Pressan - 04.06.1992, Síða 42
Finnur Tryggvason bóndi
ELUR ROLLURNAR
ÁFRÆJUMFRÁ
LANDGRÆÐSLUNNI
Ódýrasta fóðursem hægt eraö fá, -
segir Finnur.
Þetta er bæöi ódýrara og eins er þaö
miklu hreinlegra aö láta roilurnar éta
þetta strax í staö þess aö sá þessu og
bíöa síöan í nokkur ár, - segir Finnur
Tryggvason bóndi.
Tölvunámskeiö fyrir þingmenn f sumar
VONUMST TIL
AÐ SUMAR-
IÐ DUGI
Segir Salome Þorkels-
dóttir, forseti samein-
aðs þings, um námskeið
fyrir þingmenn þarsem
þeim verður kennt á at-
kvæðagreiðslukerfið
Þaö hefur reynst erfiðara en viö
héldum aö þekkja þessa þrjá takka í sundur, - segir Salome.
FOSSVOGS-
BRAUTIN VAR
LÖGÐí NÓTT
Gatnamálastjóri segir öku-
mann á malbikunarvél hafa
misst stjórn á henni við Breið-
holtsbraut og ekki getað stöðv-
að hana fyrr en við Kringlumýrarbraut
Borgaryfirvöld segja aö Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi veriö
aö malbika viö Breiöholtsbraut þegar hann missti stjórn á vél-
inni og malbikaði Fossvogsdalinn.
22. TOLUBI.AÐ. 3. ARGANGUR
HAFA SKAL ÞAÐ ER BETUR HLJÓMAR
FIMMTUDAGURINN 4. JUNI
STOFNUÐ 1990
Merkur fundur við Aðalstræti
REYNDIST EKKIBÆRING
ÓLFS HELDUR ENNEINFAL-
INEIGN ÓLAES LAUFDALS
Málið heyrir ekki undir borgarminjavörð heldur borgarfógeta
Reykjavík, 4. júnl.
„Þegar viö grófum neðar
kom í ljós að þetta gat ekki
verið bær Ingólfs. Grunur
okkar er sá að hér sé um enn
eina falda fasteign Ólafs Lauf-
dais veitingamanns að ræöa,“
sagði Þorleifur Einarsson
fornleifafræöingur í samtali
viö GULU PRESSUNA, en
Þorleifur hefur stjórnað forn-
leifauppgreftri við Aðalstræti í
Reykjavík.
„Auðvitað eni þetta vonbrigði
fyrir okkur fomleifafræðingana
en mig grunar að kröfuhafar í bú
Ólafs kætist við tíðindin," sagði
Þorleifur.
„Þessi undanskot Ólafs eru
mun víðtækari en ég bjóst við,“
sagði Þorsteinn Einarsson, bú-
stjóri í þrotabúum Ólafs, í sam-
tali við GULU PRESSUNA.
,T>au eru í raun svo víðtæk að ég
verð að skora á fólk að grafa í
görðum sínum og svipast um eft-
ir fleiri eignum."
Enn harðnar samkeppnin í útfararþjónust-
unni
JÖRÐUÐU LÍKIÐ Á MEÐ-
AN PRESTURINN SNERI
SÉR AÐ ALTARINU
Mér fannst þetta skrítið en hélt að það ætti að vera
svona, - segir ekkjan
Reykjavík, 4. júní.
„Þetta var afskaplega falleg
athöfn til aö byrja með. En
þegar presturinn sneri sér að
altarinu um miöja athöfnina
þá skutust inn einhverjir
menn, tóku kistuna og báru
hana út. Þegar við áttuðum
okkur á hvað hafði gerst og
fórum út í kirkjugarðinn var
búið að jarða og útfararstjór-
inn rétti mér reikninginn. Það
var ekki útfararstjórinn sem
ég samdi við,“ segir Bára Er-
lingsdóttir í samtali við GULU
bauð sætti sig hins vegar ekki við
ákvörðun Bám og jarðaði eigin-
mann hennar að henni for-
spurðri.
Lögmenn gera lögtak í eldavél
MATREIÐSLUMAÐURINN
FÉKK HJARTAÁFALl
Lögmennirnir sögðu honum að hætta að elda en
eigandinn sagði honum að halda áfram
PRESSUNA.
