Pressan - 31.10.1991, Page 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31.0KTÓBER 1991
GJALDÞROT
AUFOSS
FERTIL
Ríkissaksóknara verður
send skýrsla vegna
gjaldþrots Álafoss. Hann
mun ákveða eftir skoðun
hennar hvort forráðamenn
fyrirtækisins hafa gerst brotlegir
við lög. Það sem helst er horft á er
áætlanagerð hjá fyrirtækinu. Allt
bendir til þess að höfðað verði mál
vegna ágreinings um hvort
Framkvæmdasjóður skuldar 30 milljónir
króna í þrotabú Álafoss.
SAKSOKNARA
Ákveðið hefur verið að ríkissak-
sóknara verði send skýrsla vegna
gjaldþrots Álafoss. Athygli hans
verður meðal annars vakin á áæti-
anagerð innan fyrirtækisins, mati á
eignum þess og fleiru. Þetta hefur
PRESSAN eftir áreiðanlegum heim-
ildum. Það er síðan ríkissaksóknari
sem metur hvort ástæða er til að
höfða opinbert refsimál á hendur
forráðamönnum fyrirtækisins.
Eins og kunnugt er er staða þrota-
bús Álafoss afar veik. Kröfur í búið
eru nálægt tveimur og hálfum millj-
arði en eignir þess nánast engar.
Ágreiningur er um hvort Fram-
kvæmdasjóður skuldar enn 30 millj-
ónir króna í hlutafé inn í fyrirtækið.
Fyrsti skiptafundur þrotabúsins
verður næsta miðvikudag. Á fund-
inum er líklegt að tekin verði
ákvörðun um að höfða mál á hend-
ur Framkvæmdasjóði vegna þessa
ágreinings.
Þóröur Friðjónsson. Hann er stjórnar-
formaöur Framkvæmdasjóös og var í
forystu í sameiningunni og því sem á
eftir fylgdi.
Álafossmálið er talið stærsta
gjaldþrot íslandssögunnar og ljóst
að forráðamenn fyrirtækisins hafa
valdið gríðarlegu tjóni með von-
lausum rekstri. Þá hafa íslensk
stjórnvöld átt aðiid að málinu. Tveir
stjórnmáiamenn, Steingrímur Her-
mannsson og Jón Sigurdsson, hafa
haft talsverð afskipti af fyrirtækinu
á síðustu árum.
ÁLAFOSS FER í RANNSÓKN
Eins og áður sagði er fullvíst að
ríkissaksóknari fær Álafossmálið til
skoðunar. Meðal þess sem kemur til
álita að rannsaka er áætlanagerðir,
mat á fasteignum, lausafé og lager-
um.
Það þarf í sjálfu sér ekki að koma
á óvart að ríkissaksóknari skuli fá til
skoðunar gjaldþrotamál þar sem
skuldirnar eru um tvö þúsund millj-
ónum króna hærri en eignirnar.
Þegar þetta gjaldþrot er skoðað
Sigurður Helgason. Hann var stjórn-
arformaður Alafoss frá stofnun 1.
desember 1987 og til gjaldþrotsins
um mitt ár 1991. Hann var fulltrúi
Framkvæmdasjóðs í stjórninni.
verður að hafa hugfast að fyrirtæk-
ið, Álafoss hf., er aðeins um fimm
ára gamalt. Það var stofnað eftir
sameiningu hins gamla Álafoss og
ullariðnaðardeildar Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga. Allt hluta-
fé er að sjálfsögðu glatað. Staða Ála-
foss er hreint ótrúleg, en reksturinn
hefur gengið illa frá upphafi.
„Það fyrsta sem gert var eftir sam-
eininguna var að láta endurmeta
eignirnar, allar eignirnar, þar sem
greinilegt var að þær höfðu verið of-
metnar og því lagt af stað á röngum
forsendum," sagði einn þeirra sem
starfað hafa við stjórnun fyrirtækis-
ins.
Sem dæmi má nefna að við sam-
eininguna voru birgðir, þ.e. vörulag-
er, metnar á söluverði og síðan af-
skrifaðar um 17,5 prósent. Stór hluti
af lagernum var gömul tískuföt, sem
án alls efa voru verðlítil ef ekki verð-
laus. Eigi að síður var lagerinn að-
Gylfi Þ. Gíslason. Hann átti sæti i
stjórn ailan tímann.
eins afskrifaður um 17,5 prósent.
Þegar um svo stórt gjaldþrot er að
ræða er eðlilegt að spurt sé hvort
ábyrgðin sé ekki einhverra.
FRAMKVÆMDASJÓÐUR Á ENN
Á HÆTTU AÐ TAPA
Við sameininguna greiddu stofn-
endurnir meðal annars hlutafé sitt í
útistandandi kröfum. Þær kröfur
sem ekki fengust greiddar áttu
stofnendur að leysa til sín um mitt ár
1989.
Nú eru uppi deildar meiningar um
hvort Framkvæmdasjóður hafi leyst
til sín hluta af þeim útistandandi
kröfum sem sjóðurinn setti inn í fyr-
irtækið. Verðmæti þessara krafna
mun vera um 30 milljónir króna.
Þrátt fyrir að mjög deildar skoð-
anir séu um kröfurnar er fastlega
gert ráð fyrir að höfðað verði mál til
að fá úr því skorið fyrir dómi hvort
Framkvæmdasjóður þarf að standa
Guðjón B. Olafsson. Hann var annar
fulltrúa Sambandsins í stjórn Ála-
foss.
skil á þessum peningum eða ekki.
Það er eðlilegt að allra leiða verði
leitað. Hafa verður í huga að Álafoss
á ekki fyrir skiptakostnaði, eða með
öðrum orðum; þrotabúið á ekki fyr-
ir eigin jarðarför.
Það kemur væntanlega til kasta
fyrsta skiptafundar, sem verður á
Ákureyri 6. nóvember, að ákveða
hvað gert verður varðandi deiluna
við Framkvæmdasjóð.
Eins og kunnugt er var Fram-
kvæmdasjóður annar aðaleigandi
Álafoss.
EKKI ALLT SEM SÝNIST
Þrátt fyrir stærð gjaldþrotsins,
sem er eins og áður sagði nærri
tveir og hálfur milljarður króna, er
vitað að ekki er allt þar með talið.
Þar sem löngu er ljóst að Álafoss
hefur aldrei átt fyrir þeim skuld-
bindingum, sem forráðamenn fyrir-
tækisins hafa att því út í, hafa ekki
Steingrímur Hermannsson. Hann var
tryggur stuðningsmaöur Álafoss og
beitti sér oftar en einu sinni fyrir op-
inberri aðstoð til handa fyrirtækinu.