Pressan - 03.05.1990, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 3. maí 1990
15
PÁSKAVIKAN í LONDON. . .
'CAllSCHARCIO Al
3*> 01HIR MMtS POBOXn
mu&HTY
mynd af stúlkukind með kampa-
vínsglas og er hún í netsokkabuxum
og sundbol einum fata, en hálsmálið
á bolnum nær alveg niður á nafla. I
texta auglýsingarinnar kemur fram
að klúbburinn sér gestum bæði fyrir
undurfögrum dans- og drykkjufé-
lögum af veikara kyninu. Þegar
betur er að gáð úir raunar allt og
grúir af auglýsingum frá „klúbbum"
af þessu tagi, sem virðast höfða sér-
staklega til karlmanna í viðskiptalíf-
inu og beitan er „töfrandi dörnur".
Kvenfólk, sem er tilbúið að borða,
drekka og dansa við einmana gest
— fyrir þóknun, sem líklega nemur
u.þ.b. vikulaunum vélritunarstúlku.
Stefnumótaþjón-
usta með ímyndun-
arafl
En nú er ekki víst að allir hafi
áhuga á því að heimsækja rándýra
klúbba, þar sem freyðivín er selt á tí-
földu verði og dans- og drykkju-
dömurnar eru gjarnan mun eldri og
þreytulegri en stúlkurnar í auglýs-
ingunum. Að sjálfsögðu hefur verið
fundin upp þjónusta fyrir þá, sem
eru á þeim buxunum: Stefnumóta-
þjónusta — þ.e.a.s. önnur grein af
sama meiði og hin fyrrnefnda.
Stefnumótaþjónustunni er líka
ætlað að bjarga fávísum ferða-
Prestar kvarta gjarnan yffir þvi að ís-
lendingar ffari frekar á skiði en i kirkju á
páskunum. í London er þó enn meira til
að glepja fólk ffrá kirkjuferðum, þvi þar
virðist Mammon einn haffa ell völd.
0898
671/2
668
0898
674/5
668
0898
676/7
668
0898
678/9
668
EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR
Páskar í London eru um flest gjör-
ólíkir páskum á íslandi. Verslanir
eru til dæmis opnar og hafa sumar
þeirra m.a.s. sérstaka páskaútsölu,
sem lýkur að kvöldi annars í pásk-
um. Og í sjónvarpinu er boðið upp á
fjölda glæpa- og gamanmynda, m.a.
á föstudaginn langa og á páskadags-
morgun. Dagskrá, sem mörgum Is-
lendingum þætti eflaust vægast sagt
óviðeigandi. Þar að auki eru nær öll
kvikmynda- og leikhús með dagleg-
ar sýningar yfir hátíðina. Krár eru
hins vegar lokaðar um miðbik föstu-
dagsins langa, en það er líka nánast
eina merki páskanna í stórborginni,
þar sem mun fleira minnir á Mamm-
on en Guð.
Drykkju- og dans-
félagar til leigu
Undirrituð ákvað að láta alla há-
tíðarstemmningu lönd og leið þetta
árið og dvelja yfir páskana í höfuð-
borg Bretaveldis. Fyrir brottförina
frá Islandi komst ég yfir eintak af
upplýsingaritinu „What’s on in
London”, til þess að kanna hvað um
væri að vera í stórborginni þessa
daga. Blaðið birtir langa lista yfir
leikrit og kvikmyndir, sem verið er
að sýna, og upptalning á veitinga-
og skemmtistöðum virðist næstum
óendanleg. En hvað gera þeir, sem
finnst innantómt að fara einir út að
borða eða stunda skemmtanalífið í
stórborginni? Jú, þeim bjóðast ýms-
ar lausnir á því vandamáli, sam-
kvæmt „What’s on’!
Aftarlega í blaðinu er fjöldinn all-
ur af auglýsingum, sem koma blá-
eygum einfeldningum frá Fróni
mjög spánskt fyrir sjónir. í einni
þeirra eru karlmenn t.d. boðnir vel-
komnir í „mest spennandi karla-
klúbb í London”. Meðfylgjandi er
Bert kvenmannshold er óspart
notað í auglýsingum karlaklúbba,
sem höfða til karlkyns ferðalanga
í London.
