Pressan - 04.06.1992, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚNI 1992
Bk/u/ÍiÁ
Við sögðum írá því á þess-
um vettvangi á síðasta ári að
við útskrift stúdenta frá
mennta- og framhaldsskól-
um landsins hefðu stúlkumar
rúllað yfir strákana í dúx-
mennsku. Það lítur út fyrir að
leikar hafi jafnast nokkuð að
þessu sinni. I MR sigraði
strákur, Baldur Steingríms-
son, fékk 9,38, en Katrín
Ásta Gunnarsdóttir fékk
„ekki nema“ 9,35. f MS dúx-
aði stúlkan Brynja Braga-
dóttir með 9,2 og stúlka varð
sömuleiðis í öðru sæti. I MH
sigraði strákur, Stefán Jóns-
son. í Fjölbraut í Breiðholti
náði bestum árangri Eva Vil-
hjálmsdóttir. í Versló varð
dúx strákurinn Halldór
Fannar Guðjónsson með
9,12. Ekki vitum við um
MA, en í ofangreindum
„stórum“ skólum var því um
jafntefli að ræða. I Fjölbraut
Garðabæjar sigraði strákur,
en stúlka í Fjölbraut við Ar-
múla. I MK sigraði strákur,
en í MÍ stúlka. í ML sigraði
strákur en í Kvennaskólan-
um stúlka, að sjálfsögðu. I
Flensborg skiptu með sér
heiðrinum piltur og stúlka.
Tæknilegt jafntefli, að okkar
mati.
Hverjum skyldi detta í hug
að 10 ár væru liðin frá því
lykilmennimir eftirtöldu
voru ráðnir í viðkomandi
lykilstöður? f gamla fjöl-
skyldufyrirtækinu Nóa, Sír-
íus og Hreini settist í for-
stjórastól maður sem aðal-
lega hafði starfað hjá borgar-
verkfræðingi í Reykjavík;
Kristinn Björnsson. Nú er
hann forstjóri Skeljungs. Nýr
bankastjóri tók við í Iðnaðar-
bankanum, Valur Valsson.
Nú er hann yfirbankastjóri
íslandsbanka og þar með
yfirbankastjóri fjögurra fyrr-
verandi banka. Sem sé fjór-
faldur orðinn. Hjá IBM á ís-
landi vék Ottó A. Michelsen
úr forstjórastóli og þar settist
Gunnar M. Hansson. IBM er
nú stórveldi og skilar reglu-
lega hagnaði. Halldór Guð-
bjarnason var ráðinn banka-
stjóri við Útvegsbankann.
Bankinn er liðinn undir lok
og Val í kjölfar Hafskips-
málsins og nú er Halldór
bankastjóri í Landsbankan-
um. Og Agnar Friðriksson
var ráðinn framkvæmdastjóri
Amarflugs. Nú er Agnar...
ja, hvar er Agnar?
AF SKATTSKYLDUM OG SKATTLAUSUM TEKJ-
UM ÖLDUNGA ÍSLANDS
Öldungar, svokallað-
ir ellilífeyrisþegar,
eru drjúgur hluti
landsmanna. 67
ára og eldri,
sem gefa upp
til skatts, em
um 27.500
talsins.
Stór hFuti
þessa hóps
má láta sér
nægja aura frá
Tryggingastofn-
un og frá lífeyr-
issjóðnum sín-
um, 33 til 55
þúsund krónur
á mánuði.
Margir eru hins
vegar á launum að auki og krydda tilveruna
með tekjum af bankainnstæðum, verðbréf-
um og vaxtatekjum sem eru undanþegnar
skatti.
Einn öldunga landsins, sem reyndar rekur
fyrirtæki í eigin nafni, taldist 76 milljóna króna
maður í skattskyldum tekjum og halði að auki
56 milljónir yfir árið (1990) í tekjur undan-
þegnar skatti. Mánaðartekjur mannsins og/eða
fyrirtækis hans em 11 milljónir.
11,6 prósent kvæntra karla (858 stykki)
höfðu að meðaltali 32.076 krónur á mánuði
skattskyldar og 11.110 krónur á mánuði án
skattskyldu, samtals 43.186 krónur.
3,64 prósent kvæntra karla (269) vom hins
vegar með 394.228 skattskyldar krónur á
mánuði og 85.126 skattlausar, samtals
479.354 krónur á mánuði. Munurinn á milli
þessara hópa kvæntra karlkyns öldunga var
því 11-faldur.
