Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 32

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ1992 Ég hef alltaf verið aðdáandi Prins Valiants Nýlega voru Islensku bama- bókaverðlaunin afhent í sjöunda sinn og fékk þau að þessu sinni Friðrik Erlingsson. Verðlauna- bók hans heitir Benjamín dúfa og hefur hún fengið afar góðar viðtökur gagnrýnenda sem les- enda. Benjamín dúfa er ekki venjuleg bamabók; söguþráður, stíll og efnistök bókarinnar eru talsvert önnur en menn eiga að venjast í því sem kalla mætti hefðbundnum barnabókum. Friðrik segist enda ekki sammála því að flokka bókmenntir. „Það er sagan sem skiptir máli, ef hún er góð þá eiga allir að geta lesið hana sér til ánægju. Engu skiptir hvort hún flokkast sem barna- bók, unglingabók eða fullorðins- bók,“ segir hann. Friðrik er þrítugur að aldri og lærður auglýsingateiknari. Þeir sem muna pönktímabilið ættu einnig að kannast við Friðrik úr hljómsveitunum Purrrki Pilnikk og fyrstu útgáfu Sykurmolanna. Hann hefur lítið látið til sín taka á ritvellinum fram til þessa, sendi áður frá sér bókina Afi minn í sveitinni árið 1987. Eins og Benjamín dúfa var sú bók verðlaunuð, fékk viðurkenningu Námsgagnastofhunar. Friðrik býr í gömlu, fallegu bakhúsi við Laugaveginn og ég hef orð á því við hann, eftir að hann hefur borið mér kaffi í risa- stómm bolla, að húsnæðið hans sé svoh'tið sérstakt. „Þetta var áð- ur leigt út sem vinnustofa fyrir listamenn," útskýrir hann. Hann segist ætla að dvelja á Akureyri megnið af sumrinu og á meðan eigi að taka húsnæðið í gegn. „Eg ætla því ekkert að koma mér endanlega fyrir fyrr en í haust,“ segir hann. Við setjumst í gamla þægilega stóla og byrjum á að tala um Benjamín dúfu, verð- launabókina. BÖRN ERU LITRlKT SAFN ÓLÍKRA EINSTAK- LINGA Benjamín dúfa fjallar um fjóra tíu ára drengi sem stofna riddara- reglu gegn ranglæti eftir að hrekkjusvín eitt gerir vinkonu þeirra slæman grikk. „Eg hef alltaf verið aðdáandi Prins Valiants og riddarar standa fyrir réttlætishugsjónina. Það er talað um að menn sýni riddara- mennsku þegar þeir bera af öðr- um í prúðmannlegri framkomu og sýna aðra góða eiginleika,“ útskýrir Friðrik þegar ég spyr hann af hveiju hann noti riddara- minniðíbókinni. Bókin gerir miklar kröfur til bamanna sem lesenda og vekur ugglaust hjá þeim ýmsar spum- ingar um lífið og tilveruna. Æv- intýri drengjanna fjögurra tekur skjótan enda með miskunnar- lausum hætti þegar dauðinn ryðst inn í áhyggjulausa tilvem þeirra. Ertu ekkert hræddur um að stuða bömin með því að sýna þeim tilvist dauðans með þess- um hætti? ,JÉg held að það komi kannski frekar til með að stuða fúllorðna sem hafa mjög fastmótaðar hug- myndir um það hvemig bama- bækur eigi að vera, um hvað þær eigi að snúast og hvaða umfjöll- unarefhi eigi að vera í þeim. Ég held að fullorðnir gleymi ansi oft eigin æsku og unglingsárum og gleymi því að böm em miklu meira hugsandi vemr og greind- ari en fúllorðnir vilja viðurkenna — eða kannski að þeir gefi sér ekki tíma til að taka eftir því. Það títa allt of margir á böm sem ein- litan hóp en ekki sem litríkt safú ólíkra einstaklinga. Jafnvel for- eldmm hættir til að líta á ung- linginn sinn sem brot af stóru þjóðfélagsvandamáli sem ekki er hægt að tala við eins og mann- eskju. Fullorðnir eiga stundum bágt með að líta í eigin barm og rifla upp eigin unglingsár. Full- orðnir em nefnilega svo fljótir að gleyma og það verða böm að reyna að skilja og fyrirgefa. Ég held því að bókin komi ekki til með að stuða böm og þau böm sem ég hef talað við og hafa lesið bókina hafa verið afskap- lega ánægð. Ég held að það séu PRESSAN/Jim Smart bestu meðmælin.“ NAUÐSYNLEGT AÐ BERA VIRÐINGU FYRIR BÖRNUM Stundum virðist manni sem rithöfundar líti niður á böm sem lesendahóp. Telji það ágætisæf- ingu að skrifa fýrir böm en taki það hlutverk ekkert allt of alvar- lega. Eftir æfingatímabilið komi síðan skáldsaga, með stóm essi, fyrir fúllorðna. „Maður getur ekki skrifað fyr- ir bömin eða fyrir neinn yfirleitt nema bera fulla virðingu fyrir væntanlegum lesendum og sjálf- um sér. Og eina leiðin til að skrifa fyrir einhvem annan hlýt- ur að vera sú að skrifa fyrst og fremst fyrir sjálfan sig. Ætli menn að gera það eitthvað öðm- vísi kemur einfaldlega ekkert út úr því. Menn hafa kannski viljað nota bamasögur til að æfa sig í að skrifa vegna þess að bama- sögur hafa ef til vill verið ein- faldari í forminu og viðráðan- legri fýrir þá sem em að byrja. Einfaldari persónur og auðveld- ara að komast hjá þeim erfiðleik- um sem em til staðar í stærri skáldsögum. Og að því leytinu er þetta að sjálfsögðu mjög gott og eðlilegt æfingastig. Én það má ekki bara vera æfmgastig; maður verður að vera að segja eitthvað og maður verður að vera að gefa eitthvað í söguna af sjálfum sér. Vera viss um að þetta sé það besta sem maður getur gert á þeim tíma. Þannig viðhorf hef ég til þess sem ég skrifa; reyni að skila því besta sem ég get á hverjum tíma.“ LÍKA SAGA FYRIR FULLORÐNA „Það að aðalpersónurnar í sögunni em tíu ára drengir flokk- ar hana sem bama- og unglinga- bók, en fyrir mitt leyti er þetta ekkert síður saga fyrir fúllorðna. Ég skrifaði hana eins vel og ég gat og fyrir mér er hún bara saga. Það að hún skuli fá þessi verð- laun er náttúrlega mikil viður- kenning og verðlaunin em í ka- tegóríunni bama- og unglinga- bækur og hjá því verður ekkert komist í þessu þjóðfélagi þar sem allt er í flokkum. Þetta er þama og hitt er hér. En það em til böm sem lesa fullorðinsbækur og fullorðnir sem lesa bamabæk- ur og þegar kemur að lesandan- um þá er ekki spurt hversu gam- all hann er heldur hvort honum finnst gaman að bókinni, og það er heila málið.“ Það er ljóst að Friðriki er mik- ið í mun að bömum verði boðnar góðar bækur að lesa. Hann bend- ir á að bækur ætlaðar yngri kyn- slóðinni em í mikilli samkeppni við myndbönd, tölvuleiki, bamaefni í sjónvarpi og fleira. Því sé mikilvægt að bókmennt- imar séu góðar. Það kemur líka í ljós að honum finnst sumt af svokölluðum unglingabókum heldur slappar bókmenntir. „Það vantar að höfundamir gefi af sjálfum sér í verkið. Allt er málað í svörtu og hvítu, per- sónumar annaðhvort góðar eða vondar. Ekkert þar á milli. Það vantar raunsæið, lífið er ekki svona. Þetta verður einhvem veginn ósatt.