Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 26

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR PKESSAN 28. MAI1992 Engar girðingar halda ófrjálsu og svöngu fólki Kofi Yamgnane er ráðherra að- lögunarmála í frönsku ríkis- stjórninni og fer þannig með mál- efni þeirra ólíku kynþátta sem byggja Frakkland nútímans. Yamgnane er borinn og barn- fæddur í Togo í Afríku, en flutti átján ára til Frakklands. Hann tók við embætti í apríl síðastliðnum. Blaðamaður PRESSUNNAR hitti Yamgnane að máli á skrifstofu hans við Invalides-torg í París, í kjölfar óeirðanna miklu í Los PRESSAN: Uppþotin í Los Angeles komu Vesturlöndum mjög í opna skjöldu. Hvaða lær- dóm geta Frakkar dregið af þeim? YAMGNANE: Óeiðimar í Los Angeles vekja áleitnar spuming- ar, ekki aðeins fyrir Frakka, heldur fyrir alla Evrópubúa. Hvert land iyrir sig þarf að hug- Ieiða það sem þar gerðist. En hvað viðkemur Frakklandi er grundvallarmunur milli fyrir- komulagsins hjá okkur og í Bandaríkjunum. Þar skilgreina menn sig allra fyrst sem hluta af þjóðemisminnihluta — sem blökkumenn, Suður-Ameríku- menn, Itali, Kóreumenn, Kín- verja. Hjá okkur líta menn fyrst og fremst á sig sem þegna lýð- veldisins, hver einstaklingur skilgreinir sig á sinn hátt sem þegn lýðveldisins. Og þrátt fyrir að upp komi vandamál í borgun- um fmnur maður ekki flokka af aröbum, blökkumönnum, Kín- verjum og hvítum mönnum sem slást sín á milli. Maður finnur blandaðan hóp af ungmennum sem andæfa samfélagi sem þeim finnst þeir ekki skilja. Það er semsagt vandamál, meinsemd, sem nær til allra þeirra sem eru á einhvem hátt utangarðs. PRESSAN: Það voru líka óeirð- ir í borgum þar sem blökkumenn fara með stjóm, til dæmis í Atl- anta. YAMGNANE: Við verðum að gæta að því mikla samfélagslega misrétti sem Reaganstíminn og hin öfgafulla ffjálshyggja hafa skapað. Öllu sem ekki gat fylgt eftir þjóðfélagsþróuninni hefur verið kastað til hliðar. Ég var síðast í Bandaríkjunum í janúar. Ég varð vitni að ótrúlegri eymd. Það er staðfest djúp gjá milli þeirra sem eiga allt og þeirra sem eiga ekkert lengur, þeirra sem sofa á gangstéttum. Það em eng- ar almannatryggingar, engin stefna í félagsmálum eða í mál- efnum borganna. Stórborgimar em gjaldþrota. Allt er í niður- níðslu. Þegar njaður kemur til Bandaríkjanna er manni sagt að þama sé land frelsisins, allir sem kæri sig um geti komist áífam. En þeir gleyma að taka fram að það sé betra að vera sterkur, gáf- aður, ríkur og helst ekki svartur. Svona er kerfið ekki hjá okkur. Hér leggja menn meiri rækt við samheldnina, við félagsleg markmið sem við höfum sett okkur. PRESSAN: En gætu slík upp- þot ekki hæglega orðið hér í Frakklandi? Við urðum til dæm- is vimi að slíku í breskum borg- um fyrir rúmum áratug? YAMGNANE: Ég endurtek. Þessi aðferð við að aðlaga fólk, að innlima það í hópum, eftir kynþætti eða trú — þannig vilj- um við ekki fara að. Hins vegar tíðkast þetta að vissu leyti á Bret- landi. Þar em menn líka alltaf að tala um minnihlutahópa. í Lond- on sér maður fólk frá Bangla- desh í einu homi, í öðm homi Pakistana og enn öðm Afríku- menn. Að vissu leyti getur verið mjög freistandi að hafa þennan hátt á. Fólkið aðlagast sínum minnihlutahópi, en hins vegar blandast það ekki við aðra minnihlutahópa eða samfélagið í heild. Þetta er ekki gott og svona viljum við ekki hafa hlutina. Samt get ég ekki fullyrt að það sé ömggt að hér verði ekki neinn ófriður. Dæmin sýna hins vegar að