Giftar konur eru samkvæmt gögnum
skattyfirvalda bara alls ekki með tekjur án
skattskyldu. 1.307 giftarkonur, I8,4prósent
þeirra, vom með 11.711 krónur á mánuði að
meðaltali. 496 giftar konur, 7 prósent, höfðu
113.340 krónur á mánuði. Þar af vom 35
giftar konur (0,5 prósent) með 208.872
krónur á mánuði.
í gögnum skattyfirvalda er einhleypingum
skellt saman í einn samkynja hóp. 11,5 pró-
sent þessa hóps (1.488 stykki) vom með
8.927 skattskyldar krónur á mánuði og 1.713
skattlausar, samtals 10.640 krónur. 171
tekjuhæsti einhleypingurinn (1,3 prósent) var
hins vegar með 257.655 skattskyldar krónur
og 35.526 skattlausar, samtals 273.181
krónu á mánuði. Munurinn á milli þessara
hópa er nær 26-faldur. Meðaljóninn var svo
með 67.547 krónur að meðaltali.
Ef marka má myndirnar eru Hlöllabátar skrásett vörumerki en Hard Rock ekki.
MARGT ER LÍKT MEÐ SKYLDUM
Það þóttu mikil tíðindi um árið
þegar út spurðist að Tommi í
Tommahamborgurum hefði gert
samning við Hard Rock-keðjuna og
hann hygðist opna menningannið-
stöð af því tagi í Kringlunni, sem þá
var nýhafin smíði á. Hinn 25. júlí
1987 var svo þessi Mekka hamborg-
arahyggjunnar opnuð með pomp
og. prakt og menn gátu loksins
pantað sér sívinsæla sérrétti í
Hard Rock Café (eða Hart Rokk
Kaffi, eins og stendur í síma-
skránni).
Ari áður var hins vegar brasmuster-
ið Hlöllabátar opnað í Austurstræti og
þar mátti fá báta af öllum stærðum og
gerðum — þótt áhugafólk um austur-
lenska matargerðarlist sé enn að bíða
eftir víernömskum flóttamannabátum.
Hlöllabátar hafa vaxið hröðunt
skrefum og gamli kofinn á homi Aust-
urstrætis og Aðalstrætis umbreyst í
risavaxna eftirlíkingu af Kókbíl. Hard
Rock hefur hins vegar staðið í stað —
sumir segja hnignað þar sem tónlistin
er lægri og kemur hörðu rokki ná-
kvæmlega ekki neitt við. En það er at-
hyglisvert að virða fyrir sér hvemig
staðimir eru smám saman að líkjast
hvor öðrum meir og meir: Tónlistin
hjá Hlölla hefur hækkað og frönskum-
ar á Hard Rock eru orðnar sjoppulegri.
Aðalsönnunargagnið er þó merkið,
sem staðimir hafa við innganginn, og
ef til vill er þess ekki langt að bíða að
Hlöllabátar fyrirfinnist í fleiri stór-
borgum: Reykjavík, Hvolsvelli, Lofo-
ten, Omsk, Birmingham...
VORMENN ÍSLANDS - BRÆÐ-
URNIR FRÁ HÖLLUSTÖÐUM
Flestir öldungar landsins fá í vasann 33 til 55 þúsund krónur
á mánuði, en 3,6 prósent kvæntra karla 67 ára og eldri eru
með hálfa milljón á mánuði.
VERÐA LOKUNARMENN
RAFMAGNS OG HITA BRÁTT
ÚRELTIR?
Um borgina ferðast daglega
vasklegur hópur manna, sem
hefur að atvinnu að lesa á mæla
og banka upp á hjá vanskilavið-
skiptamönnum Rafmagnsveitu
og Hitaveitu Reykjavíkur til að
TVIFARAKEPPNIPRESSUNNAR - 47. HLUTI
Hinrik II. sat stutt að völdum í Frakklandi á sextándu öld.
Valdatíð hans var rislítil og hann varð þekktur að fáu öðm en
snyrtimennsku í klæðaburði og kvonfangi sínu; Katarínu af Med-
ici. Jónas Jónasson sat líka stutt á valdastóli útvarpsstjóra á Akur-
eyri. Hann er líka þekktur fyrir snyrtimennsku í klæðaburði. Og
ef valdatíð Hinriks II. hefði ekki verið svona stutt og óeftirminni-
leg þá hefðu sjálfsagt varðveist heimildir um fleiri einkenni hans
sem án efa svipar til Jónasar. Það hafa undangengnar tvífara-
keppnir sannað.
loka fyrir orkuna. Nema auðvit-
að menn dragi upp veskið í for-
stofúnni. En tækninýjungar gætu
orðið til þess að ræna þessa
menn verkefnum sínum.
