Pressan - 24.10.1991, Qupperneq 43
óstur og sími hefur haft í hót-
unum við fjóra aðila sem gefa út
símaskrár í bæjarfélögum sínum.
Póstur og sími krefst
40 þúsund króna
greiðslu fyrir hverja
blaðsíðu sem gefin
er út á þennan hátt.
Þeir sem Ólafur
Tómasson, póst- og
símamálastjóri, hef-
ur hótað aðgerðum eru Ungmenna-
félag Grindavíkur, íþróttabandalag
Keflavíkur, Knattspyrnufélag Akur-
eyrar og Gunnar Berg á Akureyri.
Gunnar er vanur útgefandi, en hann
er ritstjóri vikublaðsins „Gagns og
gamans" á Akureyri...
á hefur Ólafur Helgi Kjart-
ansson tekið við sem fógeti á ísa-
firði. Þar með er laus staða skatt-
stjóra á Vestfjörð-
um. Búið er að setja
Kristján Gunnar
Valdimarsson,
starfsmann í fjár-
málaráðuneytinu, í
starfið til bráða-
birgða, eða til næstu
mánaðamóta...
E
Æ^tns og kunnugt er ákvað
menntamálaráðherra, Ólafur G.
Einarsson, að engin kennsla yrði í
Reykjanesskóla við
ísafjarðardjúp í vet-
ur. Heimamenn ótt-
ast að skólinn verði
ekki nýttur aftur. í
blaðinu Bæjarins
besta á ísafirði er
grein eftir Jón
Bjarna Geirsson lögreglumann,
þar sem hann stingur upp á því að
Lögregluskólinn verði fluttur vestur.
Jón Bjarni segir alla aðstöðu vera til
JEPPA
HJÓLBARÐ-
ARNIR
VINSÆLU
ttHANKOOK
Jeppahjólbarðar
frá Suður-Kóreu:
215/75 R15 kr. 6.550
235/75 R15 kr. 7.460
30- 9,5 R15 kr. 7.950
31- 10,5 R15 kr. 8.950
31-11,5 R15 kr. 9.950
33-12,5 R15 kr. 11.600
Hröö og örugg
þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogl 2 - Royfcjavfk
V Stma/81-30501 og »1-84644 M
staðar. Þrátt fyrir að hugmynd Jóns
Bjarna sé góðra gjalda verð er hætta
á að hún fái lítinn hljómgrunn .. .
s
k^egja má að fáir menn seu
langræknari en Sigmund, teiknari
Moggans. Eftir að Steingrímur
Hermannsson
sagði að sér þætti
vellingur góður
teiknar Sigmund
hann ekki öðruvísi
en með sleif. Það
muna sjálfsagt fæst-
ir hvenær Stein-
grímur lét þessi orð falla, en hann er
enn með sleifina á teikningum Sig-
munds. Þá losnar Jón Baldvin ekki
við drullusokkinn og tappatogar-
ann. Það muna eflaust allir af hverju
þessir hiutir fylgja Jóni Baldvini.
Það eru ekki allir jafnir fyrir Sig-
mund. Eftir allt uppistandið i kring-
um Davíð Oddsson og móttökuna
frægu hefði mátt ætla að Davíð
fengi eitthvað sem minnir á drykkju
á teikningum Sigmunds en svo er
ekki, að minnsta kosti ekki enn sem
komið er ...
*
I nýjasta Vökublaðinu er sagt frá
launamálum núverandi formanns
Stúdentaráðs, sem Vökumenn telja
dæmigerð fyrir sið-
leysi Röskvumanna.
Formaðurinn,
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, er
sögð hafa stutt það í
fyrra að formaður
SHÍ fengi aðeins
46.000 krónur á mánuði í laun, en
þá voru Vökumenn í stjórn. Nú þigg-
ur Steinunn hins vegar 120.000
krónur í mánaðarlaun, eða sömu
laun og forveri hennar ...
Nintendo
Nú er hægt að breyta
N I N T E N D O
leikjatölvum
fyrir öll leikjakerfi
Upplýsingar í síma 666806
PRESSU R E
Borgarkringlunni
D O N ’ T
C R A C K
U N D E R