Pressan - 11.06.1992, Qupperneq 42
23. TÖLUBLAÐ. 3. ARGANGUR
HAFA SKAL ÞAÐ ER BETUR HLIÓMAR
'IMMTUDAGURINN 11. JUNI
Stefán Baldursson skipstjóri
HEFUR FUNDIÐ
TENGSL MILLI NÝ-
Vesttirsk hryö|uverkasamtok
RÆNDU ÁRNA
JOHNSEN OG
KREFJAST ÞESS
KVÓTAKERFIÐ
AFNUMIÐ
að sætta sig við
Árna og kvótann,
Vestfjörðum og
veröi sleppt
Arin sem Hemmi var
með íþróttaþáttinn og
svo síöustu ár þegar
hann hefur verið „á
tali“ eru verstu ár
þorsksins á þessari
öld, - segir Stefán
Baldursson.
ÞINGMENN TAKA
UPP ÞJÓNUSTU-
GJÖLD
Munu innheimta
gjöld af þeim sem
hafa hag af at-
kvæða-
greiðslum
í þinginu
Samkvæmt bráðabirgðaáætlun er gert ráð fyrir
að hvert atkvæði þingmanns kosti um 150 þús-
und krónur. Öruggur meirihluti fyrir málum fæst þvl
á um 4,8 milljónir.
LIÐUNAR ÞORSKS-
INS OG SJÓN-
VARPSÞÁTTA
HEMMA GUNN
Nýliðun þorskstofnsins mest þegar
Hemmi er ekki í sjónvarpinu
„sambandið
ER EFNA-
HAGSLEGT
GEREYÐING-
ARVOPN“
Segir Boutros Boutros-
Ghali, en Sameinuðu
þjóðirnar hyggjast
kaupa Sambandið og
nota það til að brjóta
niður efnahag Serbíu og
Svartfjallalands
New York, 10. júní.
Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna ákvað á aukafundi í
gær að falast eftir kaupum á
Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga til að nota í efna-
hagsstríði sínu gegn Serbíu og
Svartljallalandi.
„Með því að koma Samband-
inu fyrir einhvers staðar í Serbíu
ætti efnahagur ríkisins að koðna
niður innan tíðar. Þetta er mun
áhrifaríkara vopn en til dæmis
bann á olíuviðskipti eða önnur
þekkt meðul. Sambandið er
efhahagslegt gereyðingarvopn,“
Veröa aðalskrifstofur Sanv
bandsins við Kirkjusand
fluttar til Serbíu?
segir Boutros Boutros-Ghali, að-
alritari Sameinuðu þjóðanna og
upphafsmaður tillögunnar um
kaug á fyrirtækinu.
„Eg var að fá fréttir af þessu
og hef því ekki getað tekið af-
stöðu til þessa tilboðs frá Sam-
einuðu þjóðunum," sagði Guð-
jón B. Olafsson, forstjóri Sam-
bandsins. „En ég verð að segja
að það væri mikill léttir að sjá á
eftir Sambandinu eitthvert út í
heim,“ bætti hann við.
Landssamband íslenskra útvegsmanna
Reykjavík, 11. júní.
I gær komst upp um ráða-
gerðir stjórnar Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna
um að standa fyrir stórkost-
legu svindli á íslandsmiðum til
að blekkja sérfræðinga Haf-
rannsóknastofnunar í þeirri
Reykjavík, 11. júní.
„Til hvers ættum við að
geyma þorsk til að veiða ein-
hvern tímann í framtíðinni?
Ég veit ekki til þess að framtíð-
in hafí gert neitt fyrir okkur.
Tii hvers ættum við þá að gera
eitthvað fyrir hana?“ sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra þegar hann
kynnti tillögur sínar um 600
þúsund tonna hámarksafla á
þorski fyrir næsta ár.
Þessar tillögur Þorsteins eru
fjórum sinnum hærri en tillögur
fiskifræðinga, sem lögðu til 150
þúsund tonna hámarksafla.
von að þeir mæltu með hærri
hámarksafla næsta ár en efni
standa til.
Glöggur hafnarverkamaður í
Reykjavík tók eftir því að í um
340 gámum sem stflaðir voru á
LIU voru ógrynnin öll af gervi-
þorski úr plasti.
