Pressan - 04.06.1992, Qupperneq 16
16
FiMMTUDAGUR PRESSAN 4.JÚNÍ 1992
Halldór bælti
31 % olan á
tillögur Haf-
rannsóknar
Á árunum 1978 til 1990 heim-
iluðu viðkomandi sjávarútvegs-
ráðherrar að meðaltali 63 þúsund
tonna þorskafla umfram tillögur
Hafrannsóknastofnunar, eða 21
prósent. Stofnunin mælti að
meðaltali með 302 þúsund tonn-
um en reyndin varð 365 þúsund
tonn.
Á árunum 1978 til 1983 voru
Matthías Bjarnason, Kjartan Jó-
hannsson og Steingrímur Her-
mannsson ráðherrar sjávarút-
vegsmála. Á því tímabili mælti
stofnunin með þorskafla upp á
337 þúsund tonn að meðaltali, en
reyndin varð 16 prósentum meiri
eða384 þúsund tonn.
Árið 1983 tók Halldór Ás-
grímsson við og í kjölfarið tóku
kvótalögin gildi. Frá 1984 til
1990 mælti Hafrannsóknastofn-
un með 270 þúsund tonna þorsk-
afla að meðaltali, en í tíð Hall-
dórs varð reyndin 348 þúsund
tonn eða 31 prósenti meiri að
meðaltali en stofnunin lagði til.
40 prósenta samdráttur í
þorskafla yrði einsdæmi. Þó má
geta þess að á milli áranna 1983
og 1984 minnkaði aflinn um 27
prósent og á tveimur árum, milli
1982 og 1984, um 39,4 prósent.
Eftir þann mikla niðurskurð var
aflinn 283 þúsund tonn, en nú
leggur ráðgjafamefnd Alþjóða-
haffannsóknaráðsins til að veið-
in verði aðeins 175 þúsund tonn
á næsta fiskveiðiári.
Formaður
Karatefélags-
ins dæmdur
fyrir líkams-
árás
Nýlega var í Hafnarfirði kveð-
inn upp dómur í máli einstak-
lings gegn Gunnari Inga Hall-
dórssyni. Gunnar Ingi var sakað-
ur um tilefnislausa ltkamsárás í
fyiTavor, en þá var hann formað-
ur Karatefélags Reykjavíkur.
Tildrög málsins eru þau að
þrír menn gengu að næturlagi
niður Laugaveg. Orðaskipti við
menn í öðrum hópi leiddu til
þess að Gunnar Ingi notaði kar-
atekunnáttu sína og sparkaði
ákæranda niður og veitti honum
að því loknu karatehögg í andlit-
ið, þannig að kinnbeinið þrí-
brotnaði. Helga Bachmann í
Sakadómi Hafnarfjarðar komst
að þeirri niðurstöðu að um
fólskulega og tilefnislausa lfk-
amsárás hefði verið að ræða og
dæmdi Gunnar Inga í tveggja
mánaða fangelsi, skilorðsbundið
til tveggja ára. Þá var hann
dæmdur til að greiða ákæranda
107 þúsund króna bætur. Eftir
því sem best er vitað hefur
Gunnar Ingi ekki áfrýjað dómn-
um.
Enn bakreikn-
ingar frá
Byggung
Byggingarsamvinnufélag
ungs fólk hefur nú sent félags-
mönnum sínunt enn einn reikn-
inginn vegna byggingarinnar á
Seilugranda. í bréfi dagsettu 11.
maí sem fylgir reikningnum
kemur fram að um lokauppgjör
sé að ræða og viðkomandi gangi
úr félaginu þegar skuldin haft
verið greidd og fái því ekki fleiri
reikninga. Greiðslufrestur er gef-
inntil 12. júní.
Eigandi tveggja herbergja
íbúðar fékk nú reikning upp á
140 þúsund krónur og er sú skýr-
ing geftn að upphæðin sé tilkom-
in vegna rekstrar skrifstofu. Hús-
ið er enn ekki fullbúið að utan og
bílageymslur ófrágengnar.
Jóhanna við Jón Baldvin
PRESSAN birtir
kafla úr rifrildi Jó-
hönnu og Jóns
Baldvins á síðasta
flokksþingi Alþýðu-
flokksins.
í tilefni undirbúnings flokks-
þings Alþýðuflokks hefur rifjast
upp fyrir áhorfendum frétta á
Stöð 2 að eitt myndskeið af síð-
asta flokksþingi Alþýðuflokks-
ins hefur sést þar öðrum oftar.
Það er tekið í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði og sýnir Jón Baldvin
Hannibalsson og Jóhönnu Sig-
urðardóttur taka höndum saman
og lyfta krepptum hnefum, að
því er virðist í samstöðu eftir
átakamikið flokksþing. Af
myndunum er þó greinilegt að
Jóhönnu var þetta handaband
óljúft og hún átti sitthvað vantal-
að við formann flokksins. Vand-
inn íyrir sjónvarpsáhorfendur er
sá að engin leið er að heyra ná-
kvæmlega hvað fólst í reiðilestr-
inum sem hún hélt yfir Jóni.
PRESSAN fékk sérfræðing í
varalestri til liðs við sig og bað
að ráða í samtal Jóhönnu og
Jóns Baldvins. Reyndar er að-
eins hægt að greina varahreyf-
„Þetta ver&ur erfib sambúö."
ingar Jóhönnu, þar sem Jón
snýr hlið og baki í myndavél-
ina. Eftirfarandi eru kaflar úr
þeim ummælum.