Bára lenti milli tveggja útfar-
arstofa og sá á eftir kistu látins
eiginmanns síns út úr kirkjunni
áður en athöfninni var lokið.
Hún hafði leitað tilboða hjá báð-
um stofunum og tekið því sem
var lægra. Stofan sem hærra
Reykjavík, 3. júní.
Guöni Vignisson, mat-
reiðslumaður á veitingastaðn-
um Búdapest, fékk hjartaáfall
þegar lögmenn hugðust fjar-
lægja eldavélina á staðnum í
miðjum önnum í hádeginu.
Lögmennirnir sögðu að enn
hefði ekkert verið greitt inn á
vélina. Eigandi staðarins
krafðist þess hins vegar að
Guðni héldi áfram að elda.
Þegar lögmennirnir höfðu sagt
honum að hætta og eigandinn
„Það er deginum ljósara að
við vorum með lægra tilboð í
jarðsetninguna sjálfa. Ef hinir
hefðu fengið að jarðsetja mann-
inn hefði það verið brot á öllum
útboðsreglum," sagði talsmaður
stofunnar sem hærra tilboðið
átti.
Líkleg niðurstaða málsins er
sú að maðurinn verði grafínn
upp að nýju og síðan jarðaður
með strangri öryggisgæslu.
Bára Erlingsdóttir vissi ekki
fyrr en menn ruddust inn í
kirkjuna og tóku kistuna meö
manni hennar í.
MÁLÞING UM
BREYTTA UTAN-
RÍKISSTEFNU
Reynslan sýnir að óstöðugleiki í heimsmálunum
er íslendingum í hag, - segir Jón Baldvin Hanni-
balsson
Reykjavík, 4. júní.
„Þótt friðarhugsjónin sé í
sjálfu sér góöra gjalda verð
er kominn tími til að við ís-
lendingar lítum raunhæft á
málin og mótum utanríkis-
stefnu sem er okkur í hag,“
sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráöherra í
opnunarræðu sinni á mál-
þingi um breytta utanríkis-
stefnu.
í inngangi ræðu sinnar tók
Jón Baldvin nokkur dæmi af
þeim hag sem íslendingar hafa
haft af ófriði víða um heim.
Hann nefndi þátttöku á
Ólympíuleikunum 1984 í Los
Angeles, en þá fengu Islend-
ingar að vera með vegna úti-
lokunar austantjaldsríkjanna.
Sagan endurtekur sig nú eftir
útskúfun Júgóslavíu.
„í framtíðinni verðum við
því ekki málsvarar friðar á al-
þjóðavettvangi heldur þvert á
móti,“ sagði Jón Baldvin í lok
ræðu sinnar.
Jón Baldvin Hannibalsson
vill ala á ófribi í sem flestum
ríkjum heims tii ab freista
þess ab auka meb því móti
hróbur íslenskra íþrótta-
manna.
að halda áfram um nokkurn
tíma fékk Guðni fyrir hjartað
og var borinn út af staðnum.
,Jig var búinn að bíða töluvert
eftir matnum og kvartaði um það
við þjóninn,“ segir Hjörtur Lár-
usson, einn gestanna á Búdapest
umræddan dag. .J’jónninn sagði
að það yrði aðeins smábið en að
þeim oðmm slepptum sá ég hvar
kokkurinn var tiorinn út á sjúkra-
Fyrst kom kokkurinn á bör-
unum og síðan lögmennirnir
meb eldavélina, svo ég gafst
upp á ab bíba eftir matnum, -
segir Hjörtur Lárusson.
bömm með húfuna á hausnum.
Á eftir honum gengu lögmenn-
inúr með eldavélina á milli sín.
Ég sá þá að það þýddi ekki að
bíða miklu lengur og fékk mér
pylsu úti á pylsubar.“
Hjörtur segir að þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem hann verði var
við erfiðleika í veitingarekstri.
„Um daginn var ég að borða
steik á veitingastað þegar lög-
maður vék sér að borðinu og
sturtaði matnum mínum af disk-
inum á borðið. Þegar ég horfði
spyrjandi á hann sagði hann að
það væri ekki búið að borga mat-
arstellið.“
HÖFUM OPNAÐ NÝJA 0G GLÆSILEGA VERSLUN í