DATA - MATE
SPIX’IAI.IST I.INES
l'clcphonc Djting - Jusl Diul & l.islcn
Mistress/Slave Line.. 0898 446 493
Alternative Line....0898 446 494
WUMKM.INII N IO MI.N
iMaster/Slave Line... 0898 446 495]
[Alternatlve Llne.....0898 446 496 |
(• \N MEN SI IM S
Slave Line.......... 0898 <
Master Line......... 0898 <
Loather Llne........ 0898 t
Denim Llne.......... 0898 c
Rubber Llne....... 0898 <
Uniform Line....... 0898 <
Sklnhead Line...... 0898 4
Bodybuilder Line... 0898 A
D.I.Y. Line........ 0898 A
Mud/OII Line........ 0898 A
Lycra Line...........0898 A
PVC Line............ 0898 A
Sportswear Line... 0898 A
City Gent Line.... 0898 A
Chubby Line......... 0898 4
Teddy Bear Llno.... 0898 4
Clone Line......... 0898 4
Tattoo Line........ 0898 4
Biker Line......... 0898 4
Construction Line.... 0898 4
Dæmigerðar auglýsingar frá fyrir-
tækjum, sem sérhæfa sig í að para
saman fólk.
Slave Line..........0898 446 491
Mis
Ine...... 0898 446 492
*r t'nquiritk ()l • 733 9593
mannaræflum í London frá þeim
hrikalegu örlögum að vera einir
með sjálfum sér. Og þeir þurfa ekki
að koma á einhvern hæpinn
skemmtistað til að dansa og drekka.
Það nægir að hringja í ákveðin
símanúmer og þá komast einmana
ferðalangar í samband við fólk í
svipuðum hugleiðingum. Þetta á því
að virka nokkurn veginn eins og
einkamáladálkur í dagblaði, en eins
og flestir vita eru þess nú dæmi að
slíkir dálkar séu misnotaðir. Það er
hins vegar önnur saga...
Símastefnumótin eru að því leyti
ólík fyrrnefndum klúbbum að þau
eru eicki eingöngu fyrir karla. Kon-
ur geta einnig hringt í uppgefin
símanúmer til þess að komast í
kynni við karlmenn, sem til eru í
eitthvert tusk. Það eru líka sérgtök
númer fyrir samkynhneigt fólk í leit
að félagsskap, að ógleymdu tvíkyn-
hneigðu fólki, klæðskiptingum og
fleiri hópum, sem falla utan hins
hefðbundna mynsturs. í sumum
auglýsingunum geta hommar m.a.s.
hringt í um tuttugu mismunandi
símanúmer eftir því hvernig „týp-
ur’’ þeir eru, sem ber vott um sér-
deilis frjótt ímyndunarafl þeirra að-
ila sem reka þessi símafyrirtæki.
Það er t.d. sérstakt númer fyrir
homma, sem klæðast helst fötum úr
denim-efni.. Annað fyrir feitlagna
homma og enn annað fyrir þá, sem
eru hrifnir af húðflúri. Svona mætti
lengi telja.
Nuddstofur eða
hóruhús?
Upplýsingaritið „What’s on in
London’’ birtir líka mikið af auglýs-
ingum frá gufubaðs- og nuddstof-
um. Sum fyrirtækin virðast raun-
verulega bjóða upp á gufu og nudd,
en í mjög mörgum tilvikum eru slík-
ar stofur þó hreinræktuð hóruhús.
Eða hvað á maður að halda, þegar
eftirfarandi ber fyrir augu?
„Vingjarnleg, dásamlega falleg og
brjóstastór nuddkona. Hikaðu ekki
við að panta!"
„Forkunnarfalleg, ung stúlka frá
Egyptalandi mun þjóna þér, eins og
þú værir konungur.”
„Lagleg og sérdeilis hárprúð
stúlka frá Tahiti, sem nuddar þig
með öllum líkama sínum.’’
Það er sem sagt ekki veriö að aug-
lýsa nudd, heldur kynmök, og þetta
er nokkuð sem fjölmargir siðprúðir
Bretar hafa áhyggjur af. Yfir pásk-
ana var nefnilega stofnað félag á
Bretlandi, með þekktar stórstjörnur
og stjórnmálamenn í broddi fylking-
ar, í þeim tilgangi að reisa nuddið
aftur tii fyrri virðingar í þjóðfélag-
inu. Það veitir greinilega ekki af.
Það er hins vegar dálítið fyndið að
ástarsöguhöfundurinn Barbara
Cartland skuli vera fremst í flokki
þeirra, sem stofnuðu þetta nuddað-
dáendafélag í síðustu viku. Barbara
er móðir seinni konu föður Díönu
prinsessu (þetta er nú ekki svo
flókið!), en nuddstofur eru afar við-
kvæmt mál í bresku kóngafjölskyld-
unni eftir að upp komst að faðir
Söru Ferguson (Fergie) hafði verið
fastagestur á einni slíkri stofnun af
vafasömu gerðinni.
Cliff Richard
með dömu
Sem betur fer verður „venjuleg-
ur“ ferðamaður í London lítið var
við þá hlið borgarinnar, sem fjallað
hefur verið um hér að framan,
nema leita hana sérstaklega uppi.
Sumum finnst næturlífið og skugga-
hliðarnar hins vegar eitthvað kitl-
’ andi og eiga þess vegna erfitt með