Pressan


Pressan - 31.10.1991, Qupperneq 13

Pressan - 31.10.1991, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 JL Steingrímur J. Sigfússon. Býr í Brekkuseli 19 og er þvi nágranni Hall- dórs. Með skráö lögheimili hjá fööur sinum og bróöur á Gunnarsstöðum í Þistilfiröi, N-Þing. Hvorki hann né Halldór eru skráöir fyrir síma á „heim- ilum" sínum úti á landi. Halldór Ásgrímsson og Steingrímur J. Sigfússon eru alfariö búsettir íReykjauík, enhafaskrád lögheimili hjá œttingjum sínum á lands- byggðinni. Þeir fá um leid liðlega 70 þúsund krónur í húsaleigu- og dvalarstyrk og 20 þúsundum króna hœrri feröastyrk en þingmenn Reykjavíkur. Þingmennirnir Halldór Ásgríms- son og Sleingrímur J. Sigfússon þiggja sem landsbyggðarþingmenn styrki upp á 101 þúsund krónur á mánuði hverjum, þar af rúmlega 70 þúsund vegna húsaleigu- og dvalar- kostnaðar, þótt þeir haldi heimili al- farið í Reykjavík. Styrkina fá þeir með því að hafa lögheimili sitt skráð hjá ættingjum úti á landi. Halldór og Steingrímur hafa, eins og aðrir landsbyggðarþingmenn, fengið 38 þúsund króna húsaleigu- styrk á mánuði, um 32 þúsund króna dvalarkostnaðarstyrk og 31 þúsund króna ferðakostnaðarstyrk. Væri lögheimili þeirra skráð í Reykjavík mundu þessir sérstöku styrkir lækka úr 101 þúsundi á mán- uði í 11 þúsund krónur og þeir því verða af 90 þúsund krónum. Föst laun þingmanna eru nú 175.000 krónur á mánuði. Þing- menn landsbyggðarinnar fá síðan 101.000 krónur vegna húsaleigu-, dvalar- og ferðakostnaðar. Þessir styrkir hækka tekjur þeirra um leið í 276.000 krónur á mánuði eða um 60 prósent. Það samsvarar nokkurn veginn föstum ráðherralaunum án þingfararkaups. MEÐ PÓSTHÓLF HJÁ ÆTTINGJUNUM Steingrímur hefur lögheimili á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Þar búa faðir hans og bróðir, en Steingrímur er ekki einu sinni skráður fyrir síma á staðnum. Hann heldur heimili í Brekkuseli 19 í Reykjavík. Halldór Ásgrímsson hefur lög- heimili á Hvannabraut 6 á Höfn í Hornafirði. Þar er faðir Halldórs skráður til heimilis, en Halldór sjálf- ur er búsettur í Brekkuseli 22 í Reykjavik og ekki skráður fyrir síma fyrir austan. Á síðasta kjörtímabili gilti hið sama um Jón Sœmund Sigurjóns- son, þingmann Alþýðuflokksins. Hann hefur verið búsettur í Reykja- neskjördæmi, en með lögheimili skráð hjá foreldrum á Siglufirði. BÝR PÁLL Á HÖLLUSTÖÐUM EÐA Á HÁTEIGSVEGI? Þeir Halldór og Steingrímur eru ekki einu þingmenn landsbyggðar- innar sem eiga íbúð eða húseign á höfuðborgarsvæðinu. í öðrum til- vikum en hjá Halldóri og Steingrími er þó hægt að tala um raunverulega búsetu í viðkomandi kjördæmum stóran hluta ársins. Meðal annarra þingmanna lands- byggðarinnar sem eiga lögheimili í viðkomandi kjördæmum, en eru að talsverðu leyti búsettir á höfuðborg- arsvæðinu, má nefna Pól Pétursson, sem skráður er á Höllustöðum í Húnavatnssýslu en heldur um leið heimili á Háteigsvegi 48, Ragnar Arnalds, sem býr annars vegar á Mánaþúfu í Varmahlíð í Skagafirði og hins vegar á Laugarásvegi 13, Hjörleif Guttormsson, sem er skráð- ur á Mýrargötu 37 í Neskaupstað og í Espigerði 4 í Reykjavík, Matthías Bjarnason, sem skráður er í Hafnar- stræti 14 á ísafirði og svo Tjaldanesi 5 á Arnarnesi, og Árna Johnsen, sem skráður er í Heimagötu 28 í Vestmannaeyjum og Rituhólum 5 í Reykjavík. LANDSBYGGÐARÞINGMENN FÁ ALLS 35 MILLJÓNA STYRKI 29 af 34 þingmönnum lands- byggðarkjördæmanna fá greiddan ferðakostnað og húsaleigu allt árið og svo dvalarkostnað þá daga sem þingstendur yfir. Hver þessara þing- manna fær um 101.000 skattfríar krónur á mánuði vegna þessara liða, auk þingfararkaups upp á 175.000 krónur á