Pressan - 24.10.1991, Blaðsíða 32

Pressan - 24.10.1991, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. OKTÓBER 1991 KRISTJAN ARASON Spyrjum að leikslokum Eftir nokkurra ára fjarueru, stóra sigra, frœgö og frama er hann kominn heim. Hann hefur ekki lagt boltann á hill- una, þótt hann sé kominn í krefjandi starf, og bídur spenntur eftir aö komast aft- ur almennilega í gang. í meira en áratug hefur hann ueriö þjóöareign, jafnt ungir sem aldnir hafa treyst þuí aö Kristján Arason og félagar hans í handboltanum héldu áfram aö bera hróöur þjóöar- innar uíöa. ímeira en tuttugu ár hefur handboltinn aldrei ueriö langt undan í lífi hans. Hann tilheyröi hafnfirska stjörnuhópnum, sem líklega frekar en flest annaö geröi þjóöina ad suo einstökum handboltaaödáendum að annaö eins þekkist tœplega á byggöu bóli. Þrumuskyttan Kristján Arason er einskonar Ásgeir Siguruinsson handboltans. Enginn íslenskur handbolta- maöur hefur öölast sömu frœgö eöa náö sama árangri á erlendri grundu og Kristján þrátt fyrir ágœtan árangur margra annarra. Hann byrj- aöi aö leika í meistaraflokki FH aöeins 17 ára, um þaö leyti sem skœrasta hand- boltastjarnan fyrr og síöar, Geir Hallsteinsson, uar aö hœtta. I Hafnarfiröinum uar aö gerjast þaö sem síöar átti eftir aö gjörbylta uiöhorfi manna til handboltans. Nýir menn sem áttu eftir aö setja sterkan suip á íþróttina nœstu árin uoru aö koma fram. Menn eins og Sueinn Bragason, Þorgils Ottar Mat- hiesen, Valgaröur Valgarös- son, Suerrir Kristinsson, Hans Guömundsson og fleiri. Þessir strákar komu FH á toppinn og sigruöu á íslands- mótinu tuö ár röö, árin 1983-mS. Eftir þennan glœsilega árangur hleypti Kristján heimdraganum og hefur síöan aö mestu leikiö handbolta erlendis. Og leiöin lá til Þýskalands, þar sem menn kunna dálítiö fyrir sér í handboltanum. „Ég íór fyrst til Hameln og spilaði með Jjeim veturinn 1985— 1986. Arið eftir komst ég í þýska draumaliðið Gummersbach og lék með því tvö keppnistímabil. Það hafði náttúrlega verið draum- ur að komast til Gummersb- ach, einhvers frægasta liðs í heimi í gegnum árin. Ég lenti í einhverjum vandræðum til að byrja með, meðal annars út af leikbanni, en það leystist fljótlega. Þetta tímabil, árin 1986— 1987, náðum við þriðja sæti í þýsku deildinni og árið eftir urðum við Þýska- landsmeistarar. Þetta er ógleymanlegt tímabil. Þetta sumar voru Ólympíuleikarn- ir í Seoul og ég var með ís- lenska landsliðinu, sem varð til þess að ég missti af all- mörgum leikjum og ákvað í framhaldi af því að flytja mig til Spánar. Þetta kom meðal annars til af því að Spánverjar byrjuðu deildarkeppnina seinna en Þjóðverjar og ég gat því verið með allt tímabil- ið.“ Þótt Kristján spilaði ekki lengur með þýsku meisturun- um var frægðarferillinn ekki á enda. Spænska liðið Teka, sem hann lék með, varð bik- armeistari fyrsta árið sem Kristján var í liðinu og árið eftir nældi það sér í Evrópu- meistaratitilinn. Og öll þrjú árin sem hann spilaði með liðinu varð það í öðru sæti spænsku deildarinnar. KOM ALDREI ANNAÐ TIL GREINA EN AÐ GANGA f FH En kom aldrei til greina að Kristján Arason yrði Hauka- maður í stað þess að ganga í raðir FH? „Nei, það kom aldrei til greina. Félagarnir höfðu að sjálfsögðu sín áhrif, en annars hafði ég haldið með FH frá því ég var barn svo það var engin togstreita þegar að því kom að velja á milli liða.