Pressan - 03.05.1990, Síða 21
Fimmtudagur 3. maí 1990
21
Fuglar í
■ Kínverskir fuglafræðingar
með sérþekkingu á fuglum af
trönuætt munu vera afskaplega
undrandi þessa dagana. Þeir höfðu
nefnilega ávallt haldið því fram að
fuglarnir veldu sér maka til lífstiða,
en nú virðist ljóst að margir þeirra
eru síður en svo trúir þessum eina
sanna!
Trönufrú nokkur er t.d. talin hafa
yfirgefið karlfuglinn sinn, vegna
þess að hann var orðinn svo óásjá-
legur. Vesalings fuglinn átti við ein-
hvern kvilla að stríða, sem olli þvi
að hann varð afar tætingslegur.
Kvenfuglinn þoldi ekki að hafa
þennan ófögnuð fyrir augunum og
flaug á brott með villtum karlfugli,
ásamt tveimur ungum sínum. Ann-
að dæmi er um taminn karlkyns
trana, sem stakk af með villtum
kvenfugli en kom heim aftur með
allt annarri „dömu", sem síðan
stakk hann af skömmu síðar.
Fuglafræðingarnir halda því þó
fram að dæmi af þessum toga séu al-
gjör undantekning. Venjulega séu
gífurlega sterk tengsl á milli karl- og
kvenfugla af trönuætt, enda eru
fuglarnir álitnir tákn um hamingju
og langlifi i Kína.
Þess má geta að tranar, sem eru
vatnsfuglar með langan háls, hafa
nú gert sér hreiður á Bretlandi — í
fyrsta sinn í um 400 ár. Breska fugla-
verndarfélagið heldur því leyndu
hvar fuglarnir eru, svo þeir fái frið
fyrir forvitnu fólki, en þeir ku hafa
byrjað að verpa aftur á Bretlandi
fyrir níu árum, þó það hafi ekki frést
fyrr en nú.
Bítli hótað
lífláti
Bítillinn fyrrverandi George
Harrison hefur fengið morð-
hótanir í pósti, sem borist hefur á
heimili hans. (George býr í 120 her-
bergja húsi fyrir vestan London, en
sumir myndu eflaust fremur kalla
þetta höll en hús.)
I einu bréfinu stóð „Það er tími til
kominn að þú hverfir á braut" og í
öðru stóð m.a. „Bless, George!".
Bréfin fóru að berast fyrir u.þ.b. ári
og segist breska lögreglan taka þau
mjög alvarlega. George Harrison,
sem nú er 47 ára gamall, hefur að
sjálfsögðu haft töluverðar áhyggjur
af eigin öryggi frá þvi John Lennon
var myrtur í New York fyrir tíu ár-
um og þess vegna brenndi starfsfólk
hans bréfin.
Undanfarnar vikur hafa hins veg-
ar borist fimm bréf til viðbótar og þá
var ákveðið að láta lögregluna vita
af málinu. Eiginkona Bítilsins, Oliv-
ia, býr einnig í húsinu og Dhani
sonur þeirra hjóna.
Beit tunguna
úr frúnni
ítalskur ferðamaður á Grikk-
landi hefur verið sendur í fang-
elsi fyrir að bíta hluta af tungu eigin-
konu sinnar, þegar þau kysstust af
eldheitri ástríðu í aftursæti leigubíls.
Maðurinn, sem er 29 ára, heitir
Giorgio Pascanello og er hann
sakaður um líkamsárás. Dómari
mun úrskurða hvort farið verður í
mál við hann, en fram að þvi bíður
Giorgio á bakvið lás og slá.
Hjónin höfðu tekið leigubíl niður
að höfn og segir bílstjórinn að þau
hafi kysst heitt og innilega á leið-
inni. Skyndilega rak konan hins
vegar upp óp og þegar leigubílstjór-
inn sneri sér við voru farþegarnir út-
ataðir í blóði. Þau hrópuðu eitthvað,
sem gríski bilstjórinn skildi ekki, en
hann tók einfaldlega stefnuna á
næsta sjúkrahús. Þar kom í ljós að
konan hafði misst nær helming
tungunnar.
Skurðlæknir var fenginn til að
sauma saman tungu ítölsku kon-
unnar og þegar hún fékk málið aftur
var saga hennar á þessa leið: „Við
vorum að kyssast, en skyndilega
missti Giorgio alveg stjórn á sér og
fór að bíta mig. Ég reyndi að ýta
honum frá mér, en hann var sterkari
og því fór sem fór. Og sársaukinn
var hræðilegur . . .“
Giorgio skilur hins vegar hvorki
upp né niður í þessum viðbrögöum
konunnar og yfirvalda. Áður en
honum var stungið inn sagði hann:
„Ég skil ekki hvers vegna verið er
að ákæra mig. Við hjónin vorum
bara í fríi og ég varð einum of æstur,
en það er engin ástæða til að fang-
elsa mig!"
ÖL í Ein ÁR
Opið alla daga
12.00-15.00 og 18.00—01.00
föstudaga og laugardaga til 03.00
MATUR, ÖL
OG LIFANDI TÓNLIST
SUMARBUÐIR
SKÁIA
Innritun hefst fimmtudaginn 3. maí í
Skátahúsinu, Snorrabraut 60. Innritað
verður frá kl. 12.00 til 15.00 alla virka
daga. Sími 15484 og 23190.
Tímabil
1a 5. júní-12. júní %2a 12. júní-19. júní
• 3a 19. júní-26. júní
• 2a 11. júlí-18. júlí %2b 18. júlí-25. júlí
• 3a 27. júlí-3. ágúst
• 4a 8. ágúst-15. ágúst
%4b 15. ágúst-22. ágúst
Aldur
8-12 ára
Verð
Verð fyrir hvert námskeið er kr. 13.700,-
Staðfestingargjald kr. 3.700,-
greiðist við innritun.
SKRÁIÐ YKKUR SEM FYRST.
Kreditkortaþjónusta
Sumarbúðir skáta - ðlfljótsvatni
ÍBÚÐ - HÚS
Bankastarfsmadur óskar eftir
4ra—6 herb. íbúð eða húsi frá
1. júní nk. fyrir 5 manna fjöl-
skyldu.
Leigutími u.þ.b. 2 ár.
Öruggar greiðslur og einhver
fyrirframgreiðsla, ef óskað er.
Upplýsingar í síma 621162, eftir
kl. 17. Kolbrún.
TOKUM NU UPP SUMARTIMA,
AFGREnSLA TRVG6 8-4
TKYGGING HF
LAUGAVEGl 178
SÍMI621110