Pressan - 14.11.1991, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. NÓVEMBER 1991
13
SAKAOUR UM AB
1AKA 7 MILLJÚNA
ÞÚKNUN FYRIR
QNAUflSYNLEGA OG
OVERULEGA VINNU
Sigmundur Böðvarsson lögfrœðingur hefur höfðað mál gegn Othari Emi Petersen lögfrœðingi vegna uppgjörs á fyrirtœkinu Böðuari S.
Bjamasyni sf. Othar Öm er þar sagður hafa tekið sér óhœfilega þóknun, sýnt afsér uanrœkslu og skert stórlega eignir dánarbús Böðuars.
Siymundur Bööuarsson lögfræð-
ingur hefur höfðað mál gegn Olhari
Erni Petersen lögfræðingi vegna
meintrar oftekinnar þóknunar fyrir
frágöngu á dánarbúi Bödvars Steph-
ensen Bjarnasonar byggingarverk-
taka og byggingarfyrirtækis hans og
sonar hans, Bödvurs Bödvarssonar,
BSB sf. Krefst Sigmundur þess að
Othar endurgreiði alla þóknunina
sem hann tók sér fyrir störf vegna
greiðslustöðvunar BSB sf. og eig-
enda, upphæð sem með vöxtum og
vaxtavöxtum hljóðar upp á 2 til 2,5
milljónir króna, og greiði að auki
sérstaka úttekt endurskoðanda upp
á tæpar 500 þúsund krónur. Þá boð-
ar Sigmundur einnig sérstakt skaða-
bótamál í kjölfarið.
Othar Örn Petersen segir stefnu
Sigmundar og allt sem fram komi í
kröfugerð hans ekki standast. „Það
eru hreinar línur og við skulum
spyrja að leikslokum," segir hann.
BSB sf. var á sínum tíma eitt
stærsta byggingarfyrirtæki lands-
ins. Framkvæmdir fyrirtækisins við
að reisa Pósthússtræti 13 og síðan
hús Rafmagnsveitu Reykjavíkur við
Suðurlandsbraut reyndust því hins
vegar ofviða. Árið 1982 var Othari
falið að ganga frá skuldum fyrirtæk-
isins og eigenda þess, enda stóð til
að hætta starfseminni og fram-
kvæmdirnar við hús RR voru faldar
öðrum.
7 MILLJÓNA KRÓNA
REIKNINGUR FYRIR
GREIÐSLUSTÖÐVUN
Othar brá á það ráð að biðja um
greiðslustöðvun, aðgerð sem Sig-
mundur fullyrðir að hafi verið
óþörf. Vísar hann til greinargerðar
Othars sjálfs, þar sem fram kemur
að í ágúst 1982 hafi eignir BSB sf. og
eigenda þess hljóðað upp á 8,4 millj-
ónir en skuldir 7,1 miíljón. Fram-
reiknað til verðlags í dag hljóðuðu
eignir því upp á 72,8 milljónir króna
en skuldir upp á 62,2 milljónir.
Othar Örn reiknaði sér þóknun
fyrir störf vegna greiðslustöðvunar-
innar, sem hann tilgreindi sem 10
prósent af brúttóskuldum, 860 þús-
und krónur, sem framreiknað hljóð-
ar í dag upp á 7,2 milljónir króna.
Heldur Sigmundur því fram að á
hinu fimm mánaða greiðslustöðv-
unartímabili hafi þóknun Othars
samsvarað einni og hálfri milljón
króna á mánuði. Heildarreikningur
Othars vegna starfa fyrir fyrirtækið
og eigendur þess var hins vegar
hærri, eða um 10 milljónir króna að
núvirði.
SAKAÐUR UM ÓHÓFLEGA
ÞÓKNUN, EIGNAUPPTÖKU
OG VANRÆKSLU
Sigmundur fullyrðir að þóknunin
sem Othar tók til sín sé óhæfileg.
Samkvæmt gjaldskrá Lögmannafé-
lags íslands megi taka „6—10% af
innborgaðri fjárhæð eða upphaf-
legri fjárhæð skulda". Samkvæmt
þessu hafi hámarksþóknun getað
verið 6 prósent af upphaflegri skuld.
Með öðrum orðum að Othar hafi í
hæsta lagi mátt taka sem svarar 3,7
milljónum króna að núvirði, en ekki
7,2 milljónir.
Sigmundur heldur því fram, að
auk þess sem greiðslustöðvun hafi
verið óþörf hafi vinnuframlag Ot-
hars Arnar vegna greiðsjustöðvun-
arinnar verið óverulegt. í bréfi sem
Sigmundur sendi Othari í maí sl.
vegna deilna þessara segir Sig-
mundur m.a.:
....þér hafið stórlega skert eign-
ir dánarbúsins með því að m.a. láta
kaupanda íbúðarinnar að Kjartans-
götu 3, 1. hæð, Reykjavík, gefa út
veðskuldabréf til yðar sem réttilega
átti að gefa út til dánarbúsins. Enn-
fremur er Ijóst að þér hafið áskilið
yður slíka óhæfilega þóknun fyrir
óverulegt vinnuframlag yðar að ég
tel að um sé að ræða eignaupptöku.