mánuði. Heildar- kostnaður ríkissjóðs vegna þessara styrkja er um 35 milljónir króna á ári. Hver þingmaður með lögheimili á landsbyggðinni fær á mánuði hverj- um 38.000 krónur vegna húsaleigu eða alls 456.000 krónur yfir árið. Þingmennirnir 29 fá samkvæmt þessum lið alls 1,1 milljón króna á mánuði eða 13,2 milljónir á ári. Hver þessara þingmanna fær, á meðan þing stendur yfir, 1.700 krónur á dag í svonefndan dvalar- kostnað. Greiðslum þessum er þó dreift yfir árið þannig að 32.300 krónur koma í hlut hvers á mánuði eða 387.600 krónur á ári. Þing- mennirnir 29 fá þá alls 11,2 milljónir á ári samkvæmt þessum lið. 4 LANDSBYGGÐARÞINGMENN MEÐ LÖGHEIMILI í REYKJAVÍK Hver þessara þingmanna fær 31.000 krónpr- á mánuði vegna ferðakostnaðar eða alls 372.000 krónur á ári. Þingmennirnir 29 fá samkvæmt þessum lið alls 900.000 á mánuði eða 10,8 milljónir á ári. Allir þingmenn fá greiddan ferða- kostnað. Þingmenn Reykjavíkur fá 11.000 krónur á mánuði, þingmenn Reykjaneskjördæmis 20.000 krónur og þingmenn landsbyggðarinnar 31.000 sem fyrr segir. Væri lögheim- ili Halldórs og Steingríms flutt til Reykjavíkur stæðu aðeins 11.000 krónur eftir af þessum sérstöku styrkjum. Greiðslur vegna húsaleigu- og dvalarkostnaðar eru háðar því að lögheimili viðkomandi þingmanns sé utan Reykjavíkur og Reykjaness. Þær falla ekki til ráðherra. Fjórir þingmenn landsbyggðarinnar eiga lögheimili í Reykjavík, þeir Eidur Guönason, Sighvatur Björgvinsson, Þorsteinn Pálsson og Vilhjálmur Eg- ilsson. Þrír þeir fyrst töldu eru að auki ráðherrar. Það er líka Halldór Blöndal, sem á lögheimili á Akur- eyri og fengi því styrkina ef ekki væri fyrir ráðherradóminn. DANMÖRK: LÍTIL ÍBÚÐ SKILYRÐI FYRIR STAÐARUPPBÓT í Danmörku hefur jafnaðarkonan Ritt Bjerregaard legið undir þungu ámæli vegna skyldra mála. Hún þiggur sem landsbyggðarþingmað- ur staðaruppbót, sem mun vera um milljón íslenskar á ári. Staðarupp- bót þessi er háð því skilyrði að íverustaður landsbyggðarþing- manna í höfuðborginni sé ekki stærri en tveggja herbergja. Hugs- unin að baki þessu ákvæði er að heimilishald sé raunverulega í kjör- dæmi viðkomandi þingmanns, en dvalarstaður í höfuðborginni aðeins til bráðabirgða. Bjerregaard hefur hins vegar leigt heila húshæð og sameinað tvær íbúðir i eina stóra átta herbergja íbúð. Auk þess að hafa með þessu móti fyrirgert rétti sínum til staðar- uppbótarinnar hefur borgin farið í mál við þingkonuna og krafist skatt- greiðslna frá henni. Bjerregaard hefur nú orðið að segja af sér sem þingflokksformað- ur jafnaðarmanna vegna þessa máls. Hér á landi eru engin sambærileg ákvæði um hámarksstærð íbúða landsbyggðarþingmanna í Reykja- vík og nágrenni. Margir þingmenn landsbyggðarinnar búa í stórum íbúðum fyrir sunnan drjúgan hluta ársins. Og í tilfellum Steingríms og Halldórs er skrásetning á lögheimíli úti á landi sýndarmennska ein. Sem þó færir þeim aukalega 90.000 krónur á mánuði. Friðrik Þór Guðmundsson Páll Pétursson. Bóndinn á Hóllustöðum dvelur mest fyrir sunnan og heldur heimili á Há- teigsvegi 48. Spurning: Hvar á hann heima? Árni Johnsen. Alltaf skráður í Vestmannaeyjum en utan þingmennsku mest starfað fyrir Morgunblaðið og á íbúð i Rituhólum i Breiðholti. Spurn- ing: Hvar á hann heima? Vilhjálmur Egilsson. Þingmað- ur fyrir Norðurland vestra, en á lögheimili í Reykjavik. Spurn- ing: Á hann enga nána œtt- ingja fyrir norðan eða er hann heiðarlegur? Halldór Blöndal. Fœr ekkert í húsaleigu- og dvalarkostnað- arstyrk þótt hann sé þingmað- ur fyrir Norðurland eystra og eigi þar lögheimili. Ástœða: Ráðherrar njóta ekki þessara styrkja.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.