Pressan - 14.11.1991, Side 35
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 14. NÓVEMBER 1991
35
KONA SEM VAR
KARL FYRIR
TVEIMUR ÁRL/M
„Ég lífí eðlilegu kynlífí en
sjálfsmyndin er fyrír mestu"
„Mér líður ekki eins og ég
hafi skipt um kyn. Mér líður
eins og mistök náttúrunnar
hafi verið leiðrétt og nú geti
ég lifað óáreitt sem sú kona
sem ég hef alltaf verið," sagði
íslensk kona sem fæddist
karlmaður og gekkst fyrir
tveimur árum undir kyn-
skiptaaðgerð og er nú búsett
erlendis undir nýju nafni.
Hún féllst á að segja lesend-
um PRESSUNNAR sögu sína
ef það mætti verða öðrum til
hjálpar.
„Eg fæddist og ólst upp úti
á landi. Frá því að ég man eft-
ir mér hefur mér fundist ég
vera kona, en þar sem ég
fæddist í karlmannslíkama
varð ég útundan hjá jafnöldr-
um mínum; stelpurnar litu á
mig sem strák, sjálf leit ég á
mig sem stelpu og strákarnir
stríddu mér og ég lenti sjálf-
sagt þarna einhvers staðar á
milli."
MEYR EN SAMT OF HÖRÐ
„Líkt og gerist í öllum hóp-
um eða skólum var níðst á
þeim sem voru veikburða og
í mínu tilfelli tilheyrði ég eng-
um. Ég var meyr en ekki töff
eins og strákarnir, en sjálfsagt
aðeins of töff fyrir stelpurnar.
Andlega átti ég þó heima í
stelpuhópnum en valdi mér
léttustu leiðina, sem lá ein-
hvern veginn mitt á milli
kynjanna, enda vart við öðru
að búast af 8—10 ára krakka.
Á unglingsárunum fór ég
að reyna að finna sjálfan mig
í samkynhneigð þar sem ég
hafði tilfinningar til karl-
manna, en fann fljótlega að
ég laðaðist ekki að karl-
mönnum sem karlmaður
heldur sem kona og það gekk
því heldur ekki upp. Ég var
kvenmannssál í karlmanns-
líkama og gat því ekki elskað
eða fundið fróun í þeim kyn-
færum sem náttúran hafði út-
hlutað mér. Ég lifði þannig
engu kynlífi fyrir aðgerðina."
GEÐLÆKNIRINN
Á VILLIGÖTUM
„Ég leitaði mér hjálpar hjá
geðlækni þegar einmana-
kenndin og vanlíðanin urðu
mér um megn. Ég hafði þá
lesið um sambærilegar að-
gerðir og vissi að það yrði
lausnin fyrir mig. Hjá geð-
lækninum komst ég að
mörgu mikilvægu varðandi
sjálfa mig, en hvað varðaði
þetta sem máli skipti var
hann á algerum villigötum.
Hann var allan tímann að
reyna að finna sökudólg og
þarafleiðandi lækningu, en
það er þannig með okkur
manneskjur að það er hægt
að breyta sjálfsmynd en ekki
eðli og ég held að það sé al-
veg óyggjandi að þetta er
meðfætt.
Samskipti mín við geð-
lækninn voru með því móti
að ég sannfærðist um að
hann hefði ekki hugmynd um
um hvað málið snerist. Hann
sýndi mér reyndar töflu sem
sýndi tuttugu og fjóra kyn-
skiptinga og taflan sýndi að
sextán þeirra voru sáttir við
aðgerðina en fjórir sáu eftir
öllu saman og fjórir frömdu
sjálfsvíg. Þessar upplýsingar
hjálpuðu mér ekki, eins og
gefur að skilja, enda aðeins til
þess að brjóta niður sjálfs-
mynd mína en ekki til þess
fallnar að breyta eðli mínu."
ÞAÐVERÐUR ^
BÚIN TIL HOLA
„Eftir tilvísun þessa læknis
leitaði ég til kvensjúkdóma-
læknis sem var, líkt og hinn
fyrri, virtur og einn sá færasti
á sinu sviði og viðskiptin við
hann brutu mig endanlega
niður. Hann sagði orðrétt:
„Kynfæri þín verða fjarlægð
og það verður reynt að búa til
einhvers konar holu sem
hægt er að notast við." Spurn-
ing mín til þessa manns er
einfaldlega þessi: Hvernig í
ósköpunum ætti ég að geta
sætt mig við kynfæri mín ef
þau væru svona? Hann var
að lýsa einhverri plastgínu úti
í glugga.
Ég hefði virt þennan mann
mikils ef hann hefði haft hug-
rekki til að segja að hann
þekkti ekki til málsins og yrði
því að vísa mér annað. Því
miður var þessu hugrekki
ekki til að dreifa í hans tilfelli
og hann gat, þegar til kom,
ekki gírað niður þegar kom
að hlut sem hann hafði ekki
skilning á.“
AÐGERÐIN
FRAMKVÆMD
„Dagarnir eftir viðtalið við
kvensjúkdómalækninn voru
þeir verstu sem ég hef lifað,
en sem betur fer gafst ég ekki
upp.
