Pressan - 11.06.1992, Page 40
40
FIMMTUDAGUR PRESSAN ll.JÚNÍ 1992
1 ‘VC’lsLCÍ'lAsC'ts
DINNER
Alli
hárgreiöslumeistari
Sinéad O’Connor
því ég þyrfti ekki að ræða
um hárgreiðslu við hana
Baldur Öxdal
Halldórsson
kæmi með villibráð og
sína rómuðu eftirrétti
Júpíters
til að spila fyrir mig, því
það er ein skemmtileg-
asta hljómsveit sem ég
hef heyrt í lengi
Iman
til að auka aðeins á villi-
bráðina
Örn Árnason
til að syngja fyrir mig,
því hann er svo fjölhæfur
og skemmtilegur
Thor Vilhjálmsson
til að fara með andlegu
málefnin fyrir okkur
Ómar Ragnarsson
til að festa uppákomuna
á filmu
Alli vill helst hafa kvöld-
verðinn í íslenskri náttúru
eða á Mont Martre í París
Nú sé ég eftir æskuvinunum.
Nú veit ég að ég hefði átt að
halda smásambandi við þá þótt
þeir væru bölvaðir hænuhausar
og létu eiginkonumar komast
upp með að banna sér að fara á
fyllerí annað slagið. Núna sitja
helvítin nefnilega til skiptis
hver heima hjá öðrum, þamba
bjór og horfa á fótboltann í
sjónvarpinu. Ég sit einn eftir, á
ekki sjónvarp og varla fyrir
bjór. Þetta sýnir manni að það
er annað fólk sem skiptir máli í
lífinu; vinirnir, ættingjamir og
hin mannlegu samskipti.
©
Á Hressó síðastliðið föstudagskvöld. Nú á föstudaginn spila þar Todmobile.
OUDÚREYDI-
MÖRKINNI
FJQR
A
HRE55Ó
Það var mikið fjör í klúbbi
Listahátíðar á Hressó föstudags-
kvöldið síðastliðið (kannski
meira fjör en hefur yfirleitt verið
á Listahátíðinni sjálfri). Þetta
kvöld lék þar Bogomil Font
ásamt hljómsveit, það er Sig-
tryggur Baldursson Sykurmoli
og vinir hans. Públíkumið var
óneitanlega dálítið annað en
venjulega stundar Hressó, að
meðaltali líklega svona tíu árum
eldra; þama sáust nafntogaðir
menningarvitar, listamenn, ráð-
herra úr ríkisstjóm íslands og
svo pabbi og mamma hans Sig-
tryggs. Þau hafa líklega getað
glaðst yfir því að heyra drenginn
sinn spila tónlist sem brúar allt
kynslóðabil, ekki bara hart nú-
tímarokkið, heldur gamla slag-
ara, sömbur og léttan dansdjass.
Og klúbburinn starfar áfram
núna um helgina, þrátt fyrir að
Á laugardag hefst í Reykjavík
óháð listahátíð sem haldin er
undir yfirskriftinni „Loftárás á
Seyðisljörð" og stendur til 28.
júní. Á hátíðinni koma fram um
það bil 500 listamenn úr öllum
listgreinum sem nöínum tjáir að
nefna.
Hátíðin verður haldin út um
allan bæ, en miðpunktur atburða
verður þó í Héðinshúsinu vestast
á Vesturgötunni. Þar verður dag-
skrá alla dagana nema 22. og 23.
júní. Nú á laugardaginn klukkan
tvö hefst hátíðin og þá verða
opnaðar sjö myndlistarsýningar í
bænum; í Geysishúsinu, Djúp-
inu, á 22, í Hlaðvarpanum, Gall-
erí Bergsstöðum og á Kaffi
Splitt. Uppákomur verða á öllum
þessum stöðum í tengslum við
opnun sýninganna. Rokktónleik-
ar verða á laugardagskvöldið í
Héðinshúsinu, kvikmyndasýn-
ingar í MIR-salnum og áfram
mætti lengi telja.
Klukkan tvö á sunnudag verð-
ur bamadagskrá í Héðinshúsinu.
Þar verður leikritið um Dimma-
ekki hafi viðrað fyrir gleði og
glaum úti í Fógetagarðinum. Á
ftmmnidagskvöldið spilar meðal
annars Risaeðlan, en líka Þrí-
homið, en það eru slagverks-
meistaramir Áskell Másson,
Guðmundur Steingrímsson og
Steingrímur Guðmundsson. Á
föstudagskvöldið leikur sú stór-
vinsæla hljómsveit Todmobile,
limm sýnt, brúðuleikhús verður
og fleira. Aðgangur er ókeypis.
