Pressan - 14.11.1991, Page 2

Pressan - 14.11.1991, Page 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. NÓVEMBER 1991 FYRST FREMST sigfús jónsson. Situr i stjóm Hraöfrystihúss Stokkseyrar og versl- ar viö eigið ráðgjafarfyrirtæki. jóhann j. ólafsson. Stöö 2 greiddi 80 milljóna króna skattaskuld meö skuldabréfi. LEITAÐI RÁÐGJAFAR HJÁ SJÁLFUM SÉR Rekstur Hraðfrystihúss Stokkseyrar hefur gengið mjög erfiðlega undanfarið og stjórn fyrirtækisins hefur leit- að ráða til að koma rekstrin- um á réttan kjöl. Stjórnin hef- ur meðal annars leitað til ráð- gjafarfyrirtækis eins er heitir Nýsir og er staðsett í Skipholt- inu. Nýsir hefur unnið fyrir frystihúsið að ákveðnum verkefnum. Sigfús Jónsson, fyrrver- andi bæjarstjóri á Akureyri, er stjórnarformaður Hrað- frystihúss Stokkseyrar og sit- ur þar fyrir hönd hlutafjár- deildar Byggðastofnunar. Stjórn hraðfrystihússins leitaði ekki langt yfir skammt þegar ákveðið var að velja Nýsi til verksins, því Sigfús Jónsson er einn af stofnend- um Nýsis og situr jafnframt í stjórn fyrirtækisins. STÖÐ 2 FÉKK SKATTINN Á SKULDABRÉF A síðustu mánuðum sínum í fjármálaráðuneytinu sam- þykkti Ólafur Ragnar Grímsson kaup á skulda- bréfi frá Stöð 2 til greiðslu á skattaskuld fyrirtækisins. Skuldabréfið hljóðar upp á um 80 milljónir króna og lögðu forsvarsmenn Stöövar- innar fram veð til tryggingar skuldinni. Það vekur athygli að inni í þessari upphæð er virðisaukaskattur. Hann er vörsluskattur, það er skattur sem ekki er lagður á Stöðina heldur viðskiptavini hennar. Stöðin innheimtir hann. Sambærileg skuldabréfa- kaup voru mjög til umræðu fyrir fáeinum árum. Eftir að Albert Guðmundsson yfir- gaf fjármálaráðuneytið kom í Ijós að hann hafði verið stór- tækur í þessum málum og breytt skattaskuldum fjölda einstaklinga og fyrirtækja í skuldabréfalán. Með þvi skerti hann kröfur rikisins. Skuldin hafði ekki lengur lög- veð heldur var orðin eins og hver önnur skuld. Hún varð ekki forgangskrafa ef til gjaldþrots kom heldur var tekin fyrir eins og almenn krafa. Alþingi breytti þessu hins vegar árið 1989. Eftir þaö hafa skattaskuldir engan for- gang umfram aörar kröfur. Það eru fáir skattar sem hafa slíkan forgang eftir lagabreyt- ingarnar. Meðal þeirra eru fasteignagjöld sveitarfélaga, þungaskattur á bíla og af- notagjöld Ríkisútvarpsins, samkeppnisaðila Stöðvar 2. SEINT VERÐUR GEIR FORSTJÓRI í STÓRIÐJU Nú þegar búið er að blása álverið af er Ijóst að Geir A. Gunnlaugsson. forstjóri Marels, veröur ekki forstjóri þess í bráð. Þótt álverið hafi átt að verða í eigu útlendinga er vitað að Geir var kandídat Jóns Sigurðssonar til starf- ans. Geir átti meðal annars sæti í samninga- og undir- AF STJORNUNNI A SOLINA búningsnefndum vegna ál- versins. Geir var líka kandídat í sæti forstjóra Kísilmálmverk- smiðjunnar á Reyðarfirði á sínum tíma. Sú verksmiðja kom aldrei, eins og kunnugt er. Geir virðist því ekki ætlað að sitjast í slíkan stól. Hann er nokkurs konar endanleg mengunarvörn fyrir stóriðju. En þótt Geir hafi misst af hugsanlegu forstjórastarfi er Ijóst að Jón Sigurðsson er í enn verri málum. Hann hefur hengt alla sína hatta á álver- ið. Frestun á álverinu setur því stórt strik í pólitískan frama hans. Eftir að Ijóst er að ekkert