Pressan - 03.05.1990, Page 24
24
kynlHsdálkwrinn
Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni.
Utanáskriftin er: PRESSAN — kynlífsdálkurinn, Ár-
múla 36, 108 Reykjavík.
Er hægt að tala eðlilega
um kynlif?
Ég skal segja ykkur að það erfið-
asta í starfi mínu er að takast á við
þá staðreynd að fæstir geta talað
eðlilega um kynlíf. Ég á ekki við
þegar íslendingar eru búnir að fá
sér í glas en þá er eins og flóðgátt
opnist. Ég á við að næstum hver ein-
asta manneskja fer í sálrænan keng
þegar kynlíf ber á góma. Verstu til-
fellin eru þegar hringt er í mig og
viðkomandi getur ekki sagt annað
en „Helvítis píkan þín og tussan
þín“ í símtólið. Þá legg ég á og byrja
að spá í hvar skórinn kreppir.
Sem betur fer fæ ég ekki mörg
símtöl sem þetta — kannski svona
eitt í mánuði að meðaltali. Samt eru
þau nógu mörg til að ég finni það æ
skýrar hvað er númer eitt í kyn-
fræðslu — að gera fólki það kleift að
ræða eðlilega um kynlíf. Að það sé
álíka auðvelt og að ræða aðra þætti
mannlífsins. Kynlífið er einn mann-
legasti þáttur tilverunnar og þess
vegna er það mjög furðulegt að
flestir skuli láta eins og kynlífið sé
ekki til og að það þurfi engan um-
fjöllun.
Þörfin er augljós
Þeir sem geta ekki annað en talað
götumál eru kannski þeir sem lang-
ar virkilega að ræða málin á eðlileg-
an hátt en bara kunna það ekki. Það
má kannski líkja þessum aðstæðum
við unga konu sem gefur skýrt til
kynna að hún ætli að fremja sjálfs-
morð. En hún vill það í rauninni alls
ekki — það sem hún þarfnast er
stuðningur og sjálfsmorðsáætlunin
er hennar leið til að kalla á þá hjálp.
í hvorugu tilvikinu kann fólk að tjá
sig um þarfir sínar og tilfinningar —
þess vegna verða tjáskiptin svona
ótrúlega bjöguð.
Kvídinn hefur stjórnaö
Flest okkar eru haldin kvíða þeg-
ar kemur að kynlífsumræðu og
þessi kvíði birtist á misjafnan hátt.
Það er ekki að ósekju að fyrsta
skrefið í menntun þeirra sem ætla
að fræða aðra um kynlíf er að fá
nemendur til að komast í gegnum
sinn eigin kvíða. Því á meðan við
látum kvíðann og óöryggið stjórna
okkur erum við ekki í stakk búin til
að fræðast almennilega um kynlíf
né heldur tilbúin til að fræða aðra.
Ég hef heyrt fjöldann allan af sögum
um kennara sem, hér áður fyrr,
flettu framhjá bls. 82 — blaðsíðunni
um kynlíf. En í mars sl. var byrjað að
tilraunakenna nýtt, ítarlegt náms-
efni um kynlíf í sjö grunnskólum svo
að nú fer þetta vonandi að breytast.
Gömlu aöferöirnar
Á meðan fólk hefur ekki tekist á
við áhrif félagsmótunarinnar — sem
kveða á um að það eigi að vera erf itt
að tala um kynlíf — notast það við
tvær aðferðir til að takast á við
kvíða tengdan kynlífsumræðu.
Flosi Ólafs er einn þeirra sem hafa
notast við brandaraaðferðina með
góðum árangri en þá er hverri ein-
ustu umfjöllun um kynlíf snúið upp
í „allsherjardjók". Þá þarf maður
ekkert að stressa sig við lesturinn en
getur bara hiegið — „kvennafræði
— ha, ha!“, „karlanauðganir — ha,
ha!“, „G-bletturinn — ha, ha!“ o.s.
frv.
Hin aðferðin byggist á því að tala
svo fræðilega að enginn skilur hvað
viðkomandi er að fara. „Rannsóknir
hafa sýnt að fleiri drengir en stúlkur
onanera", er eitt dæmið. Þarna þor-
ir viðkomandi ekki að nota nafnorð-
ið „sjálfsfróun" eða sagnorðið „að
fróa sér“, líklega vegna kvíðans sem
fylgir því að nefna þessa kynhegð-
un réttu nafni. Þó er orðið „sjálfsfró-
un“ frekar lýsandi og hlutlaust, en
eldri orð eins og „sjálfsflekkun" og
„sjálfssaurgun" ekki.
Það sem ég er að benda á í þess-
um pistli er tvöfeldni okkar í kynlífs-
umræðu og um leið er ég að tjá þá
ósk mína að fóik fari að geta rætt
þessa hluti blátt áfram og hispurs-
laust — án þess að vera útúrdrukkið.
Eða hvað finnst þér?
Fimmtudagur 3. maí 1990
spáin
3. — 8. maí
(21 niurs—211. upríl/
Þú skalt hafa aö leiöarljósi bjartsýni og já-
kvæðni þessa vikuna. Liklegast er aö birtu
bregði á sviö mannlifsins sem hafa verið
ansi dökk aö undanförnu. Þú ert aö hefja
samband viö manneskju, annaðhvort nýtt
eða á nýjan leik. Þaö samband mun vara
lengi aö þessu sinni og þú getur glaðst yfir
þvi.
