Pressan - 14.11.1991, Blaðsíða 22

Pressan - 14.11.1991, Blaðsíða 22
22 / í Vinsælustu ilmvötnin fyrir karla B i j a n Boucheron B o s s C a r t i e r Gucci Nobile Egoiste Fahrenheit G I o b e M o s c h i n o T s a r Þessl listi er byggður á upplýsingum frá snyrtivöruverslunum Clöru Mikið væri mannskepnan gölluð ef hún hefði ekki lykt- arskynið. Lykt leikur nefni- lega stórt hlutverk í daglegu lífi og án efa eiga flestir erfitt með að ímynda sér hvernig lífið væri án lyktar. Fólk fær vatn í munninn og verður banhungrað finni það góða matarlykt og fólk hryllir sig og grettir finni það lykt sem því er ógeðfelld. Lykt er stundum tengd ákveðnum atburðum í lífi fólks, góðum eða slæmum. Og finni það aftur eins lykt standa atburðirnir því lifandi fyrir hugskotssjónum og það endurlifir þá og finnur til samskonar tilfinninga og það fann áður. Þannig væru minningarnar minna virði el þær lyktuðu ekki neitt. Hver kannast ekki við að hafa staðið úti í náttúrunni að vori og teygað að sér gróður- ilminn. dásamað hann og vegsamað sem eitt af því er k JAMES DEAN gerði lífið þess virði að lifa því? Eða hafa keyrt framhjá Hvalstöðinni fyrr á árum með aðra hönd á stýri og hina klemmda um nefið á sér og blótað fýlunni í sand og ösku? Jafnvel ekki botnað í því hvernig nokkur maður fengist til að vinna í þessum fjanda. LYKT ÞARF AÐ VERA RÉTT En lykt er ekki bara lykt. Hún er fýla, stybba, ilmur, fnykur, þefur og pest. Ógeðs- leg, hræðileg, yndisleg, góð og vond. Hún er táfýla, svita- lykt, skítalykt og andfýla. Hún er hluti af okkur sjálfum og öll lyktum við. Lykt vekur viðbrögð og hún getur verið kynæsandi og fráhrindandi og allt þar á milli. Svitalykt er eðlileg og allir, eða að minnsta kosti flestir, svitna. Það þykir eðli- legt að svitalykt finnist af FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. NÓVEMBER 1991 af lykt og olykt SAMS&R Glíwm Stjórnar lyktarskynið makavali? Hvernig var lyktin af Marilyn Monroe? Eða James Dean? Kemur lyktin upp um starf okkar og jafnvel innri mann? fólki þegar það hefur erfiðað. Og enginn kvartar yfir svita- lykt þegar umhverfið er þess eðlis að sjálfsagt sé að svitna. Til að mynda á íþróttaleikjum og annars staðar þar sem æs- ingur er mikill og tekist er á. En það kann ekki góðri lukku að stýra að menn angi af eigin svita þegar þeir eru búnir að klæða sig í sitt fín- asta púss og eru í veislum, í leikhúsi eða annars staðar þar sem sjálfsagt þykir að menn séu vel til hafðir. LEYF MÉR AÐ ÞEFA AF ÞÉR OG ÉG SKAL SEGJA ÞÉR HVER ÞÚ ERT í föt fólks sest líka lykt sem ræðst af því sem verið er að fást við hverju sinni. Þegar fólk kemur úr hesthúsinu er eðlilegt að af því leggi hesta- lykt og þegar fólk gerir sér glaðan dag á hestamanna- mótum er enginn litinn horn- auga þótt hestalykt beri fyrir vit. En mér er til efs að það þyki sjálfsagt að menn angi af hrossum á árshátíðum hesta- mannafélaganna. Störf fólks eru margvísleg og ákveðin lykt tengd þeim mörgum. Og þá einnig fólk- inu sem störfin vinnur (mér skilst að einkennislykt blaða- manna sé reykingalykt). Oft má gera sér í hugarlund við hvað fólk vinnur þegar mað- ur finnur lyktina sem fylgir því, þegar það er í vinnuföt- unum vel að merkja. Það ræðst því af kringum- stæðum hverju sinni hvernig lykt er eðliíeg. Umhverfið þarf að vera þannig að lyktin sé í samræmi og stingi ekki í stúf. Það er hjákátlegt að til dæmis bifvélavirki angi af Egoiste en ekki af smurolíu eða þá að lögfræðingur angi af smurolíu. Fólk mundi varla treysta þeim sem ekki eru í samræmi við starf sitt. Hér er að sjálfsögðu ekki verið að reyna að gera lítið úr þessum stéttum heldur benda á hve sterka ímynd ákveðin störf hafa. Ef mark á að vera takandi á mönnum þurfa þeir að líta út fyrir að vera menn sem vinna það sem ætlast er til af þeim. SNYRTIVÖRU- FRAMLEIÐENDUR EYÐILEGGJA MAKAVAL Hverjum og einum fylgir ákveðin lykt, einskonar ein- kennislykt hvers einstakl- ings. Það er hennar vegna sem sporhundar eru svona naskir á að finna fólk sem af einhverjum ástæðum er leitað. Lærðir menn hafa meira að segja leitt að því líkur að menn leiti sér maka eftir lykt- arskyni sínu. Það er að segja að fólk gefi frá sér ákveðna lykt sem aðeins einni annarri persónu sé ætlað að finna. Og með þessum hætti sé okkur mannfólkinu ætlað að leita okkur að lífsförunauti. En í snyrtipinnaheiminum er komið í veg fyrir þetta því all ir keppast við að Druesukker tabletter VtTALUÍl TABUnií Wífir.tji. cg wt w u»*3**tf •*. 100 STK. GTR HURTIG ENERGI 250 ABCDin litKtiei Vnr. 19 9051 Hvcr lablol A-vilamln 5. Dj.vitnmm 600 l£. TUminnilral (Bi-vllnmin) 3 ing lliboiinvln (Bj-vilnmin) 3 mg Nikolinnmld 20 mg Pyridoxinklorid 2 mo Prnlolonoyro (jom Ca.EOlt) 8 mg Mkorbinoyro 75 mfl FERROSAN Kobonhnvn Vnr.t 18 03 07 t-. o. , r ?i;. mumimm * J500 mg A 1 1 \ Æskilegur dagskammtur: 5-6 perlur Ráöiagöur dagskammtur al A-vltamini er 1000 hq og af D-vítamíni 10 jig- Gfymist i þurrum og köidum stað i lokuðum umbúóun. Súrmjólkin er ein kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðug af próteini, fosfóri, ýmsum B-vítamínuní

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.