Pressan - 14.11.1991, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. NÓVEMBER 1991
LYFJAFRÆÐINGARNIR
KLIKKUDUILLA Á
PRÓSENTUREIKNINGNUM
í síðustu viku birtu Hjörleifur Þúrarinsson, Hulda Haröur-
dóllir og Þurídur Erla Sigurgeirsdóllir, lyfjafræðingar í Lauga-
vegs Apóteki, grein í Morgunblaðinu um greiðslur sjúklinga
fyrir lyf í heimsendingaþjónustu apóteksins, í Ijósi nýrra
reglna Sighuats Björgvinssonar tryggingaráðherra.
Afdráttarlaus niðurstaða var að hlutur aldraðra og öryrkja
i lyfjaverði hefði hækkað úr 10 til 11 prósentum í apríl til júní
í 38 prósent i júlí og ágúst og 32 prósent í september. Á sama
tíma hefði hlutur allra viðskiptavina (sjúklinga) hækkað úr 13
til 15 prósentum í 29 og síðan 24 prósent. „Könnun Laugavegs
Apóteks á greiðslubyrði aldraðra og öryrkja sýnir að hún hef-
ur aukist töluvert með tilkomu nýrrar reglugerðar um þátt-
töku almannatrygginga í lyfjakostnaði. Aukningin er það mik-
il. að í dag greiða ellilífeyrisþegar og öryrkjar hlutfallslega
meira fyrir lyf sín en aðrir," sögðu lyfjafræðingarnir.
Tveimur dögum síðar birtu þau leiðréttingu í Morgunblað-
inu. „Meinleg villa slæddist inn í útreikninga," stóð þar — pró-
sentur höfðu verið reiknaðar út frá röngum tölum. Meginnið-
urstaðan kollvarpaðist um leið: „Ellilifeyrisþegar og öryrkjar
greiða því samkvæmt þessari athugun sama hlutfall og aðr-
ir . . ."
RIKISFRAML
TIL HÆSTARÉTTAR
FER LÆKKANDI
Á sama tíma og rekstrarkostnaður embættis forseta íslands.
ríkisstjórnar, Alþingis og aðalskrifstofa ráðuneytanna heíur
hækkað um allt að 640 prósentum hefur ríkisframlag til
Hæstaréttar hækkað um 135 prósent og raunar staðið að
mestu í stað síðustu 10 til 15 árin.
Árið 1969 var 22 milljónum króna að núvirði veitt úr ríkis-
sjóði til Hæstaréttar. Árið 1979 var talan komin upp í 42,7
milljónir ojg hefur frá þeim tíma oftast verið á bilinu 45 til 55
milljónir. Á síðustu árum fór framlagið lægst niður í 40,7 millj-
ónir árið 1984, en hæst upp í 62,7 milljónir 1987. Síðan hefur
framlagið farið enn lækkandi og samkvæmt fjárlagafrum-
varpi Fridriks Sophussonar á það að vera 53,7 milljónir á
næsta ári.
Bikarinn
KRDFUHAFARNIR
VILJA RANNSDKN
Kröfuhafar í þrotabú Bikarsins vilja rannsókn á gjaldþroti
verslunarinnar. Einn þeirra sagði i samtali við PRESSUNA að
sér þætti sýnt að þetta væri ekki venjulegt og „heiðarlegt"
gjaldþrot.
„Eg mun tapa verulegum fjárhæðum á þessu og er tilbúinn
að borga meira til að kosta rannsókn á málinu. Ég hef falið lög-
manni minum að gera athugasemdir á fyrsta skiptafundi. sem
verður eftir áramót," sagði einn þeirra sem eiga kröfur á hend-
ur Bikarnum við Skólavörðustíg. Eins og kom fram í PRESS-
UNNI í síðustu viku varð verslunin gjaldþrota í byrjun síðasta
mánaðar.
Hafþór Guömundsson, sem átti Bikarinn, er nú fram-
kvæmdastjóri Sagasport, en það fyrirtæki keypti Bikarinn eft-
ir gjaldþrotið.
Kröfuhafinn sagðist viss um að ekki hefði verið staðið eðli-
lega að sölu verslunarinnar og hann dró í efa að allar eignir
Bikarsins hefðu fylgt með í sölunni og sagðist ákveðinn í að
leita allra ráða til að fá hið sanna í ljós.
Hafþór Guðmundsson hefur neitað því alfarið, í samtali við
PRESSUNA, að ekki hafi verið staðið eðlilega að sölu verslun-
arinnar.
Ásbjörn Jensen eigandi Café Jensen: Trúi ekki að Hreiðar hafi átt þátt í þessu. Hann hefur engan hag af því að hér komi upp
„China Town“-ástand. Ásbjörn hlaut skurð á andliti, tvö glóðaraugu, sár á hnjám og höndum og stóra kúlu á hnakkann. Nef
hans skekktist og föt hans voru rifin og blóðug.
Starfsmenn í Smiðjukaffi
KÆRDIR FYRIR
LÍKAMSÁRÁS og
SKEMMDARVERK
Eigandi Café Jen'sen í
Mjóddinni og fimm gestir
hússins hafa kært líkamsárás-
ir sem áttu sér stað þar fyrir
skemmstu. I kæru eigandans,
Ashjörns Jensen. eru tveir
bræður nefndir, þeir PúU og
Vilhjálmur Valdimarssynir.
Peir eru starfsmenn Smiðju-
kaffis, sem er í eigu Hreidars
Svavarssonar. Priðji bróðir-
inn. Grétur. kom samkvæmt
vitnum einnig við sögu.
Hreiðar hetur sjálfur verið
kærður vegna annars máls,
ásamt lögmanninum Gréturi
Huraldssvni. af Guöjóni fíúls-
syni í Bjórhöllinni, vegna
meintra skemmdarverka. Ás-
björn segist ekki trúa því að
Hreiðar sé persónulega
ábyrgur fyrir árásinni á Café
Jensen.
Ásbjörn opnaði veitinga-
hús sitt í Mjóddinni í janúar
síðastliðnum og segir árásina
19. október ekki fyrstu af-
skipti Smiðjukaffismanna af
rekstrinum. Hann segir rekst-
urinn hafa gengið vel og
hann hafi fengið til sín fjölda
fastagesta, sem sóttu áður
Smiðjukaffi — það sé undirrót
gremjunnar sem birst hafi
með líkamsárásunum.
skemmdarverkum og hótun-
um.
GREMJA í SMIÐJUKAFFI
VEGNA VELGENGNI
CAFÉ JENSEN
„Mér reiknast í fljótu
bragði til að frá því að ég opn-
aði hafi ég tekið frá Smiðju-
kaffi viðskipti upp á 6 til 7
milljónir króna. Mér er kunn-
ugt um að starfsfólk Smiðju-
kaffis og Staupasteins á inni
laun sem það hefur ekki feng-
ið greitt vegna fjárhagslegra
erfiðleika. Þeir bræður voru
forsprakkarnir í árásinni. en
það voru fleiri sendir út frá
Smiðjukaffi og tel ég mig geta
nafngreint menn sem komu
hingað í þessum tilgangi,"
segir Ásbjörn.
Hann segir að umrætt
kvöld hafi komið á Café Jens-
en fjörutíu manna hópur, sem
var að halda upp á afmæli
eins úr hópnum. í þessum
hópi voru meðal annars
starfsmenn Smiðjukaffis.
„Menn frá víneftirlitinu voru
á staðnum og það er athyglis-
vert að strax eftir að þeir fóru
var sett upp einhvers konar
„leiksýning", sem endaði
með fjöldaslagsmálum.
Fastagestur sigraði einn þess-
ara manna í sjómanni og við-
brögð hins sigraða voru að
slá fastagestinn niður."
SÖGÐU MÉR AÐ HYPJA
MIG OG HALDA KJAFTI
„Ég hljóp til og ætlaði að
stilla til friðar, einkennis-
klæddur, en þá spratt upp
hópur manna og ég var sleg-
inn með stól í höfuðið. Vitni
segja að það hafi gert Arnar
Unnarsson. Síðan var ég
dreginn út fyrir, margoft sleg-
inn og í mig sparkað. Um leið
voru þeir að segja mér að
hypja mig burt og halda kjafti
um atburðinn. Fjórum fasta-
Smiðjukaffi/Staupasteinn. Ásbjörn telur sig hafa tekið við-
skipti af þessu veitingahúsi fyrir allt að 7 milljónum króna í
ár. Árás starfsmanna Smiðjukaffis megi e.t.v. rekja til þess
að þeir fengu ekki greidd laun. Áður hefur PRESSAN sagt
frá glímu Smiðjukaffis við Bjórhöllina, en framkvæmdastjóri
hennar hefur kært skemmdarverk með meiru.
vranv****1
gestum okkar var einnig mis-
þyrmt í þessari fólskulegu lík-
amsárás og kona var slegin
þegar hún reyndi að stilla til
friðar. Viö höfum öll kært
þetta og nú er lögfræðingur
að taka saman fyrir mig
kröfugerð vegna likamsárás-
ar og skemmdarverka."
Ásbjörn og gestir urðu að
leita til slysadeildar eftir átök-
in og miklar skemmdir urðu á
innanstokksmunum veitinga-
hússins. Páll Valdimarsson
mun siðar um nóttina hafa
verið handtekinn á slysadeild
eftir ábendingu Ásbjörns.
„VAR EKKI ÞARNA
STADDUR“ SEGIR EINN
HINNA KÆRÐU
Ásbjörn segist ekki hafa trú
á því að eigandi Smiðjukaffis
og Staupasteins, Hreiðar
Svavarsson, hafi átt þátt í að-
gerðinni. „Ég hef enga trú á
því. Hann hefur engan hag af
því að hér komi upp eitthvert
China-Town-ástand," segir Ás-
björn.
„Petta er einhver misskiln-
ingur. Ég var ekki þarna
staddur," var það eina sem
Páll Valdimarsson vildi segja
um málið. Páll er bílstjóri hjá
Smiðjukaffi, en Vilhjálmur
dyravörður á Staupasteini.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er skýrslu-
töku rannsóknardeildar lög-
reglunnar í Reykjavík lokið
og næsta mál á dagskrá að
taka skýrslu af þeim sem
kærðir hafa verið.
Friðrik Þór Guðmundsson