Pressan - 04.06.1992, Síða 29
_______________FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚNI 1992
F Ó T B O L T I wmm
29
ÞÓRSARAR
Akureyringar eiga nú tvö liö í fyrstu deildinni,
eins og reyndar nokkrum sinnum áöur. Annað
þessara liða er Þór, en því var spáð hraksmán-
arlegu gengi í sumar og menn héldu fram að
liöið færi rakleitt niður í aðra deild aftur. Þessir
menn hefðu betur þagað, því Þór hefur fullt hús
stiga eftir tvær umferðir og trónir á toppi deild-
arinnar. Það er að vísu mikiö eftir enn af mót-
inu, en stuðningsmennirnir eru kampakátar og
efast ekkert um að Þórsarar eigi eftir að bæta
mörgum stigum í safnið. Meðal þeirra sem
brosa breitt þessa dagana eru:
Magnús Gíslason, útibússtjóri Landsbankans á
Selfossi.
Sævar Frímannsson, fyrrverandi formaður Ein-
ingar á Akureyri.
Bjami Rafnar, fyrrverandi yfirlæknir.
Kristján Jóhannsson óperusöngvari.
Skapti Hallgrímsson, blaðamaöur, Reykjavík.
Friödóra Guðlaugsdóttir, húsmóðir á Akureyri.
Sigurður Amórsson, framkvæmdastjóri Lindu.
Guðjón Steindórsson, útibússtjóri íslands-
banka, Akureyri.
Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ.
Baldur Brjánsson töfrakarl.
Jakob Frímannsson, fyrrverandi kaupfélags-
stjóri KEA.
Rafn Hjaltalín, knattspymudómari fyrrverandi.
Jóhann Egilsson, útibússtjóri íslandsbanka.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða.
Þórarinn B. Jónsson, umboðsmaður Sjóvár-AI-
mennra, Akureyri.
Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi og faðir Al-
freðs, þjálfara KA í handbolta, og Gunnars,
þjálfara KA í fótbolta. Gísli styöur Þór og er
meira að segja einn af styrktarmönnum knatt-
spyrnudeildar Þórs.
Haukur Jónsson, aöstoðarskólameistari Verk-
menntaskólans.
Hilmar Gíslason, bæjarverkstjóri, Akureyri.
Daníel Snorrason, rannsóknarlögreglumaður,
Akureyri.
Bergljót Rafnar, fyrrverandi bæjarfulltrúi, Akur-
eyri.
gegn KA á mánudaginn. Það verður
hörkuleikur og ég á von á þvf að mínir
menn auki enn forskot sitt.
Eg hef nú ekki séð nema bara leikinn
við Breiðablik núna, en mér sýnist liðs-
heildin mjög sterk. Menn eru almennt
mjög baráttuglaðir og mér finnst Svein-
bjöm (Hákonarson) hafa eflt liðið, það
er miklu meiri festa á miðjunni. Og það
er líka meiriháttar að fá Bjama Svein-
bjömsson fullffískan í byijun móts en
ég tel að hann sé einn af okkar sterk-
ustu sóknarmönnum."
Nú em engar stjömur, á íslenskan
mælikvarða, í Þórsliðinu.
„Nei, það er nú kannski okkar kostur
líka að það er enginn þama sem þarf
eða er í því að þurfa að láta ljós sitt
skína og vera með einhveija sólótakta.
Þá þarf að standa undir því að vera ein-
hver stjama, það er ekki þannig pressa
á neinum."
Spáin sem svo oft er vitnað í var
ykkur ekki hagstæð, þar var gert ráð
fyrir að þið mynduð verma botnsæúð í
lok móts.
„Við tökum það nú ekkert alvarlega,
alls ekki. Okkur hefur nú yfirleitt verið
spáð fallsæti þegar við höfum verið í
fýrstu deild. Ég held að það sem gerist í
þessum spám sé það að þegar við kom-
um hingað suður í vorleikina og spilunt
á gervigrasinu þá hefur okkur ekki
gengið vel og menn hafa tekið mið af
því, en allur undirbúningur miðast nátt-
úrlega að því að vera í toppformi þegar
mótið byijar. En það kemur mér ekkert
á óvart þótt okkur sé spáð botnsæti, ég
er viss um það að strákamir eiga eftir
að sýna að þessi spá er út í hött og við
verðum í toppbaráttunni í sumar -— ég
er alveg viss um það,“ svarar Öm og er
engan bilbug á honum að finna.
Vandamál Þórsliðsins hefur í gegn-
urn tíðina ekki síst verið hvað þeim hef-
ur gengið illa að skora, en Öm er sann-
færður um að það er að baki nú. Hann
hefur trú á að Bjami Sveinbjömsson
eigi eftir að skora grimmt ásamt félög-
um sínum og því eigi stuðningsmenn
Þórs eftir að sjá þá skora mörg mörk og
falleg hjá andstæðingunum í sumar.
