Pressan - 03.05.1990, Page 19
19
Fimmtudagur 3. maí 1990
„ Við erum 6U
aðleitaað
„Þeir visu menn sem fjalla um þessi
fræði segja að allir hafi hæfileika til að
vinna á sviði andlegra og jafnvel dul-
rænna málefna. Ég hef hins vegar alltaf
sagt að ég geti ekki nýtt þá hæfileika."
Þetta segir Helga ÁgústsdóHir sem á
morgun opnar þjónusfu- og fræðslumið-
stöð á sviði andlegra málefna, Hugrækt-
arhúsið.
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND EINAR ÓLASON
hafa verið að taka fyrstu skrefin á
þessari braut og mætt í ákveðinni
vörn hafa verið mjög ánægðir með
hversu andrúmsloftið er afslappað
og hvað það er auðvelt í svona hóp-
um að leggja niður megnið af vörn-
unum. Þó má enginn misskilja það
svo að hér séu á ferðinni einhver
vemmileg elsku-vina-partý, það er
langt frá því. Þarna er verið að fjalla
um áhrifin sem tengjast því að vera
manneskja, nýta hæfileikana,
skynja meðbræður sína á jákvæðan
hátt og þroska sig í samskiptum við
þá. Mér sýnist að ýmsum karlmönn-
inu verði ekki haldnir miðilsfundir:
„Hins vegar hef ég lítillega verið
með vökumiðil, sem er miðill sem
fer í hálftrans og hefur skipt yfir á
annað svið vitundar sinnar. Hjá slík-
um miðli er hægt að fá einkatíma og
uppbyggjandi leiðsögn til að takast
á við ýmsa hluti í eigin persónu-
leika, sníða agnúa af samskiptum,
og á sama hátt hafa þessir miðlar
komið á framfæri boðskap frá
fræðsluöflum á öðru tilvistarstigi.
En til að ná sambandi við ömmu og
afa þarf að leita annað."
Markmiðið með stofnun Hug-
HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR OPNAR Á MORGUN FRÆDSLU - OG
ÞJÓNUSTUMIDSTÖÐ Á SVIDI ANDLEGRA OG DULRÆNNA
MÁLEFNA ÁSAMT GUÐRUNU ÓLADÓTTUR REIKIMEISTARA
Helga segir sinn þátt vera að
koma undir eitt þak fjölbreyttu
framboði á öllu því helsta sem fólk
hefur áhuga á á sviði andlegra og
dulrænna málefna. ,,Ég sé um að fá
ábyrga, fyrsta flokks leiðbeinendur,
með menntun og/eða hæfileika og
reynslu, þannig að fólk geti gengið
að því sem vísu að þarna verði fjöl-
beytt framboð og fyrsta flokks leið-
beinendur."
Aflóga hippar
á andlegum
námskeiðum?
Ástæðu þess að hún opnar nú
Hugræktarhúsið segir Helga þá að
mikil leit sé í þjóðfélaginu og sívax-
andi áhugi á andlegum málefnum:
,,Sá misskilningur virðist vera fyrir
hendi hjá þeim sem ekki hafa kynnt
sér þessi málefni að þeir sem sækja
námskeið eða annað sem lýtur að
andlegum og dulrænum málefnum
séu aflóga hippar, fólk sem er utan-
garðs á einhvern hátt sálarlega,
ellegar óstöðugir karakterar. Þetta
er grundvallarmisskilningur. Ef litið
er inn á námskeið til dæmis um
orkustöðvarnar, næmi og innsæi
eða Michaelsfræðin þá má sjá þar
háborgaralegt, huggulegt fólk sem
engum dettur í hug annað en séu
nýtir þjóðfélagsþegnar."
Sjálf segist Helga hafa fengið
áhuga á andlegum málefnum þegar
hún var barn: „Mér hefur alltaf
fundist það auðsætt, alveg frá því ég
var lítið barn, að mannlífið, eins tak-
markað og það er, getur ekki verið
alfa og omega alls. Eg held að mað-
ur verði afskaplega fátækur af því
að ímynda sér að svo sé. Reynsla
einstaklinganna er misjöfn þegar
þeir fæðast. Þeir eru með reynslu-
sarp. Við vitum að þrátt fyrir ýmsar
skrumskælingar á Guði vitum við
að hann er algóður og hann „lætur"
ekkert fólk fæðast svona og svona
misjafnt af illmennsku sinni, heldur
þvert á móti. Guð er nefnilega al-
góður og það er ekkert refsivald
tengt honum. Hann elskar og um-
ber, hvað svo sem kann að hafa ver-
ið sagt á kirkjuþingum."