verður af byggingu álversins versnar staða Jóns í Reykja- neskjördæmi, en þar hefur hann átt í baráttu við Guð- mund Árna Stefánsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði. Þeir hafa líka verið taldir líkleg- astir arftakar Jóns Baldvins Hannibalssonar sem for- menn flokksins. Nú þegar ál- verið er horfið vænkast hag- ur Guðmundar. TÍMABUNDINN SKATTURí FJÓRTÁN ÁR Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði verður lagður á 1992, fjórtánda árið í röð eða frá því vinstristjórn Ólafs Jóhannessonar tók hann upp 1979 og Tómas Árnason var fjármálaráð- herra. Skattur þessi hefur ávallt verið sjálfstæðismönn- um eitur í beinum og þeir oft og iðulega heitið því að leggja hann niður. rukkaði inn 302 milljónir að núvirði fyrsta ár- ið. Næstu þrjú árin rukkaði Ragnar Arnalds fjármála- ráðherra í ríkisstjórn Gunn- ars Thoroddsen að meðal- tali 319 milljónir með skattin- um. Árin 1983 til 1986 voru sjálfstæðismenn í fjármála- ráðuneytinu. Albert Guð- mundssyni tókst ekki að fella skattinn niður, en lækk- aði hann þó niður í 291 millj- ón að meðaltali. Árið 1986 tók Þorsteinn Pálsson við og þá hækkaði skatturinn upp í 332 milljónir. Árið eftir stýrði Þorsteinn ríkisstjórn með Jón Baldvin Hanni- balsson sem fjármálaráð- herra og skatturinn fór í 346 milljónir. Árið 1989 hafði Ól- afur Ragnar Grímsson tek- Íð við og honum tókst að koma skattinum upp í 525 milljónir. Á þessu ári á hann að vera tæpar 500 milljónir, en 1992, á fyrsta fjárlagaári Friðriks Sophussonar, á hann að vera 505 milljónir. Það er 67 prósentum meira en þegar Tómas rukkaði hann fyrst 1979. Bráðlega mun ný útvarpsstöð heffa út- sendingar. Stöðin hefur hlotið nafnið Sólin 100. Það er Jóhannes B. Skúlason, fyrr- verandi útvarpsstjóri Stjörnunnar, sem er maðurinn á bak við Sólina. Auk hans hafa þeir Bjarni Óskarsson, veitingamaöur í Berlín, og Gísli Gíslason lögfræðingur verið orðaðir við reksturinn. í samtali við PRESSUNA kvaðst Bjarni ekki vera á leið- inni í útvarpsrekstur. Bjarni sagði Jóhann- es hafa rætt við sig en kvaðst ekki ætla að leggja fram neitt fé í reksturinn. ,,Eg hef verið að aðstoða strákinn við að koma þessu á fót,“ sagði Gísli Gíslason að- spurður um sinn þátt í stofnun stöðvarinn- ar. Gisli sagði að hann mundi koma til með að eiga einhvern hlut í Sólinni en ekki koma neitt nálægt daglegum rekstri. Sólinni er ætlað að vera útvarp fyrir alla fjölskylduna og á að verða „stíluð eftir því hvenær fólk getur hlustað", eins og Gísli orðaði það. Sólin mun meðal annars ætla að sinna börnum sérstaklega. Jóhannes tók við rekstri Stjörnunnar i apríl síðastliðnum en íslenska útvarpsfé- lagið sagði upp samstarfssamningi sínum við hann. Ekki munu enn öll mál Jóhann- esar gagnvart Stjörnunni og Islenska út- varpsfélaginu vera til lykta leidd, að því er heimildir PREiSSUNNAR herma. geir a. gunnlaugsson. Fyrst brást Kisilmálmverksmiðjan og nú er álverið farið. jónsigurosson. Hengdi hatt sinn á álverið sem brást. tóm- as arnason. Varð fyrstur til að leggja skatt á verslunarhúsnæði. albert guðmundsson. Vildi skattinn burt en innheimti hann samt. þor- steinn pálsson. Vildi skattinn burt en innheimti hann samt. friðrik sophusson. Vildi skattinn burt en innheimti hann samt. Reddarðu ekki bara ál- veri líka, Þorkell? ,,Láttu mig sjá pappír- ana.