Eftir að hormónameðferð-
in hófst flutti ég utan og hef
verið búsett þar síðan. Að-
gerðin sjálf var framkvæmd
fyrir tveimur árum og síðan
þá hef ég getað lifað í eðliiegu
samræmi líkama og sálar.
Pað var ekki skorið undan
mér, eins og hefði þó mátt
skilja af ummælum læknisins
á íslandi, heldur var kynfær-
um mínum breytt á þann veg
að í dag er ég í líkama konu.
Læknirinn fjarlægði eistun
og breytti pungnum í skapa-
barma, hann fjarlægði vöðv-
ann í tippinu og notaði húð-
pokann í legið. Kynfæri mín
eru því kynfæri konu, en að
sjálfsögðu hef ég ekki móður-
líf.
Það má tala um, þessu til
útskýringar, að snemma á
fósturskeiði eru kynfæri
kynjanna ekki frábrugðin,
það er ekki fyrr en fer að líða
á fósturskeiðið að kynfærin
taka á sig karl- eða kven-
mynd, sem ræðst að sjálf-
sögðu af litningum. Snípur og
tippi eru sama líffærið, á körl-
um vex það og verður tippi
en á konum ekki. Kynfærum
mínum var því, eins og áður
sagði, breytt."
TVÍTÓLA FÓLK
„Fólk fæðist með allskyns
ágalla og sumar konur fæðast
jafnvel með ekkert móðurlíf,
aðrar ekki með sköp, en þær
eru konur engu að síður.
Læknavísindunum hefur
fleygt fram og nú er hægt að
bæta úr þessu í mörgum til-
fellum. Það er einnig til fólk
sem fæðist tvítóia og það ger-
ir að verkum að snípurinn
stækkar á við tippi. Það er
sálarlíf fólksins sem sker úr
um hvort það er karlmenn
eða kvenmenn.
Eftir aðgerðina hef ég lifað
eðlilegu og góðu kynlífi, mun
betra en ég hafði þorað að
vona. Ég hafði búið mig undir
svo ófullkomna aðgerð að ég
gæti aldrei lifað neinu kynlífi.
Það sem er þó mest um vert
er að ég hef öðlast sjálfsmynd
sem kynvera."
í FÖSTU SAMBANDI í ÁR
„Ég var í föstu sambandi í
eitt ár en því sambandi er nú
lokið. Við höfðum verið sam-
an í þrjá mánuði þegar ég
sagði honum sögu mína.
Hann brást vel við. Hafði að
sögn haft sínar grunsemdir.
Hann tók sinn tíma til að yfjr-
vega málið en sagði þó: „Ég
hef þekkt þig sem konu í þrjá
mánuði og enginn getur sagt
mér að þú sért karlmaður."
Síðan brast hann í grát og
sagði: „Þú getur verið stolt af
því hver þú ert." Mér þótti of-
boðslega vænt um þessi við-
brögð.
Yfirleitt býður karlmönn-
um nett við svona hlutum,
þeim hefur ekki tekist að líta
á mig sem konu nema að vel
útskýrðu máli. Ég skil það
vel, ég veit ekki hvernig ég
mundi bregðast við konu sem
hefði verið xarlmaður. Síðan
þá hef ég sett karlmennina
inn í fortíð mína, sé um náin
sambönd að ræða."
STUDNINGUR
FJÖLSKYLDU
„í reynd hef ég verið alveg
óskaplega heppin. Ég hef allt-
af átt stuðning fjölskyldu
minnar vísan og þau hafa
gert mér ljóst frá byrjun að
þau skildu mig og styddu alla
leið. Það er því miður meira
lán en kynskiptingar eiga al-
mennt að fagna og oft er lok-
að á þá flestum dyrum. Það
er þó ekki alslæmt. Þannig
veistu líka hverjir eru vinir
þínir og hvaða fólki þykir
raunverulega vænt um þig.
Ég sagði þó við fjölskyldu
mína að gefa sér góðan tíma
til að hugsa þessi mál, enda
tók það mig tuttugu og fimm
ár að finna sjálfa mig og ég
ætla öðrum ekki lítinn tíma
heldur.
Auðvitað komu oft upp
skrýtnar aðstæður þegar að-
gerðin var um garð gengin.
Ég var fædd sem karlmaður,
alin upp sem karlmaður og
karlmannsnafnið stóð enn í
flestum opinberum plögg-
um.“
GJALDKERANUM LÁ
VIÐ YFIRLIÐI
„Meðan ég lá ennþá á
sjúkrahúsinu sendi læknirinn
úti inn tilkynningu á Hagstof-
una um að ég hefði gengist
undir aðgerð og væri nú
Úr myndinni um Georg/ Christine Jörgensen.
kona með nýtt nafn og þyrfti
nýja kennitölu. Ég sendi afrit
til þjóðskrárinnar á íslandi og
síðan þurfti ég að leiðrétta
mig á skattstofunni, trygg-
ingafélaginu og Bifreiðaeftir-
litinu og þetta var heljarmik-
ið mál.
