Pressan - 31.10.1991, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991
FENEYJAR.
Þórunn Gestsdottir: Þó aö
Feneyjar séu sökkvandi er
eitthvaö óhagganlegt við
borgina.
þarna til að skoða sig um
og blanda geði við fólk en
víða annars staðar. Þó að
borgin sé sökkvandi er eitt-
hvað óhagganlegt við hana
og þarna má gista á hótel-
um sem hafa verið starfrækt
í 200 ár eða lengur. Mér líð-
ur mjög vel í Feneyjum.''
bad godesberg
Falleg og söguleg
Pétur Eggerz, fyrrverandi
sendiherra, hefur víða búið,
en hann kvaðst helst hallast
að því að Bad Godesberg í
Þýskalandi væri sú borg
sem hann héldi mest upp á.
„Þessi borg er víst skráð
núna sem Bonn 2, en hún
gengur alltaf undir nafninu
Bad Godesberg. Þetta er
ákaflega falleg borg sem
stendur við Rín og þetta er
söguleg borg. Þarna voru til
dæmis viðræðurnar við
Hitler á sínum tíma. Þetta
er ekki mjög stór borg og
því tiltölulega auðvelt að at-
hafna sig þar og finna réttar
leiðir. Mannlíf er gott í Bad
Godesberg og þetta er sú
borg sem mér kemur fyrst í
hug," sagði Pétur.
berlín
Ofsalega spennandi
„Talandi um uppáhalds-
borg þá verður það að
byggjast á því að maður
þekki borgina vel, líði vel
þar og finnist sem maður
eigi heima þar. Með tilliti til
þessa er það Berlín sem er
mín uppáhaldsborg, en hins
vegar er Búdapest sú borg
sem hefur hrifið mig mest
við fyrstu kynni," sagði
Unnur Úlíarsdóttir frétta-
maður.
„Berlin er ofsalega spenn-
andi eins og hún var og ef-
laust verður ekki síður
spennandi að fylgjast með
því hvernig hún þróast og
hvaða hlutverk henni verð-
ur ætlað í framtíðinni. Hún
er falleg á sinn hátt og svo
er hún heimsborg. Vest-
ur-Berlín eins og hún var er
borg þar sem eitthvað er að
gerast allan sólarhringinn.
Næturlífið er mjög fjöl-
breytt, allt frá hámenningu
til algjörrar lágkúru. Það er
hægt að fara í óperuna í
sínu fínasta klukkan átta að
kvöldi og enda á einhverri
kynskiptingabúllu klukkan
sex um morguninn. Þetta er
flott borg með glæsilegum
breiðgötum, verslunum og
veitingastöðum og svo er
hún menningarmiðstöð.
Óperan er hátt skrifuð og
ekki má gleyma Berlínarfíl-
harmóníunni. Einnig er allt
morandi í leik- og kvik-
myndahúsum. Þarna hefur
safnast saman fólk af alls
konar þjóðerni sem meðal
annars kemur fram í fjöl-
breyttri matarmenningu.
Berlín er græn borg með
óendanlega fjölbreytni á öll-
um sviðum," sagði Unnur.
„Næst á eftir London kýs
ég San Francisco og hef
ákaflega gaman af að koma
þangað," sagði Herdís Þor-
ualdsdóttir leikkona. „Borg-
in stendur mjög fallega og
ég hef alltaf gaman af að
vera þar sem er fallegt í
kringum mig. Þar er líka
mikið menningarlíf og mik-
ið að sjá og gera. Nægir að
nefna ballettinn hans Helga
Tómassonar. Þetta er falleg
og glæsileg borg og svo er
stutt að fara á fallega og
skemmtilega staði. Það er
mjög gaman að aka með-
fram ströndinni til Los
Angeles og koma við í Car-
mel og fleiri fallegum stöð-
um. Ég hef átt mjög góðar
stundir í San Francisco."
áioJzJzJtáUna/i
Hvergi lidid betur
„Mér hefur hvergi liðið
betur en í Stokkhólmi og tel
mig þekkja borgina vel eftir
að hafa búið þar," sagði
Steinunn Jóhannesdóttir rit-
höfundur.
„Þetta er ákaflega falleg
borg, byggð á mörgum eyj-
um eða hólmum og sundin
þar á milli halda henni
mjög opinni. Hver hólmi og
þá sérstaklega þeir eldri
hafa sín sérkenni. Borgin er
mjög græn og þar eru af-
skaplega fallegar byggingar.
Almenningssamgöngur eru
þarna mjög góðar, að
minnsta kosti í samanburði
við Island, og auðvelt að
komast leiðar sinnar. Það er
geysilega fjölbreytt leikhús-
og listalíf í Stokkhólmi og
mörg skemmtileg söfn.
Menningarframboð er því
mjög mikið sem fólk á til-
tölulega greiðan aðgang að.
Það er gífurlegt úrval af
góðum og skemmtilegum
veitingastöðum í Stokk-
hólmi og þar eru góðir veit-
ingastaðir þar sem ekki er
allt á kafi í reyk og því
hægt að hafa börnin sín
með. íbúarnir eru orðnir
ansi marglitir og ég kynntist
mörgu fólki af mörgu þjóð-
erni og það má segja að
maður mæti þarna á vissan
hátt hinum stóra heimi,"
sagði Steinunn.
BAD GODESBERG.
Pétur Eggerz: Ekki mjög stór
og stendur við Rin
BERLIN.
Unnur Úlfarsdóttir: Næturlífiö
er mjög fjölbreytt
SAN FRANCISCO.
Herdís Þorvaldsdóttir:
menningariíf
Mikið
STOKKHÓLMUR.
Steinunn Jóhannesdóttir:
Borgin er mjög græn
san francisco
' Glœsileg borg