Pressan - 03.05.1990, Page 10
10
Fimmtudagur 3. maí 1990
PRCSSAN
VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM
Útgefandi: Blað hf.
Kramkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjórar: Jónína Leósdóttir Omar Kriöriksson
Blaðamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Friðrik Þór Guömundsson
Ljósmyndari: Einar Olason
Útlit: Anna Th. Rögnvaldsdóttir
l’rófarkalestur: Sigríður H. Gunnarsdóttir
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, simi 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið. 1000 kr. á mánuði. Verð i lausasolu: 150 kr. eintakið.
VALDBOÐ OG
FRÉTTAMENNSKA
Deila fréttastofu útvarpsins og útvarpsráös hefur vakið furöu.
Ekki verður með nokkru móti séð annað en aö sjálfstæði og
ábyrgð fréttastofunnar hafi verið gróflega skert með ályktun
þeirri sem útvarpsráð lét frá sér fara sl. laugardag þar sem því er
lýst yfir að yfirlýsing fréttastofunnar um að hún standi viö hina
umdeildu frétt sé ómerk. Traust almennings til fréttamiðla er
grundvallarundirstaða sjálfstæðrar fjölmiðlunar. Með valdboði aö
ofan er gróflega grafið undan þessu trausti. Ef eölilegur frétta-
flutningur á að geta viðgengist í nútíma þjóðfélögum verða allir
að viöurkenna að endanleg ábyrgö fréttanna hlýtur og á að vera
í höndum þeirra sem þær flytja. Áðeins dómstólar geta útskurðað
um þá ábyrgð.
í PRESSUNNI í dag er fjallað um annað deilumál sem komið hef-
ur upp og beinist að ríkissjónvarpinu. Aðilar innan heilbrigöis-
þjónustunnar hafa gagnrýnt að ákveðnum skoðunum um áhrif
svokallaðra aukefna í matvælum skuli gert hátt undir höfði í sjón-
varpinu. Hér er um umdeild sjónarmið að ræða og eðlilegt aö
sjónvarpið komi þeim af hlutleysi á framfæri við áhorfendur. En
eins og rakið er í greininni kröfðust opinberir aðilar þess að farið
yrði að þeirra óskum við gerð þessa sjónvarpsefnis og höföu i
frammi íhlutun í dagskrárgerð sjónvarpsins.
Mikilvægi fjölmiðla í lýðræðisríkjum hvilir á þeirri grundvallar-
reglu að þeir sem fjölmiðlunum stjórna hafi alltaf síðasta orö um
það hvað í þeim birtist og hvernig það er framreitt og því er
ábyrgð þeirra að sama skapi rík. Enginn á sjálfkrafa heimtingu á
því að fá skoðanir sínar birtar í fjölmiðli eða ráðskast með hvernig
fjölmiðlar matreiða efnið. Sá hinn sami getur hins vegar leitað til
dómstóla telji hann á sig hallað. Allir úrskurðir eða valdboð um
annað ganga harkalega á skjön viö viðurkenndar skýringar á
prentfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Fjölmiölarnir eiga alltaf
síðasta orðið ef þeim á að vera treystandi.
pélitisk þankabrot
/Yilitísk þankabrot sknfa: Biri{ir Árnason, adstodarmuö-
ar ridskipta- aff idnadarrúdherra, Bolli Héöinsson, efnu-
huysráöiyafi forsætisrúdherru, oy Einar Kurl Huraldsson,
ritstjóri Nordisk Kontakt.
Paö sem helst hann varast vann. . .
„Borgarstjórinn stendur með pólmann í
höndunum sem sigurvegari að aflokinni
atburðaröð sem opinberaði vanhæfni
hans til að gegna embætti sínu/'
Ógæfu stjórnarandstöð-
unnar í borgarstjórn verður
allt að vopni. Með ólíkindum
er hvernig vopnin snúast í
höndum þeirra manna er síst
skyldi. Hið ólíklegasta mál,
lekinn í áburðarverksmiðj-
unni, færir okkur nú heim
sanninn um það. Borgarstjór-
anum, sem krafðist þess að
borgarbúar yrðu látnir
byggja nýtt hverfi rétt ofan í
áburðarverksmiðjuna með
allri þeirri áhættu sem því
fylgdi, hefur tekist að koma
þvi inn hjá fólki að hann sé
spámaðurinn sem borgarbú-
um beri að reiða sig á til að
losna við verksmiðjuna.
Undir öllum venjulegum
kringumstæðum væri það
náttúrulega þessi sami borg-
arstjóri sem ætti um sárt að
binda eftir þau reginmistök
að berjast fyrir byggð ofan í
verksmiðjuna og með réttu
ætti hann að vera einn úti í
horni og vinalaus. Þessu er
hins vegar sérdeilis öfugt far-
ið á okkar landi. Borgarstjór-
inn stendur með pálmann í
höndunum sem sigurvegari
að aflokinni atburðaröð sem
opinberaði vanhæfni hans til
að gegna embætti sínu.
-o-o-o-
Eftir óhappið leituðu fjöl-
miðlar eðlilega eftir við-
brögðum við yfirvofandi vá
og lá beint við að snúa sér til
borgarstjórans til að núa hon-
um því um nasir hvers vegna
hann hafi látið byggja ofan í
verksmiðjuna. Hann nær
hins vegar að snúa viðtölun-
um upp i það að býsnast yfir
hættuástandi sem hann hefur
sjálfur átt þátt í að skapa.
Hér gætu menn gert sér í
hugarlund hversu miklu
myndu muna fyrir stjórnar-
andstöðuflokkana að hafa út-
breitt dagblað á borð við
Morgunblaðið tii að freista
þess að snúa atvikarásinni
við og benda á veilurnar í
málflutningi borgarstjórans
til að snúa vörn í sókn.
