Pressan - 31.10.1991, Qupperneq 16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991
Magnús Thoroddsen neydd-
ist til að segja af sér út af
áfengismálinu en Jón
Gunnar Óltósson í um-
hverfisráðuneytinu fer
hvergi þó að iandeigendur
ónýta fjallsins fyrir austan
vilji hann burtu. I>á situr
Pélur Einarsson flugmála-
stjóri sem fastast þó að
Flugtaksmenn vilji hefja
hann á loft.
Jón H. L..a. var á sínum
tíma rekinn frá SS og er
það ekkert einsdæmi með-
al stórra fyrirtækja. Frægur
er auðvitað brottrekstur
Guöjóns R Ólafssonar á
Eysteini Helnasyni. Brott-
rekstur er einnig nefndur i
kringum Óllar Möller og
Önund Ásgeirsson. Pá var
Rognari Hulldórssyni spark-
að upjj á við á sínum tíma
en Ölafi Ragnarssyni var
vikið út af Vísi í eina tíð.
Gudni Kolbeinsson ákvað
hins vegar að víkja sjálfum
sér úr embætti íslensku-
fræðings hjá Ríkisútvarpinu
og sömuleiðis rak Þorsteinn
Thorarensen sjálfan sig sem
pistlahöfund á Vísi. Sturla
Kristjánsson var hins vegar
rekinn til náms.
UPP Á 700 ÞÚSUND
Húsnœðisnefnd Akureyrar hefur neytt kaupendur í félagslega kerfinu til að kaupa bílgeymslur sem kosta
700 þúsund hver. Þá telur byggingarfulltrúinn á Akureyri að sjö raðhús, sem nefndin hefur úthlutað,
standist ekki kröfursem gerðar eru til íbúðarhúsnœðis.
Sigtryggsson hefur orðið að
láta af starfi sínu sem deild-
arstjóri Ríkisútvarpsins á
Akureyri. Þar með lengist
brottrekstrarsaga íslands
um einn kafla. Innan Rikis-
útvarpsins nægir að nefna
Ingua Hrafn Jónsson sem
varð að víkja sem frétta-
stjóri. Rétt áður hafði At-
bert Gudmundsson horfið
úr ráðherraembætti, sem
er einsdæmi, en oft hefur
verið kvartað yfir þvi að
stjórnmálamenn segi aldrei
af sér. Nægir að nefna að
sumir vildu að Davíd Odds-
son segði af sér eftir
Bermudaskálina og sömu-
leiðis höfðu slikar hug-
myndir kviknað áður út af
Jóni Baldvini Hannibals-
syni. Nú, þá er þekkt dæmi
úr fortiðinni þegar Helgi
Tómasson vildi Jónas frá
Hriflu úr embætti á sínum
tima.
ÍBÚDIR 00
BAKREIKNI
Blokkin þar sem
kaupendurnir
voru neyddir til
að kaupa bíl-
geymslur. Engu
skiptir hvort þeir
eiga bíl eða ekki.
Myndir: Golli
Hörð deila er risin milli
kaupenda félagslegra íbúða á
Akureyri og húsnæðisnefnd-
ar bæjarins. Húsnæðisnefnd-
in afhenti raðhús sem stand-
ast ekki reglugerðir og eins
hefur þeim verið breytt frá
samþykktum byggingar-
nefndarteikningum. Þá fengu
kaupendur íbúða í fjölbýlis-
húsi 700 þúsund króna bak-
reikning eftir að húsnæðis-
nefndin ógilti gerða kaup-
samninga og skyldaði kaup-
endurna til að kaupa bíl-
geymslur.
Svo ótrúlegt sem það nú er
hefur fólk, sem ekki á bíl og
ætlar ekki að eignast bíl,
þurft að kaupa sér bíl-
geymslu.
Þar sem húsnæðisnefndin
hefur ekki svarað bréfum
vegna þessa máls hefur verið
ákveðið að skjóta þvi til bæj-
arráðs Akureyrar, en Akur-
eyrarbær ber opinbera
ábyrgð á málinu.
