Pressan - 14.11.1991, Page 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. NÓVEMBER 1991
* er með
ólíkindum
— Á því herrans ári 1968,
þegar blómabörn boðuðu
frjálsræði og byltingar,
var tungutak fjárlaga-
valdsins enn nokkuð
gamaldags. Þá voru 720
•nilljónir núgildra króna
settar í svokallaða ríkis-
framfærslu, þar af fóru
um 125 milljónir i liðinn
„fávitar". Það árið mátti
einnig sjá 1,5 milljónir
renna til bænda vegna
„bóta fyrir Kolorado-
bjöllu'' og prestar fengu
m.a. 5 milljónir undir
liðnum „álag vegna af-
hendingar kirkna", hvað
sem það nú þýðir. Það ár-
ið áttu að renna 2,4 millj-
ónir „til byggingar sýn-
ingarskála á Miklatúni",
en þvi var frestað. Hins
vegar runnu 233 milljónir
í „framkvæmd laga um
hægri umferð". . .
— Margir rótgrónir
þingmenn hættu þing-
mennsku fyrir síðustu al-
þingiskosningar. Þegar lit-
ið er til baka til þingkosn-
inganna i júní 1971 kem-
ur i Ijós að aðeins fimm
|)iugmenn liafa liíað póli-
tískt af allan timann.
Þetta eru |)eir Slciniirim-
ur llermtiimssou. Mulllií-
us Hjtirnason. Kutiiitir
Arnaltls. I'áliin .lóii.sson
og Olafur (1. Kmarsson
(sem |)að árið skreið á
þing sem allra siðasti
uppbótarþingmaður). I
þessurn kosningum voru
sex aðrir kosnir sem sátu
á siðasta j>ingi en hættu
nú. |>au Sk'fán Valneirs-
son. Hai’iiliiltlur lli'li{<i-
ilóllir, Kari’i'l l’áliiiason.
Malllu'as A. Matliiescn,
l'ridjiin l'tírdarson og l‘or-
rtiltlur (Itirátir Kristjáns-
son . . .
FJDGUR
RUSUND
A HAUS
AMEN
Á hverju ári úthlutar ríkið
náðarsamlegast sóknargjöld-
um til trúfélaga landsins af
skattpeningum landsmanna,
allt saman hávísindalegt í
samræmi við skráða með-
limatölu. í ár hljóða sóknar-
gjöldin upp á 728,8 milljónir
króna, þau hækka um 111,1
milljón frá því í fyrra eða um
18 prósent.
Sóknargjöldunum er dreift
þannig að 3.870 krónur og 72
aurar koma á hvern sóknar-
lim á árinu og því mikilvægt
að innvígja sem flesta í söfn-
uðinn. Þjóðkirkjan hefur yfir-
burðastöðu í þessum efnum
með 173.803 meðlimi og fær
tæplega 673 milljónir. Næst-
stærsti söfnuðurinn er Frí-
kirkjan í Reykjavík með
3.989 meðlimi og fær 15,4
milljónir. Þar var hins vegar
um að ræða fækkun á milli
ára um 178 meðlimi.
Hlutfallslega mesta fjölgun-
in milli ára varð hins vegar í
flokknum „önnur trúfélög og
ótilgreind", úr 794 í 1.288 eða
um 62,2 prósent. Inni í þess-
um tölum er væntanlega að
finna marga nýaldarsinnana,
en gjaldið rennur þó í há-
skólasjóð. Eitt nýlega viður-
kennt trúfélag er komið í
fyrsta sinn á pappírinn, Veg-
urinn, með 184 meðlimi og
hlýtur nú 712 þúsund krónur.
Þrír sjálfstæðir söfnuðir
telja innan við 40 manns hver
eða sem svarar tíu fjögurra
manna fjölskyldum. Sem er á
við þokkaiegt fjölskylduboð.
Þetta eru Sjónarhæðarsöfn-
uðurinn á Akureyri, Hvíta-
sunnusöfnuðurinn Kirkju-
lækjarkirkju og Hvítasunnu-
söfnuðurinn Salem, sem telur
aðeins 30 manns.
