Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 34

Pressan - 28.05.1992, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992 Skoðanakönnun Skáls fyrir PRESSUNA Davíð Oddsson Friðrik Sophusson svarenda, sem gáfu einkunn á neðangreindu bili 5-7 8-10 5-7 8-10 Þorsteinn Pálsson 0-4 5-7 8-10 Ólafur G. Einarsson Halldór Blöndal Ef niðurstöður könnunarinnar eru skoðaðar má segja að ráð- herramir hafi almennt hækkað í áiiti hjá fólki. Sighvatur Björg- vinsson er sá eini sem má þola lægri einkunn í vor en hann fékk á miðsvetrarprófi PRESSUNN- AR í janúar. Þeir nafriar og fé- lagar Jón Sigurðsson og Baldvin Hannihalsson standa í stað. Aðr- ir síga upp á við. Jóhanna SigurÖardóttir tek- ur stærsta stökkið. Meðalein- kunn hennar hækkar úr 5,9 í 7,1. En aðrir ráðherrar taka einnig stökk; Halldór Blöndal rýkur úr 3,9 í 4,8 og kemst þannig bæði upp fyrir Sighvat og Jón Baldvin, en Halldór var fúxinn í janúarkönnun PRESS- UNNAR. ALLIR ELSKA HEILAGA JÓHÖNNU Jóhanna Sigurðardóttir er ótrúlega vinsæll ráðherra. Hún fékk 7,1 í meðaleinkunn og dúx- aði. Aðeins einn hundraðshluti þeirra sem tóku þátt í könnuninni gaf henni núll og aðeins 3 pró- sent gáfu henni falleinkunn eða minna en 5. Það em nærri fjómm sinnum færri falleinkunnir en sá ráðherra fékk sem næsturkom. Og sama er upp á teningnum þegar hæstu einkunnir em skoð- aðar. 13 prósent gáfu Jóhönnu 10 og fékk enginn ráðherra jafn- oft þá einkunn. Og ef litið er til þeirra sem gáfu Jóhönnu 8 eða meira þá vom það 48 prósent eða rétt tæplega helmingur. Enginn annar ráðherra getur stært sig af viðlíka hlutfalli þeirra sem gáfu þeim hæstu einkunn. ALLTSVART HJÁ SIGHVATI En að sama skapi og Jóhanna gemr unað glöð við sitt í þessari könnun má Sighvatur Björgvins- son fara að hugsa sinn gang. Hann fékk flest núllin. 25 pró- sent þátttakenda létu hann hafa þá einkunn fyrir frammistöðuna. Meira en helmingur, eða 53 pró- sent, gaf honum falleinkunn eða minnaen5. Og Sighvatur fékk sjaldan 10. Aðeins einum hundraðshluta þátttakenda fannst hann eiga þá einkunn skilið. Og hann fékk líka sjaldnast góðar einkunnir á bilinu 8 til 10.15 prósent þátttak- enda gáfu honum svo hátt. ÞORSTEINN ENN ÍÖÐRUSÆTI Ef ráðherrunum er raðað upp eftir meðaleinkunn er Jóhanna að sjálfsögðu efst, með 7,1. Þá kemur Þorsteinn Pálsson með 6,0, en hann var einnig í öðm sæti í janúar þegar hann fékk 5,3 í meðaleinkunn. ÓLAFUR G. TEKUR STÖKK Og eins og það er langt á milli Þorsteins og Jóhönnu er langt frá Þorsteini niður í næsta mann. Sá er Olafur G. Einarsson, sem fékk 5,3 í einkunn og hefur hækkað umtalsvert frá í janúar þegar hann fékk 4,4 og var í sjö- unda sæti á listanum. Ölafur hef- ur því aldeilis snúið við blaðinu þrátt fyrir mótbyr í lánasjóðs- málinu. Friðrik Sophusson er í fjórða sæti með 5,2 í einkunn. Hann fékk 5,1 í janúar og hef- ur því hækkað sig um sjónar- mun. I janúar deildi hann þriðja sætinu með Jóni Sig- urðssyni. ÞRÍR JAFNIR Jón verður hins vegar að sætta sig við það nú að deila fimmta sætinu með þeim Davíð Odds- syni og Eiði Guðnasyni. Allir fá þeir 5,1 í meðaleinkunn. Eins og áður sagði stendur Jón Sigurðsson í stað ffá í janúar en bæði Eiður og Davíð bæta við sig. Þeir vom líka jafriir í janúar- prófinu og fengu þá 4,8 í ein- kunn.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.