RIFTU SAMNINGUM
EINHLIÐA
,,Það var ekkert talað um
þessar btlgeymslur fyrr en
okkur var tilkynnt að búið
væri að ógilda þá kaupsamn-
inga sem við höfðum skrifað
undir. Þá var okkur tilkynnt
að við yrðum að kaupa bíl-
geymslu. Þá skipti engu hvort
við ættum bíl eða hversu dýr
hann væri. Með þessu vorum
við þvinguð til að kaupa bíl-
geymsluna," sagði einn íbúa i
átta hæða fjölbýlishúsi viö
Tröllagil.
Húsnæðisnefnd Akureyrar
afhenti fyrir skömmu um
tuttugu íbúðir í húsinu. Flest-
um kaupenda var gert að
bæta á sig kaupum á bíl-
geymslunum. Þrátt fyrir
mikla óánægju létu kaupend-
urnir tilleiðast. Verð á bíl-
geymslunum var rétt um 700
þúsund krónur.
„Áður en af kaupum verð-
ur verða kaupendurnir að
gangast undir greiðslumat
hjá húsnæðisnefndinni.
Kaupin eru síðan gerð út frá
matinu. Þrátt fyrir þetta er
húsi. Þær hafa ekki verið
byggðar og reyndar er óvíst
hvort hægt er að byggja þær
með góðu móti nema vinna
talsverðar skemmdir á plön-
um og stéttum sem búið er að
ganga frá.
Flestir kaupenda hafa skrif-
að undir yfirlýsingu um að
þeir sætti sig við húsin í því
ástandi sem þau eru. Það
hafa þó ekki allir gert og
PRESSAN hafði samband við
einn þeirra.
Hann sagði að ekki kæmi
til greina að skrifa undir
neina yfirlýsingu þessa efnis.
Tvennt vantar upp á að húsin
séu fullbúin; annars vegar
björgunaropið og hins vegar
útigeymsluna.
I bréfi byggingarfulltrúans,
Jóns Geirs Agústssonar, þar
sem hann svarar fyrirspurn
um útigeymslurnar, segir að
þar sem geymslurnar hafi
ekki verið byggðar húsin
ekki fullgerð og það sam-
ræmist ekki reglugerðum,
þarsem húsnæðisnefndin má
ekki afhenda íbúðir öðruvísi
en fullgerðar.
„Brugðið hefur verið út af
frá samþykktri teikningu við
gerð gangstéttar, þannig að
útipallur við inngang hefur
verið stækkaður, en stétt
(undirstaða) fyrir sorp-
geymslu og útigeymslu sam-
anber teikningu er ógerð."
NEFNDIN SVARAR EKKI
Hákoni Hákonarsyni, for-
manni húsnæðisnefndar, var
sent bréf um miðjan sept-
ember. Þar voru lagðar fram
kröfur um úrbætur á íbúðun-
um. Eins er minnt á að hús-
næðisnefndinni, sem og öðr-
um, sé óheimilt að bregða út
af samþykktum teikningum
og nefndinni sé óheimilt að
afhenda íbúðir sem ekki eru
tilbúnar. í bréfinu segir:
„Við lýsum furðu okkar á
þeim vinnubrögðum sem
seljandinn, Húsnæðisskrif-
stofan á Akureyri/Húsnæðis-
nefnd Akureyrar, hefur við-
haft sem opinber aðili, að af-
henda nánast engar teikning-
ar eða verklýsingar og ætla
að selja síðan án þess að láta
kaupendur vita, að minnka
húsnæðið um sex fermetra,
og gera það þar með ólög-
legt."
Þrátt fyrir að komið sé á
sjöttu viku frá því bréfið var
sent til formanns nefndarinn-
ar hefur ekkert svar borist og
reyndar hefur ekki orðið vart
neinna viðbragða.
