Pressan - 31.10.1991, Síða 38

Pressan - 31.10.1991, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 'Jíljjitr íolcHohot* jjjóöðöfjnr Ungur maöur úr höfuö- borginni var á vertíð í sjávarplássi á Snæfellsnesi. Þegar hann kom fyrst í verstöðina haföi hann lítt fengist viö drykkju. í verstööinni kynntist hann reyndari manni og nokkr- um árum eldri. Ungi maðurinn hreifst mjög af sínum nýja félaga og vildi gera sem flest af því sem félaginn afrekaöi. Svo sem aö drekka öll kvöld og helst einnig á næt- urnar. Alltaf var róiö um klukkan sex á morgnana. Þeir félagar voru oftast illa á sig komnir þegar þeir mættu til skips. Þeir voru ekki á sama bát. Eftir því sem á vertíðina leið þraut þeim úthald og æ oftar uröu skipsfélagar þeirra aö fara í verbúðina til aö ræsa þá. Sá eldri hafði minna úthald og aö því kom aö skipstjórinn, sem hann reri meö, sagöi hon- um aö taka pokann sinn, sem þýöir aö hann var rek- inn. Þá var ekkert sem veitti þeim eldri aöhald og hann sá fram á aö geta verið ótruflaður viö drykkjuna. Sem fyrr fylgdi sá yngri á eftir. Þaö var siðan aö bankaö var á útidyrnar hjá skip- stjóra þeim sem yngri maö- urinn reri með. Klukkan var ekki nema hálffimm aö morgni. Skipstjórinn vakn- aöi og fór til dyra. Fyrir utan var eldri drykkjufélaginn. „Hvaö vantar þig?" spuröi skipstjórinn. „Hann Nonni er veikur," svaraöi drykkjumaðurinn og átti þar viö sinn unga og trausta vin. „Hvaöa helvítis vitleysa er þetta. Hann er bara full- ur," svaraði skipstjórinn. „Bara fullur," sagöi hinn og hélt áfram; „þaö bull- sýöur á helvítis mannin- um." (úr sjomannasogum) Fjölskylda ein í Reykjavík átti þaö sameiginlegt aö allir meölimir hennar leystu vind oftar og meira en gerðist meö flest annaö fólk. Unglingur úr fjölskyld- unni kom eitt sinn á vinnu- staö fööur síns. Illa hittist á, þar sem faðirinn var tals- vert drukkinn viö vinnuna. Sonurinn bar ekki upp er- indi sitt heldur sagöi nokk- ur orö viö fööur sinn og kvaddi. Þegar unglingurinn var aö ganga burt frá fööur sín- um leysti drengurinn vind svo undir tók i salnum. Þá kallaði faöirinn stoltur; „Siggi. Þú ert eins og hann afi þinn. Hann rak viö fram í rauðan dauðann." (úr fjölskyldusögum) Jón Baldvin er snjallasti áróðurs- meistari sem íslendingar eiga í dag segir Hannes Jónsson, fyrrverandi sendiherra og andstæðingur Jóns Baldvins og samnings hans um EES. Hannes rekur líka fyrirtæki undir nafninu Félagsmálastofnun, en það sér um útgáfu á verkum hans. Hannes Jónsson var búinn ad vera 35 ár í ulanríkisþjón- ustu íslands þegar hann hœtti. Var aflagdur, eins og Jón Baldvin Hannibalsson orðadi það; heimasendi- herraembœtti sem hann gegndi var lagt niður. Síðan hafa þeir félagar deilt um ým- islegt; nú síðast EES-samn- inginn. Hannes er lærður prentari, er BA og MA í félags- og hag- fræði og iauk doktorsprófi í þjóðfélagsfræði og þjóðar- rétti íslands. Hann starfaði í sendiráðuneytum íslands í Bonn, London og Moskvu, var blaðafulltrúi ríkisstjórn- arinnar, varafastafuiltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum og ræðismaður í New York, sendiherra í Moskvu, Bonn og Genf og var fulltrúi íslands hjá GATT og EFTA og sér- stofnunum Sameinuðu þjóð- anna í Genf. Árið 1986 sótti Hannes um heimflutning til íslands. ,,Við vorum komin með mikla heimþrá hjónin enda búin að vera erlendis í 24 ár með hléum. Ég varð þá heimasendiherra með emb- ætti Indlands, Pakistans, Bangladesh, Túnis og Kýpur og var fulltrúi arababanda- lagsins í írak en ég fór aldrei til Iraks að afhenda trúnaðar- bréf.