Pressan - 03.05.1990, Qupperneq 12
12
Fimmtudagur 3. maí 1990
\
Kók vinnur
Pepsí, og
þó...
■ Það geisar víðar gosdrykkja-
stríð en á íslandi. Fyrir
skemmstu voru framleiðendur
Coca-Cola t.d. að vinna mikinn sig-
ur á framleiðendum Pepsí í Banda-
ríkjunum. Eigendur Burger
King-hamborgaraveitingastaðanna
voru nefnilega að ákveða að selja
einungis drykkjarvörur frá Coca-
Cola.
Það eru um 5.400 Burger
King-veitingastaðir í Bandaríkjun-
um og hefur Pepsí verið selt á þeim
öllum, en á næstu tveimur mánuð-
um verður dæminu snúið við. Utan
Ameríku eru um 700 Burger
King-staðir og er Kók selt á þeim öll-
um.
Pó ótrúlegt megi virðast er það
álit manna að þessi breyting muni
alls ekki hafa merkjanleg áhrif á
fjárhagsstöðu fyrirtækjanna
tveggja. Þetta er ákveðinn álits-
hnekkir fyrir Pepsí, en sala þess er
hvort sem er svo mikil að þeir munu
finna lítið fyrir þessu. Hvað Coca-
Cola varðar er sala þeirra einnig svo
mikil fyrir að þessi aukning veldur
engum straumhvörfum. Já, það er
munur að vera voldugur
drópsaðferð
■ Óhugnanlegur morðingu geng-
nú laus í Kalkútta á Indlandi.
Hann er kallaður „Steinmaðurinn",
því hann myrðir fólk með því að láta
25 tii 30 kílóa stein falla á höfuð þess
þegar það sefur.
Morðinginn hefur stundað þessa
iðju sína frá því í júní á síðasta ári og
er talinn ábyrgur fyrir a.m.k. ellefu
morðum. Öll fórnarlömbin eiga það
sameiginlegt að vera fátækt úti-
gangsfólk. Hópur utangarðsmanna
hefur tekið höndum saman í leit að
Steinmanninum, ásamt 100 manna
lögregluliði, en þrátt fyrir það veit
enginn neitt um morðingjann.
Hann hefur ekki skilið eftir eina ein-
ustu vísbendingu — ekkert skófar,
ekkert fingrafar og enginn sjónvar-
vottur finnst heldur. Þó þykir líklegt
að morðinginn sé sterklega byggð-
ur, fyrst hann getur gengið um með
svona þunga steina í fanginu, og
hann virðist geta farið hratt yfir,
fyrst honum tekst ávallt að hverfa
sporlaust af vettvangi.
Fórnarlömb Steinmannsins hafa
flest týnt lífi í miðborginni. Það
IBM geislaprentari!
Skyndilega kemur ekkert annað til greina
* PC Magazine, 16. janúar 1990, bls. 117.
Hafir þú einhvern tíma velt fyrir þér að kaupa
geislaprentara, eða ef þú átt þegar geislaprentara sem
aldrei hefur uppfyllt kröfur þínar eða sem uppfyllir þær
ekki lengur þá eru hér upplýsingar sem geta komið þér að
verulegu gagni.
Frá IBM er nú kominn nýr geislaprentari i tveimur
útgáfum, IBM LaserPrinter og IBM LaserPrinter E, sem
skarar fram úr öllum þeim geislaprenturum sem fyrir
eru á markaðnum.*
U\»ð er það seui gerír þessu prentara sro sérstaka'.
Það eru meðal annars aukin leturgæði; fleiri leturgerðir en
nokkur einn notandi getur hugsanlega haft þörf fyrir;
prenthraði, sem er allt að 10 síðum á mínútu; og svo má
nefna aukabúnað eins og viðbótarbakka fyrir 500 síður og
annan til fyrir 75 umslög, þannig að hafa má bréfsefni
með haus í einum bakka, auðar síður í öðrum og umslög í
hinum þriðja og láta síðan prentarann raða öllu upp eftir
kúnstarinnar reglum. Geri aðrir betur!
F,n það er tleira:
Minni prentarans er 512 K og stækkanlegt í 1 Mb, 2 Mb og
3,5 Mb fyrir enn fleiri leturgerðir, heilsíðugrafík og
PostScript fyrir þá sem fást við útgáfustarfsemi í stórum
eða smáum stíl. Prentarinn gengur við IBM PS/2 og
flestar IBM samhæfðar tölvur (og jafnvel sumar
ósamhæfðar), IBM AS/400 og svo við hinar nýju IBM
RISC System/6000.