minnihlutahópamir, þjóða- brotin, fara ekki ein sér út á göt- umar að mótmæla. Þá tilhneig- ingu sér maður ekki í menningu okkar. PRESSAN: í borgunum eru samt hverfi þar sem innflytjend- ur, arabar eða blökkumenn, em í meirihluta. Em þetta ekki í raun svipaðar aðstæður og í Banda- ríkjunum? YAMGNANE: Það er rétt að í borgum eins og Marseille, Lyon, París og Lille safnast innflytj- endur saman á litlum svæðum. Eða kannski öllu heldur böm innflytjenda, af annarri eða þriðju kynslóð. En þama er munur á Frakklandi og Banda- ríkjunum. Margir þeirra sem til- heyraþessum svokölluðu minni- hlutahópum í Bandaríkjunum em afkomendur fólks sem var flutt þangað með valdi, hlekkja- þræla. Þeir hafa mikla þörf fyrir að finna einhverja sjálfsmynd, en sú leit virðist bera lítinn ár- angur. Við höfum séð Svörtu hlébarðana, Malcolm X, Angelu Davis koma og fara, þess háttar hreyfingar þar sem uppmnans er oftar en ekki leitað í afrískri menningu. Sjálf leitin er eitt megineinkenni þessa fólks, það er rótlaust, sættir sig ekki við hlutskipti sitt og líður ekki eins og það sé heima hjá sér. Ungu arabamir hér í Frakklandi eða unga Aftíkufólkið á enga forfeð- ur sem vom fluttir burt með valdi. Það valdi sjálfviljugt að koma hingað. Og þótt því finnist samfélagið oft erfitt og óréttlátt em viðbrögðin önnur, þessi ákafa leit að sjálfsmynd er ekki fyrir hendi. Vitaskuld em til menn sem hugsa með sér að þeir séu Afríkubúar eða Tyrkir og velta því fyrir sér að fara þangað aftur. Svo uppgötva þeir yfirleitt að þetta er ekki raunhæft. Þeir eiga heima héma, þeir em fæddir héma. Kannski em foreldramir ekki Frakkar, en þeir em franskir borgarar sem geta kosið og tekið þátt í daglegu lífi. Þeir em mest- anpart lausir við þessa sálar- kreppu sem einkennir afkom- endur þrælanna. PRESSAN: En að hvaða marki á að krefjast þess að innflytjend- umir verði algjörir Frakkar? Hlýtur það ekki að vera þymir í augum samfélagsins ef þetta fólk viil halda í uppmna sinn og siði? YAMGNANE: Það á ekki að meina fólki að rækta uppmna sinn. Mér finnst ég vera jafn- franskur og hver annar, en samt er ég Afríkumaður, svartur, ég breyti ekki um lit. Ég kom hing- að þegar ég var átján ára og á menningu, sögu og fortíð sem tengir mig við Afríku. En mér finnst ég vera franskur vegna þess að ég hef valið að vera franskur. Við krefjumst þess ekki að fólk afheiti sínum innri manni. En við ætlumst til þess að það verði franskir borgarar sem felur í sér virðingu fyrir þeim lögmálum sem gilda í lýðveld- inu, að það verði ábyrgir þegnar sem eiga í vandræðum meira en er. Þau þurfa hjálp til að geta bú- ið þegnum sínum mannsæmandi líf. Efhahagslega þarf að aðstoða þau á þróunarbrautinni þannig að allar leiðir liggi ekki lengur til Vestur-Evrópu. Það þarf sem- sagt að sigrast á efnahagskrepp- unni, en ekki síður lýðræði- skreppunni. Líkt og gerðist í Ausmr-Evrópu með falli múrs- ins þarf að hjálpa þessum ríkjum að öðlast meira og betra lýðræði. Því ófrjáls maður og svangur, það er hægt að reisa ótal girðing- ar á landamærum — hann kemst samt inn. Fyrir ófrjálsan mann og svangan er ekkert annað að gera en komast burt. Vestur-Evr- ópa er að vissu leyti eins og gríð- arstór viti í nóttinni, langt úti á hafi — allir fuglamir sem eru á Angeles. smátt og smátt aðlagaðist þetta fólk, þannig ganga hlutimir fyrir sig. Aðlögunin verðurhins vegar hægari og erfiðari þegar efna- hagsástandið er slæmt. Svo rís upp leiðtogaefni sem telur Frökkum trú um að það sé út- lendingum að kenna ef þeir fá ekki vinnu, útlendingum að kenna ef þeir komast ekki á spít- ala, það sé sök útlendinga ef jöeir fá ekki húsnæði eða skólavist. Það séu tvær og hálf milljón at- vinnuleysingja og þrjár og hálf milljón innflytjenda, það þurfi ekki annað en að senda þá alla heim og þá fái allir vinnu. Þann- ig verða útlendingamir hentugir syndaselir. Þetta er náttúrlega mjög einföld röksemdafærsla, en hún finnur vissan hljómgrunn hjá frönsku meðalfjölskyldunni. Auðvitað, hugsar fólkið, og kannski er það ósköp skiljanlegt. Það þarf að skýra út fyrir því að þetta séu einfaldanir og ranghug- myndir. PRESSAN: Hjá Frökkum verð- ur maður var við talsvert óöryggi gagnvart innflytjendum. YAMGNANE: Það er vissu- lega vandamál. Utlendingar verða eins konar tákn fyrir óör- yggi. Að vissu leyti er ástæðan sú að þeir era sýnilegri en áður. Forðum tíð voru þetta Italir, Portúgalir og Pólveijar. Það var hvítt fólk og kristið. Samt mætti það miklum fordómum. Nú era það arabar og blökkumenn. Þeir era sýnilegri úti á götu. Þegar svartur maður er innan um hvítt fólk getur hann ekki þóst vera hvítur. Þannig fá Frakkar á til- finninguna að það sé allt yfirfullt af útlendingum. Samt er stað- reyndin sú að um 1930 var hlut- fallstala útlendinga hér sjö af hundraði og hún er í raun aðeins lægri nú. Maður sér þá bara bet- ur. PRESSAN: Innflytjandinn verður eins konar samnefnari fyrir allt sem er hræðilegt, eitur- lyf, eyðni... YAMGNANE: Einmitt. Inn- flytjandinn, sérstaklega sá sem kemur að sunnan, hann er allt þetta — óöryggi, ofbeldi, eitur- lyf, eyðni, öll ógæfa Frakklands. PRESSAN: Þetta viðhorf finnur maður líka hjá fólki sem aldrei kýs Le Pen. YAMGNANE: Kynþáttafor- dómar og útlendingahatur eru fyrirbæri sem maður verður að umgangast af mikilli gætni. Mörkin eru mjög óljós milli þeirra sem era rasistar og þeirra sem eru það ekki. Þau samsvara ábyggilega ekki markalfnunni milli hægri og vinstri. Oft áttar fólk sig heldur ekki fyrr en það horfist í augu við jDetta fyrirbæri. Ég á tengdaforeldra sem alltaf kusu kommúnistaflokkinn. Þau áttu ekki auðvelt með að kyngja því þegar dóttir þeirra sagðist ætla að giftast blökkumanni. Það var ekki heldur einfalt mál fyrir foreldra mína þegar ég kvæntist hvítri konu. Þetta er ekki marka- lína sem er dregin í eitt skipti fyr- ir öll. Hún hreyfist og maður á ekki að temja sér að dæma of hart. PRESSAN: Nú er frönskum stjómmálamönnum legið á hálsi fyrir að hafa mistekist að takast á við þá ógn sem stafar af Le Pen, ekki síst Sósíalistaflokknum og Mitterrand forseta, sem hefur legið undir ámæli fyrir að hafa líkað ágætlega hvemig Le Pen veldur hægrimönnum vandræð- um? YAMGNANE: Þetta ernokkuð sem menn hafa þóst sjá eftir á. Varla hefur Mitterrand vaknað einn morguninn og hugsað með sén „Nú skapa ég Le Pen til að kljúfa hægrimenn." Þessi öfl vora til fyrir stjómartíð Mittenr- ands og áður vora þetta upp til hópa kjósendur Lýðveldis- bandalagsins (RPR, flokkur gaullista) sem nú hafa fundið sér þennan farveg. Ég fæ ekki séð hver ber ábyrgð á því. PRESSAN: Nú era í Frakklandi sterkar hreyfingar sem berjast gegn kynþáttahatri. Þær hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir ákveðna einsýni, hreinstefitu, fyrir að einblína til dæmis ein- göngu á kynþáttafordóma í fari hvftra manna? YAMGNANE: Það era til kyn- þáttahatarar alls staðar, líka meðal svertingja, araba og Asíu- manna. Ég hef iðulega verið spurður um þetta og það