“ Þorkell Stefánsson er fram- kvæmdastjóri Raftækjaversl- unar islands. En þaö fyrirtæki borgaði ferð íslenska hand- boltalandsliðsins á mót í Ung- verjalandi á dögunum og hljóp þar undir bagga meö HSÍ er hafði ekki efni á ferð- inni. LfTILRÆÐI af verdstrídi Það þykir alltaf tíðindum sæta þegar styrjaldir brjót- ast út. Fyrirsagnir í blöðum stækka og ná stundum yfir alla forsiðuna, sérstaklega ef líklegt er talið að meirihátt- ar blóðbað sé í aðsigi, að ekki sé nú talað um ef til stendur að tortíma öllu sem lífsanda dregur á jörðinni. Sjónvarpsfréttamenn hleypa brúnum og verða ábúðarmiklir í hvert sinn sem fjallað er um styrjaldir, hvort sem það nú er fyrir botni Miðjarðarhafs, á Balk- anskaga eða í öðrum heims- hornum. Styrjaldarfregnir hafa löngum þótt vond tíðindi. Á íslandi hefur lítið verið barist síðan á sturlungaöld og þessvegna eru styrjaldar- fréttir af íslenskri grund fremur fátíðar. Þó hefur, uppá síðkastið, svolítið örlað á stríðsfréttum frá íslandi i fjölmiðlum og venjulega með þeim hætti að ætla mætti að miklar hörmungar væru í uppsigl- ingu í kjölfar átakanna og jafnvel tortíming lands og þjóðar. Hildarleikurinn er kallað- ur „verðstríð" og gjarnan nefndur í sömu andrá og tor- tímingarstyrjaldir með sýkl- um og eitri eða atómstríð. Fréttamenn spyrja við- mæiendur sína með miklum þunga: — Er skollið á verðstríð? Bara einsog það væru mestu hörmungar sem dun- ið gætu á íslensku þjóðinni. — Mikligarður og Bónus í hrikalegu verðstríði. — Verð- stríð um flugfargjöld yfirvof- andi. — Verðstríð í græn- meti. Nú er það svo að við sigl- um hraðbyri inní mikið og langþráð „frelsi”; frjálst framtak, frjálsa verslun, at- hafnafrelsi, frjálsa hugsun og umfram allt frelsi fram- boðs og eftirspurnar þar sem fólki gefst kostur á að versla þar sem það er hag- kvæmast. Þegar þeir sem eitthvað hafa á boðstólum fyrir neyt- endur eru svo að undirbjóða hver annan með því að lækka verðið er það atferli kallað „verðstríð" og ætti að vera guði og góðum neyt- endum þóknanlegt athæfi. Indælt stríð. Því bið ég til guðs að þessi styrjöld breiðist út svo það verði ekki bara Mikligarður og Bónus sem berist á bana- spjótum í verðstríði til hags- bóta fyrir neytendur, heldur öll verslunarstéttin og aðrir þeir sem eitthvað bjóða falt. Það er nefnilega tómt mál að tala um frjálsa sam- keppni, þegar samkeppnis- aðilarnir bindast endalaust samtökum um að halda verðlaginu uppi. Þessvegna er það mín heitasta ósk að olíufélög, flugfélög, kaupskipafélög, tryggingafélög, lögmenn, tannlæknar og fasteignasal- ar hætti að liggja í endalaus- um faðmlögum, meðan þeir eru bakvið tjöldin í elsku- légu samráði að semja „við- miðunargjaldskrárnar" sín- ar, og lofa að undirbjóða ekki hver. annan. Má ég þá heldur, fyrir hönd neytenda, biðja um allsherjar styrjöld á mark- aðnum, verðstríð, í anda frjálshyggjunnar, svo ein- hver geti einhverntímann fengið eitthvað á skikkan- legu verði. Verðstríð er ekki ógæfa heldur eðlilegur og guði þóknanlegur framgangs- máti frjálsrar samkeppni. Þessvegna segi ég einsog sir Douglas Haig í síðari heimsstyrjöldinni: Guð blessi stríðið.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.