Dagskráin er mjög viðamikil
og fjölbreytt og víst að öllum
ætti að takast að ftnna eitthvað
við sitt hæfi. Þama verða gjöm-
ingar, leikrit, upplestur, ljós-
myndasýningar, kvikmyndasýn-
ingar, tónleikar, danssýningar og
guð veit hvað.
Enginn af listamönnunum
sem fram koma á hátíðinni þigg-
en á laugardagskvöldið mæta
blúsarar með hljóðfæri sín —
meðal annarra Vinir Dóra, Chic-
ago Beau og Pinetop Perkins. Af
þeim sem ffarn koma á sunnu-
dagskvöldið er svo helst að
nefna KK og hljómsveit, Vasa-
leikhúsið og Elísabetu Jökuls-
dóttur, sem les upp.
ur laun fyrir vinnu sína, en eitt
helsta markmið listamannanna
er að sýna ffam á nauðsyn þess
að listafólk eignist sitt eigið fjöl-
listahús. Aðgangur er ókeypis á
marga viðburði en á aðra er verði
mjög í hóf stillt. Gefinn hefur
verið út veglegur bæklingur með
dagskrá hátíðarinnar, sem dreift
er ókeypis, og ætti fólk að kynna
sér hann vel því margt forvitni-
legt verður á ferðinni.
Sjálfsagt hafa fáir heyrt talað
um eyðimerkurhéraðið Kordof-
an í vesturhluta Súdans — og
sennilega er hægt að telja þá Is-
lendinga á fingrum annarrar
handar sem hafa komið til Sú-
dans. En fárumst ekki yfir því.
Þeir sem fylgjast ógurlega vel
með í músíkheiminum ættu þó
að kannast við Abdel Gadir Sal-
im en hann er einmitt frá þessu
héraði í Súdan. Og hann er að
koma til íslands.
Salim leikur á Oud, sem mun
vera arabísk lúta, en orðið minn-
ir einna helst á upphrópun í
teiknimyndasögu! Tónlist hans
er mótuð af þeirri tónlistarhefð
sem ríkir í héraðinu, sem er und-
ir sterkum arabískum áhrifum.
Salim tekur þjóðlegar laglínur,
mótar effir eigin höfði og útsetur
fyrir nýstárlega hljóðfæraskipan;
fiðlur, oud, bassa, saxófóna og
slagverk. Með þessum bræðingi
hefir Salim slegið í gegn í hinum
arabíska menningarheimi.
Hann vakti fyrst athygli á
Vesturlöndum er hann og hljóm-
sveit hans léku á tónleikum til
styrktar bágstöddum í heiminum
í London 1986. Hann var aftur í
London 1988 og hljóðritaði þá
plötu sem kom út í Evrópu og sló
rækilega í gegn. Síðan hefur
hann verið eftirsóttur til tónleika-
halds í Evrópu og er nú á tveggja
mánaða ferðalagi um álfuna. Nú
á mánudaginn, 15. júní, verður
Salim á sviðinu á Hótel Islandi
og ætlar að spila sína óviðjafhan-
legu tónlist fyrir Islendinga.
Salim og oudið verða á Hótel íslandi með sína sérstæöu og
heillandi tónlist.
LOFTARAS
PLATAN
Deep Purple
MADE IN JAPAN
Nú í sumar eru liðin 20
ár frá því að gömlu
brýnin í Deep Purple
hljóðrituðu Made in
Japan á hljómleika-
ferðalagi þar eystra. Nú
fæstplatan á diski og
þrátt fyrir að efniö sé
gamalt er hér á ferðinni
ein besta hljómleikaup-
taka fyrr og síðar.
Hljómgæði upphaflegu
upptökunnar spilla ekki
fyrirheldur. Smoke on
the Water, Highway
Star, Child in Time og
aðrir standardar hljóma
sem aldrei fyrr og gítar-
sóló Ritchie Blackmore,
orgelsóló Jon Lord,
trommusóló lan Paice
að ógleymdum lista-
söng lan Gillan gera
þessa plötu aö einni
helstu gersemi rokks-
ins.
Diskurinn fær 10 af 10.
Þarna veröa leikin þrjú verk eftir Þork-
el; Pálmasunnudagur fyrir kór, orgel
og söngkonu, Hæra fyrir blásarakvin-
tett og Usamo, sem er orgelkonsert.
Eftir Misti verða flutt tvö verk; tríóið
Þrenning og verk fyrir strengjasveit,
sem ber ekki minni titil en Til heiðurs
þeim er leita á vit þess ókunnuga. Há-
teigskirkja lau. kl. 16.
0 Arnaldur Arnarsson hefur verið að
læra á gítar frá blautu barnsbeini,
hann hefurveriövið nám í Englandi og
á Spáni, þar sem hann er nú búsettur.
