Pressan - 24.10.1991, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. OKTÓBER 1991
.IJNDIR
OXINNI
Helgi
Guömundsson
ritstjóri og formaöur
stjórnar útgáfufélags
Þjóðviljans
— Nú takid þið
þátt i viðræðum um
stofnun nýs dag-
blaðs. Hvert er áætl-
að að framlag Þjóð-
viljans verði til hins
nýja blaðs?
„Ég held að ég
biðjist undan viðtali
um þetta mál."
— Á hvern getur
þú bent mér sem
svarar til um þetta at
ykkar hálfu?
„Ég er ekki að
benda á neinn í þvi
sambandi
— Hver er formað-
ur útgáfustjórnar-
innar?
„Ég er formaður
hennar. Málið er á þvi
stigi að ég vil ekkert
ræða það við fjöl-
miðla
— Nú eruð þið að
safna áskriftum að
Þjóðviljanum, en á
sama tima búin að
setja stefnuna á ann-
að blað, ekki rétt?
„ Eins og ég segi, þá
biðst ég undan
spurningum um þetta
mál."
Útgáfufélag Þjodviljans hefur
fengió framlengda greiðslu-
stöövun til 19. nóvember. Fyrir-
tækiö tók viö útgáfu Þjóðviljans
um siðustu áramót og hefur þvi
komist i verulega eríiöleika á að-
eins um hálfu ari. Á sama tima
og róinn er lifróður til bjargar
Þjóðviljanum eiga stjórnendur
hans i viðræðum um stofnun
nýs dagblaðs. Á tveimur mán-
uðum hefur tekist að safna um
1.400 áskrifendum að Þjóðvilj-
anum. á sama tima og unnið er
að þvi að hætta útgáfu blaðsins.
Verðbréfamarkaður íslandsbanka
Fyrr í múnuðinurn luuk
lilutafjúrúlhodi í Haruldi
Böduarssyni hf. ú Akranesi.
Það uar Verðbréfumarkaður
Islundshunku sem stóð uð úl-
hodinu en þuí luuk í ruun
meö þui uð VÍB keypti þuð
sern ekki seldisi ú ulmennum
murkuði. Ekki fcesl uppgefið
Iwersu mikið VÍB keypli þeg-
ur útboöinu luuk.
„Þetta var fjárhæð sem við
höfum ekki endanlega gefið
upp, meðal annars af sam-
keppnisástæðum. Þegar út-
boðsfrestinum lauk vorum
við enn í samningum við all-
stóra kaupendur svo við
leystum þann hluta til okkar
líka," sagði Siijurður B. Slef-
únsson, framkvæmdastjóri
VÍB. Það kom fram hjá Sig-
urði að slíkt inngrip verð-
bréfafyrirtækja væri ekki
óeðlilegt en ekki hefði verið
samið um það fyrirfram.
Hlutafjárútboðið var að
nafnvirði 60 milljónir króna
og er sölugengi bréfanna nú
skráð 3,10. Þegar útboðið fór
af stað var það skráð 3,60 og
hafði því fallið um 14% þegar
VÍB leysti bréfin til sín. And-
virði bréfanna hafði fallið úr
216 milljónum í 186 eða um
30 milljónir.
,,Við vorum búnir að reyna
að selja eins og við gátum og
ákváðum að stoppa það í bili.
Það þýddi ekki að halda því
áfram strax. Um miðjan nóv-
ember munum við byrja á
þessu aftur. Ég neita því ekki
að auðvitað hefði verið
skemmtilegra ef þetta hefði
gengið betur. Þetta er traust
og sterkt fyrirtæki í miklum
hagræðingaraðgerðum,"
sagði Sigurður.
Niðurstaða hlutafjárút-
boðsins hefur vakið nokkra
athygli, meðal annars vegna
þess að það þykir hafa sýnt
ný vinnubrögð á hlutabréfa-
markaðinum. Einnig munu
önnur verðbréfafyrirtæki
hafa haft í frammi efasemdir
um söluverð hlutabréfanna í
byrjun.
„Fyrirtækið og við tókum
þá ákvörðun að lækka verð-
ið. Við sættum okkur við dóm
markaðarins um það, en
engu að síður hafa verið
brögð að því að samkeppnis-
aðilar okkar hafi beinlínis
ráðið sumum stórum kaup-
endum, til dæmis lífeyrissjóð-
um, frá því að kaupa, bréf í
Haraldi Böðvarssyni. Maður
hreinlega veltir fyrir sér
hvers vegna. Ég vona að
þetta séu ekki aðferðir sem
eru komnar til að vera," sagði
Sigurður.
Sigurður B. Stefánsson: Samkeppnisaðilarnir réðu stórum
kaupendum frá að kaupa í Haraldi Böðvarssyni.
RLR NEI1AR AÐ SLEPPA FANGA
Konnsóknurlöyreylu ríkis-
ins oi> ríkissuksóknuri heit-
uðu uð sleppu munni úr
i’wsluuurðhuldi þrútl fvrir uð
ekki uceru lenyur forsenclur
fyrir ywsluuurðhuldin u.
