Pressan - 03.05.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 3. maí 1990
11
1|
a siðkastið hafa orðið
nokkrar umræður um sláandi lík
vörumerki íslenskra og erlendra
fyrirtækja og sífellt bætast fleiri
dæmi við. Nýverið barst okkur í
hendur merki salernishreinsiefnis
sem ber heitið Blue M frá Closan
og svipar því óneitanlega til M-
táknsins sem Mikligarður notar.
Við látum merkin tala sínu máli. . .
omesikker
íkning
/OTn.
&LUEM
• tuwocrkfilkttcvlcttét
■•giver dcjliQ Ircktíurt
• r«w;or cv> f riiKcr op
•d»>sr.otir,v»»;nde. •.
NYHED-
MED
KAIKUJSEH
• OLUJF. M h'>«Jcr
-tr>íi>ton og trisk i yna ud
i sc? r*?ct ou
• Or'aiiwjr0akt(5rKj,-hí«
.kptwmnik . í:.
2ja, 3ja, 4ra
herbergja íbúð óskast
þarf að vera í miðborginni.
Upplýsingar á skrifstofutíma
622928
á kvöldin
76436
^^vær kosningaskrifstufur hafa
verið opnaðar á Seltjarnarnesi,
skrifstofa Nýs afls og skrifstofa
Sjálfstæðisflokksins á Seltjarn-
arnesi. Eins og allir vita er „Sel-
tjarnarnesið lítið og lágt" og því ein-
ungis nokkrir metrar milli húsanna.
Geta starfsmenn skrifstofanna því
fengið „lánað" hver hjá öðrum það
sem vantar, eins og kaffi, kjörskrár
og annað þvíumlíkt.. .
c
^Vjálfstæðismenn í borginni eru
orðnir mjög uggandi um möguleg
áhrif ítrekaðra skoðanakannana
sem sýna flokkinn með um 75%
fylgi og allt að því alla borgarfuiltrú-
ana nema einn. í þessu sambandi
hefur það vakið mikla athygli að
Morgunblaðið fékk tölvunarfræð-
inginn Helga Tómasson til að vitna
um að Sjálfstæðisflokkurinn væri í
raun ekki með nema 45—55% fylgi
og lá þar aðeins túlkun að baki en
engar tölfræðilegar forsendur. Sjálf-
stæðismenn óttast það nú mest að
fjölmargir mögulegir kjósendur
hans muni hreinlega ekki nenna á
kjörstað, flokkurinn sé það gull-
tryggður . . .
c
Wem kunnugt er hafa framboðs-
aðilar í komandi sveitarstjórnar-
kosningum undirritað samkomulag
um að viðhafa ekki pólitískar aug-
lýsingar fyrir kosningarnar. Slíkt
samkomulag hafði verið gert fyrir
þingkosningarnar 1987, en þá varð
allt vitlaust þegar Framsóknar-
flokkurinn braut samkomulagið
og hinir fylgdu í kjöifarið. Nú var allt
gert til að forða samningsbroti.
Fyrst hittust framkvæmdastjórar og
oddvitar listanna víðast hvar af
landinu og skrifuðu undir. Síðan var
baktrygging fengin með undirskrift
formanna flokkanna, þeirra Þor-
steins Pálssonar, Steingríms
Hermannssonar, Jóns Baldvins
Hannibalssonar, Ólafs Ragnars
Grímssonar og Júlíusar Sóiness.
Ekki var talin ástæða til að hafa full-
trúa frá Flokki mannsins eða
Græningjum með í ráðum, en fyrir
Nýjan vettvang undirritaði plaggið
Kristján Ari Arason. Frumkvæðið
að samningum þessum átti Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, og mun
hafa komið frá honum fróm ósk um
að samkomulagið næði einnig til
þingkosninganna á næsta ári. Um
það náðist ekki samstaða og mun
það einkum hafa verið Kristján Ari
sem stóð gegn því...
V
ið heyrum að hafnarstjórn
Reykjavíkur sé með í skoðun hjá sér
tillögur um að kanna möguleikann
á að koma upp umskipunar- og
fríverslunarhðfn í Reykjavík.
Þessar stundirnar er hafnarstjóri að
afla frekari gagna. Þá liggur fyrir að
hafnarstjórn hefur lagst gegn ósk
Gjðrva um aðstöðu fyrir flotkví í
Reykjavíkurhöfn ...
Allt ad 12 mánaða greiðslukjör
Leisurewise þrekhjólin fást á einstökum
afborgunarkjörum. Visa og Euro
korthafar geta nýtt sér raðgreiðslur og
fengið Leisurewise þrekhjól á allt að
12 mánaða afborgunum.
Leisurewise þrekhjóiin eru búin ótnl kostum:
• Tölvu sem mælir m. a. hjartslátt,
vegalengd og kaloríubrennslu.
• Sætið er stillanlegt, stöðugt og mjúkt.
• Átaksþyngdin er stillanleg.
• Ólar yfir ristar.
• Jöfn spyrna.
• Plastpúðar verja gólfið.
Breska verslunarfélagið
Faxafeni 10- Húsi Framtiðar
k 108 Reykjavík
91-82265
LEISUREWISE
1000S
áður 14.900,-
LEISUREWISE
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 10-16
PROFILE
áður 23.600,-
nú 17.900,- stgr.
nú 9.900,- stgr.