HVAR í ÓSKÖPUN-
UM ER KIRIBATI?
Það er að verða æ erfiðara
að fylgjast með og vera gjald-
gengur í landafræðinni. Fyrst
kom bylgja nýrra landaheita
með sjálfstæði fjölda Afríku-
ríkja og nú eru gamalgróin
ríki að liðast í sundur.
Þau okkar sem komin eru
af allra, allra léttasta skeiðinu
lærðu landafræði með hlið-
sjón af gömlu góðu „Landa-
bréfabókinni" sem Ríkisút-
gáfa námsbóka gaf út fyrir
þrjátíu árum. Þá voru til lönd
sem hétu Austur-Pakistan,
Ceylon, Kongó og Ródesía.
Þegar við hin sömu skoð-
um lista yfir þjóðríki nútím-
ans blasa við nöfn á borð við
Kiribati, Vanuatu, Tuvalu,
Burkina Faso, Rwanda og
Mayanmar. Maður þarf
greinilega helst að vera
grænfriðungur til að fylgjast
almennilega með .. .
BYLTINGIN
SEM VARÐ
BYLTINGUM
AÐ BRÁÐ
Fyrir 10 árum varð bylting
í Ijósvakamálum hér á landi.
í landsfrægu en horfnu viku-
blaði var byltingunni lýst
með svofelldum hætti:
„Öngþveiti ríkir skyndilega
í sjónvarpsmálum íslendinga.
Allt í einu standa menn and-
spænis því, að sprottnar eru
upp fjölmargar litlar „sjón-
varpsstöðvar", sem saman-
lagt ná til tugþúsunda
manna, jafnt á Reykjavíkur-
svæðinu og út um landið. Það
er ekki aðeins, að íbúar fjöl-
býlishúsa hagnýti sér hina
einföldu leið, sem myndbönd
bjóða upp á, heldur hafa
framtakssamir áhugamenn
um dreifingu myndefnis lagt
kapla milli húsa, reyndar
samtengt heilu blokkahverf-
in í Reykjavík, og ná þannig
samanlagt til tuttugu eða
þrjátíu þúsund manna með
útsendingum sínum."
Hér var verið að ræða um
Videoson-ævintýrið og önn-
ur tengd því, afar umdeilt fyr-
irbæri og að flestra mati kol-
ólöglegt í Ijósi laga um höf-
undarrétt og fleira. Nú er
þessi hlið myndbandavæð-
ingarinnar auðvitað löngu
liðin og byltingar á borð við
Stöð tvö og gervihnetti búnar
að klippa á kaplana. En með-
al annarra orða: Hvað varð af
köplunum? Eru þeir enn tvist
og bast í blokkunum og undir
yfirborði jarðar?
KYNLÍF
Óædri
Eg er alltaf spurð öðru
hvoru um hvort endaþarm-
urinn geti veitt einhverja
kynferðislega ánægju eða
hvort endaþarmskynmök
séu góð. Venjulega upplýsi
ég þá viðkomandi um þá
staðreynd að rassopið og
svæðið þar í kring er úr
sama líkamsvef fóstur-
fræðilega séð og kynfæra-
vefirnir. Endaþarmsörvun
getur því verið kynæsandi
en einungis ef viðhorf til
þeirrar kynhegðunar er
það einnig. (Áður en lengra
er haldið eru viðkvæmir
lesendur varaðir við að
halda lestrinum áfram.)
Endaþarmurinn og kyn-
ferðisleg þýðing hans eru í
margra huga forboðin —
tabú eins og stundum er
sagt. Tabú er eitt form á sál-
félagslegri stjórn meðal
fólks og er sem slíkt mun
magnaðra en allar almenn-
ar siðareglur. Sumir for-
boðnir hlutir valda okkur
engu sérstöku hugarangri
eða tilfinningaólgu heldur
eru bara sjálfsagðir, eins og
til dæmis það að við leggj-
um okkur ekki hunda- eða
endinn
JONA
INGIBJORG
JONSDÓTTIB
kattakjöt til munns. Aðrir
forboðnir hlutir valda hjá
okkur sterkum viðbrögð-
unt og má þar nefna bann
við kynmökum skyld-
menna eða sifjaspellum.
