Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 42
Ríkisskattstjóri gerir athugasemdir
við framtal Kidda kúbeins
EIGNFÆRÐI
SÖLUREYNSLU
Á VÍMUG JÖFUM
UTAN LAGA OG
REGLUGERÐAR
Kiddi kúbein eign-
færði reynslu sína
af sölu á hassi og
amfetamíni.
Það er skammsýni að telja aö aldrei komi til þess að þessi
efni veröi leyfð, - segir Kiddi
Herferð Alþýðusambands íslands
„Bætum kjörin okkar sjálf“
HUNDAR BORÐA
Á VIÐ 11 ÞÚSUND
ÍSLENDINGA
Þaö jafngilti um 5,1 prósents
kjarabót ef hundunum væri eytt
Hundar éta á viö þrefaldan árangur síöustu samninga, - sam-
kvæmt úttekt Alþýöusambandsins
Atvinnuhorfur stúdenta
vænkast
■
MIKIL EFTIRSPURN
EFTIR TALKÓR
STÚDENTA TIL AÐ
SKEMMTA VIÐ ÝMIS
TÆKIFÆRI
Ólafur Ingvarsson
segir aö kórinn sé
eftirsóttur í sam-
kvæmi og jafnvel
viö jaröarfarir.
Slógum í gegn á þingpöllunum, - segir Ólafur Ingvarsson,
nýráðinn framkvæmdastjóri talkórsins
21. TÖLUBLAÐ, 3. ÁRGANGUR HAFA SKAL ÞAÐ ER BETUR HLJÓMAR FIMMTUDAGURINN 28. MAÍ
Grímur Pálsson fékk soöna
pylsu meö heita vatninu.
Miðaldra karl í
Breiðholti
FÉKK PYLSU
í BAÐKERIÐ
Reykjavík, 28. maí.
„Eg var kominn ofan í baðið
þegar ég tók eftir pylsunni. I
fyrstu brá mér rosalega því ég
vissi ekkert hvað þetta var.
Hélt jafnvcl að þetta hefði
komið út úr mér einhvern veg-
inn. Svo létti mér þegar ég sá
að þetta var pylsa, en þá brá
mér aftur því ég skildi ekkert
hvað hún var að gera þarna,“
sagði Grímur Pálsson, mið-
aldra karlmaður sem varð fyr-
ir þeirri óskemmtilegu reynslu
að fá pylsu í baðkerið sitt.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hitaveitu Reykjavíkur mun
pylsan hafa verið dálítinn tíma í
heitavatnsæðinni. Þegar vatnið
var sett á leiðslumar frá Nesja-
völlum gleymdist að tæma kaffi-
aðstöðu þeirra sem lögðu þær, en
þeir höfðu komið sér íyrir slíkri
aðstöðu í einni dælustöðinni. I
frétt sem Hitaveitan hefur sent
frá sér segir að meðal annars séu
kaffibrúsar, sykurkar, þrír lítrar
af mjólk og ýmislegt annað sem
tilheyrir kaffistofuhaldi í pípun-
um.
Einnig segir í tilkynningunni:
„Þá hefur glatast forláta kaffi-
kanna sem á er skrifað „Elsku
pabbi" og er finnandi vinsamleg-
ast beðinn að koma henni til
skila til Kára Davíðssonar, Fum-
gmnd 15.“
Misnotkun á félagslega íbúðakerfinu
c-rsrrj r
fií'úcrr1 s
Ómögulegt að fjárfesting í félagslega kerfinu standi
ónotuð, - segir Sigurður Guðmundsson, forstjóri
Húsnæðisstofnunar
Bára og Már segjast ekkert erindi eiga í bæinn úr því þau eru
búin aö missa íbúðina.
Reykjavík, 28. maí.
„Fólk hér í stofnuninni
hringdi þrívegis um helgina í
íbúðina og það svaraði enginn.
Við seldum hana því á mánu-
deginum og kaupendurnir eru
þegar fluttir inn,“ segir Sig-
urður Guðmundsson, forstjóri
Húsnæðisstofnunar, en stofn-
unin hefur stóraukið eftirlit
með notkun íbúða í félagslega
kerfinu.
Núna á mánudaginn var þann-
ig íbúð í Unufelli sett á sölu á
meðan eigendur hennar gistu í
tjaldi á Héraði.