„Veistu, ég er orðinn dauð-
þreyttur á þessari helvítis væmni
gagnvart framtíðinni," sagði
Þorsteinn, aðspurður um hvort
ekki væri óvarlegt að fara jafh-
mikið framúr tillögum fiskifræð-
inga og raun ber vitni.
„Til hvers ættum við að lifa
við sult og seyru bara til að eitt-
hvert fólk geti haft það flott ein-
hvem tímann í framtíðinni?
Hvað hefur þetta fólk gert fyrir
okkur? Ekki neitt. Akkúrat ekki
neitt. Hvers vegna í ósköpunum
ættum við því að gera eitthvað
fyrir það? Ég spyr.“
Ætlaði Kristján Ragnarsson
að blekkja Hafrannsókna-
stofnun?
„Ég var bara rétt að kfkja í
gámana til að athuga hvað væri í
þeim. Ég ætlaði ekki að stela
neinu eða neitt svoleiðis. Það
eina sem ég sá var þessi þorskur.
Mér fannst strax skrítið að verið
væri að flytja hann úl landsins.
Vanalega er þessi fískur fluttur
út, skilurðu," sagði Hafþór
Ragnarsson hafnarverkamaður í
samtali við GULU PRESS-
UNA.
Fljótlega kvisaðist tilvist
þorsksins út og barst síðan til
eyma sérfræðinga Hafrann-
sóknastofnunar.
„Við hefðum getað látist
blekkjast ef þessi þorskur hefði
komið fram í mælingum okkar.
En við látum ekki blekkjast af
honum þar sem hann er í Sunda-
höfn í vörslu tollstjóraembættis-
ins í Reykjavík," sagði Jakob
Magnússon, starfandi forstjóri
Hafiannsóknastofhunar.
„Það stóð afdrei tif að dreifa
þorskinum á miðin. Við ætluð-
um að nota hann til æfinga fyrir
skipstjóra," var það eina sem
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LIÚ, vildi segja
um málið.
Þorsteinn Pálsson leggur til 600 þúsund
tonna þorskkvóta
„HVERN DJÖFULINN
HEFUR FRAMTÍÐIN
GERT FYRIR OKKUR?“
Sagði ráðherrann og vildi lítið gefa fyrir verndunar-
sjónarmið
HUGÐIST DREIFA
GERVIÞORSKI
UM MIÐIN
Ætlaði með því að rugla niðurstöður Hafrannsókna-
stofnunar í von um stærri kvóta næsta ár
Umboðsmaður hans hérlendis ætlaði að spara sér
leigu á flygli
Reykjavík, 11. júní.
„Mér datt aldrei í hug að
það kæmi til þess að maðurinn
hætti við að koma. Mér fannst
einfaldlega út i hött að láta
undan þessum kröfum um að
leigja einhvern rándýran flyg-
il. Maðurinn getur ekki einu
sinni séð hann. Ég sá því enga
ástæðu til að verða við svona
dillum,“ sagði Finnur
Tryggvason umboðsmaður, en
hann hugðist standa fyrir tón-
leikum með Stevie Wonder
hér á landi í sumar.
Þegar framkvæmdastjóri
Wonders komst að því að Finnur
hefði ekki orðið við kröfum um
leigu á sérstökum flygli sendi
hann Finni bréf og afboðaði
komu tónlistaimannsins.
,Mér er svo sem sama. Þótt
fólk segði mér að búast mætti
við mikilli aðsókn trúði ég því
aldrei. En ég ætla ekki að leggja
árar í bát. Ég ætla að fá hingað til
lands einhvem píanóleikara sem
í það minnsta getur séð píanóið,11
sagði Finnur.
Bj-----------------------
COMBhCAIVlP
COMBI CAMP er traustur og
gódur félagi í ferðalagið. Léttur í
drætti og auðveldur í notkun.
Það tekur aðeins 15 sek. að tjalda.
COMBI CAMP er hlýr og
þægilegur með fast gólf í svefn og
iverurými.
COMBI CAMP er á
sterkbyggðum galvaniseruðum
undirvagni, sérhönnuðum fyrir
íslenskar aðstæður, á fjöðrum,
dempurum og 10” hjólbörðum.
U
COIN/IBhCAIVIP
COMBI CAMP er einn mest
seldi tjaldvagninn á íslandi
undanfarirl ár og á hann fæst
úrval aukahluta.
COMBI CAMP er til sýnis í
sýningarsal okkar og til
afgreiðslu strax.
TITANhf
y
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077