Pressan - 31.10.1991, Page 3
FIMMTUDAGUR PRMSSAN 31. OKTÓBER 1991
3
lin af hugmyndunum sem varp-
að hefur verið fram í viðræðum
Haraldar í Andra við Þjóðvilja- og
Tímamenn um nýtt
dagblað er að senda
öllum áskrifendum
Stöðvar 2 helgarút-
gáfu blaðsins. Fyrir-
hugað er að það
muni kosta um 250
krónur um helgar.
Áskrifendur Stöðvar 2 fengju það
fyrir 500 krónur á mánuði. Þeir
yrðu hins vegar ekki spurðir að því
hvort þeir vildu það eða ekki. Hug-
myndin gengur út á að hækka
áskriftargjöld Stöðvar 2 um þessar
500 krónur. Ef áskrifendur vildu
losna við blaðið yrðu þeir að segja
upp sjónvarpsáskriftinni jafn-
framt. ..
MT að vakti nokkra athygli starfs-
manna Ríkisútvarpsins þegar
Heimir Steinsson kom fyrst til
starfa sem útvarps-
stjóri að hann mætti
með eiginkonu sína,
Dóru Þórhalls-
dóttur, á flesta
fundi. Starfsmenn-
irnir höfðu á orði að
það væri eins og
Heimir væri ekki að koma til vinnu
heldur í opinbera heimsókn. Dóra
hefur einnig verið kölluð húsmóðir
útvarpsins ...
s
l^erfræðingur fra Levis er stadd-
ur hér á landi. Hann kemur frá
Bandaríkjunum og var fenginn
hingað til að skoða
hinar umdeildu Lev-
is-buxur sem seldar
voru hér á landi í
sumar og grunur
leikur á að séu ekki
Levis, heldur
ómerkileg eftirlík-
ing. Gallabuxnasérfræðingurinn
verður yfirheyrður af rannsóknar-
lögreglu þegar hann hefur skoðað
buxurnar. Þá munu lögmaður Levis
á íslandi, Viðar Mór Matthíasson,
og lögmaður sölumannanna, Hró-
bjartur Jónatansson, einnig yfir-
heyra sérfræðinginn. Eftir allt þetta
á að koma í ljós hvort buxurnar eru
Levis-buxur eða ekki Levis-buxur.
Ef þær eru ekki Levis fá sölumenn-
irnir þær afhentar. Þá er líka botn-
inn dottinn úr þessu máli, en sem
kunnugt er var hald lagt á buxurnar
með miklum bravúr í sumar er
leið...
N
X ^ eytendasamtök Suðurnesja
létu kanna verð í þremur stórmörk-
uðum á Suðurnesjum í byrjun okt-
óber. Eitthvað skolaðist fram-
kvæmdin til, því að í könnun sem
birtist í Víkurfréttum víxlaðist verð
Stórmarkaðar Keflavíkur og Hag-
kaups. Stórmarkaðurinn var þar
sagður með lægsta verðið en með
réttu bar Hagkaup sú sæmd. Hag-
kaupsmenn eru allt annað en
ánægðir með Neytendasamtökin
þessa dagana og Jónas Ragnars-
son, eigandi Stórmarkaðar Kefla-
víkur, segir í samtali við Suðurnesja-
fréttir að hann sjái ekki ástæðu til
frekari samvinnu við Neytendasam-
tök Suðurnesja um verðkannanir
vegna klaufalegra og óábyrgra
vinnubragða þeirra ...
N
X ^u hefur prentsmiðja Guðjóns
Ó. hf. fengið samþykkta greiðslu-
stöðvun í mánuð. Greiðslustöðvun-
in kemur mörgum á óvart, enda hef-
ur Guðjón O. haft mikinn fjölda
traustra viðskiptavina eins ogSeðla-
bankann og Landsvirkjun. Astæða
bágrar stöðu prentsmiðjunnar er sú
að hliðarfyrirtæki Sigurðar Nor-
dal, sem hefur verið framkvæmda-
stjóri Guðjóns Ó., er íslensk upplýs-
ing, sem hefur átt í miklum erfið-
leikum undanfarið. Fyrirtækið hef-
ur meðal annars ekki getað komið
út Gulu bókinni fyrir 1991, þrátt fyr-
ir að hafa selt í hana mikinn fjölda
auglýsinga...
Námsmenn hafa alla tíS veriS vakandi yfir hags-
munum sínum og rétfindum. StöSugt hafa þeir bent
á leiSir til aS bæta skólakerfiS og skilyrSi til náms.
Námsmannalína BúnaSarbankans kemur til móts viS
þörf námsmanna fyrir fjárhagslegt öryggi. Allir
nemendur 18 ára og eldri eiga kost á aS skrá sig
í Námsmannalínuna.
Námsmannalína Búna&arbankans:
• Framfærslulán til fyrsta árs nema fram aS
fyrstu lánveitingu frá LIN
• Yfirdráttarheimild
• Námsstyrkir til námsmanna í framhaldsnámi
• 750 þúsund króna námslokalán
til húsnæSiskaupa
• Gullreikningur • GreiSslukort
• Fjármálará&gjöf • Gjaldeyrisþjónusta
• Lán vegna búsló&aflutninga
• Millifærslukerfi vegna endurgreiSslu námslána
• Vi&skiptayfirlit • Vegleg skipulagsbók
°oo*
Kynntu þér málið nánar!
NAMS
>
LÍNAN .4
($) BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki