Pressan - 03.05.1990, Page 27
Fimmtudagur 3. maí 1990
27
kvikmyndir helgarinnar
Stöð 2 kl. 20.55
DÁÐADRENGUR
(All the Right Moves)
Bandarísk bíómynd
Gerd 1983
Leikstjóri Michael Chapman
Adalhlutverk Tom Cruise, Lea
Thompson, Christopher Penn
Cruise leikur ungan mann í mennta-
skóla sem leggur allt kapp á að kom-
ast í háskóla út á íþróttaafrek sín,
enda faðirinn námuverkamaður og
ekki peningunum fyrir að fara. Hon-
um verður vel ágengt þar til kastast
í kekki milli hans og þjálfarans sem
verður til að Cruise er rekinn úr lið-
inu. Og þá eru svo sannarlega góð
ráð dýr. Myndin er elskuleg, engin
stórmynd en alveg svona la la eins
og sagt er.
Sjónvarpið kl. 22.40
DEMANTARÁNIÐ ***
(Lassiter)
Bandarísk bíómynd
Gerd 1984
Leikstjóri Roger Young
Adalhlutverk Tom Selleck, Jane
Seymour, Laureen Hutton, Bob
Hoskins, Joe Regalbuto
Myndin segir frá manni sem fenginn
er til að njósna fyrir bandamenn á
árum seinni heimsstyrjaldarinnar í
London. Myndin er afskaplega nett
öll og smart, rennur vel en er hreint
ekkert spennandi, a.m.k. ekki sér-
lega. Samt allt t lagi fyrir þá sem
hafa á annað borð gaman af viðlíka
myndum.
Stöð 2 kl. 22.55
SPILLT VALD ****
(The Life and Assassination
of the Kingfish)
Bandarísk sjónvarpsmynd
Gerd 1977
Leikstjóri Robert Collins
Adalhlutverk Eduiard Asner,
Nicholas Pryor, Diane Kagan
Þetta er einskonar heimildamynd
um þrjú síðustu æviár Hueys P.
Long, bandarísks stjórnmálamanns
sem var ákaflega umdeildur. Hann
féll fyrir hendi morðingja um miðj-
an fjórða áratuginn og ástæður
verknaðarins eru og hafa alltaf ver-
Sjónvarpið kl. 22.15
HEIMSÓKNARTÍMI
(A Month of Sundays)
Bresk sjónvarpsmynd
Leikstjóri Allan Kroeker
Adalhlutverk Hume Cronyn,
Vincent Gardinia, Ester Rolle,
Michael Scarabelli
Tveir félagar eyða ævikvöldinu á
elliheimili. Annar er hrjáður af liða-
gigt en hinn þjáist af sífellt vaxandi
minnisleysi. Þeir hafa semsagt hvor
sinn djöful að draga en reyna að
stytta sér stundir með tafli og viskí-
drykkju. Reyndar eru þeir fremur
bitrir báðir og eiga til að vera ansi
hvassyrtir í garð hjúkrunarfólksins.
Inn í þessa sögu fléttast dóttir ann-
ars þeirra en samband hennar við
föðurinn er ekki sem skyldi.
á flakk og heljarinnar misskilningur
skapast eins og í öllum grínmynd-
um. Þetta er vel leikin mynd, veikt
handrit dregur hana hinsvegar nið-
ur.
Bein útsending frá Zagreb í Júgó-
slavíu þar sem 22 lönd leiða saman
hesta sína í keppni um það hvaða
dægurlag er það besta í Evrópu í ár.
Eða það var a.m.k. meiningin hér í
eina tíð að svo væri. Áhorfendur
verða að öllum líkindum nærri
milljarði í það heila og þeir sitja við
skjáinn í rétt um þrjá klukkutima.
Einhvern tíma á því bili kemur svo
fram hljómsveitin Stjórnin með þau
Grétar Örvarsson og Sigríði Bein-
teinsdóttur í fararbroddi og þau
flytja lagið Eitt lag enn. Kynnir verð-
ur Árthúr Björgvin Bollason.
FEIT1 K>SI
eftir Mike Atkinson
pA BR, ÞA&HOFGUU
^>iANSr4NI. - -
HRErFA 5l'ö REGLU-
L-E<£A - -.