121. upril—20. mui)
Einhverjar likur, og ekki litlar, eru á þvi aö vin-
sældir þinar aukist verulega á næstu dög-
um. Þetta stendur i sambandi viö hitt kynið
og nú getur sko eitthvað verulega mikiö far-
iö aö gerast ef allt gengur eftir. Gættu þín þó
á því aö rækta verður öll sambönd viö aðrar
manneskjur. Ljóminn er fljótur aö fara af
þeim sem ekki hugsa um annað en sjálfa sig.
121 mai—21. júiii)
Þú ættir aö gæta þin vel á aö blanda ekki
saman imyndun og veruleika, enda sér hver
maöur aö þaö getur aldrei gengiö upp.
Reyndu aö skilja aö aöstæður eru ekki alltaf
nákvæmlega þær sem þér þykja þær vera.
Þaö eru alltaf tvær hliðar á öllum málum og
annaö fólk er gjarnt á að koma auga á þær
hliöar sem maður ekki sér sjálfur.
(22. júni—22. júli)
Þú ættir aö standa á traustum grunni sem
stendur. Þess vegna ætti aö vera nokkuð ör-
uggt fyrir þig að láta i Ijósi skoöanir þínar á
erfiðu máli sem þú hefur nokkað hugsað aö
undanförnu. Þó þú vitir aö þú gangir gegn
meirihlutanum skaltu ekki láta bugast.
Meirihlutinn hefur nefnilega oftast rangt fyr-
ir sér, eöa svo segja sumir a.m.k.
(23. júlí—22. úifúst)
Liklegt er aö þú uppskerir laun erfiöis sem
þú hefur lagt á þig að undanförnu, hvort
sem þaö verður í formi beinna launa-
greiöslna, hróss eða bara meö hlýjum hug
sem oft getur verið afar mikilvægur. Þetta
mun veröa til þess, þegar þaö verður gjört
heyrinkunnugt, aö fólk leitar frekar til þin eft-
ir en áöur ef þaö á i erfiðleikum.
(23. úfiúsl—23. sept.)
Hugsanlega eru einhverjar breytingar í að-
sigi heima fyrir, innan fjölskyldunnar. Ekki er
ráð nema i tima sé tekiö og þú skalt leggja
þig eftir því að reyna aö koma til móts viö
fjölskyldumeðlimi, meira en þú hefur gert.
Það gæti verið góður leikur að kaupa
óvænta gjöf handa ástvinum.
(23. sepl —24. ukl.)
Gættu að þvi sem er aö tjaldabaki. Þaö er
ekki alltaf allt sem sýnist, sjaldnast er það
svo reyndar. Einhver hefur hugsanlega hald-
iö vitneskju frá þér. Athugaðu vandlega öll
skjöl og gögn í þvi máli svo þú sért þess full-
viss, hver þessi vitneskja er. í þessu tilviki
getur lika veriö afar mikilvægt aö kynna sér
þaö sem er nýjast á þessu sviði. Gamlar
upplýsingar koma ekki aö fullu gagni.
Skjótt skipast veður í lofti eins og menn vita.
Þaö gerist líka hjá þér þessa dagana. Mál
sem verið hefur þér til mikillar óþurftar tekur
stakkaskiptum og liklegt er aö þú njótir þess
aö veröa hylltur sem sigurvegari þegar upp
er staðið. Láttu þetta þó ekki stiga þér til höf-
uðs. Þetta var ekki þér aö þakka, þó þú fengir
athygli í kjölfariö.
(23. nóu.—21 des.)
Þú hefur haft miklar áhyggjur aö undan-
förnu, af atvinnumálum, heilsu, likamlegu
atgervi og því hvort hæfileikinn til aö leysa
flókin vandamál sé ekki lengur til staðar. Allt
eru þetta væntanlega óþarfa áhyggjur og þú
þarft einungis að skipuleggja tima þinn bet-
ur. Mundu svo þetta litla Ijúfa hollræöi: Svo
má böl bæta aö benda á eitthvað annað.
(22. des.—20. jun.)
Þú ættir að gefa meiri gaum smáatriöum
fremur en stóru linunum i lifinu rétt sem
stendur. Smáatriöin eru mörg, en þau geta
skipt ótrúlega litlu máli. Sá sem ekki skilur
þýöingu þeirra, hann skilur heldur ekki þýð-
ingu þess sem stærra gerist. Haltu þig við
það sem þú veist i rökræðum. Annars ertu
á hálum is.
(21. junúur—19. febrúur)
Þú skalt halda þig við þau verkefni sem þú
átt óleyst. Ekki guggna þó illa gangi tíma-
bundiö. Þaö er ekkert leiöinlegra en aö eiga
ókláruð verkefni og þess vegna best að
reyna að Ijúka þeim. Aö ööru leyti viröist lífið
hiö besta hjá þér. Gættu þin þó á þvi aö
gamall vinur getur reynst flagð undir fögru
skinni.
(20. febrúur—20. murs)
Eitthvað getur hafa verið um þaö að þú hef-
ur ekki staðið viö þau loforð sem þú hefur
gefið. Þaö kann ekki góöri lukku aö stýra,
jafnvel þó þessi loforð hafi veriö minniháttar
og skipti ekki sköpum. Einhver manneskja
er að reyna aö nálgast þig, vill nánara sam-
band. Hugsaðu máliö og segöu viðkomandi
hverslags samband er þér aö skapi. Ef þú
gerir þaö ekki, þá getur miður fariö.