Og enn tleira:
Þessi prentari er nýsmíði frá grunni, og með útsjónarsemi
hefur tekist að fækka hreyfanlegum hlutum um hvorki
meira né minna en 60% í því skyni að minnka
bilanatíðni og auka rekstraröryggi. Svo er
prentarinn sjálfur minni þannig að minna pláss fer til
spillis.
Og bíddu»1ð:
Þegar hönnun þessara prentara hófst var sú ákvörðun
tekin snemma að hafa engin takmörk á
stækkunarmöguleikum. Þannig getur þú byrjað með minni
og ódýrari gerðina, IBM LaserPrinter E, og bætt síðan við
eftir þörfum þar til öllum kostum hins dýrari og öflugri IBM
LaserPrinter er náð: engin þörf á að festa fé í of
viðamiklum búnaði og heldur engin þörf á að takmarka sig
við þann prentara sem fyrst er valinn.
Að lokum: VERÐID.
Hafi þér fundist geislaprentarar of dýr lausn fyrir þig, þá er
ekki víst að þér muni þykja það lengur þegar þú hefur
kynnt þér verð og kosti LaserPrinter prentaranna frá IBM.
Hafðu samband við næsta söluaðila IBM.
Fyrstu verðlaun og
ritstjórnarverðlaun tímaritsins
PC Magazinefyrir
tœknilega yfirburði.
SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVlK SlMI 697700
fyrsta var kona á fertugsaldri, en
maður hennar hafði skilið hana eftir
sofandi á gangstéttinni á meðan
hann skrapp í burtu til að fá sér te-
sopa.
Tveir unglingsdrengir eru meðal
fórnarlamba morðingjans og voru
þeir líka sofandi á afviknum stöð-
um. Tíunda manneskjan, sem dó
fyrir hendi Steinmannsins, var hins
vegar á fjölfarinni götu, beint fyrir
framan ritstjórnarskrifstofur dag-
blaðs í Kalkútta. Þetta var 35 ára
gömul kona, sem fréttamenn fundu
þegar þeir fóru heim úr vinnunni
síðla kvölds. Höfuðkúpa hennar var
mölbrotin og stór steinn lá á gang-
stéttinni við hlið konunnar. Lögregl-
an skilur ekkert í því hvernig at-
burðurinn fór framhjá öllum þeim,
sem þarna eiga leið um.
Lögreglan er í stöðugu sambandi
við geðlækna, sem þykjast vissir um
að morðinginn sé ekki heili á geði.
Þeir telja að Steinmaðurinn njóti
þess að myrða fólk og haldi sig við
sömu aðferðina þar sem hún hefur
gefist honum svo vel. Geðlæknarnir
álíta líka mögulegt að morðinginn
hafi klofinn persónuleika.
Það hefur tafið fyrir rannsókn
málsins að rangar upplýsingar hafa
borist frá almenningi og saklausir
menn hafa jafnvel játað að hafa
framið morðin. Góðglaður opinber
starfsmaður gaf sig t.d. fram á lög-
reglustöð í janúar og sagðist vera
Steinmaðurinn. Enginn trúði hon-
um, en lögreglan neyddist samt til
að rannsaka málið gaumgæfilega til
að afsanna tilkall mannsins til þessa
óhugnanlega titils.
Ilngur
Kennedy
prifflnus
en sexý
■ Kynþokkafyllsti maður í heimi
á í erfiðleikum þessa dagana.
Það er John F. Kennedy yngri,
sem samkvæmt tímaritinu People
ber þennan titil, en honum var að
mistakast í annað sinn að fá lög-
mannsréttindi. Á þeim vettvangi
stoðar nefnilega lítið að vera með
dökku augun hennar mömmu sinn-
ar og stæltan líkama pabba síns, en
þannig lýsti tímaritið honum.
Prófið, sem John féll á, stóð yfir í
alls tólf og hálfa klukkustund og tók
tvo daga. Hann vinnur við embætti
saksóknara á Manhattan í New
York og ef hann nær ekki prófinu
næst, þegar hann reynir, verður
honum sagt upp störfum. „Ég er
greinilega ekki neitt sérstakt gáfna-
ljós í lögum," sagði Kennedy hinn
ungi og bandarísku dagblöðin leyfa
honum ekki að gleyma þeirri stað-
reynd. Fall hans á lagaprófinu var
forsíðuefni með stríðsletri, svo það
þýddi lítið fyrir kyntröllið að halda
niðurstöðunni leyndri fyrir mömmu
gömlu eða öðrum í fjölskyldunni.