EN PAÐ, HAr gfCKt
f-~ARAr UT i NEl hJA-R
öfgar?
ið mönnum mikil ráðgáta. Þetta er
mynd í góðu meðallagi, handritið er
veikasti hlekkurinn en leikur aðal-
leikarans aftur á móti sá sterkasti.
SUNNUDAGUR
6. maí
FIMMTUDAGUR
3. maí
Stöð 2 kl. 22.20
STRÍÐ ****
(The Young Lions)
Bandarísk btómynd
Gerd 1958
Leikstjóri Edward Dmytryk
Adalhlutverk Marlon Brando,
Dean Martin, Barbara Rush,
Montgomery Clift, Maximilian
Schell, Lee Van Cleef
Þetta þykir ein af betri stríðsmynd-
um sem gerðar hafa verið og eru
þær þó margar góðar. Myndin er
gerð eftir sögu Irwins Shaw og rek-
ur feril og örlög þriggja hermanna.
Þeir Dean Martin og Montgomery
Clift leika bandaríska hermenn en
Marlon Brando fer hinsvegar með
hlutverk ráðvillts þýsks foringja í
her nasista.
FÖSTUDAGUR
4. maí
Sjónvarpið kl. 21.55
MARIE ***
Bandarísk bíómynd
Gerö 1986
Leikstjóri Roger Donaldson
Aöalhlutverk Sissy Spacek, Jeff
Daniels, Keith Szarabajka
Myndin er byggð á sannsögulegum
heimildum og segir frá fráskilinni
konu með þrjú börn, sem flytur til
Tennessee, fær vinnu hjá fylkinu en
það renna á hana tvær grímur þeg-
ar henni verður Ijóst að spilling
hverskonar grasserar þar sem hún
starfar. Hún lætur í sér heyra um
málið en kemst þá að því að slíkri
rödd er ekki endilega vel tekið. Sag-
an er svo ótrúleg að engin tryði
henni væri hún ekki sönn. Þetta er
þétt mynd, vel upp byggð og aðeins
það að endalokin eru Ijós allan tím-
ann kemur í veg fyrir að myndin
teljist stórgóð.
Stöð 2 kl. 22.00
SAKLAUS ÁST
(Innocent Love)
Bandarísk sjónvarpsmynd
Gerö 1982
Leikstjóri Roger Young
Aöalhlutverk Melissa Sue Ander-
son, Doug McKeon, Rocky Bauer
Mynd í meðallagi, ekki meir. Segir
frá rómantísku sambandi sem skap-
ast milli nítján ára gamallar stúlku
annarsvegar og hinsvegar fjórtán
ára gamals drengs sem er snillingur
í stærðfræði og tekur að sér að
kenna stúlkunni.
Stöð 2 kl. 23.35
PUKUR MEÐ
PILLUNA **,/j
(Prudence and the Pill)
Bresk bíómynd
Gerd 1968
Leikstjóri Fielder Cook
Aöalhlutverk Ronald Neame,
Deborah Kerr, David Niven
Myndin segir frá manni sem ætlar
sér að gera eiginkonu sína barnshaf-
andi með þeim hætti að fjarlægja P-
pillu hennar en láta hana hafa aspir-
ín þess í stað. Pillan og aspirínið fara
Stöð 2 kl. 01.10
NJÓSNARINN
SEM K0MINN
ÚR KULDANUM ★ ★★V2
(The Spy who came in from
the Cold)
Bresk bíómynd
Gerö 1965
Leikstjóri Martin Ritt
Aöalhlutverk Richard Burton, Cla-
ir Bloom, Oskar Werner, Peter Van
Eyck, Sam Wanamaker
Afskaplega þétt njósnamynd, gerð
eftir samnefndri sögu Johns Le
Carré um hlutskipti njósnara í kalda
stríðinu. Myndin er blessunarlega
laus við klisjur og endurtekið efni úr
öðrum njósnamyndum. Burton þyk-
ir leika hlutverk hins þreytta en
reynda njósnara nokkuð vel. Hann
er kominn á lokasnúning og þráir
ekkert frekar en frið, en það getur
varla gengið.