Kynferðislegir möguleikar
endaþarmsins eru líka tabú
í þjóðfélagi okkar en þó
ekki nærri þvi eins mikið
og sifjaspell.
Ýmsir hafa hugleitt hvers
vegna þetta líkamsop —
endaþarmurinn — er tabú.
Má þar nefna nokkrar
kenningar. Endaþarmurinn
hefur í gegnum tíðina verið
tákn þess óhreina og þann-
ig undirstrikað mikil-
vægi hreinleikans og
hins hreina innra með okk-
ur. Hreinlæti skipar mis-
mikinn sess meðal ólíkra
samfélaga en er samt snar
þáttur alls staðar. Enda-
þarmurinn er forboðið lík-
amssvæði og verður þann-
ig hálfgerður líkamsskelf-
ir í hugum manna. Tilgang-
urinn með slíkum líkams-
hrelli er einmitt sá að gera
togstreituna á milli dýrs-
legra og andlegra hvata
okkar Ijósari — klofning lík-
ama og sálar. í þeim trúar-
brögðum þar sem þessi
klofningur er áberandi er
sektarkenndin mikil vfir
hinu líkamlega — hinu
„óhreiná'. í velflestum sam-
félögum er litið á móttak-
andi aðilann í endaþarms-
kynmökum sem „kven-
lega" aðilann, sumpart
vegna þess hve þessi hegð-
un líkist leggangasamför-
um. Litið er á karlmann.
sem riðið er í rass, sem
minni karlmann. Þetta er
meðal annars ástæðan fyrir
því að stundum er sagt að
hægt sé að greina á milli
gagnkynhneigðs karl-
manns og homma; ef sá
gagnkynhneigði vill ekki
láta stimpla sig homma
forðast hann að vera mót-
tökuaðilinn í endaþarms-
kynmökum við annan karl-
mann. Ein ástæðan fyrir að
þetta líkamssvæði er for-
boðið getur verið sú að það
hjálpar til við að halda í
skýrt afmörkuð félagsleg
kynhlutverk. Aukin við-
urkenning á endaþarms-
örvun í kynlífi helst að
sumu leyti einnig í hendur
við aukna viðurkenningu
á samkynhneigð. sérstak-
lega meðal karlmanna.
Tíminn stendur ekki í
stað. Það má vel halda því
fram að tími sé til kominn
að skora þetta rassatabú á
hólm. Framfarir í vísindum
og læknisfræði gera okkur
kleift að taka ákvarðanir
um hreinlæti byggðar á
rökum i stað tilfinninga ein-
göngu. Klofningur líkama
og sálar fer hraðminnk-
andi. Sömuleiðis er stöðugt
verið að kryfja kynhlut-
verkin til mergjar og við-
horf fólks til samkyn-
hneigðar taka vonandi ein-
hvern tímann stakkaskipt-
um. Reyndar er enda-
þarmsörvun í kynlífi engin
ný bóla í mannkynssög-
unni. ísumum austantjalds-
löndum þar sem erfitt er að
nálgast getnaðarvarnir eru
endaþarmskynmök þekkt-
ur valkostur í því skyni að
forðast barneignir. A tím-
um alnæmis verður að geta
þess að samfarir í enda-
þarm, án smokks, eru ein
hættulegasta kynhegðunin
vegna þess að slímhúðin í
endaþarminum er við-
kvæm fyrir hnjaski. Komist
sæði smitað af alnæmis-
veirunni inn í slímhúðina
er leiðin greið inn í blóðrás-
ina. Kynlífskönnuðir; farið
varlega.
.. ef sá gagn-
kynhneigði vill
ekki láta stimpla
sig homma
forðast hann að
vera móttöku-
aðilinn í enda-
þarmskyn-
mökum.“
Spyrjió Jónu um kynlífló. Utanáskrlft: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík