Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 12

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992 U-* tvö ár hafa farið fram viðamestu mælingar á mengun í sjó við ísland. Þetta er alþjóðlegt samstarfs- verkefni sem hér á íslandi er meðal annars í höndum Hafrannsóknastofnun- ar, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, umhverfisráðuneytis og Geislavarna ríkisins. Mælingamar eru á mjög breið- um grunni og er mælt magn geisla- virkra efna, málma og lífrænna þrá- virkra efna. Fyrstu niðurstöður eru væntanlegar einhvem tíma í júní, þegar helstu umhverfisfrömuðir koma heim frá Rfó, en þetta munu vera fyrstu mengunarmælingar f sjó við ísland sem eru fyllilega samanburðarhæfar við amtácöw STÓLAR, BORÐ x LEGUBEKKIR, HJOLABORÐ OG FLEIRA Gullfalleg garðhús- gögn í sumarbú- staðina blómagarð- inn eða garðstof- una. Sterk og góð. Þau eru lltekta og þola að standa úti allan órsins hring. Gœðavara ó góðu verði. Þriggja óra óbyrgð. Opið laugardaga kl. 10-16. Opið sunnudag kl. 11-16. • FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 • rannsóknir sem hafa verið gerðar er- lendis... F J—/ins og mörgum er væntanlega í fersku minni reisti myndhöggvarinn frægi Richard Serra mikið útilistaverk í vesturhluta Viðeyjar á síðusm Lista- hátíð. Af mikilli rausn tók Serra ekkert fyrir verkið, en gerði samning þar sem sagði að verklaunin, þrjár milljónir króna, skyldu sett í sjóð til að styrkja unga íslenska myndhöggvara. Var látið í veðri vaka að veitt yrði úr sjóðnum í tengslum við Listahátíð. annað hvert ár. Sjóðstjómin, en hana skipa Bera Nor- dal, forstöðumaður Listasafns íslands, Valgarður Egilsson. fyrrum formaður Listahátíðar, og Þór Vigfússon mynd- höggvari, mun sitja á rökstólum þessa dagana og verður væntanlega veitt úr sjóðnum í fyrsta sinn nú fyrripart sum- ars. Sjálfur mun Serra fylgjast grannt með. enda tók hann miklu ástfóstri við fsland þegar hann dvaldist hér... / A X \. síðustu Listahátíð var klúbbur hátíðarinnar starfræktur á Hressó, bæði innandyra og þar úti í garðinum. For- ráðamenn Listahátíð- arinnar, sem hefst á laugardag, ætla að fylgja þessu fordæmi, enda var klúbburinn afspymuvinsæll. Fyr- ir tveimur ámm vom klúbbstjórar og allt í öllu þar Sigurður Sigurðsson, sem þá var forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar í Fellahelli, og Benóný Ægisson, sem nú hefur for- stöðu í Fellahelli. Síðan þá hefur Sig- urður flutt búferlum til Kaupmanna- hafnar, en Benóný verður aftur klúbb- stjóri niðri á Hressó... Q W-/itt sýnist hveijum um Ógnareðli, þá umtöluðu kvikmynd, sem nú er sýnd í Regnboganum. En þrátt fyrir að gagn- rýnendur út um allan heim úthúði myndinni taka áhorfendur ekki mark á þvf. Aðsóknin í Regnbogann síðustu vikuna hefur verið slík að menn muna vart annað eins. Um síðustu helgi var uppselt á allar sýningar, líka aukasýn- ingu í b-sal á miðnætti, og sagt að það hefði þess vegna verið hægt að sýna myndina klukkan þijú um nótt — það hefði hvort sem er orðið uppselt... D agskrá Listahátíðar í Reykjavík kemur nú út í annað sinn í vegjegu og stóm broti. í þetta sinn er það íslenska auglýsingastofan sem hefur hannað bæklinginn og fylgir sögunni að hún hafi að fyrra bragði boðið Listahátíð að taka að sér verkið, hátíðinni að kostnað- arlausu, til að styrkja listina, auka hróð- ur fyrirtækisins og gefa teiknumm færi á að leika sér svolítið... u ndanfarið hefur útvarpsmaður- inn Bjarni Dagur Jónsson verið á ferð um bæinn og tekið vegfarendur tali. Um daginn mátti heyra í útvarpi þegar hann tal- aði við vinnuhóp hjá Vatnsveitunni. Eftir eitthvert spjall þakk- aði Bjami Dagur fyrir sig, en þá mátti heyra þessa spurningu frá viðmælendum hans: Hver ert þú? — Bjami Dagur er kannski ekki alveg eins frægur og hann hélt... M einleg villa hefur slæðst inn í nýju símaskrána þar sem upplýsinga- sími Vegagerðar ríkisins er skráður 621500. Sé hringt í þetta númer svarar hins vegar Biskupsstofa, en þar er að- eins vísað á hinn þrönga veg dyggðar- innar. Rétt númer er hins vegar 631500 og þar er boðið upp á mun fleiri leiðir... N -L x okkra athygli vekur hversu hlut- ur Frakklands er stór á Listahátíð sem fór af stað með tónleikum Gipsy Kings á miðvikudagskvöld. Sú hljómsveit telst vera frönsk þótt meðlimir hennar séu af sígaunaættum og frá Frakklandi kemur líka dansflokkur Maguy Marin og leik- húsið Théatre de l’Unité. f myndlistinni eru Frakkar ekki síður atkvæðamiklir. Þaðan kemur heimsfrægur maður, Daniel Buren, og semr upp útilistaverk, en í Nýlistasafninu sýna IVIichel Verjux og Francois Perrodin. Loks er þess svo að geta að Mírósýningin kemur hingað frá listasafni í Frakklandi. Hinir frönsku listamenn koma náttúrlega hingað eftir ýmsum leiðum og undir ýmsum formerkjum. en þó er óhætt að fullyrða að hið ötula franska sendiráð í Reykjavík á talsverðan heiður skilið... 4. og 11. jiiní tíl Benldomi 2 eda 3 \ikur - Verd írá kr. 38.750,-* 8 sæti laus — Viðbótargisting á Lavante Club. Pantaðu strax! *Miðast við 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. FE RÐASKRI FSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTRÆTI 16 - SÍMI 91-621490,^^'

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.