LAUGARDAGUR
5. maí
Sjónvarpiö kl. 19.00
SÖNGVAKEPPNI
SJÓNVARPSSTÖÐVA
EVRÓPU 1990
dagbókin
hennar
Einu sinni liélt ég að maður myndi
alveg hætta að vera skotinn í öðru
fólki, þegar maður væri búinn að
gifta sig. En það er víst algjör della
og þess vegna er ég orðin soldið
stressuð yfir því að verða sjúklegur
framhjáhaldari eftir að ég er búin að
gifta mig. Ég er nefnilega alltaf að
verða skotin í nýjum og nýjum strák-
um og það endist sama og ekkert.
Kannski verð ég bara að hætta al-
veg við að giftast...
I áhyggjum mínum hef ég oft pælt
í því hvort mamma verði stundum
skotin í einhverjum mönnum úti í
bæ eða hvort hún varð gjörsamlega
bólusett fyrir öðrum en pabba um
leið og þau voru orðin hjón. Svo ég
ákvað barasta að spyrja hana um
daginn, þegar hún var í góðu skapi.
Og svarið kom mér svakalega á
óvart, því hún sagðist sko oft hafa
fundið soldinn fiðring fyrir öðrurh
köllum en pabba, ÞÓ hún væri
rammgift!
Ég þorði náttúrulega ekki að
spyrja hana hvort hún hefði gert
eitthvað með þessum mönnum, en
mamma sagði að maður yrði auð-
vitað ekkert blindur þó maður væri
kominn með giftingarhring. Þegar
svona gerðist yrði maður að vera
ógeðslega skynsamur og hugsa út í
hvort Jjetta væri ekki bara líkam-
legt. (Eg veit nú ekki hvert ég ætlaði
að komast, þegar hún fór út í þá
sálma!) En mamma segir að stund-
um laðist maður tryllingslega að
einhverjum týpum, án þess að vera
beinlínis ástfanginn af þeim eða
langa til að vakna með þá við hlið-
ina á sér á hverjum morgni. Þá sé
um að gera að ýta tilfinningunum
frá sér og láta kynferðislegt aðdrátt-
arafl (Guuuð. . .) ekki eyðileggja
margra ára vináttusamband, sem
búið er að byggja upp jafnt og þétt.
Mér fannst hún vera að meina
pabba, þegar hún talaði um „vin-
áttusamband", en ætlaði varla að
trúa mínum eigin eyrum. Hvernig
er hægt að vera gift einhverjum,
sem er bara eins og vinur manns?!
Ég meina.. . maður getur átt vini út
um allt, en það er ekkert spennandi
að búa með þeim! Ekki ætla ég að
giftast neinum, nema ég sé alveg of-
boðslega ástfangin af honum, verði
öll klistruð að innan þegar ég sé
hann og finni rosalegan rafmagns-
straum í brjóstunum þegar hann
horfir á mig.
Það fannst mömmu ferlega fynd-
ið. Hún segir, að þannig líði manni
bara fyrstu vikurnar á meðan ástin
sé alveg glæný og að það sé samt
eiginlega ekki almennileg ást. Raf-
magnstilfinningin sé meira svona
likamleg og geti komið þó maður
þekki strákinn næstum ekkert. Ást
sé hins vegar miklu, miklu dýpri og
komi ekki fyrr en maður þekki
strákinn ofsa vel. Svoleiðis ást verði
síðan að vináttu og virðingu og alls
konar þannig og það sé traustasti
grunnurinn fyrir hjónabönd.
Ég lét auðvitað eins og ég með-
tæki þetta algjörlega, en mikið
svakalega er ég hundraðprósent
ósammála henni mömmu. Ég hef
aldrei heyrt hrútleiðinlegri lýsingu á
ævi minni. Skítt með virðinguna og
allt það og ég fæ sko nóg af vináttu
hjá Bellu og Stínu og þeim. Mér dett-
ur ekki í hug að giftast, nema ég sé
svo sjúklega ástfangin að ég geti
hvorki borðað né sofið. Og um leið
og ég fæ lystina aftur fæ ég mér nýj-
an kall!