Þá hafið þér skaðað arfláta, Böðvar
Böðvarsson og BSB sf., með van-
rækslu yðar á fjármunum búsins,
þ.m.t. lausafjármunum þess, og þér
virðist hafa eignað yður fjármuni er
réttilega voru eign arfláta, Böðvars
Böðvarssonar eða BSB sf.“
SKILAÐI UPPGJÖRI 5 ÁRUM
EFTIR GREIÐSLUSTÖÐVUN
Þess skal getið að þetta er ekki í
Sigmundur Böðvarsson lögfræð-
ingur: Heldur þvífram að auk þess
sem greiðslustöðvun hafi verið
óþörf hafl vinnuframlag Othars
Arnar vegna greiðslustöðvunar-
innar verið óverulegt.
fyrsta skipti sem Sigmundur reynir
að fá endurgreiðslur frá Othari
vegna máls þessa. Böðvar S. Bjarna-
son lést í október 1986 og i upphafi
árs 1987 var beðið um opinber
skipti á dánarbúinu. Þrátt fyrir ósk
skiptaráðanda til Othars um yfirlit
um eignastöðu BSB sf. barst ekkert
og Sigmundur krafðist þess að
skiptaráðandi tæki í sma vörslu öll'
skjöl málsins. Það var ekki gert, en
Othar afhenti greinargerð í október
1987, sem Sigmundur telur alls
ófullnægjandi.
Ritaði Sigmundur þá bréf til ríkis-
saksóknara og krafðist opinberrar
rannsóknar á meðferð Othars á
eignum Böðvars Bjarnasonar og
BSB sf. og um leið sendi skiptaráð-
andi Lögmannafélagi íslands bréf
vegna gjaldtöku Othars. Stjórn fé-
lagsins komst að þeirri niðurstöðu
að málið heyrði ekki undir úrskurð-
arvald félagsins þar sem ágreinings-
efnið væri ekki málflutningsþóknun
Othar Örn Petersen lögfræðingur:
„Ég fullyröi, miðað við umfang
verksins og það sem í það var lagt,
að þóknunin var hæfi-leg.“ Hann
segir gjaldskrárnefnd LMFÍ hafa
staðfest þetta.
heldur málsatvik og að málið heyrði
alfarið undir hina almennu dóm-
stóla.
SAKSÓKNARI VÍSAÐI MÁLINU
FRÁ EFTIR NÆR TVEGGJA
ÁRA RANNSÓKN
Dómsmálaráðuneytið skipaði
hins vegar Sigrídi Ingvarsdóttur sér-
stakan rannsóknarlögreglustjóra í
málinu í nóvember 1988, þar eð
Bogi Nilsson taldi sig vanhæfan
vegna vensla við Othar. Systir Ot-
hars, Elsa Petetrsen, er eiginkona
Boga.
Það var ekki fyrr en í júlí 1990 að
rannsókn Sigríðar lauk og gögn
málsins voru send ríkissaksóknara.
I sama mánuði tók embætti ríkis-
saksóknara þá ákvörðun að af hálfu
embættisins þætti ekki, eftir atvik-
um og eins og málið væri vaxið,
ástæða til frekari aðgerða.
Þessu vilja Sigmundur og aðrir
erfingjar Böðvars Bjarnasonar ekki
una og hafa því höfðað umrætt mál.
Leggur Sigmundur meðal annars
fram niðurstöðu úttektar löggilts
endurskoðanda, þar sem fram
koma ýmsar athugasemdir við árs-
uppgjör og greinargerð Othars.
OTHAR ÖRN: VIÐ SKULUM
SPYRJA AÐ LEIKSLOKUM
Othar Örn Petersen sagði í samtali
við PRESSUNA að stefna Sigmund-
ar væri alröng.
„Þessi herferð hans gegn mér er
löng saga og ég er búinn að fela Há-
koni Árnasyni að reka málið fyrir
mig. Sigmundur byggir mál sitt á því
að greiðslustöðvun hafi ekki verið
nauðsynleg, en staðreyndin er sú að
báðir eigendur fyrirtækisins skrif-
uðu undir beiðni um greiðslustöðv-
un. Sigmundur leitaði sjálfur til mín
og ég tel að greiðslustöðvun hafi
verið eðlileg ráðstöfun, þótt hann sé
á öðru máli nú.
Þá liggur fyrir úrskurður gjald-
skrárnefndar Lögmannafélags ís-
lands, sem komst að þeirri niður-
stöðu, að sú þóknun sem ég fékk
fyrir störfin vegna greiðslustöðvun-
arinnar teldist hæfileg og innan
marka gjaldskrár félagsins. Ég full-
yrði, miðað við umfang verksins og
það sem í það var lagt, að þóknunin
var hæfileg. Hún er ekki bara vegna
greiðslustöðvunartímabilsins sjálfs,
heldur tekur yfir störf allt til ársloka
1986. Að öðru leyti hef ég ekki farið
yfir stefnuna og ekki rætt við lög-
mann minn um hana og vil því ekki
tjá mig nánar um hana. Við verðum
bara að spyrja að leikslokum, bíða
eftir niðurstöðu dómsins, það er allt
of algengt að menn séu dæmdir fyr-
irfram," sagði Othar Örn.
Friðrik Þór Guðmundsson