„Við fréttum af jressu hingað
austur," segir Már Finnsson, eig-
andi íbúðarinnar. „Miðað við
það sem við heyrum munum við
ekkert flýta okkur í bæinn. Mér
skilst að tjaldstæðið þar sé ekki
upp á marga fiska.“
„Þetta var rosalegur klaufa-
skapur," segir Bára Rafnsdóttir,
eiginkona Más. „Dóttir okkar
ætlaði að vera heima en vildi svo
endilega koma með á síðustu
smndu. Ef hún hefði verið heima
hefði einhver svarað jregar Hús-
næðisstofnun hringdi og þá ætt-
um við íbúðina sjálfsagt ennþá.“
Ótrúlegan fjölda mála dagar uppi hjá bæjardómi í Hafnarfirði
KEMUR MÉR EKKIÁ ÓVART
segir Stefanía Kjartansdóttir ræstingakona, sem segir dómarana afskaplega
þunga og erfiða í umgengni.
Hafnarfiröi, 28. maí.
„Það kemur mér ekki á
óvart þótt lítið gangi undan
þessum mönnum. Þeir hafa
alltaf virkað á mig sem hálf-
gerðar rolur,“ segir Stefanía
Kjartansdóttir, ræstingakona
við bæjardóm Hafnarfjarðar,
í samtali við GULU PRESS-
UNA, en eins og fram hefur
komið í fréttum skila dómarar
við réttinn seint og illa af sér
dómum.
„Þegar ég kom héma vildi ég
reyna að lífga upp á móralinn og
fá fólkið til að skemmta sér sam-
an. Tveir af dómurunum hafa
ekki enn svarað mér þótt fimm ár
séu liðin," segir Stefama.
„Stundum finnst mér að þótt
ég færi í sjö mánaða frí tækju
þeir ekki eftir því. Fyrir ári tók ég
síma eins dómarans úr sambandi
og hann hefur ekki kvartað enn.
Ég verð að segja fýrir mitt leyti
að það er varla hægt að bjóða
fólki upp á svona líflausan
vinnustað. Eina skemmtilega
fólkið sem kemur hingað er sak-
bomingar, en maður sér þá alltof
sjaldan núorðið," sagði Stefam'a.
Stefanía Kjartansdóttir ræst-
ingakona segist oröin lang-
þreytt á doöanum í dómurun-
um.
EIÐI GUÐNA-
SYNI NEITAÐ
UM VEGA-
BRÉFSÁRITUN
TIL RÍÓ
Brasilíumenn héldu að
hann væri með eyðni
vegna þýðingar- og
beygingarvillu í um-
sókninni.
Reykjavík, 27. maí.
„Sá sem þýddi umsóknina
virðist ekki vera sérstaklega
sleipur í portúgöisku og í raun
ekki heldur í íslensku,“ segir
Páll Líndal, ráðuneytisstjóri í
umhverfisráðuneytinu, en Eiði
Guðnasyni umhverfisráð-
herra hefur verið meinuð
vegabréfsáritun til Ríó og get-
ur því ekki sótt umhverfisráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna.
„Meö Eiði“ breyttist í „meö
Eiöni“ og síöar í „meö
eyðni" og því fékk Eiöur
Guönason ekki vegabréfs-
áritun.
f umsókninni átti að standa að
,,með Eiði“ fæm hinir og þessir,
en í íslensku útgáfunni var nafti
Eiðs beygt vitlaust svo þar stóð
,/neð Eiðni" fara hinir og jressir.
í portúgölsku þýðingunni breytt-
ist þetta síðan í ,jneð eyðni“ eða
öllu heldur „með alnæmi". Fyrir
vikið töldu brasUísk yfirvöld að
Eiður væri með alnæmi og neit-
uðu honum um áritun, enda gæta
þau sérstakrar varúðar vegna
mikiUar útbreiðslu sjúkdómsins í
Ríó.
COMBhCAMP®
COMBI CAMP er traustur og
góður félagi í ferðalagid. Léttur í
drætti og auðveldur í notkun.
Það tekur aðeins 15 sek. að tjalda.
COMBI CAMP er hlýr og
þægilegur með fast gólf í svefn og
iverurými.
COMBI CAMP er á
sterkbyggðum galvaniseruðum
undirvagni, sérhönnuðum fyrir
íslenskar aðstæður, á Qöðrum,
dempurum og 10” hjólbörðum.
Umboðið á
Akureyri:
• •
‘ Sumar ’92
Erum á
HOLDUR HF. - tr
JGVABRAl
l"
COMBhCAIVIP*
COMBI CAMP er einn mest
seldi tjaldvagninn á fslandi
undanfarin ár og á hann fæst
úrval aukahluta.
COMBI CAMP er til sýnis í
sýningarsal okkar og tií
afgreidslu strax.
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077