Pressan - 31.10.1991, Side 14

Pressan - 31.10.1991, Side 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 Útgefandl Blað hf. Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson RJtstjórl Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórnarfulltrúl Sigurjón M. Egilsson Auglýsingastjóri Hinrik Gunneu- Hilmarsson. Dreiflngarstjóri Steindór Karvelsson Ritstjórn, skrifstolur og auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, sfmi 62 13 13. Faxnúmer: 62 70 19. Eftir lokun sklptlborös: Ritstjóm 621391, dreifing 621395, tæknideild 620055. ÁslTlftargjald 600 kr. á mánuðl. Verð í lausasölu 190 kr. eintakið. Margur verdur af aurum api í PRESSUNNI í dag er fjallað um dvalarstyrki þingmanna. Það eru styrkir sem þingmenn landsbyggð- arkjördæmanna fá til að halda heimili í Reykjavík á vetrum. í frétt PRESSUNNAR kemur fram að þeir Halldór Ásgrímsson og Steingrímur J. Sigfússon hafa skráð lögheimili sitt á heimili ætt- ingja sinna i þeim kjördæmum sem þeir eru þingmenn fyrir. Fyrir vikið fá þeir háar fjárhæðir greidd- ar frá Alþingi eins og þeir hyggju í raun og veru úti á landi. Með þess- um rangindum teksl þeim að bæta meðallaunum ofan á þingfarar- kaupið sitt. Stjórnmálamenn hafa á undan- förnum árum kvartað yfir að Al- þingi nyti ekki mikillar virðingar og viljað kenna flestum öðrum um en sjálfum sér. Þá litlu virðingu, sem þingið þó nýtur, má hins vegar þakka ótrúlegu langlundargeði þjóðarinnar við breyskleika ráða- manna, — ekki siðferðisstyrk stjórnmálamannanna. Hann virð- ist enginn. Það er i raun ekkert annað en hlægilegt að sjá til þessara manna nýta sér hverja glufu sem býðst til að ná sér í peninga úr almanna- sjóðum. Þeir eru aumkunarverðir, — á sama hátt og aðrir sem fórna virðingu sinni fyrir aura. FJÖLMIÐLAR Takiö ykkur larigan tíma Mikiö fannst mér gott að heyra það eftir honum Gunn- ari Steini í Hvíta húsinu að nýtt dagblað kæmi líklega ekki út strax eftir áramótin. Fyrri yfirlýsingar um að blað- ið ætti að koma út 2. janúar voru grátlega vitlausar. Það var eins og aðstandendur hins nýja blaðs tryðu því að tveir mínusar væru einn plús, — ætluðu að steypa saman Tíma og Þjóðvilja og reyna að selja bræðinginn sem boð- lega vöru. Það mun taka lengri tíma en tvo mánuði að búa til nýtt blað. Það má nefnilega ekk- ert klikka. Fyrstu eintökin verða að vera það góð að fólk vilji kaupa blaðið áfram og jafnvel gerast áskrifendur. Islendingar eru nýjunga- gjarnir. Þeir munu sjálfsagt kaupa upp fyrstu eintökin. En ef þau verða ekki boðleg munu þeir ekki kaupa meira. Þá skiptir engu hvort blað númer 43 verður gott eða vont. Þeir sem ætla að setja á fót nýtt blað eru því að hella sér út í eins áhættusaman biss- ness og hugsast getur. Þeir þurfa að leggja 100 til 200 milljónir í púkkið. Ef nýjum ristjóra eða ritstjórum tekst ekki að búa til blað sem fólk vill kaupa eru þær milljónir að eilífu glataðar. Það er nefnilega fátt endur- seljaniegt af stofnframlagi í nýtt blað. Fáeinar tölvur og skrifborð. Langstærsti hlut- inn fer í að framleiða fyrstu blöðin og reyna að fá fólk til að kaupa þau. Ef það mis- tekst eru peningarnir tapaðir. Það er því gleðilegt að að- standendur hins nýja blaðs. skuli ætla að gefa sér tíma til að búa til og hanna þessi fyrstu blöð. Þótt það skipti út- gefendur Tímans og Þjóðvilj- ans máli að nýtt blað komi út sem fyrst, til að þeir geti hætt núverandi. útgáfu með glans, getur borgað sig að bíða fram til 1. febrúar, 1. marseðajafn- vel lengur. Gunnar Smári Egilsson „Þjóðgarðasósíalistarnir hins- vegar, Sigfússon og Gestsson, eru hinsvegar þjóðrembusossar og þeim eru eðlislæg viðbrögð að haffa allt ó hornum sér og það gerðu þeir oft og iðulega sem róðherrar f síðustu ríkísstjórn." JÓN BALDVIN HANNIBALSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA „Ferdirnar vófu orSnar það margar að ég varð að átta mig.