Það má nefna það til gam-
ans að það varð hálfgert
uppistand i banka á íslandi
þegar ég kom til að breyta
nafninu á Vísakortinu, kon-
unni í afgreiðslunni lá við yf-
irliði og hún ætlaði aldrei að
koma því inn í hausinn á sér
að karlmaður gæti einn dag-
inn labbað inn í banka, ver-
andi orðinn kvenmaður, og
beðið um nýtt nafn á Vísa-
kortið! Á vinnustaðnum
mætti ég miklum skilningi,
en þar vinna ásamt mér að-
eins fáar manneskjur og okk-
ur er öllum vel til vina."
ÞÚ FLÝRÐ EKKI
SJÁLFA ÞIG
„Áður fyrr sá ég aðeins
eina lausn og hún var sú að
flytja í aðra heimsálfu og
byrja nýtt líf undir fölsku
flaggi. í dag hef ég lært að þú
flýrð ekki sjálfan þig, jafnvel
þótt þú farir svo langt sem til
Singapore eða Sydney. Fram-
tíðardraumar mínir eru þeir
að stofna fjölskyldu með
manni eða börnum og það
eru engir órar. Ég hef báða
fætur á jöröinni þó að ég líti
á mig sem venjulega konu og
ég hef það óskaplega gott.
Það er einnig til fólk sem býr
eitt alla ævina, sátt við sjálft
sig og aðra og lífið er ekki
verra fyrir það.“
Þóra Kristin Ásgeirsdóttir
*
bæjarstjórnarfundi á Ólafs-
firði á þriðjudag var rætt um ávítur
félagsmálaráðuneytisins á bæjar-
stjórn vegna ábyrgð-
ar til handa Fisk-
mari, sem er nú til
gjaldþrotaskipta.
Eins og kunnugt er
fékk bærinn ekki
þau veð fyrir
ábyrgðinni sem búið
var að lofa. Á bæjarstjórnarfundin-
um tóku fulltrúar Sjálfstæðisflokks,
undir forystu Óskar Þórs Sigur-
björnssonar, forseta bæjarstjórnar,
og Bjarna Grímssonar bæjar-
stjóra, ábyrgðina á sig ...
egar búið verður að ræsa allar
3 vélar Blönduvirkjunar á næsta ári
verður forgangsorka Landsvirkjun-
ar til veitustofnana á öllu landinu
um 5.000 gígawattstundir, GWh, á
ári. Með forgangsorku er átt við
orku sem Landsvirkjun getur lofað
afgreiðslu á hvernig sem árar. Þar af
verður umframorkan, það er að
segja sú orka sem óseld verður
næstu árin, um 700 GWh. Það þýðir
á mannamáli að setja mætti allt
veitusvæði Rafmagnsveitu Reykja-
víkur; Reykjavík, Kópavog, Seltjarn-
arnes, Mosfellsbæ, Garðabæ norð-
an Lækjar og Kjalarneshrepp að
Saurbæ, í samband á einu bretti
með einni innstungu og samt væri
enn til svolítið rafmagn óselt. ..
F
&. ormaður bæjarraðs i Kopavogi,
Gunnar Birgisson, hefur gert það
gott í verktakabransanum að und-
anförnu. Landsvirkj-
un hefur á undan-
förnum 3 árum var-
ið rúmum 270 millj-
ónum króna í undir-
búning vegna Fljóts-
dalsvirkjunar.
Klæðning hf„ sem
meðal annars er í eigu Gunnars
Birgissonar, er þegar búin að leggja
vinnuvegi á Fjótsdalsheiði fyrir tæp-
ar 50 milljónir. Þetta sama fyrirtæki
hefur einnig unnið að 1. áfanga að-
komuganga að stöðvarhúsi Fljóts-
dalsvirkjunar fyrir um 45 milljónir
ásamt verktakafyrirtækinu Gunnari
og Guðmundi sf„ sem er líka í eigu
Gunnars Birgissonar, Ármannsfelli,
sem sami Gunnar er hluthafi í, og
dönsku verktakafyrirtæki, sem
Gunnar hefur enn að minnsta kosti
ekki eignast. Þannig hafa um 100
milljónir af þeim 270, sem Lands-
virkjun hefur varið til undirbúnings
á svæðinu, fallið í skaut fyrirtækja í
eigu Gunnars Birgissonar...
MT' að hefur vakið athygli að
Landslagið er nú á vegum rásar 2 og
Sjónvarpsins en ekki Stöðvar 2.
Spurningar hafa
vaknað um hvers
vegna Stöð 2 heldur
ekki keppnina eins
og hingað til. Svarið
mun meðal annars
felast í því að ekki
náðist samkomulag
um að nýta stúdíó Jóns Ólafsson-
ar í Skífunni og stjórnarmanns í
Stöð 2. Það varð því ekkert úr því að
Stöð 2 héldi keppnina, sem var jú
svar hennar við Evróvisjón Sjón-
varpsins...