Fyrir einum sex árum voru
innheimtukerfi RR og HR að-
greind og fyrir skemmstu var
ákveðið að gera úttekt á því
hvemig það fyrirkomulag hefði
reynst. Um leið átti að kanna
nýjar leiðir í innheimtunni. Það
er nefnilega ekkert grín að mkka
30 til 40 þúsund gjaldendur. Ný
tækni spilar inn í; bráðum á að
vera hægt að lesa á alla mæla
„úti í bæ“ og um leið að mkka
fyrir raunverulega notkun, en
ekki áætlaða notkun. Ef við
þekkjum okkar menn rétt verður
þeim ekki skotaskuld úr því að
finna tækni sem gerir kleift að
loka fyrir rafmagn og hita með
því að einhver úti í bæ ýti á
hnapp. Alveg eins og hjá Pósti
og síma. Okkur neytendum hiýs
auðvitað hugur við þessu, en get-
um huggað okkur við að við
losnum við mennina ógurlegu
sem banka upp á með möppu í
handarkrikanum og strangan
svip á andliti.
Það gustar af þeim bræðmm
Páli, Má og Pétri Péturssonum.
Þeir em af hinu kunna Guðlaugs-
staðakyni og meðal náfrænda
þeirra em Björn Pálsson frá
Löngumýri, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, lektor og ffjáls-
hyggjuspekúlant, og Jónas
Kristjánsson, ritstjóri DV (mikið
svakalega hlýtur að vera gaman
að heyra ffænduma Pál og Jónas
tala um landbúnaðarmál á ættar-
mótum)!
Um Pál þarf ekki að fara
mörgum orðum. Sem þingmað-
ur og formaður þingflokks
Framsóknarflokksins hefur hann
verið afar litríkur. Bóndaeðlið
hefur ekki komið í veg fyrir að
hann gegndi mikilvægum trún-
aðarstöðum á vettvangi nor-
rænnar samvinnu og var hann
fyrir vikið kallaður Pelle Peder-
sen fra Hallesteder. Síðustu
misserin hefur hann verið ffæg-
astur fyrir að næla sér í Sigrúnu
Magnúsdóttur, borgarfulltrúa
Framsóknarflokks (annað hefur
vart komið til greina). Þeir sem
sátu yftr útsendingum Sýnar síð-
ustu nótt þinghaldsins fyrir
skemmstu tóku vel eftir því þeg-
ar Páll æpti úr ræðustóli tvívegis:
„Þegi þú Vilhjálmur!" þegar
samkjördæmismaður hans úr
Sjálfstæðisflokki, Vilhjálmur
Egilsson, var að gjamma ffam í.
Eitthvað höfðu menn verið að
væta kverkamar.
Þeir eru engir venjulegir
menn, bræöurnir Páll þing-
ma&ur, Már dómari og Pétur
læknir Péturssynir, af Gu&-
laugsstaöakyni eins og
frændur þeirra Hannes Hólm-
stelnn og Jonas Kristjáns-
son.
Már er bæjarfógeti og sýslu-
maður og orðinn landsfrægur
sem slíkur. Embættið í Hafnar-
firði hefur mikið verið í sviðs-
ljósinu að undanfömu vegna
seinagangs við dómsmeðferð og
fékk Már ekki góða einkunn hjá
Þorsteini Pálssyni dómsmála-
ráðherra þegar talið barst að
mannaráðningum vegna upp-
töku nýs dómsmálakerfis á næst-
unni. Már tekur ekki tiltali, sagði
Þorsteinn efhislega.
Og svo er það hann Pétur.
Hann er, eins og alþjóð veit, í
heilögu stríði við sterkustu menn
landsins og ræðst um leið ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur.
Hann hefur sem sé úthúðað
krafflyftingamönnum og líkams-
ræktarmönnum fyrir stera-notk-
un og talað um eistnarýmun í því
sambandi. Þeir enda komnir í
mál við hann. Færi vitaskuld
best á því að Már bróðir væri
fenginn í málið.