“ ÍSLENDINGAR ERU UNDARLEGTFÓLK Friðrik hefur ekki lagst í bó- hemlifnað eftir verðlaunaaf- hendinguna. Öðm nær. Hann skrifar grimmt og margt er í far- vatninu. Framhald bókarinnar Afi minn í sveitinni er væntan- legt næsta vetur, handrit að heimildamynd um Gunnlaug Scheving listmálara byijar hann að vinna bráðlega og hann hefur nýlokið handriti að leikinni kvik- mynd. „Það var fýrir svona þremur ámm að ég fór að skoða hand- ritagerð og það var vinur minn Gísli Snær Erlingsson sem kveikti í mér með það. Og um daginn lauk ég handritinu að mynd sem tekin verður núna í júní og ber vinnuheitið Stuttur frakki og Gísli Snær leikstýrir. Þetta er lagt upp sem grínmynd, skemmtileg mynd og góð af- þreying." Þið emð að horfa þama á ís- lensku þjóðina í spéspegli, setjið ykkur í spor útlendings sem kemur hingað og kynnist land- anum. Var ekkert erfitt íýrir þig að kúpla þig út og horfa á þína eigin þjóð með augum útlend- ings? ,Æg held að maður þurfi ekk- ert að kúpla sig út vegna þess að við þekkjum öll þessa karaktera og ég held að við höfúm öll stað- ið í þeirra spomm. Að vera með útlendingi sem hefúr aldrei kom- ið hingað áður og vera uppfúll af stolti yfir landi og þjóð og vilja fá útlendinginn til að skilja á sem stystum tíma hvað það er frábært að vera hér. Og til þess hafa menn ýmsar aðferðir; annað- hvort talarðu útlendinginn í kaf og fyllir hann af upplýsingum um gæði lands og þjóðar og hvað þetta sé allt saman dásam- legt og frábært, þannig að hann veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Eða þá þú reynir að selja honum allt milli himins og jarðar á þeim forsendum að hann fái það hvergi annars staðar. Það er ýmsum aðferðum beitt þegar út- lendingar koma hingað og ég held að það sé ekki mjög erfitt að setja sig í spor þessa manns sem kemur hingað og hittir allt þetta undarlega fólk.“ fSLENSK MYND Á ENSKU I framhaldi af þessu tölum við svolíúð um sérkenni íslendinga og minnimáttarkenndina sem virðist talsvert rík í okkur. Og komumst að þeirri niðurstöðu að þjóðin fari einhvem veginn oft- ast fram úr sjálffi sér, vænting- amar verði alltaf meúi til fulltrúa okkar á ýmsum sviðum en hægt sé að standa undir. Friðrik og fé- lagar ætla að sýna okkur sjálfa okkur í nýju ljósi, gera góðlátlegt grín áð þjóðareinkennunum og láta okkur hlæja að okkur sjálf- um. ,Æg held að það komi til með að heppnast ágætlega í þessari mynd og ég minnist þess ekki að þetta hafi verið dregið fram í ís- lenskri mynd áður á þennan hátt. Við emm með útlending í aðal- hlutverki sem gengur hér um og undrast það sem fýrir augu ber.“ Myndin fjallar í stuttu máli um franskan umboðsmann sem kemur hingað til lands þeirra er- inda að finna popphljómsveit til að koma á framfæri í Frakklandi. Agentinn leikur auðvitað Frans- maður, að nafni Jean Philippe Labadie. í tengslum við upptök- ur á myndinni verða haldnir hljómleikar í Laugardalshöll 16. júní þar sem rjómi íslenskra poppara treður upp. Sá ffanski talar auðvitað enga íslensku og þar sem fæstir íslendingar tala frönsku verður enska þrauta- lendingin. Og þá emm við famir að tala um íslenska mynd á ensku með íslenskum texta, eða hvað? , Já já, myndin verður textuð að stómm hluta og það er viðbú- ið að það fari fýrir bijóstið á ein- hveijum málvemdarsinnum. En ég er spenntur að sjá hvemig þetta kemur út,“ svarar poppar- inn fýrrverandi, óvirki auglýs- ingateiknarinn og rithöfundurinn núverandi. ,JvJér finnst það svolítið stór titill að taka upp; rithöfundur. Enn hef ég bara gefið út tvær bækur og mér finnst að menn ættu ekki að kalla sig rithöfunda fyrr en þriðja bókin er komin. Þangað til hún kemur fæst ég við ritstörf.“ Haraldur Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.