“ Eitt helsta áhugamál Hann- esar er ritstörf og hann hefur gefið út á annan tug bóka og bæklinga. „Ég stofnaði fyrirtæki um útgáfuna árið 1961 sem heitir Félagsmálastofnunin og mér vitanlega kom þetta nafn þá fyrst fram. Síðar hafa sveitar- stjórnir tekið það upp hjá sér og nota það sem samheiti yfir félagslega þjónustu." Hannes hefur meðal ann- ars skrifað um launþegasam- tökin, fjölskylduna og hjóna- bandið, fjölskylduáætlanir og siðfræði kynlífs, samskipti karls og konu, félagsstörf og mæisku, kjósandann og vald- ið og á síðustu árum hefur Hannes fjallað mikið um það sem hann kallar íslensk sjálf- stæðis- og utanríkismál og er orðinn landsfrægur fyrir and- stöðu sína við þátttöku ís- lendinga í samningsgerð EFTA-ríkjanna við EB. Hann- es hefur ásamt öðrum stofn- að Samstöðu gegn samningn- um og skrifað heila bók um það efni sem heitir Markaðs- hyggjan, hagsmunir og val- kostir Islands. Eru mótmœli ykkar Sam- stöðumanna ekki úr takt við tímann, flestir viröast vera sammála um að samningur■ inn sé mjög hagstœöur fyrir okkur íslendinga? „Það er alger fásinna. Ég hef skoðað málið mjög ná- kvæmlega og komist að þeirri niðurstöðu að við ís- lendingar eigum allt aðra og betri valkosti. Staðreyndin er nefnilega sú að markaðs- hyggjan sem kristallast í EB hefur gegnsýrt fjölmiðlana og það er búið að koma því inn hjá fjölmiðlamönnum að þessi samningur sé eini möguleiki íslands í tilver- unni. Það er fásinna, við er- um að taka að okkur miklu fleiri skuldbindingar en okk- ur er hollt, við töpum meiru en við fáum í staðinn, hvernig sem á málin er litið." Attu einhver önnur áhuga- mál en ritstörf og að berjast gegn EES? „Já, mér finnst ákaflega gaman að garðrækt alls kon- ar og ég reyni að gera fallegt í kringum mig þar sem ég er. Ég get nefnt sem dæmi að garðurinn í sendiráðinu í Moskvu var alveg gersam- lega í órækt þegar við kom- um þangað og mér var sagt að það væri ekki hægt að rækta nokkurn skapaðan hlut í honum og var ráðlagt að malbika hann. Ég vildi ekki trúa því og hófst handa við ræktun og þegar við fór- um frá Moskvu var garðurinn talinn vera einn sá fallegasti í borginni." Að lokum Hannes, hvert er álit þitt á utanríkisráðherra okkar íslendinga, Jóni Bald- vini Hannibalssyni? „Ég held að það skipti ekki máli hvert mitt persónulega álit á honum er, málið snýst ekki um það, en það er alveg Ijóst að hann er einhver snjallasti áróðursmeistari sem íslendingar eiga í dag. Það er ljóst." Bolli Valgarðsson SJÚKDÓMAR OG FÓLK Kynfrædsla Hjá öðrum spendýrum fylgist ungviðið með kyn- hegðun þeirra fullorðnu og fær þannig fyrstu kynfræðsl- una. í flestum mannlegum samfélögum er þessu ekki þannig varið. Bcirn fá ekki að fylgjast með foreldrum sínum í samförum, svo að þau verða að afla sér slíkrar þekkingar annars staðar. Það hefur alltaf verið um- deilt, hvernig kynfræðsla eigi að vera, og mjög