiga óberandi stórar og/eða verðmætar eignir.
Austurstræti 6,8 og 10 eru í eigu Leós Löve lögfræðings og
þeirra Sverris Kristinssonar, Jóns Guðmundssonar, Birgis
Páis Jónssonar og Sveins Björnssonar. Leó, Birgir og Jón
eiga einnig Austurstæti 22b. Alls eru lóðirnar og fasteignirn-
ar metnar á um 285 milljónir króna í fasteignamati.
Lækjargata 2, þar sem til húsa eru m.a. Viva Strætó, Fram-
köllun, Daman og Bókabúðin, er skráð eign Knúts Bruun
lögfræðings. Heildarmatið er um 70 milljónir króna.
Laugavegur 96, þar sem nú er Skóverslun Reykjavikur, áður
Skóverslun Þórðar Péturssonar, er skráð eign Herlufs Clau-
sen heildsala, metin á 33 milljónir. Til hægri er fasteign sem
m.a. eiga Skúli G. Jóhannesson, Ásgeir Thoroddsen og Ing-
ólfur Hjartarson.
Þetta hús og lóðin eru skráð á Victor hf., hvers stjómarformaður er Asgeir H. Eiríksson þingmaður.
Hafnarstræti 5, þar sem m.a. er að finna Veiðimanninn
og Fimmuna, er í eigu Kaupvangs hf., þar sem í stjórn
sitja Jón H. Bergs, fyrrum forstjóri SS, Stephan Steph-
ensen og Gísli V. Einarsson margumræddur.
Hafnarstræti 1 er í eigu „Hafnarstrætis 1 sf." og er fast-
eignin með lóð metin á 110 milljónir. Stjórnin er hjá
hlutafélagaskrá óbreytt frá 1959, þegar stjórnarmenn
voru Guðrún, Örn, Hannes, Ólafur og Rafn Johnson.