Eingöngu
leiðbeinendur með
menntun og
reynslu
Helga hefur staðið fyrir nám-
skeiðum um umrædd málefni og
þótt hún hafi ekki lært í þeim fræð-
um sjálf segist hún „aðeins hafa þef-
að af þeim“: „Mitt hlutverk hefur
hins vegar verið að skipuleggja, ég
fæ fyrirlesara og safna fólkinu sam-
an. En að ég fari að gefa mig út sem
sérfræðing um nýtingu orkustöðv-
annaeða annað viðlíka, það er af og
frá. Ég legg mikla áherslu á að fá
eingöngu fólk til starfa sem hefur
menntun og reynslu til að taka á
ýmsum viðkvæmum atriðum sem
upp koma hjá fólki. Það getur verið
hættulegt að krukka mikið í vitund-
arlíf einstaklingsins án þess að
kunna síðan að taka á allri þeirri
viðkvæmni sem kann að koma upp.
Við ætlum okkur að hafa leiðbein-
endur sem kunna að taka á slíku."
Konur hafa ekki
einkarétt á
andlega sviðinu
Á námskeiðin sem Helga hefur
staðið fyrir hefur komið fólk á öllum
aldri, og hún segir að óvísindaleg at-
hugun bendi til að flestir þeirra sem
áhuga hafa á þessum málefnum séu
á aldrinum 25—50 ára: „Námskeið-
in hafa þó margir á sjötugsaldri sótt
og ég hef sett 17 ára aldurslágmark.
Framan af voru það aðallega konur
sem sóttu námskeiðin, en karl-
mönnum fer hraðfjölgandi. Per-
sónulega tel ég það ákaflega já-
kvætt. Karlmenn eru að komast að
raun um það, sem betur fer, að við
konur höfum engan „einkarétt" á
þessu sviði og þeir karlmenn sem
um þyki þetta kærkomin hvild."
Hún fékk hugmyndina að opnun
Hugræktarhússins þegar hún sá
áhugann hjá þeim sem sóttu svo-
kölluð Michael-námskeið í fyrra:
„Þegar ég fann gleðina hjá fólkinu
yfir því að vera að takast á við eitt-
hvað skemmtilegt, nýtt og rökrétt
innan andlega sviðsins flaug mér í
hug að fyrst svo mikill áhugi væri á
þessu námskeiði hlyti að vera
grundvöllur fyrir fleiru. Margir
komu til mín með hugmyndir og
spurðu hvort ég gæti ekki staðið fyr-
ir þessu eða hinu námskeiðinu. Og
ég bæði get og vil. Ég hef mikla
ánægju af þessu. Ég hef fengist við
ýmis störf, öll tengd fólki á einn eða
annan hátt. Ég hef unnið í útvarpi,
skrifað blaðagreinar, þýtt og skrifað
bækur, unnið sem fjölskyldufulltrúi
hjá Félagsmálastofnun, starfað við
kennslu og á auglýsingastofu. Næst
á eftir unglingunum sem ég kenndi
þá er þetta þakklátasta starf sem ég
hef komist í. Það er enginn maður
yfir annan hafinn né einhver undir
annan settur."
Ekki samband við
ömmu í gegnum
Hugræktarhúsið
Helga segir að hjá Hugræktarhús-
ræktarhússins segir Helga vera að
fræða einstaklinginn, gera honum
kleift að nýta huglæga eiginleika
sína til fulls og lifa „fyllra og ég vil
segja kærleiksríkara lífi", segir hún.
Meðal leiðbeinenda sem starfa
munu á vegum Hugræktarhússins
eru Guðrún Óladóttir, meistari í
reiki, og Eria Stefánsdóttir: „Guð-
rún er meðeigandi minn en hún
mun þó ekki starfa á skrifstofunni
hjá Hugræktarhúsinu. Það sem hún
kennir er reiki, sem er japönsk að-
ferð og er í rauninni heiti á alheims-
krafti, og á námskeiðum Guðrúnar
kynnist fólk heilun, þ.e. lækningu
með hugarorku og kærleika. í reiki
er kennt hvernig hægt er að nota
orkustöðvar líkamans. Eria Stef-
ánsdóttir, sem af mörgum er álitin
einn mesti sjáandi landsins og þótt
víðar væri leitað, verður með skrán-
ingar og bókanir í gegnum Hug-
ræktarhúsið svo nokkuð sé nefnt."
