Pressan - 31.10.1991, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991
Landsvirkjun
Viö Blönduvirkjun
eru aö rísa starfs-
mannabústaöir
sem fullbúnir
munu kosta um
300 milljónir
króna. Um er aö
ræöa tvö hús —
annars vegar ein-
býlishús fyrir stööv-
arstjórann og hins
vegar fjölbýlishús
fyrir aöra starfs-
menn. Viö virkjun-
ina er gert ráö fyrir
14 ársverkum en
þrátt fyrir þaö má
œtla aö örfáir
starfsmenn búi aö
*
jafnaöi í húsinu. I
fjölbýlishúsinu er
einnig gert ráö fyr-
ir gistiaöstööu fyrir
sumarstarfsfólk og
vinnuhópa sem
koma á svæöiö í
*
skemmri tíma. I
húsinu eru gufu-
baö, líkamsrœktar-
stöö og fundarsalur.
Við Blönduvirkjun hafa verið
reistir starfsmannabústaðir sem
eiga fáa sína líka á íslandi. Um er að
ræða bústaði fyrir örfáa fasta starfs-
menn að verðmæti um 300 milljónir
króna. í raun hefur aðeins einn
starfsmaður fasta búsetu á svæðinu,
en það er stöðvarstjórinn. Vegna
þess hefur verið reist einbýlishús
fyrir hann en auk þess hefur verið
reist hús með hótelsniði fyrir aðra
starfsmenn, sem eru að jafnaði þrír
í einu vegna sjálfrar starfsemi virkj-
unarinnar. Þar eru mötuneyti, gufu-
bað, heitur pottur og líkamsræktar-
stöð.
Nú er unnið að frágangi við þetta
húsnæði en þegar er hafin búseta í
stærra húsinu. Við vígslu Blöndu-
virkjunar fyrir mánuði gistu einmitt
stjórnarmenn Landsvirkjunar í
þessu húsi. Þar er reyndar fundar-
salur sem er gerður með það í huga
að stjórn fyrirtækisins geti hist þar.
Ibúðarhúsnæðið við Blöndu er
byggt með það fyrir augum að
starfsmenn hafi ekki fasta búsetu á
svæðinu, fyrir utan stöðvarstjórann,
eins og áður var sagt. Þetta er í takt
við þá stefnu sem Landsvirkjun hef-
ur tekið með seinni virkjunum sín-
um.
Þá er ætlunin að allir starfs-
mannaskúrar hverfi af svæðinu, en
þeir hafa verið íverustaðir starfs-
manna Landsvirkjunar og verktak-
anna á svæðinu undanfarin ár. Þess
má geta að Landsvirkjun þurfti að
greiða skipulagsgjöld af skúrum
þessum til sveitarfélaganna fyrir
norðan, eins og þetta væru varan-
legir bústaðir. Þetta gerist þó að
sveitarfélögin beri engan kostnað
og munu slíkar kröfur ekki hafa
komið fram áður á byggingarsvæð-
um Landsvirkjunar.
NOKKUR HUNDRUÐ
FERMETRAR Á STARFSMANN
Nú í september var bókfærður
kostnaður vegna starfsmannahús-
anna kominn upp í 224 miiljónir
króna. Varlega áætlað má gera ráð
fyrir að sú tala fari upp í 260 til 300
milljónir, lokaupphæðin gæti allt
eins orðið hærri.
Stærð húsanna er samtals 2.538
fermetrar en rúmmetramálið er
8.091 rúmmetri. Það má því segja
að um 600 fermetrar séu á hvern
starfsmann. Rétt er þó að taka fram
að fimm bílskprar eru undir stærra
húsinu. Einbýlishúsið er 203 fer-
metrar með bílskúr. Framkvæmd-
um við það er ekki lokið.
Byggingarverktaki er SH-verktak-
ar úr Hafnarfirði, þeir sömu og sáu
um stóran hluta Perlunnar í Öskju-
hlíð. Tilboð þeirra var töluvert undir
kostnaðaráætlun en samningsupp-
hæðin á grunnverði í mars 1990,
þegar tilboðið var gert, upp á 232,8
milljónir. Á verðlagi í október er
hún 258,8 milljónir.
Inni í þeirri upphæð er ekki hönn-
unarkostnaður og þá er eftir að
kaupa húsgögn í húsið. Bráðlega er
fyrirhugað útboð vegna þess.
TVEGGJA HERBERGJA SVÍTA
FYRIR GESTI
Kostnaður vegna innréttinga er
verulegur, en í húsinu er glæsilegt
mötuneyti auk líkamyæktarað-
stöðu. Þá eru gufubað og heitur
pottur til staðar, auk fundarsalarins,
sem áður var getið.
Starfsmannahúsið er á þremur
hæðum og skiptist þannig: Á 1. hæð
eru eldhús, matsalur, fundaher-
bergi, setustofa, frístundaherbergi
(líkamsræktaraðstaðan) og aðstaða
til kynningar á virkjuninni fyrir
gesti. Á 2. hæð eru 17 herbergi sem
eru ætluð föstum starfsmönnum, 6
herbergi fyrir lausamenn og ein
tveggja herbergja íbúð fyrir gesti.
A 3. hæð eru 8 herbergi ætluð
vinnuflokkum, samtals 23 rúm. í
húsinu eru því 32 herbergi til gist-
ingar.
Eins og áður segir er bókfærður
kostnaður húsanna í september 224
milljónir. Miðað við stærð þeirra eru
það 88.416 krónur á fermetra. Það
er verulega dýrara en vísitöluhúsið,
en þar er fermetraverðið 58.440
krónur. Þá má gera ráð fyrir að bók-
færða verðið eigi enn eftir að
hækka
KOSTNAÐURINN
GAGNRÝNDUR I STJÓRN
LANDSVIRKJUNAR
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR var ætlunin að þessir starfs-
mannabústaðir yrðu jafnvel enn
veglegri, en vegna gagnrýni innan
úr stjórn Landsvirkjunar var fallið
frá því.
Munu fyrirspurnir hafa komið
fram í stjórninni vegna framkvæmd-
anna við starfsmannaíbúðirnar og
þær þótt dýrar. Bygging þessara
íbúða er þó í samræmi við þá stefnu
sem Landsvirkjun hefur tekið eftir
að framkvæmdum við Búrfellsvirkj-
un lauk.
Við Búrfellsvirkjun voru reist 14
einbýlishús á sínum tíma fyrir starfs-
fólk, en síðan hefur ekki verið byggt
fyrir fjölskyldur við virkjanir —
hvorki við Sigöldu né Hrauneyjar-
foss. Við Blönduvirkjun er gert
ráð fyrir að verði átta starfsmenn,
auk stöðvarstjóra. Þrír menn verða
á vakt hverju sinni og þrír á bak-
vakt. Þá verða tveir starfsmenn við
mötuneyti og þrif. Hver starfsmaður
fær útdeilt herbergi sem hann hefur
einn til afnota — það er að segja
enginn annar fer í það þótt viðkom-
andi sé ekki á svæðinu.
RÚMLEGA 600 MILUÓNIR
FARIÐ í UPPGRÆÐSLU
Á AUÐKÚLUHEIÐI
Opinber niðurstöðutala á fram-
kvæmdum við Biönduvirkjun er
13,2 milljarðar króna. Við gangsetn-
ingu fyrstu vélasamstæðu virkjun-
arinnar í októberbyrjun var því
haldið fram að kostnaður við virkj-
unina væri hálfum milljarði undir
kostnaðaráætlun.
Ef satt er þá er um að ræða
ánægjuega staðreynd, því margt við
Blönduvirkjun hefur orðið mun dýr-
ara en ráð'var fyrir gert. Munaði þar
mest um samningshörku heima-
manna út af því landi sem fer undir
vatn uppi á heiðum.
í PRESSUNNI hefur áður verið
sagt frá gífurlegum kostnaði Lands-
virkjunar vegna uppgræðslu á Auð-
kúluheiði og Eyvindarstaðaheiði
við Blönduvirkjun. Þessi upp-
græðsla er til komin vegna samn-
inga, sem eru að mörgu leyti ein-
stæðir af hálfu Landsvirkjunar.
í desember 1990 hafði verið varið
í framkvæmdir á Auðkúluheiði
542,1 milljón króna og í ár var ætl-
unin að verja í þær 67 milljónum
króna til viðbótar. Kostnaður Lands-
virkjunar við Auðkúluheiði eina og
sér er því kominn yfir 600 milljónir
króna og á enn eftir að hækka. Er til
dæmis gert ráð fyrir að Landsvirkj-
un eyði 30 milljónum króna á ári til
að viðhalda því ræktarlandi sem bú-
ið hefur verið til. Þessi upphæð fell-
ur væntanlega inn í 800 milljóna
króna ársrekstrarkostnað Blöndu-
virkjunar.
Til nánari útskýringar má taka
fram að þessi 542,1 milljón, sem
greidd var út í desember, hafði
skipst þannig: 204,2 milljónir í upp-
græðslu. 145,4 milljónir til heiðar:
vega og 17,3 milljónir í girðingar. í
gangnamannakofa höfðu farið 23,6
milljónir króna, í rannsóknir á sviði
veiðimála höfðu farið 70,9 milljónir,
í samningafundi 14,3 milljónir og i
lögfræðikostnað 1,7 milljónir
króna. Þá hafa verið greiddar 64,8
milljónir króna í landabætur.
Sigurður Már Jónsson
Hér sjást byggingar á Blöndusvæðinu. Neðst til vinstri er stjórnhús virkjun-
arinnar, sem er yfir stöðvarhúsinu sjálfu. í miðjunni má sjá fjölbýlishúsið en
efst til hægri sést einbýlishús stöðvarstjórans.