Pressan - 14.11.1991, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. NÓVEMBER 1991
5
IVf
ITAikla athygli vakti þegar upp-
lýstist að nokkrir prestar og sýslu-
menn greiða sáralitla húsaleigu.
Þeir prestar sem
borga minnst greiða
eina krónu á mánuði
í leigu fyrir einbýlis-
hús. Jón ísberg,
sýslumaður Hún-
vetninga, greiðir
lægri leigu en aðrir
sýslumenn, eða aðeins ellefu krón-
ur á mánuði. í heimabyggð Jóns
hafa menn haft gaman af þessum
fréttum og segja að illa sé farið með
sýslumanninn, þar sem hann borgi
húsaleigu á við ellefu presta . ..
egar Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra ákvað að
leyfa námsmönnum að eiga einn
fulltrúa í nefndinni, sem hann skip-
aði til að fara yfir málefni Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, kom sam-
starfsnefnd námsmannahreyfing-
anna saman og valdi Pétur Þor-
stein Óskarsson, aðallánasjóðs-
fulltrúa Stúdentaráðs HÍ, til að sitja
í téðri nefnd menntamálaráðherra. í
samstarfsnefndinni eiga sæti 2 full-
trúar frá SÍNE, BÍSN, Stúdentaráði
HÍ og Iðnnemasambandinu og var
unnið að tillögum um úrbætur sem
Pétur lagði fram í nefnd Ólafs. í sam-
starfsnefndinni átti einnig sæti vara-
lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs, Elsa
Bjðrk Valsdóttir, formaður Vöku.
Auk þess sem Elsa sat í samstarfs-
nefndinni vann hún að sértillögum
innan stjórnar Vöku og sendi þær til
ráðherra. Ólafur var svo hrifinn af
tillögum Elsu að hann bauð henni
sæti í lánasjóðsnefndinni og nú á
Vaka, eitt sérfélaga innan náms-
mannahreyfingarinnar, sinn fulltrúa
á meðan önnur félög verða að kjósa
sameiginlegan fulltrúa . . .
F
J__lkki sér fyrir endann á deilum
Steina og Skífunnar og er mál
manna að engin lausn muni finnast.
Deilurnar hófust
með því að Steinar
sendu Skífunni, Jap-
isog fleirumbréf þar
sem tilkynnt var að
afsláttur til fyrir-
tækjanna yrði lækk-
aður úr 33,3 pró-
sentum í tuttugu prósent. Jón ÓI-
afsson, eigandi Skífunnar, var
óhress með þetta og hætti viðskipt-
um við Steina. Skífan gefur út plötur
Savanna-tríósins, Sléttuúlfanna og
Egils Ólafssonar meðal annars.
Steinar Berg hjá Steinum er með
Bubba, Todmobile, Sálina, Ný
danska, Geirmund Valtýsson og
fleiri á sínum snærum. Menn telja
helstu ástæðu aðgerða Steinars
Bergs þá að hann telji sig vera með
söluvænlegustu útgáfuna fyrir jólin
og vara hans sé því ómissandi í öll-
um hljómplötuverslunum ...
M
Ifienn hafa haft miklar áhyggj-
ur af löngum biðlistum sjúklinga
sem bíða eftir að komast í skurðað-
gerðir. Högni Torfason, formaður
Læknafélags Reykajvíkur, hreyfði
þeirri tillögu við ráðamenn heii-
brigðisráðuneytisins, að læknar
fengju að nota skurðstofur spítal-
anna utan venjulegs vinnutíma. Til-
lagan hefur ekki komið til um-
ræðu ...
F
1 dins og PRESSAN hefur áður
sagt gaf Byggðastofnun Silfurstjörn-
unni 25 milljónir króna. Silfurstjarn-
an hefur notað aurana og keypt sér
fóðurverksmiðju frá Noregi. Verk-
smiðjan kemur fljótlega til landsins.
Nú er verið að byggja stálgrindar-
hús sem mun hýsa verksmiðj-
una ...
Baðsett
á góðu verði
Vegna hagstæðra samninga og magninnkaupa
á baðsettum getum við boðið í einum pakka:
WC, HANDLAUG,
BAÐ og STURTUBOTN
á einstöku verði.
Suöurlandsbraut 20 - Sími: 91 -8 38 33 |