Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 3

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992 3 Þrjár til jjórar milljónir hektara gróins lands hafa orðið jarðvegseyðingu að bráð frá landnámi íslands. Með samstilltu átaki getum við komið í veg Jyrir áframhaldandi uppblástur á landinu. GRÆÐUM LANDIÐMEÐ ÞÚ HJÁLPAR TIL VK) UPPGRÆÐSLU LANDSINS ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BENSÍN FRÁ OLÍS Ef við berjumst ekki gegn uppblœstri á hálendi Islands verður það að gróðurlausri og lifvana auðn. Mófuglar, til dœmis rjúpan, sem byggja tilvist sína á gróðri hálendisins, hrekjast þá burlu og hverfa. Ef ekkert verður að gert blasir sú sýn við okkur að hálendið verði að gróðurlausri og lífvana auðn, því fuglar, svo sem rjúpur og aðrir mófuglar, byggja tilvist sína á gróðri landsins. LANDGRÆÐSLUÁTAK í ÁFÖNGUM OLIS og Landgræðslan ætla í sameiningu að reyna að koma í veg fyrir þessa hrikalegu framtíðarsýn með því að græða upp landið í áföngum. Örfoka land er ófrjótt og aldir geta liðið áður en sambærileg landgæði og þau sem eyddust hafa náð að myndast á ný. Stöðugt er unnið að rannsóknum á þessu sviði og aðferðum til uppgræðslu fjölgar sífellt. TAKTU ÞÁTT í ÁTAKINU Þú getur tekið þátt í þessu landgræðsluátaki, því næstu fjögur árin ætlar OLÍS að láta ákveðna upphæð af hverjum seldum bensínlítra renna til uppgræðslu landsins. VIÐ SKULDUM LANDINU GRÓÐUR Látum ekki landið okkar eyðileggjast. Við skuldum því meira en helminginn af þeim gróðri sem var hér þegar land byggðist og með samstilltu átaki getum við gert upp við eyðingaröflin. Þegar þú kaupir bensín hjá OLÍS leggur þú þitt af mörkum til björg- unar hálendisins. STYRKTARAÐILI AÐ LANDGRÆÐSLUÁTAKI Stór svœði á landinu hafa orðið illa úti vegna uppblásturs. Haukadalsheiðin, Reykjanesskaginn og Mývatnssvœðið eru þó áberandi verst farin. OLÍS og Landgrœðstan cetla að grœða upp þessi svœði í áfóngum. ■ JTið landnám íslands er talið að 5 gróður hafi þakið um 65% C - " landsins og birki vaxið á meira en fjórðungi þess. í dag þekur gróður einungis einn fjórða landsins og leifar hinna fomu skóga aðeins 1%. Þrjár til fjórar milljónir hektara gróins lands hafa orðið jarðvegseyðingu að bráð frá landnámi vegna eyðingar skóga, búsetu mannsins og óblíðs veðurfars.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.