Pressan - 03.05.1990, Blaðsíða 17
r
I
\-
Fimmtudagur 3. maí 1990
17
Lífshœttulegt
oð pipra?
■ Fólk í hjónabandi lifir lengur
en einhleypir. Vísindamenn
komust að þessari niðurstöðu eftir
að hafa kannað upplýsingar frá sex-
tán iðnvæddum þjóðum alit frá ár-
inu 1940.
Áður hafa verið kynntar rann-
sóknir, sem benda tii þess að hjóna-
band auki lífslíkur fólks, en þessar
nýjustu upplýsingar þykja styrkja þá
kenningu til muna. Virðist nú Ijóst
að þessi rótgróna „stofnun" viðheld-
ur heilbrigði og lengir lífið — hvorki
meira né minna.
Samkvæmt þessu virðist það því
ekkert sérlega ákjósanlegt hlut-
skipti að vera einhleypur eða frá-
skilinn. Fólk í þeirri stöðu er undir
meira álagi en giftar persónur og
eru einstaklingar á aldrinum 20 til
40 ára í alveg sérstakri áhættu, ef
þeir eru fráskildir eða hafa misst
maka sinn. Það er mun líklegra að
fólk í þeim hópi deyi en giftir jafn-
aldrar þeirra —■ og sá munur getur
jafnvel verið tífaldur. Þeir, sem aldr-
ei hafa gengið í hjónaband, eru hins
vegar í mestri „lífshættu" frá tæp-
lega þrítugu og fram yfir fertugt.
Ekki er auðvelt að segja til um af
hverju þessu er svona farið, en vís-
indamenn hafa m.a. velt þeim
möguleika fyrir sér hvort hraustir
einstaklingar giftist fremur en veik-
byggðir. Einnig gæti skýringin verið
sú, að ógiftir séu undir meira álagi
en giftir vegna þjóðfélagslegrar ein-
angrunar.
Upplýsingar frá íslandi voru ekki
notaðar í þessari samanburðar-
könnun, en hún er t.d. byggð á
gögnum frá Danmörku, Finnlandi,
Svíþjóð, Noregi, Bretlandi, Frakk-
landi, Japan, Hollandi, Þýskalandi,
Bandaríkjunum, Portúgal og fleiri
löndum.
Karlar
hrœðast
kvendraug
■ Thailenskir karlmenn láta um
þessar mundir trélíkön af getn-
aðarlimum hanga fyrir utan hús sín
og klæðast kvenmannskjólum á
kvöldin til þess að verjast illum
anda, sem talinn er valdur að mörg-
um dularfullum morðum.
Dagblaðið Bangkok Post segir
að trélimirnir hafi verið hengdir upp
í kjölfar fjölda dauðsfalla meðal
thailenskra karla og nú megi sjá slík
reðurtákn á húsum í a.m.k. sjö hér-
uðum í norðausturhluta Thailands.
Landstjóri í einu viðkomandi hér-
aða, Saisith Pornkaew, segist bú-
inn að fá nóg af þessari vitleysu og
hefur boðað fræðsluherferð gegn
hjátrú og galdrakukli. „Ég vil alls
ekki að fjölmiðlar geri grín að reð-
urdýrkendunum," sagði landstjór-
inn. „Það verður að veita þessum
mönnum siðferðislegan stuðning."
Um tvö hundruð farandverka-
menn í Singapore hafa dáið í svefni
frá árinu 1983; þar af 15 á þessu ári.
Og þeir voru nær allir frá norðaust-
urhluta Thailands. Fregnir herma
að svipuð dauðsföll hafi orðið með-
al thailenskra karla við vinnu í
Saudi-Aarabíu, Brunei og Malas-
íu. Sú saga komst síðan á kreik að
kvenkyns afturgöngu væri um að
kenna og væri hún að leita sér að
eiginmanni. Þess vegna leggjast nú
margir thailenskir karlmenn til
svefns með rauðlakkaðar neglur í
þeirri von að kvendraugurinn haldi
að þeir séu konur.
Lögbrol
að halda
framhjá
■ Húsmóðir í hafnarborg norð-
arlega í Bandaríkjunum verð-
ur ef til vill leidd fyrir rétt og ákærð
fyrir að hafa brotið löngu úrelt lög
frá 19. öld með því að halda framhjá
eiginmanni sínum. Komi til réttar-
halda í málinu á það engan sinn líka
á seinni tímum.
Konan er 28 ára gömul og heitir
Donna Carroll og býr í íhaldssömu
héraði þar sem meirihlutinn aðhyll-
ist rómversk-kaþólska trú. Hún
heldur fram sakleysi sínu og hefur
henni tekist að vinna almenning á
sitt band, ekki síst þar sem eigin-
maður hennar hefur sjálfur viður-
kennt hliðarspor í hjónabandinu.
„Það þyrfti að setja hálfa þjóðina á
bakvið lás og slá, ef slik refsing væri
við framhjáhaldi," sagði einn stuðn-
ingsmanna Donnu.
Donna hefur viðurkennt að hafa
átt í ástarsambandi við vörubíl-
stjóra, en eins og fyrr segir hefur
eiginmaður hennar einnig játað að
hafa sofið hjá öðrum konum. Þær
upplýsingar komu fram í yfirheyrsl-
um vegna deilna um forræði barna
þeirra hjóna, en þau eru nú að
skilja. En þar sem kynmök eigin-
mannsins og annarra kvenna höfðu
átt sér stað í öðrum ríkjum Banda-
ríkjanna er ekki hægt að koma þess-
um gömlu rykföllnu lögum yfir
hann.
Menn fylgjast nú spenntir með því
hver framvinda þessa sérkennilega
máls verður, en héraðsdómari hefur
þegar kveðið upp þann dóm að
Donna hafi sofið hjá vörubílstjóran-
um í algjöru óleyfi.