“ Ólafur Skúlason blskup „Ég óská ekki éftir daori eða skjalli." Krist]án Jóhannsson stórsöngvarl Draugabaniá „Frá s ke^fn^loIírMrgj al da var fallið og sá draugur endanlega kveðinn niður og verður því ekki vakinn upp aftur.“ Þorstelnn Pálsson dómsmálaráðherra Má 6y þa haldur bi&Ja fyrirstöðu að Islendingar frítmleiði þúsundir slíkra véla á ári og meira að segja Boeing-þotur líka.“ Gunnar Jónsson lögfræóingur og Krlstlnn Eggertsson kaupmaður minn hófst með því að ég fékk að leika Mikka mús í afleysingum.14 Steve Martln leikari ú kros íSfnsist! „Fyrir rúmlega ári síðan hringdi til mín maður, sem kynnti sig og kvaðst heita Kornelíus og vera forsetaritari. Hann þéraði mig, þótt við séum málkunnugir." Guðmundur J. Guömundsson formaöur Dagsbrúnar Drykkjuskapur ráðamanna Á gamlársdag 1987 mætti þáverandi fjármálaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, dauðadrukkinn í umræðu- þátt í ríkisútvarpinu. Og hafði í frammi alla þá stæla sem öl- óðum mönnum er lagið. Þegar Davíð Oddsson for- sætisráðherra fagnaði heims- meisturunum í brids fór það ekki framhjá neinum að hann var urrandi fullur í beinni út- sendingu. Og var álíka flatur og banal og hinir bestu menn verða þegar þeir detta í það. Ráðherrann afsakar sig með því að hann hafi verið veikur og tvö kampavínsglös hafi óvart stigið honum til höfuðs. Það er segin saga að menn af- saka skandalíseringu sína við drykkju með öllum hugsan- legum ráðum nema því eina sem við á: að þeir kunni ekki með vín að fara. Það köllum við alkóhól- isma. Áfengi lamar æðstu stöðv- ar vitsmuna í heilanum eins og allir vita. Hvað drukkinn maður er góður með sig staf- ar sem sagt af því að hann er vitskertur tímabundið í alveg bókstaflegri merkingu. Þarf því ekki að orðlengja hvílíka lítilsvirðingu ráðamenn sýna þjóðinni þegar þeir eru fullir að delera í fjölmiðlum eða við embættisstörf. Að taka þann- ig á móti þjóðhetjum, sem allsgáðir hafa unnið mikið af- rek með gífurlegri ögun og reglu, er hreint út sagt botn- inn í skorti á mannasiðum. Þetta leiðir hugann að alkó- hólisma ráðamanna. Á síðustu árum hefur orðið mikil breyting á viðhorfi til reykinga. Þykir sjálfsagt að stemma stigu við því að reyk- ingamenn valdi öðrum angri og heilsutjóni. Einnig hefur orðið breyting á skilningi á eðli alkóhólisma. Nú lítur sæmilega upplýst og víðsýnt fólk á hann sem sjúk- dóm en ekki sem aumingja- skap eða bara eitthvað snið- ugt og skemmtilegt. Samt eimir eftir af gömlum kreddum. Til dæmis mis- skildu umburðarlyndi. Menn afsaka sig og eru afsakaðir af öðrum fyrir gloríur sínar í drykkjuæði með því að hann hafi nú bara verið fullur grey- ið. Það hefur enn ekki skap- ast það almenna viðhorf, eins og með reykingar, að ekki eigi að þola drykkjumönnum að baka öðrum angur og vissulega heilsutjón oft og tíðum. Það stafar kannski af því hve alkóhólisminn er al- gengur. Mikill fjöldi þeirra er misnota áfengi afneitar vanda sínum. Telja sig „hófs- menn" á vín þótt allir í kring- um þá viti að þeir eru sí og æ til vandræða. Þegar menn hafa lengi misnotað vín verða nefnilega á þeim skapgerðarbreytingar sem lýsa sér m.a. í algerri blindni á aðstæður, sífelldri réttlæt- ingu á misgerðum, eigin- ✓ Ihaldssamur vinstrimadur Eitt af einkennum íslensks samfélags er að hörðustu íhaldsmennina er ekki að finna meðal svokallaðra hægrimanna heldur innst í röðum vinstrimanna. Guð má vita hver ástæðan er. Kannski er það vegna þess að þjóðernishyggja og vinstrimennska hafa haldist fast í hendur frá stríðslokum vegna andstöðunnar við am- eríska herinn. Og þar sem landið er lítið og fólkið fátt hefur þurft sérstaka varkárni til að vernda einkenni lands- ins og sjálfstæði. Og kannski er það vegna þess að vinstrilausnum hefur verið beitt í mun meira mæli en hægrilausnum marga undanfarna áratugi. Þjóðfé- lagið ber keim af því og það er því ekkert eðlilegra en vinstrimenn vilji frekar halda og hægrimenn sleppa. En hver svo sem ástæðan er þá er pólitík vinstrimanna á íslandi nánast óguðlega íhaldssöm. Kvennalistakonur girni, tilfinningadoða, stjórn- leysi og sjálfshatri, er aftur el- ur af sér hroka og tillitsleysi í mannlegum samskiptum. Alkóhólismi, eins og aðrir sjúkdómar, er yfirleitt einka- mál sjúklinganna og vanda- manna þeirra. Allt öðru máli gegnir þegar ráðamenn eru orðnir svo sjúkir að þeir hafa ekki leng- ur stjórn á sér opinberlega og ryðjast blygðunarlaust í öl- æði inn í stofu fólks gegnum fjölmiðla. Og gildir þá einu hver er maðurinn. Þar eru takmörkin. Þjóðin á ekki að þola slíka vanvirðu. Hún á að krefjast þess að þeir leiti sér lækninga eða hætti ella opinberum störf- um. hafa sótt pólitík sína í málum utan hefðbundinnar kvenna- baráttu vinstra megin við miðju. Afleiðingin er sú að samansúrruð íhaldssemi hennar er að ganga af fram- sækinni kvennabaráttu dauðri. En þótt menn leiti í Kvennalistanum, Alþýðu- bandalaginu, Framsókn og jafnvel í kvenfélögum Sjálf- stæðisflokksins finna þeir sjálfsagt hvergi jafníhalds- saman vinstrimann og Ög- mund Jónasson, formann Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þrátt fyrir hrun miðstýrðs hagkerfis í Sovét hefur hann ekki látið segjast. Eftir sem áður krefst hann þess að vextir verði lækkaðir með handafli. Og þrátt fyrir að ís- lendingar séu að kikna und- an svokölluðu velferðarkerfi, sem gefur lítið en kostar mik- ið, vill hann verja það fram í rauðan dauðann. Og þótt flestir aðrir sætti sig við von um að kauphækkanir séu bundnar möguleika á aukn- um hagvexti neitar hann að leiða hugann að því, — hvað þá meir. Svona heitir í trúnni eru ekki einu sinni alþýðubanda- lagsmenn. Þeir hafa keppst við að afneita Pavlov og ættu því í raun að afneita Ögmundi líka, — því hugmyndir þeirra í efnahagsmálum falla eins og flís við rass. Og á sama hátt og Ög- mundur sækir hugmyndir sínar til fornrar efnahags- stefnu sækir hann sannfær- ingu sína til þess tíma þegar menn gátu ekki lifað í marg- litum heimi. Heimsmynd hans er svart/hvít. Og eins og aðrir menn úr þeim heimi er hann það heitur í sannfær- ingu sinni að hann veigrar sér ekki við að nota fé Bandalags starfsmanna ríkis og bæja til að básúna hana út. Sannfær- ing hans er honum stærra mál en sjóðir bandalagsins eða líkur á árangri í kjaravið- ræðum. ÁS o o UOOi ReYMÍP. AÐ SLAP'PA AF HEirtA BFTJR yiSTÍhJ/\ í SÍSEfU'ii ■!■■■ HANN V\lL EKKÍ AÐ NÁGRANmfLNlfL VíTÍ A£> HANN Sé OpUP.UG0i.ViLL £íga srrr Fgíf>í. 99*0 V£NjULfif?AR. ÞAflFiZ SETUl HE'NÍLÍSLÍFíf Ní Ýrtsm TÆKTuM I Mnvmsteíwur k \h FiSWAg HAMNSP.1AR AF Sa^umNV't UPPVoS\aANAR OG- |^K5U>UHUVÍf> 'A DA&NN oGr HfröTUR 'A HérrFxt»Á SVo EREn/vír hamN teyfcas. M£-e STFÍiCNG-AtLyKr O.T.PKV. C œ JD 2 w c (0 sz E ÍO u_

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.