Kaupendur raðhúsanna
funduðu um þetta mál síðasta
sunnudag og ákváðu að leita
til bæjarráðs Akureyrar. Bæj-
arfélagið er hinn ábyrgi aðili
í þessu máli. Kaupendur
treystu á það í lengstu lög að
þurfa ekki að leita til bæjar-
ráðs, fólkið treysti á að málið
yrði leyst án þess að bæjarráð
fengi það til umfjöllunar.
Sigurjón Magnús Egilsson
Raðhúsin. Byggingarfulltruinr. segir að samþykktum teikning-
um hafi verið breytt og húsin standist ekki kröfur sem gerðar
eru til íbúðarhúsnæðis.
ur í útborgun vegna kaup-
anna á bílgeymslunum."
sagði einn viðmælenda
PRESSUNNAR á Akureyri.
ÓLÖGLEG RAÐHÚS
Húsnæðisnefnd Akureyrar
afhenti einnig nýverið raðhús
í sama hverfi. Eftir að einn
kaupenda lét taka út húsið
kom í ljós að frágangur þess
stóðst ekki reglugerð.
I bréfi sem Jón GeirÁgúsls-
son, byggingarfulltrúi á Ak-
kemur glögglega í ljós að
brugðið hefur verið út af
reglugerðinni. Eins og segir í
bréfi byggingarfulltrúans er
það með öllu óheimilt.
ÚTIGEYMSLUR
EKKI BYGGÐAR
Auk þess að sleppa björg-
unaropinu var einnig brugðið
út af teikningum á öðrum
stað. Samkvæmt samþykkt-
um byggingarnefndarteikn-
ingum átti að vera sex fer-
metra útigeymsla með hverju
fólkið látið kaupa bílgeymsl-
urnar. Það má því segja að
verið sé að þvinga þetta fólk
til að bæta á sig greiðslum
umfram það sem það er í
raun fært um að gera. Sem
dæmi varð fólkið að greiða á
annað hundrað þúsund krón-
ureyri, hefur sent einum hús-
eigandanum, segir orðrétt:
„Björgunarop í svefnher-
bergisdeiid er ekkert, þrátt
fyrir að á teikningu sé merkt
björgunarop, og ber að bæta
úr því tafarlaust."
I þessum athugasemdum
MISSKILNINGUR
„Málið er að jjessar bíl-
geymslur komu til á seinna
stigi. Það var kannski búið
að úthluta íbúðunum áður
en ákveðið var að kaupa
þessar bílgeymslur," sagði
Gudrídur Friöriksdóttir,
framkvæmdastjóri hús-
næðisnefndar Akureyrar.
„Kaupendur vissu ekki fyrr
en um fyrir mánuði að þeir
þyrftu að kaupa bílgeymsl-
urnar. Þeir fá lán út á allt
nema 115 þúsund krónur.
Það má segja að þeir hafi
fengið bakreikning upp á
115 þúsund."
Kaupendurnir verða að
borga mismuninn samt.
„Jú, en það fékkst lánað
með eitt prósent vöxtum."
Varðandi raðhúsin við
Tröllagil. Þar eru óbyggðar
útigeymslur.
„Það hefur aldrei staðið
til að byggja þær. Húsunum
var úthlutað án þessara úti-
geymslna. Reyndar er full-
nægjandi geymsla í húsun-
um. Það virðist hafa komið
upp misskilningur hjá ein-
um kaupanda, sem hélt að
hann væri að kaupa úti-
geymsluna með."
Byggingarfulltrúinn á
Akureyri segir að teikning-
um hafi verið breytt og hús-
in uppfylli ekki kröfur sem
gerðar eru til íbúðarhús-
næðis, þar sem geymslur
vanti.
„Þeim var ekki breytt,
nema hvað útigeymslurnar
voru ekki byggðar."
En brunaútgangurinn?
„Það er nú ekkert. Það er
gluggi á klósettinu sem
uppfyllir þessi skilyrði. Það
er verið að leysa þetta mál
núna,“ sagði Guðríður Frið-
riksdóttir.