Arnaldur kemur heim til að halda tón-
leika á Listahátíð og ætlar meðal ann-
ars að frumflytja nýtt verk, Fjórar
stemmningar eftir Jón Ásgeirsson. Og
hann spilar líka verk eftir Fernando
Sor, Bach og Manuel Ponce. Áskirkja
sun. kl. 17.
LEIKHÚS
• Ertu svona kona? er danssýning
sem Auður Bjarnadóttir ballettdansari
færir upp á stóra sviöinu í Þjóðleikhús-
inu í tilefni Listahátíðar. Það veröa flutt
tvö verk og dansar Auður í þeim báö-
um; hið fyrra er sólóverk sem heitir
Þær gætu lifnað viö og fjallar um konu
sem þarf að takast á við karlaveldið,
en hið síðara, Andinn í rólunni, fjallar
um æsku og elli, tíma og tóm, kyrrsetu
og ferðalag. Þaö flytur Auður ásamt
Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu. Þjóö-
leikhúsið sun. kl. 17.
• Mín káta angist. Blönduð dagskrá
heitir það víst, vestur i Héðinshúsi, í til-
efni óháðrar listahátíðar. Þar ætlar
Dofri Hermannsson af flytja leikgerð,
kafla úr Mín káta angist eftir Guðmund
Andra Thorsson. Eggert A. Kaaber
flytur sögukafla eftir Þórberg, Þegar ég
varö óléttur. Þarna koma líka fram
ungir rithöfundar, sumir efnilegir, aðrir
ekki, við getum nefnt Guðmund
Andra, Einar Má, Kristínu Ómarsdótt-
ur, Margréti Lóu, Þorstein J. Vilhjálms-
son, Ara Gísla Bragason og Melkorku
Ólafsdóttur. Héðinshúsið sun. kl. 20.
MYNDLIST
• Loftárás á Seyðisfjörð. ívar Krist-
jánsson, Gunnar Þór Víglundsson,
Samson, Viktor Guðmundur Cilia, Að-
alheiður Jóhannesdóttir, Ásdís Sif
Gunnarsdóttir, Haukur Halldórsson,
Frans Kristinsson, Hjördís Marta Inga-
dóttir, Sigurjón Ragnar, Þórir Viðar,
Þór Stiefel, Hafdís Helgadóttir, Ása
Hauksdóttir. Ofantalin eru kannski
ekki frægustu myndlistarmenn á (s-
landi, en öll eiga þau verk á sýningum
sem tengjast óháðu listahátíðinni með
yfirskriftinni sem enginn skilur. Sýning-
amar eru til dæmis í Djúpinu, á Tutt-
ugu og tveimur, í Geysishúsinu, Hlað-
varpanum, Gallerí Ingólfsstræti, Gall-
erí Bergsstöðum og á Kaffi Splitt.
FÓTBOLTINN
• Valur-Fram. Þetta hlýtur að teljast
stórleikur fjórðu umferðar íslands-
mótsins, þótt að vísu séu leikir þess-
ara liða oft hundleiðinlegir og litið skor-
að af mörkum. Þessi leikur er raunar
ekki fyrr en á þriðjudag, en áöur verð-
ur komiö í Ijós hvort Þórsarar halda
toppsæti deildarinnar. Þeir leika við
Eyjamenn á laugardag, í Eyjum, á Ak-
ureyri keppa KA og KR, líka á laugar-
1 2 3 4 1 7 8 9 10
■ " ,2 ■
13 14 15 16
17 18 19 20
21 22 23 24
25 26 27
28
29 30 31 32 33 34 35
36 37 3^^ 39
40 41 42 43
44 45 1 46 47
■ 48 49 ■
50 51
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT1 lokka 6 flennum 11 brall 12 klæði 13 stærstar 15 áfalls
17 fugl 18 haglendis 20 ellegar 21 topp 23 dá 24 kjötbitar 25 ham-
ingjusöm 27 seytli 28 varanleg 29 köggull 32 slór 36 beljaka 37 burt
39 planta 40 okkur 41 gulls 43 flökta 44 fæði 46 miskunnarlausan 48
hásu 49 gimbur 50 hlutaðeigendur 51 hindrar
LÓÐRÉTT 1 rauðaldin 2 dynsins 3 op 4 geð 5 sáðlönd 6 hirð
7 gripdeildir 8 þjálfa 9 tutl 10 hemaði 14 flakk 16 stétt 19 her-
maður 22 póstum 24 mergð 26 tíndi 27 mild 29 glósa 30 þefa 31
dvergur 33 ótti 34 konunafn 35 terrar 37 áar 39 svipað 41 lappa
42 flýg 45 pinni 47 áköf