“ Hvernig er það þegar menn hafa unnið fleiri sigra en tölu verður á komið? Eru ekki alltaf einhverjir sigrar sem standa upp úr? „Það sem líklega er eftir- minnilegast er Þýskalands- meistaratitillinn með Gumm- ersbach, svo náttúrlega Evr- ópumeistaratitillinn með Spánverjunum. En hérna heima mætti helst nefna fyrsta árið sem við urðum Is- landsmeistarar, 1983—1984. Við vorum mjög ungt lið, meðalaldurinn á milli 21 og 22 ára. Við töpuðum í einum leik í allri þessari keppni, það var ógleymanlegt tímabil." Viltu þakka árangur FH- inga á þessum tíma einhverju sérstöku? Var kannski ein- hver sérstakur sem skólaði þig til öðrum fremur? „Já, ég held að Geir Hall- steinsson hafi átt stærstan þátt í að skapa mig sem sókn- armann og hann hafði vissu- lega mikil áhrif á allt hand- boltalífið á þessum árum. En Bogdan, sem þjálfaði lands- liðið á þeim árum sem kannski má kalla gullaldarár, það er frá 1984 til 1990, er kannski sá sem fullmótaði mig sem handboltamann. Á þessum árum var meiri breidd í handboltanum en áð- ur var og liðið byggðist ekki eins mikið upp á einstökum leikmönnum og þegar Geir var upp á sitt besta. En það eru örugglega þessir tveir menn sem ég á mest að þakka um þjálfun mína sem handboltamanns." Sennilega er varla til sá anti-sportisti hér á landi sem ekki man eftir nafni Geirs Hallsteinssonar. Er Geir kannski mesti handboltasnill- ingur okkar fyrr og síðar? „Það er náttúrlega erfitt að meta það, hann var vissulega frábær sóknarmaður og hafði mikil áhrif á afstöðu manna til handboltans." Kom aldrei til greina að hætta í handboltanum og snúa sér að einhverju öðru til að fást við í tómstundum? „Nei, það kom eiginlega aldrei til greina. Þetta var allt of skemmtilegt til þess." Kristján segist strax upp úr tvítugu hafa sett stefnuna á að komast til útlanda og reyna þar fyrir sér í handbolt- anum. „Ég ákvaö þó að fara ekki út fyrr en ég hefði lokið námi hérna heima, til að hafa að einhverju að hverfa þegar ég kæmi til baka. Eftir að ég kom til Þýskalands var þetta orðin hálfgerð atvinnu- mennska, og það að fá að búa erlendis, ferðast og kynnast ókunnugum þjóðum og lönd- um var stórkostlegur hlutur. Þannig að handboltinn er ekki bara sviti og tár.“ Hann segir að það megi líta á þessi tækifæri sem einskon- ar uppbót eða laun fyrir allan tímann og æfingarnar, sem hafi kannski ekki alltaf verið léttar og skemmtilegar. „Þetta er mikil vinna og kostar strangar æfingar. Vissulega hafa komið stundir þar jem ég hef spurt; til hvers er ég að þessu? en maður uppsker eins og maður sáir. Og þegar vel gengur gleymir maður svitanum og púlinu." VÆRINGAR í KRINGUM HSÍ Á síðustu misserum hafa verið allnokkrar umræður um stöðu handboltans hér á landi. Þar ber hæst umræð- una um hrikalega fjárhags- stöðu Handknattleikssam- bandsins og menn hafa áhyggjur af því hve mikið hef- ur dregið úr aðsókn á hand- boltaleiki. Hver er skýringin á þessari stöðu? „Ég held að það hafi ekkert sérstakt farið úrskeiðis endi- lega á siðustu mánuðum. Það er kannski frekar að menn hafi verið að horfast í augu við vandann og taka á hon- um