lítil slík kennsla var í íslenskum skól- um lengst framan af þessari öld. Margir héldu því fram, að kynfræðsla gæti verið skaðleg, því hún virkaði hvetjandi á ungviðið og ýtti undir alls konar tilrauna- starfsemi. Flestir eru sam- mála nú um að fræðsla getur aldrei verið hættuleg og börn þurfi á kennslu að halda. Mjög margir foreldrar treysta sér illa til að ræöa þessi mál við börn sín. Þau fá því oft megnið af fyrstu kyn- fræðslu sinni hjá félögum og vinum sem oft eru sjálfir ákaflega fákunnandi um þessi mál. Barnið er frá upp- hafi kynvera, sem verður að geta uppgötvað eigið kyn- ferði og kynfæri án sektar- ÓTTAR GUÐMUNDSSON kenndar, hleypidóma og vondrar samvisku. Börn sjá og heyra ótrúlega mikið sem hefur með kynlíf að gera í fjölmiðlum, sjónvarpi, kvik- myndahúsum og lífinu um- hverfis okkur sem þau eiga erfitt með að átta sig á án að- stoðar. Þegar barnið spyr viðkvæmra spurninga um uppruna sinn á að svara því hispurslaust á tungumáli sem það skilur, svo að það geri sér grein fyrir að kynlíf er óaðskiljanlegur hluti mannlegrar tilveru. Þegar barnið nær skólaaldri á þessi fræðsla að halda áfram, þannig að barnið viti hvernig það varð til og hvernig kynlíf fer fram. Kyn- þroska unglingur á að vita um allar breytingar sem verða á líkamanum og fá fræðslu um getnaðarvarnir og öruggt kynlíf. Ásgeir Sigurgestsson sálfræðingur gerði í febrúar 1976 rannsókn á kynhegðun og hugmyndum liðlega 1.400 14 ára unglinga í Reykjavík. Hann spurði um kynfræðslu og 27% drengjanna og 8,8% stúlknanna kváðust ekki hafa fengið neina fræðslu um þessi efni áður en þau urðu kynþroska. Stúlkurnar virtust fá betri og nákvæm- ari fræðslu en strákarnir, sem oftar fengu upplýsingar frá félögum sínum eða úr bókum og blöðum. Einungis 35% strákanna höfðu fengið að vita um fyrsta sáðlátið áð- ur en það kom en 96,7% stúlknanna höfðu fengið fræðslu um fyrstu blæðing- arnar. Liðlega 23% strák- anna höfðu ekki fengið neina fræðslu um getnaðar- varnir og 19% stúlknanna. Könnun Ásgeirs sýndi, að kynfræðslu unglinga á ís- landi var um margt ákaflega ábótavant, en ástandið hefur líklega eitthvað skánað. NOKKRAR RÁÐLEGGINGAR TIL FORELDRA VARÐANDI KYNFRÆÐSLU 1. Ræðið hispurslaust um kynlíf og á sem eðlilegastan hátt. 2. Reynið ekki að halda fyrirlestur um kynlíf, börn nenna ekki að hlusta lengi og þurfa að spyrja sjálf. 3. Talið ekki um kynlíf eins og líffræðilegt atferli. heldur segið frá tilfinninga- legum þætti þess, gildismati, ást og kærleika. 4. Bíðið ekki of lengi með kynfræðslu, börn verða kyn- þroska missnemma. 5. Talið um blæðingar og tíðir við strákana líka og seg- ið stúlkunum frá holdrisi og sáðláti piltanna, svo að þau viti hvernig bæði kynin þroskast. 6. Útskýrið fyrir barninu kynferðisleg hugtök sem það heyrir og sér eins og vændi, ofbeldi, sifjaspell, framhjáhald, nauðganir o.fl. 7. Gefið ykkur góðan tíma til að ræða þessi mál. Það er mikilvægt að for- eldrar átti sig á mikilvægi þessara mála. Enginn slepp- ir unglingi undir stýri á bíl án lágmarksþekkingar og sama máli á að gegna um kynlífið. Ungt fólk þarf á fræðslu að halda og foreldr- ar geta ekki kastað allri ábyrgð á skólana.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.