Maðurinn er grunaður um
að hafa brotist inn í skart-
gripaverslun Jóns Sigmunds-
sonar við Laugaveg. Hann
hefur neitað öllum sakargift-
um.
Rannsóknarlögreglan
gerði kröfu um að maðurinn
yrði úrskurðaöur í gæslu-
varðhald á tveimur forsend-
um. Annars vegar vegna
rannsóknar á innbrotinu og
liins vegar þar sem maðurinn
er síafbrotamaöur. Sakadóm-
ur Reykjavíkur féllst á hvort-
tveggja. Lögmaður þess
grunaða kæröi úrskurö Saka-
dóms til Hæstaréttar.
Hæstiréttur féllst á gæslu-
varöhald vegna rannsóknar-
innar en ekki fyrir að maður-
inn er síafbrotamaður. Sam-
kvæmt þessu mátti hafa
manninn í gæsluvarðhaldi
allt til 30. október, eöa þar til
rannsókn málsins væri lokið.
Rannsóknarlögreglan
sendi máliö til ríkissaksókn-
ara 11. október þar sem rann-
sókn var þá lokiö.
Lögmaður mannsins krafð-
ist þess að hann yrði látinn
laus. Þeirri kröfu var hafnað.
Viö svo búið skaut lögmaður-
inn málinu til Sakadóms
Reykjavíkur. Þar var tekiö
undir kröfu lögmannsins, þ.e.
að maðurinn yrði látinn laus
úr gæsluvarðhaldinu.
Ríkissaksóknari tilkynnti
strax að hann mundi kæra
þessa niðurstöðu til Hæsta-
réttar.
Tíu dögum eftir að rann-
sókn málsins lauk tilkynnti
ríkissaksóknari að hann
hefði fallið frá fyrri ákvörðun
um að kæra til Hæstaréttar
og þar meö var hinn grunaöi
loksins laus.
Þetta er ekki allt. Namibíu-
maður hefur verið í fréttum
vegna gruns um ótrúleg
ósannindi og að hafa hlaupist
á brott frá um 200 þúsund
króna hótelreikningi auk
annarra smærri svikamála.
Að kröfu rannsóknarlögreglu
var maðurinn úrskurðaður í
gæsluvarðhald. Málinu var
skotið til Hæstaréttar, þar
sem ekki þótti líklegt að refs-
ing hans yrði tveggja ára
fangelsi eða meira, en þaö er
forsenda þess að menn séu
úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Bjorn Gretar Sveinsson. formaður Verkalyðsfelagsins Jokuls a Hofn i Homafirði. verður að ollum likindum k/orrnn formaður Verkamannasambands Islands a morgun
„Hann er skynsamur og yfirvegaöur maöur,"
sagði Hermann Hansson, kaupfélagsstjóri
á Höfn. „Björn Grétar er kraftmikill maöur og
þolgóöur. Hann tekur öllum vel og er ráöagóður.
Þá er hann vel meðvitaður um málstað skjól-
stæðinga sinna," sagði Sturlaugur Þorsteins-
son, bæjarstjóri á Höfn. Ég hef þá reynslu af
Birni Grétari að hann er áreiöanlegur og það
hefur staðið sem hann hefur sagt. Þá er hann
raunsær," sagði Þórarinn Viðar Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins. „Björn Grétar er traustur maður og
góður drengur. Hann hefur rekið verkalýðsfélag
sitt með myndarbrag og er ófeiminn við aö hafa
sjálfstæðar skoðanir," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins.
„Það verður að segjast eins og er að Björn Grét-
ar rekur verkalýðsfélagiö fyrir austan með
myndarskap," sagði virkur félagi í verkalýðs-
hreyfingunni.
Björn Grétar Sveinsson
formaöur Verkalýðsfélagsins
Jökuls á Höfn í Hornafirði
„Hann er rammpólitískur. Við höfum ekki
mikið orðið fyrir barðinu á því,“ sagði Her-
mann Hansson. „Um leið og hann hugsar vel
um málstað félaga sinna á hann til að fara
offari í hagsmunagæslu fyrir félag sitt og
félagsmenn," sagði Sturlaugur Þorsteinsson,
bæjarstjóri á Höfn. „Björn Grétar er að sumu
leyti verkalýðsforkólfur af gamla skólanum
og að sumu leyti boðberi sérhyggju, og svo
er hann alþýðubandalagsmaður," sagði Þór-
arinn Viðar Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins. „Björn Grétar
lætur ekki neinn segja sér fyrir verkum.
Hann hefur ekki um langt árabil fengist til
að fljúga. Hann hefur ekið allt sem hann
hefur farið, eða þá farið með bátum. Ég
vona að hann hafi sig upp í flugvél," sagði Ól-
afur Ragnar Grímsson, formaöur Alþýðubanda-
lagsins. „Það hefur verið ákveðið að kjósa
hann þrátt fyrir að fáir þekki hann aðrir en
þeir sem mest starfa með honum. Ég er ekki
viss um að hann sé sá sterki maður sem af
er látið og ég er alis ekki viss um að hann
sé rétti maðurinn til að veita Verkamanna-
sambandinu forystu," sagði virkur félagi í
verkalýðshreyfingunni.