Vitanlega verður áburðar-
verksmiðjan að hverfa þaðan
sem hún stendur nú, um það
er ekki deilt, en fyrst farið er
að tala um áhættu af þessu
tagi sem steðjar að borgarbú-
um þá væri ekki úr vegi að
menn huguðu að annarri
hættu sem ógnar okkur dag-
lega og jafnvel oft á dag. Það
er Reykjavíkurflugvöllur og
öll flugumferð um hann. Dag-
lega þarf fjöldi Reykvíkinga
að búa við þá áhættu að flug-
véiar í aðflugi að flugvellin-
um (þetta gildir um vesturbæ-
inga í Kópavogi líka) hrapi of-
an á höfuðið á þeim. Ekkert
endiiega vegna tæknilegra
mistaka, miklu heldur mann-
legra.
-o-o-o-
Einkennileg er sú ákvörð-
un stjórnmálaflokkanna sem
bjóða fram við byggðakosn-
ingarnar í vor að útiloka
áróður í sjónvarpi og útvarpi.
í reynd er þetta aðeins sam-
þykkt um það að styrkja
Morgunblaðið, sem er eini
fjölmiðillinn sem þá verður til
að dreifa að auglýsa í. Um
Tímann, Þjóðviljann og Al-
þýðublaðið tekur ekki að
ræða, enda ekki fjölmiðlar í
venjulegum skilningi þess
orðs, heldur dagleg fréttabréf
til flokksmanna sem greiða
fyrir þau í gustukaskyni.
Mun heppilegra hefði verið
að semja um hámark fjár-
hæða eða fjölda mínútna sem
hverjum flokki yrði heimilt
að nýta í kosningabaráttunni.
Lög eða reglur um störf og
starfsháttu stjórnmálaflokka
eru engin til hér á landi og
þegar ákvörðun sem þessi,
um að auglýsa ekki í Ijósvaka-
miðlum, er tekin hlýtur það
að leiða hugann að því hvort
tímabært gæti verið að setja
slík lög. Sérstaklega þyrfti
lagasetningu um fjármögnun
flokkanna, hámark einstakra
framlaga og skyldu þeirra til
að veita upplýsingar um
hverjir það eru sem veiti fé til
flokkanna. Þess háttar lög-
gjöf tíðkast víða um lönd og
er þá sett til að reyna að
draga úr yfirburðum flokka
sem eiga greiðan aðgang að
fyrirtækjum og ríkum ein-
staklingum yfir þeim flokk-
um sem eiga það ekki.
PRESSAN PRENTUÐ í ODDA
Síðastliðinn sunnudag var gengið frá samningum þess efnis Ekki stendur til að flytja vélar Blaðaprents að sinni, þó hugs-
að Prentsmiðjan Oddi hf. keypti vélar og tæki Blaðaprents anlega komi að því er fram líða stundir. Blaðið verður því
hf. og tæki við verkefnum þess frá og með 1. maí 1990. Prent- áfram prentað á Lynghálsi 9, þó svo eigendaskipti hafi orðið
un PRESSUNNAR verður því í framtíðinni í höndum Odda hf., á vélabúnaði og tækjum.
en þetta er fyrsta tölublaðið eftir þessa breytingu.
„Ellefu er ansi merkileg tala.
Hún stendur fyrir það þegar
einn tugur er búinn og annar
byrjar."
— Megas í viðtali við Nýtt helgar-
blað.
hin pressan
„Þeir sem eru í
bisness á íslandi
eru oft á tíöum
siövilltir götu-
strákar sem
þekkja engar
reglur og engin
siöalögmál.“
- Megas i viðtali við Nýtt helgar-
blað
„Fólk gleymir að hlusta á lík-
amann'
— Anna Kristín Kristjónsdóttir
sjúkraþjálfari i Nýju helgarblaði.
„Ekki útför heldur brúðkaup."
— Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS,
í 110130001 um yfirtöku Landsbaok-
ans á Samvinnubankanum.
„Það er Bjarna Degi að þakka
að ég er hættur að flauta á
ökumenn fyrir framan mig
sem ekki geta drattast af stað
þegar komið er grænt Ijós þó
svo ég sé orðinn of seinn í
vinnuna."
vÉg lærði þó í barnaskóla aö
Island væri grænt en aö á
Grænlandi væri ís."
— Tom Jones í viðtali við Morgun-
blaðið.
„Ég endaði í Hattabúð Reykja-
víkur sem selur kvenhatta og
þar fékk ég hatt."
— Jón Múli Árnason um hattinn
sinn i DV.
— Auglýsing í Timanum um flokksfund framsóknarmanna.
„Ef borgarstjóri krækir í Hótel
Borg er hann klókari stjórn-
málamaður en þingmenn
þessa lands eru."
— Guðrún Helgadóttir, forseti Al-
þingis, í Morgunblaðinu.
„Atvinnufrelsi án einhvers-
konar eignarréttar eða einka-
afnotaréttar er eins og brosið
án kattarins í skáldsögu Lewis
Carrols, Lísu f Undralandi."
— Hannes Hólmsteinn Gissurarson
i Morgunblaðinu.
— Kjartan Gunnar Kjartansson í fjöl-
miölapistli DV.
„Létt spjall á laugardegi.
Vímuefnavandinn I Reykja-
vik.##
,,En hvaö meö
ballettinn, list-
grein sem í aug-
um flestra eru
hvítklœddar, goö-
umlíkar verur
sem svífa um
sviöiö aö því er
* viröist í litlum
tengslum viö lífiö
fyrir utan.“
— Grein í Alþýöublaöinu.