,4>ETTA VERÐUR ERFIÐ
SAMBÚГ
í upphaft samtalsins margend-
urtekur Jóhanna sömu setning-
una: „Þú veist að þetta verður
erfið sambúð... Þetta verður erf-
ið sambúð." Þetta barst Jóni ekki
vel til eyma, svo Jóhanna færir
sig nær og segir: „... erfiðasta
sambúð sem ég hef verið í.“
Fundarstjóri
biður viðstadda að
klappa fyrir ráð-
herrum flokksins,
en þau halda sam-
talinu áfram. Jón
segir eitthvað sem
ekki greinist, en
Jóhanna heldur
áfram: „Eg veit
það ekki, Jón. Þú
ert búinn að særa
mig nóg.“ Við tek- ver'^ 9ert-
ur langur kafli þar sem Jóhanna
talar svo hratt að ekkert skilst, ot-
ar fingrinum framan í Jón og er
hin versta. Jón virðist ekki hagg-
ast, en Jóhanna hægir ferðina.
Það er „sjálfsagt lýðræði í
þessum flokki og því sem þessi
flokkur hefúr barist íyrir... þess
vegna áttu ekki bara að tíunda
það sem vel hefur verið gert,
heldur líka það sem okkur er bú-
ið að [mistak-
ast]... Held-
urðu ekki að
ég haldi að það
sé sjálfri mér
að kenna“?
J ó h a n n a
heldur áfram
nokkra stund,
en þá vindur
sér að þeim
maður og réttir
Jóni bréfmiða.
Jón límr yfir miðann, sýnir Jó-
hönnu og þau slíta samtalinu
með það sama, líta upp og horfa í
átt til myndavélar Stöðvar 2.
Þetta verður varla skilið nema
svo að einhver hafi gert þeim
„Þess vegna áttu ekki bara
aö tíunda þaö sem vel hefur
viðvart um að verið væri að taka
myndir af þessum óvenjulegu
sáttum.
LITLAR LÍKUR Á KOSN-
INGUMNÚ
Það má búast við einhverjum
átökum um málefni á flokks-
þingi Alþýðuflokksins, sem
hefst eftir rúmlega viku. Af sam-
tölum við flokksmenn má ráða
að flestir séu orðnir þreyttir á
óljósum yfirlýsingum Jóhönnu
og Guðmundar Árna Stefáns-
sonar, sem hafa gagnrýnt bæði
flokksforystu og ríkisstjóm án
þess að vilja láta kné fylgja
kviði. Engar líkur eru því taldar á
kosningum til formanns eða
varaformanns, en ýmsir í forystu
flokksins hafa á orði að Jóhanna
verði að gera upp við sig von
bráðar hvort hún ætlar að sitja
áfram sem félagsmálaráðherra
og þá láta af því sem litið er á
sem hálfopinbera stjómarand-
„Þaö er veriö aö taka mynd
af okkur."
stöðu.
Hún hefur ekki viljað tjá sig
um þessi mál við fjölmiðla, en
hún fær tækifæri til þess á
flokksþinginu. Og væntanlega
verða sjónvarpsmyndavélar á
staðnum eins og síðast.
Karl Th. Birgisson.
D E B E T
„Halldór er greindur maður og yfirleitt rökfastur,
og maður getur treyst orðum hans,“ segir Brynjólfur
Bjarnason, forstjóri Granda. „Hann er mjög hæfur
stjómmálamaður og lipur við að halda sínu fram og
koma því í gegn,“ segir Reynir Traustason, for-
maður Stýrimannafélagsins Bylgjunnar. „í átta ára
samstarfi við hann meðan hann var ráðherra kynntist
ég honum sem mjög heilsteyptum stjómmálamanni,
ábyrgum og traustum. Margir halda að hann sé þung-
ur og þver, en það er eitthvert yfirborð sem auðvelt er
að komast í gegnum," segir Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands íslenskra útvegs-
manna. „Aflöngum kynnum við Halldór tel ég að þar
sé á ferðinni mikilhæfur maður,“ segir Óskar Vigfús-
son, forseti Sjómannasambands Islands.
Halldór Ásgrímsson
K R E D I T
„Hann getur verið allt of þ ver. Og hann er fram-
sóknarmaður,“ segir Brynjólfúr Bjamason, forstjóri
Granda. Helsti ókostur hans er þessi ógurlega
þröngsýni, sem hefur nánast komið kvótakerfi á á
Islandi. Halldór er þumbari, en mér virðist hann
ekki vera ósanngjarn," segir Reynir Traustason, for-
maður Stýrimannafélagsins Bylgjunnar. „Hann
er framsóknarmaður," segir Kristján Ragnarsson,
Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Galli
Halldórs að mínu mati er — og það er sagt vegna
mikilla samskipta við hann þegar hann var sjávar-
útvegsráðherra og ég í forsvari fyrir hagsmuna-
samtök — að hann er nokkuð þungur í róðri.Per-
sónulega ber ég mikið traust til hans,“ segir Óskar
Vigfússon, forseti Sjómannasambands Islands.
Halldór Ásgrímsson stjórnaói þorskveiöum íslendinga á árunum 1983 til 1991.