veiður að segjast eins og er að þessar hreyfingar hafa gert visst ógagn með því að htópa upp um kyn- þáttahatur í hvert skipti sem er framinn glæpur og fómarlambið er blökkumaður eða arabi. Það þarf náttúrlega ekki að vera raunin, þetta geta verið ótíndir þijótar, svartir eða hvítir. Þannig er viss tilhneiging til að breyta öllu í slagorð, það era líkt ósjálf- ráð viðbrögð að sjá kynþáttahat- ur í öllum homum. Annað slag- orð þessara hreyfinga hefur ver- ið að fólki skuli leyft að vera ólíkt. Nú hefur Þjóðarfylkingin tekið upp þetta slagorð og segir: jú, þeir era ólíkir okkur, leyfum þeim að vera öðravísi — heima hjá sér._______' Egitl Helgason „Mér finnst ég vera franskur vegna þess að ég hefvalið að vera franskur. “ sem virði þá eindrægni sem hér á að ríkja. Frelsi, jafnrétti, bræðra- lag eru grandvallaratriði sem fyrr og það þýðir að við viljum ekki fjölkvæni, við viljum ekki að stúlkur séu umskomar eða konur kúgaðar, við viljum ekki að strákar eigi tilkall til miklu meiri arfs en stúlkur. Þetta era skilyrði sem við setjum öllum þeim sem hér vilja búa. En við krefjumst þess ekki að þeir séu nákvæm spegilmynd miðlungs- Frakka. Couscous er nú einu sinni orðinn hálfgerður þjóðar- réttur hér í landi. PRESSAN: En eiga stjómvöld að gera eitthvað í máli þeirra sem ekki vilja aðlagast? YAMGNANE: Hér verðum við að fara varlega. Menn hafa rétt á því að vera útlendingar í Frakk- landi. Frakklandi er opið land. Við krefjumst þess eins að fólk virði Iögin, landið og fólkið. Síð- an má það vera útlendingar ef það kýs. Við viljum ekki þvinga neinn til neins. PRESSAN: í Evrópu er deilt hart um málefni innflytjenda. Nú vilja til dæmis jafnaðarmenn í Þýskalandi setja fólksflutning- um þrengri skorður, og Edith Cresson, fyrram forsætisráð- herra Frakklands, lét líka falla orð í þá vera. Þarf að herða regl- umar? YAMGNANE: Fólk hreyfir sig milli staða, það er eðlilegt. En til að koma á jafnræði í fólksflutn- ingum milli austurs og vesturs, norðurs og suðurs, er nauðsyn- legt að ríkin í norðri, Vestur- Evrópa, liðsinni þeim ríkjum ferð í myrkrinu fljúga í áttina að honum og rekast á. Ekkert held- ur aftur af þeim. Evrópa þarf áfram að vera slíkur viti lýðræðis og velferðar, en þó ekki stærri og bjartari en svo að fúglamir geti sest nokkum veginn hvar sem er. Þetta er eina leiðin, öðruvísi verður ekki haldið affur af fólki. PRESSAN: En þarf ekki samt að þrengja reglumar, í Frakk- landi og Évrópu? YAMGNANE: Það er alltaf hægt að herða reglumar. En um leið verða til fleiri og fleiri ólög- legir innflytjendur. Það þarf að takast á við vandann þar sem hann á upptök sín. PRESSAN: Nú hafa hægriöfga- menn náð langt í kosningum í Frakklandi. Þýðir þetta að kyn- þáttahatur sé landlægt í Frakk- landi? PRESSAN: Þetta hlýtur að valda okkur áhyggjum, þótt við verðum að vara okkur á að gera of mikið úr þessu. Fjórtán pró- sent franskra kjósenda hafa greitt hægriöfgamönnum at- kvæði sitt, sem þýðir að þeir hafa valið stefnu sem einkennist mjög af kynþáttafordómum og andúð á útlendingum. Það þarf þó ekki endilega að þýða að allir kjósendur Þjóðarfylkingarinnar séu kynþáttaihatarar af lífi og sál. Svipað var reyndar upp á ten- ingnum á fjórða áramgnum. Þá kom hingað mikill fjöldi af inn- flytjendum frá Ítalíu, Portúgal og Póllandi. Þetta fólk, sem var komið hingað til að leggja Frakklandi lið, mætti mikilli andúð og sætti illri meðferð. En

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.