Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 44

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 44
Bestu kaupin í steikum - Takió heim - pantió áóur s. 68 25 00 Jarlinn Mest seldu FLOGURI HEIMI - nú loksins á Islandi Snorrabraut 56 sími 13505 Y ið hcyrum að afar fáir hafi fylgt fordæmi Ragnheiðar Davíðsdóttur, sem sagði sig úr Alþýðuflokknum eftir uppákomuna í Menntamálaráði. Fullyrt er að þrjár manneskjur hafi sagt sig úr flokknum með þetta ákveðna mál í huga. Ein þeirra hafi verið fíuðmunda Helgadóttir, móðir Ragnheiðar. Aðal- stuðningsmaður Ragnheiðar í málinu, Olína Þorvarðardóttir, er hins vegar enn í flokknum. Það var Olína sem fékk í gegn stuðningsyfirlýsingu við Ragnheiði frá stjóm Alþýðuflokksfé- lagsins í Reykjavík, en svo vill til að þar er gjaldkeri stjómar Hlín Daníels- dóttir, sem var kosin í ráðið í stað Ragnheiðar... Þ. að getur stundum reynst hættulegt að fara í langt frí. Það sannaðist t.d. á Guðrúnu Þórðardóttur, umsjónar- manni bamaefnis á Stöð 2. Guðnin fór í bamsburðarleyfi og tilnefndi sjálf Ag- nesi Johansen til afleysinga. Agnes þótti standa sig vel, að minnsta kosti var hún valin framyfir Guðrúnu, sem aftur fékk uppsagnarbréf... s enn líður að því að Eggert G. Þorsteinsson láti af stöðu forstjóra Tryggingastoíríunar ríkisins fyrir aldurs sakir. Við höfum áð- ur greint frá áhuga Jóns Sæmundar Sigurjónssonar, fyrrum þingmanns, á forstjórastöðunni. Við heyrum hins vegar að undirtektir hafi verið ónógar og að nafn Karls Steinars fíuðnasonar heyrist æ oftar nefnt. Og vitaskuld heyrast raddir um að leggja eigi pólitískar eftirlaunaráðn- ingar af og auglýsa stöður sem þessa á faglegum grunni. Eins er talað um að ekki sé nóg að skipta um forstjóra stofríunarinnar, heldur sé öll yfirstjóm- in með þeim hætti að skipta þurfi um toppstöður eins og þær leggja sig... O ldur ljósvakans hafa sjaldan ver- ið jafnþröngskipaðar og úr þeim geira heyrum við að á næstu vikum hljóti einhver að heltast úr lestinni. Aðalslag- Skeifan 7-108 Reykjavík Sími 91-673434 - Fax: 677638 urinn stendur á milli EffEmm, Sólar- innar og Hitt 96,6, sem allar gera að meira og minna leyti út á sama markað. Fjárhagsstaðan mun ekki upp á það allra besta og auglýsendur hafa sjaldan verið tregari. Þá eb líklegt að Útrás, út- varp framhaldsskólanema, eigi eftir að höggva frekari skörð í hlustendahóp þeirra, því 1. júní mun hún senda út 24 tíma á sólarhring auk þess sem meira verður lagt í dagskrárgerðina eftir að skólum var slitið. Þá þarf Útrás ekki að hafa áhyggjur af auglýsingasölu, því framhaldsskólanemar borga brúsann í gegnum nemendafélögin... Ljósmyndari: Sissa .. . opnar, eftir vetrardvala föstudag og laugardag 20 ARA ALDURSTAKMARK OPIÐ 23-3

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.