Pressan - 03.05.1990, Side 28
Ríkulega útbúnir bílar á frábæru verði:
Hrákr. 1.499.200 1
JÖFUR
ÞEGAR PÚ KAUPIR BÍL
Nýbýlavegi 2, sími 42600
FYRIR ÞÁ SEM VILJA LÁTA SÉR LÍÐA VEL VIÐ AKSTURINN
NÝR BÍLL FRÁ CHRYSLER - SARATOGA
A
^P^kkert lát er á gjaldþrotum
fiskeldisfyrirtækja. Nú hefur Faxa-
lax hf. í Vogum verið tekinn til
gjaldþrotaskipta. Samkvæmt heim-
ildum Víkurfrétta eru kröfur í
þrotabúið hátt á þriðju milljón
króna. Stærsti kröfuhafinn, Is-
landsbanki, á veð í eldisfiskinum
en það eru einu veðkröfurnar. Faxa-
lax náði ekki tveggja ára aldri áður
en hann leið undir lok .. .
í ú ku hinn þrautreyndi kosn-
ingastjóri Amundi Amundason
hafa verið ráðinn yfirkosninga-
stjóri Nýs vettvangs, en til þessa
hefur sá starfi hvílt á herðum þeirra
Arnórs Benónýssonar og Krist-
jáns Ara Þorvaldssonar . . .
^Íundur var haldinn í starfs-
mannafélagi Stöðvar 2 í hádeginu
í gær, þar sem samin var harðorð
ályktun í garð núverandi stjórn-
ar fyrirtækisins fyrir að hafa fyrir-
varal^ust sagt Jóni Sigurðssyni
.framkvæmdastjóra upp störfum.
Jafnframt kom fram í ályktuninni,
eftir því sem PRESSAN heyrir, al-
menn ánægja starfsmannanna með
störf Jóns, enda segja innanhúss-
heimildir að hann hafi verið mjög
vel liðinn af starfsfólkinu. Stöð 2
glatar nú stöðugt fleiri og fleiri vön-
um starfsmönnum, en á mánudag-
inn sögðu upp þeir Guðmundur
Orn Jóhannsson, yfirmaður allrar
auglýsingaframleiðslu, og Einar
Olafsson í markaðsdeild. Að auki
hefur Gísli Valdimarsson klipp-
ari gengið til liðs við Sýn hf. . . .
b_..
skaminbys.su hlaupvídd 38, fund-
ust nýlega við Langholtsveg. Það
voru börn að leik við veginn sem
fundu kúlurnar sem hafði verið
skotið úr þessu stórhættulega
vopni. Varla má búast við að aðrir
en James Bond eða þá Víkinga-
sveit lögreglunnar beri vopn af
þessu tagi. Foreldrar eins barnsins
fóru með kúlurnar til lögreglunnar,
en þar þótti fundurinn ekki merki-
legur. Löggan telur ótrúlegt að
byssuóður maður hafi leikið lausum
hala við Langholtsveg. Skýring lög-
reglunnar var sú að skothylki hefðu
verið sett í endurvinnslu hjá
Sindrastáli eftir æfingu hjá vík-
ingasveitinni. Þar hefði þeirra ekki
verið gætt sérstaklega því börn
hefðu komist í skothylkin og dreift
þeim út um allan bæ . . .
^^^ala grænu greinarinnar um
síðustu helgi mun hafa gengið með
miklum ágætum og að sögn Valde-
mars Jóhannessonar söfnunar-
stjóra hafa komið inn að minnsta
kosti 45 milljónir króna og er
Landgræðsluskógaátak 1990 því
líklega stærsta söfnun á Islandi. Haft
er eftir Valdemar Jóhannessyni að
tilkostnaði við söfnunina hafi verið
haldið í algjöru lágmarki og næst-
Saratoga - Nýr amerískur lúxusbíll
frá Chrysler sem býður upp á
þægindi, aksturseiginleika og
öryggi mun dýrari bíla.
Innifalið í verði er allur hugsanlegur
búnaður I 2,5 lítra vél með beinni
innspýtingu
♦ vökvastýri
♦ rafdrifnar
rúður og
speglar ♦
samlæsing á öllum
hurðum o.fl.
viðræður við öldungadeildarþing-
manninn víðkunna Mark O. Hatfi-
eld, en lögmennirnir leggja áherslu
á að reyna „stjórnarfarssamningá'
áður en farið yrði út í málssókn. Þá
hefur það gerst að upplýstur hefur
verið samningur á milli varnarmála-
deildar ísl. utanríkisráðuneytisins
og hersins frá 1970 um viðskilnað
hersins á Heiðarfjalli þar sem ís-
lendingar taka á sig allar skaðabæt-
ur vegna ratsjárstöðvarinnar. Má því
búast við að fiskeldismennirnir
beini kröfum sínum að íslenska rík-
inu á ný en skv. bestu heimildum
eru þær himinháar eða 150 milljón-
ir dollara (um 9 milljarðar ísl. kr.).
Eftir því sem best er vitað hafna
stjórnvaldsaðilar þessum kröfum
sem fráleitum enda hafi enn ekkert
komið í ljós sem sýni alvarlega um-
hverfismengun af völdum PCB-
efna á svæðinu. Skv. varnarsamn-
ingi verða hins vegar málaferli í
málum gegn bandaríska hernum að
fara fram á íslandi. Er ábyrgðinni þá
skipt þannig að Bandaríkin taka að
sér 85% hluta kostnaðarins og ísl.
ríkið 15% ...
í^íokkrir eigendur verðbréfa í
rekstrar- og verðbréfasjóðum
Avöxtunar sálugu undirbúa nú
skaðabótamálsókn á hendur ríkinu
eins og fram hefur komið. Aðgerð-
irnar eru til komnar eftir að niður-
staða umboðsmanns alþingis um
vanrækt eftirlit hins opinbera með
sjóðum Ávöxtunar var lögð fram.
Nokkrir verðbréfaeigendur hafa
þegar sent viðskiptaráðuneyti og
Seðlabanka kröfur um að þessar
stofnanir greiði að fullu kröfur
þeirra í sjóði Ávöxtunar. Fyrstu svör
frá ráðuneytinu og Seðlabankanum
eru þegar komin þar sem þessar
stofnanir hafna kröfunum að öilu
leyti með þeim orðum að engar
ástæður séu fyrir hendi að lögum,
sem gætu verið grundvöllur að
skaðabótaskyldu í málinu. Augljóst
virðist því að málið muni koma til
kasta dómstóla ...
um allur undirbúningur unninn í
sjálfboðavinnu. Sjálfur hefur Valde-
mar verið í launuðu starfi við átakið
í rúmt ár, en flestir aðrir sem komið
hafa nálægt söfnuninni hafa ekki
þegið laun fyrir. Þó var ráðinn
starfskraftur í hálfa stöðu frá ára-
mótum og einhverjir hafa fengið
kaup fyrir vinnu sína nokkra daga
þegar undirbúningurinn var í há-
marki. Laun Valdemars eru
leyndarmál en að sögn hans sjálfs
eru þau ekki há . . .
Þ
egar Bæjarmálafélag Sel-
tjarnarness var stofnað í liðinni
viku hélt þar meðal annarra ræðu
Arnþór Helgason. Hann kynnti
lög félagsins, og þar á meðal að ekki
mætti leggja það niður nema fyrst
færi fram atkvæðagreiðsla á- aðal-
fundi. Bætti hann síðan við að þess-
ar reglur væru settar til að eínhver
Jón Jónsson úti í bæ gæti ekki
ákveðið að nú skyldi félagið lagt
niður. Um leið og hann sleppti orð-
inu gekk í salinn Jón Jónsson,
þekktur heildsali á Nesinu, sem
löngum hefur verið orðaður við
Sjálfstæðisflokkinn . . .
A
^0Pigendur fiskeldisstöðvarinn-
ar Naustanna hf. á Langanesi
telja sig hafa orðið fyrir miklu fjár-
hagstjóni af völdum mengunar frá
dvöl bandaríska hersins á Heiðar-
fjalli, en þar var starfrækt herstöð
frá 1954—1969. Hafa þeir fengið
Jón Oddsson hæstaréttarlögmann
til að fara með málið hér gagnvart
ísienskum stjórnvöldum. Vilja þeir
að íslensk stjórnvöld reyni að ná
samningum við bandarísk stjórn-
völd um bætur enda geti dómsmeð-
ferð á málinu í Bandaríkjunum vald-
ið miklu tjóni á íslenskum fiskmörk-
uðum vestra. Þó hafa þeir einnig
fengið sér þrjá lögmenn í Washing-
ton til að fara með málið í Banda-
ríkjunum en það eru Lindsay Hart,
Neil & Weigler, virt lögfræðistofn-
un að sögn, og mun einn þeirra lög-
manna hafa verið aðstoðarmaður
Carters á forsetaárunum. Munu þeir
þegar hafa hafið byrjunaraðgerðir
vestra, m.a. með viðræðum við
þingnefnd og varnarmálaráðuneyt-
ið. Þá munu einnig hafa átt sér stað