Andlitslestur og
fræði töframanna
Annað sem Hugræktarhúsið mun
bjóða eru Michael-námskeið, rit-
handarlestur, andlitslestur, Sha-
manism, fræði töframanna, sjálf-
styrking fyrir karlmenn og ýmis-
legt fleira. Michael-námskeiðin seg-
ir Helga vera dæmigerða fræðslu
frá öðru tilvistarstigi: „og þau eru
alls ekki trúarbrögð. Ekkert af því
sem þarna fer fram er á einn eða
annan hátt boðað sem trúarbrögð
heldur sem eðlilegur þáttur í þekk-
ingarleit mannsins, annað ekki. Mi-
chael er fræðsluafl af öðru tilvistar-
stigi, safn ellefuhundruð sálna sem
hafa lokið þúsundum jarðvista og
hafa núna það hlutverk að kenna
okkur. Michael er afskaplega
skemmtilegt fræðsluafl, mjög skýrt
og afmarkað, meinstríðið, ákaflega
lógískt og fólk segir gjarnan að það
sé rökrétt og hægt að nota í dag-
legu lífi án þess að missa barna-
trúna. Guð og Jesú eru inni í mynd-
inni, þó ekki sé sett fram á hákirkju-
legan máta. Ég hef sagt það ein-
hvern tíma að ef við ímyndum okk-
ur að Guð sé alheimsmenntamála-
ráðherra þá sé Michael forskóla-
kennari á krummaskuði. Það er
alltaf gengið út frá hinu alkærleiks-
ríka alheimsafli. Sumir kalla það
Guð, aðrir eitthvað annað."
„Sterkara kynið"
ekki endilega
uppfullt af
sjálfstrausti
Það sem vakti mikla athygli blaða-
manns var námskeið sem Hugrækt-
arhúsið ætlar að bjóða upp á í
sjálfstyrkingu fyrir karlmenn.
Helga bendir á að fjölmörg slík hafi
verið haldin fyrir konur: „Eitthvað
svolítið mun hafa verið um svona
námskeið fyrir karlmenn, en þau
hafa ekki farið hátt," segir hún.
„Þetta er eitt af því sem ég tel að sé
bráðnauðsynlegt. Það er ekki sjálf-
gefið að sá sem á að heita „hið
sterkara kyn" sé uppfullur af sjálfs-
trausti og geti tekist á við lífið og til-
veruna af fullu öryggi. Ég held að
þessi hlutur sé svolítið vanræktur
hjá okkur og ég hef hug á að koma
upp litlum, þægilegum námskeið-
um fyrir karlmenn, að sjálfsögðu
undir íorsjá 100% fagfólks. Þar geta
karlmenn fengið sama leyfi og kon-
ur til að taka á vanmetakennd sinni.
Við erum alltaf að tala um sektar-
kenndina. Þeir hafa eitthvað ann-
að.“
Shamanism, fræði töfra-
manna, eru að sögn Helgu byggð á
ýmsum aðferðum sem frumstæðir
þjóðflokkar hafa notað til að ná
árangri, hugarjafnvægi og tengslum
við náttúruna svo eitthvað sé nefnt:
„Það eru til mjög einfaldar hugaræf-
ingar sem stuðla að andlegri og efn-
islegri velgengni og þær æfingar má
rekja til Shamanism."
Andlitslestur segir Helga ekki
ósvipaðan lófalestri nema hvað
lesið sé í alla byggingu andlitsins,
bein, vöðva, staðsetningu skynfæra
og annað, og hún segist fá mjög
góðan leiðbeinanda, Naraja Singh
Kalsa, sem er doktor í sálarfræði og
var lengi prófessor við Columbia-
háskólann.
Að sögn Helgu fer það eftir eftir-
spurn hversu oft erlendir leiðbein-
endur koma hingað, en hins vegar
leggi hún ríka áherslu á að virkja þá
krafta sem til eru hérlendis: „Og
þeir eru nokkrir sem eru fullt eins
færir og færari en erlendir. Það er
ekki endilega allt gott sem kemur
frá útlöndum."