„Eg er ánægður með það sem Sig-
urður Lámsson er að gera með liðið og
breiddin í því er góð. Það eru góðir
leikmenn á varamannabekknum og
barátta um hveija einustu stöðu í liðinu,
það er enginn ömggur með sæti. Að-
staðan er einnig mjög góð, góður mal-
arvöllur og tveir góðir grasvellir. Ég er
því bjartsýnn á sumarið og hef enga
ástæðu til annars. Að mínu maú verða
Fram og Valur í toppbaráttunni ásamt
Þór,“ segir Þórsarinn Óm.
VIKINGURINN
#/VAR STUNDUM
ERFITT AÐ VERA
VÍKINGUR"
,,Ég fæddist í Vfkingshverfinu og átti
náttúrlega erfiða æsku, því það var ekk-
ert auðvelt að vera Víkingur á þeim ár-
um. Þá var þetta nánast stöðug önnur
deild. Víkingur vann ekki marga leiki
og töpin vom mörg og stór. En þeir
sem komust í gegnum æskuárin sem
harðir Víkingar þrátt fyrir slæmt gengi;
þeir náttúrlega hljóta að vera alveg
gegnheilir Víkingar, það getur ekki
annað verið,“ segir Hannes Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Securitas og
ákafur stuðningsmaður Víkings.
Hannes hélt mögm árin út án þess að
hvika frá stuðningi við sína menn, þrátt
fýrir að oft væri það erfitt. Hann valdi
sér þó lið til að halda með í fyrstu
deildinni á þessum tíma. En ekki var
það Reykjavíkurlið sem hann hvatti
heldur batt hann trúss sitt við Skaga-
menn og hélt með þeim í fyrstu deild.
En í dag upplifa Víkingar nýja og
VESTNORRÆNT KVENNAÞING1992
F0ROYAR • ÍSLAND • KALAALLIT NUNAAT
Á EGILSSTÖÐUM
20. - 23. ÁGÚST
Yfirskrift þingsins er
Vinnumarkaðurinn,
en jafnframt hefur hver þingdagur sérstakt þema:
Föstudagur: Vinnumarkaðurinn og menntun.
Laugardagur: Hafið - Umhverfismál.
Sunnudagur: Konur og möguleikar þeirra til áhrifa.
Auk hefðbundinna þingstarfa verða fyrirlestrar og kynningarbásar
frá ýmsum félagasamtökum, menningardagskrá, íþróttir fyrir alla
og margt fleira.
Þátttökueyðublöð liggja frammi hjá Jafnréftisráði, Laugavegi 13,
101 Reykjavík, ASÍ, Grensásvegi 16a, BSRB, Grettisgötu 89,
Ferðamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum, auk bæjarskrifstofa á;
eftirtöldum stöðum: Keflavik, Akranesi, ísafirði, Blönduósi,
Akureyri, Neskaupsstað, Höfn Hornafirði, Vestmannaeyjum,
Selfossi. 1
Hægt er að fá nánari upplýsingar og eyðublöð send frá
Jafnréttisráði, símar 91-27877 og 91-27420.
STADREYND!
á stórlœkkuðu verði
Málið er heitt því með sérstökum samningi við GRAM
verksmiðjurnar bjóðum við nú allar gerðir dönsku
GRAM kæliskápanna á stórlækkuðu verði. GRAM
býður 16 gerðir kæliskápa með eða án frystis,
til innbyggingar eða frístæða, til dæmis neðangreinda:
wmrm'
j|pL-N 1
wmr-\
r
GRAM K-245 GRAM K-285 GRAM K-395
244 Itr. kælir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm
274 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 - 135,0 cm (stillanleg)
379 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
nú aðeins 49.950 kr. nú aöeins 52.650 kr.
nú aöeins 71.950 kr.
46.450 48.960 66.910
(staðgreitt) (staðgreitt) (staðgreitt)
pflBaairii
GRAM KF-195 GRAM KF-233 GRAM KF-264
46.450 53.610
(staðgreitt) (staðgreitt)
R '
GRAM KF-250
GRAM KF-355
GRAM KF-344
nú aöeins 42.900 kr. nú aöeins 49.950 kr. nú aöeins 57.650 kr.
39.890
(staðgreitt)
166 Itr. kælir + 31 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 106.5 cm
204 Itr. kælir + 29 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5
199 Itr. kælir + 64 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 146.5 cm
Góöir greiösluskiimáiar: 7% staögreiösluafsláttur og 3% aö auki
séu keypt 2 eöa fleiri stór tæki samtlmis (magnafsláttur). EURO og
VISA raögreiösiur til allt aö 18 mánaöa, án útborgunar
/FQ nix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
172 Itr. kælir + 62 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm -135,0 (stillanleg)
274 Itr. kælir + 62 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
194 Itr. kælir + 146 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
nú aöeins 56.950 kr.
nú aöeins 71.800 kr.
nú aöeins 78.450 kr.
52.960
(staðgreitt)
66.770
(staðgreitt)
72.960
(staðgreitt)
V