Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 43

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992 43 P JL ormannsslagurinn í Alþýðu- flokknum nálgast óðfluga. Minnkandi líkur eru taldar á /ramboði Jóhönnu Sigurðardóttur gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni, en aftur á móti er enn óvfst með Guðmund Árna Stefánsson. Á morgun, föstudag, hefst aukaþing Sam- bands ungra jafnað- armanna og þar er á dagskrá ávarp Guðmundar Árna. Við heyrum að Guðmundur hyggist nota þetta ávarp til að lýsa yfir af eða á hvort hann ætlar að hella sér í slaginn... iðnlánasjóður hefur blásið til að- gerða vegna vanskila fyrirtækisins Kristjáns Siggeirssonar hf„ þar sem Hjalti Geir Kristjánsson er forstjóri. Sjóðurinn hefur krafist uppboðs á fast- eigninni Hesthálsi 2 til 4 og er það ekki vegna neinna smáaura, því kröfuupp- hæðin er 232 milljónir króna... V ið greindum nýlega frá því í PRESSUNNI að Samband íslenskra bankamanna hefði unnið mál sem fs- landsbanki vísaði til úrskurðar félags- dóms. Það var vegna deilu um h'feyris- réttindi og vildi bankinn fá hnekkt ákvæði í kjarasamningi frá 1980, þann- ig að það fæli í sér að starfsmenn bank- ans nytu sömu lífeyrisréttinda og starfsmenn ríkisbankanna. Félagsdóm- ur úrskurðaði að kjarasamningurinn frá 1980 með þessu ákvæði skyldi standa Nú hafa forráðamenn íslandsbanka hins vegar komið með það mótbragð að halda þvf fram að úr því svona fór sé bankinn óbundinn að þeim ákvæðum sem komu inn í samninga eftir 1980. Meðal ákvæða sem bankinn ætlar þannig að hafna er reglan um að þegar starfsaldur og lífaldur starfsmanns ná samanlagt 95 árum eigi viðkomandi rétt á að fara á eftirlaun... Q W J kemmtanahald á Hótel Borg hefst á morgun með pomp og prakt. Undan- farin tvö ár hefúr Skúli Mogensen haft þann rekstur á leigu, en í ár yfirbuðu hann þeir Árni Oddur Þórðarson, for- maður Félags viðskiptafræðinema, og Bjarni Þórður Bjarnason, formaður Félags verkfræðinema. Þeir eru jafn- framt varaformaður og formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Fáum ætti að koma á óvart að þeir félagar hyggjast gera út á háskólastúdenta... TJ A JL ægrisinnaðir stúdentar hafa ákveðnari hugmyndir um atvinnu- möguleika sína að loknu námi en vinstrisinnaðir stúdentar. Þetta kemur meðal annars fram í könnun sem gerð var meðal stúdenta í félagsvísinda- og raunvísindadeildum Háskólans. Þar kemur líka fram að af þeim sem tóku afstöðu töldu um 49 prósent sig til vinstri í stjórnmálum, 28,5 prósent töldu sig til hægri. en 13 prósent stað- settu sig á miðjunni. Könnunin leiddi líka í ljós að mikil! meirihluti stúdenta sagðist hafa valið nám vegna áhuga á greininni eða 82 prósent. Talsverður hópur vill svo takmarka aðgang að Há- skólanum, eða um 31 prósent, en um 54 prósent voru því andsnúin... F 1 Jx áburðarverð á Islandi fáránlega hátt? Það telur að minnsta kosti Jó- hannes Kristjánsson, bóndi á Höfða- brekku í Mývatnssveit, sem segir í við- tali við landbúnaðaraukablað Alþýðu- blaðsins að sér virðist að áburðarverð hér sé um 8 þúsund krónum dýrara á hvert tonn en í Skotlandi. í báðum lönd- um sé um að ræða innfluttan áburð frá Noregi og því sé flutningskostnaður álíka. Sé þetta lagt út á alla áburðar- notkun fái Áburðarverksmiðja rikisins 400 milljónir króna umfram það sem Skotar þurfi að punga út... Lækkun gjalda vegna lækniskostnaðar barna frá 1. júní 1992 ★ Ekki skal greiða fyrir börn, 6 ára og yngri, við komu á heilsugæslustöð og til heimilislæknis. ★ Börn sem njóta umönnunarbóta greiða sömu gjöld og aldraðir og öryrkjar fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu. Framvísa skal sérstöku skírteini, sem sent verður aðstandendum barnanna. ★ Hámarksgreiðslur á almanaksárinu vegna barna í sömu fjölskyldu lækkar úr 12.000 krónum í 6.000 krónur. Fríkort fæst gegn kvittunum að Tryggvagötu 28 í Reykjavík og hjá umboðum Tryggingastofnunar utan Reykjavíkur. Endurgreiðslur til handhafa fríkorta skv. gamla hámarkinu verða sendar þeim á næstunni. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS NOTAÐU PENINGANA ÞÍNA f EITTHVAÐ ÁNÆGIULEGRA EN DRÁTTARVEXTI Við minnum á gjalddaga húsnæðislána sem var 1. MAÍ 1. JÚNÍ________ leggjast dráttarvextir á lán með byggingavísitölu. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 696900 Sutellite TV nr. i AMSTRAD AMSTRAD fyrirtækið, sem hefur selt ó þriðju milljón móttökudiska fyrir gervi- hnetti og er með 86% markaðshlutdeild ó Bretlandseyjum og 50% í Evrópu, hef- ur nú markaðssett búnað til notkunar í NORÐUR SKANDINAVIU OG Á ÍSLANDI. AMTEC hf., umboðsaðili AMSTRAD á Islandi, býður nú fullkomin móttökubúnað tilbúinn til uppsetningar. 1.2 m diskloftnet með flestingu Lógsuðumagnari með innbyggðum pólskipti (Dual LNBj 48 rósa stereo móttakari með fjarstýringu F Búnaðurinn er seldur ón milliliða með heildsölu ólagn- ingu og fæst eingöngu hjó AMTEC hf., Suðurlands- braut 32, sími 30200. Kr. ÓTRÚLEGT VERD! 59.900 (atT Sími 30200 llí. Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík. UNGFRU KYNNING Á KEPPENDUM FÖSTUDAGINN 29. MAÍ ÚRSLITAKVÖLD LAUGARDAGINN 1 5. JÚNÍ FORSALA ADGÖNGUMIÐA ER í MIÐASÖLU MOULIN ROUGE OG í SÍMA 677 885

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.