upp á síðkastið. Ég veit eiginlega ekki í hverju þessi mistök liggja, eða af hverju skuldirnar eru svona miklar og af hverju þessar upplýs- ingar hafa ekki komið fyrr fram. Það er hlutur sem for- ystumennirnir verða að svara fyrir og ég vil ekki blanda mér í þau mál, ég ætla að minnsta kosti ennþá að halda mig bara við íþróttina." Kristján segir að vissulega megi segja að stór liður í þessu sé kynning vegna heimsmeistaramótsins sem fyrirhugað er að halda hér 1985. „Ég legg mikla áherslu á að fá þessa keppni. Ef HSÍ getur ekki haldið hana er það ekki bara slæmt fyrir handbolt- ann, heldur fyrir allt íþrótta- starf hér á landi. Það er ein- stakt tækifæri að fá að halda svona mót í íþrótt sem er mjög vinsæl, og ef okkur tekst ekki að standa við það er hæpið að svona tækifæri bjóðist aftur á næstunni." Það að dregið hefur úr að- sókn á leiki fyrstu deildar seg- ir Kristján að megi sennilega tengja því að íslendingar komust ekki áfram til að fá að keppa í Ólympíuleikunum sem haldnir verða í Barcel- ona næsta sumar, auk þess sem ýmislegt hafi ekki verið nógu heppilegt í skipulagi ís- landsmótsins í fyrra. En hann segist vongóður um að á þessu verði breyting í vetur og megi nú þegar sjá þess nokkur merki. „Ég held því að handboltinn sé að koma upp aftur." ALKOMINN HEIM ...? Eftir rúmlega sex ára dvöl í útlöndum er hann kominn heim, búinn að ráða sig í ábyrgðarmikið starf hjá ís- landsbanka. Er handbolta- ferfinum þar með lokið? „Nei, alls ekki. Ég er búinn að ráða mig sem þjálfara hjá meistaraflokki FH ásamt því að spila með liðinu. Ég ætlaði að draga úr spilamennskunni og einbeita mér meira að þjálfun, en við misstum menn úr liðinu, þannig að ég varð að fara að púla aftur." Þegar ég spyr Kristján hvort þessir menn hafi kannski hætt af því hann gerðist þjálfari svar- ar hann brosandi að það sé nú tæplega skýringin, bæði hafi menn farið til útlanda og fleira hafi komið til eins og gengur og gerist í þessum bransa. En á Kristján von á því að hann eigi eftir að reyna enn frekar fyrir sér með erlend- um liðum? „Nei, það held ég tæplega, þetta var orðið ágætt. Maður veit náttúrlega aldrei hvað getur gerst. Það höfðu nokk- ur lið samband við mig eftir að ég var kominn heim, en það kom ekki til greina núna í ár. Ég gæti kannski hugsað mér seinna meir að fást eitt- hvað við þjálfun erlendis, en við verðum bara að sjá til hvað verður." Var einhver sérstök skýring á því að þú hættir einmitt núna hjá spænska liðinu, eftir frábæran árangur liðsins síð- ustu misserin? „Mig var bara hreinlega farið að langa heim, ég var orðinn þreyttur á dvölinni ytra. Þegar ég fór út hugsaði ég mér að vera í mesta lagi fjögur ár, en þau voru orðin sex, og þetta var gott í bili." Það hefur vakið óskipta at- hygli handboltaunnenda að Kristján hefur ekki gefið kost á sér í landsliðið að þessu sinni. Er þeim kapítula kannski lokið? „Ástæðan núna er fyrst og, fremst tímaskortur, en hvort þetta er til frambúðar verður bara að koma í Ijós. Ég reikna með því að heyra í landsliðs- þjálfaranum um áramótin og er ekki best að halda sig við þetta sígilda og segja: Við skulum bara spyrja að leiks- lokum." Björn E Hafberg

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.