Pressan - 08.10.1992, Page 35

Pressan - 08.10.1992, Page 35
FIMMTUDAGUR PRMSSAN 8. OKTÓBER 1992 35 Það kemur engum mjög á óvart að Madonna skuli vera að gefa út bók þar sem hún opinber- ar leyndustu kynóra sína. Það kemur heldur engum lengur neitt á óvart þótt hin ítalska klám- drottning Cicciolina sýni aðra rasskinnina á almannafæri. Karla- fatafelluflokkurinn Chippendale’s Hin virðulega verslun Blooming- dale’s erfarin að leggja nafn sitt við auglýsingar sem þessa. fyllir hverja sýningarhöllina af annarri, hvert „virðulega“ kvennablaðið af öðru er með kyn- líf á heilanum, blaðamenn eru farnir að skrifa lífsreynslugreinar um hvernig sé að gera það í hin- um og þessum bílum (til dæmis fint í Range Rover), stórverslunin Bloomingdale’s leggur nafn sitt við djarfar auglýsingar og myndir eins og Veggfóður, erótísk ástar- saga og Ógnareðli slá í gegn. Það hefur margt breyst frá því Harry Belafonte þótti djarfur - hreint og beint dónalegur í augum heldra fólksins — þegar hann hafði skyrtuna ffáhneppta á tón- leikum. Það sást í bringuhárin (vúh) og svitadropamir perluðust niður eftir bringunni fyrir allra augum. Getur nokkur ímyndað Ungstirnið Drew Barrymore er til dœmis ekki alls- nakin eins og halda mœtti. Hún er með tattó! í Pils, hálsband, hanskar og bert hold. Takiði bara eftir henni, — eða vekja skórnir meiri athygli? sér hvernig rassinn á John Wayne h'tur út? Hefði hann nokkurn tíma leyft að láta mynda á sér rassinn eins og kollegar hans í dag gera óspart, menn eins og Mel Gibson, Michael Douglas og Kevin Costn- er? Þeir selja ekki eingöngu sál sína, þeir eru líka farnir að selja kroppinn! Nýr áratugur er runninn upp, kynorkan svífur yfir vötnum, náttúruleysi er úti. Það þykir til dæmis ekki lengur búa yfir kyn- þokka að hafa aðra öxlina bera. Þykk, þvingandi leðurbelti um miðjuna eru hreint og beint hall- ærisleg og það þykja einnig stór og þrýstin sílíkonbrjóst. Að sveifla mjöðmunum er heldur gamall taktur til að heiila og túperað ónáttúrulegt hár fær mann til að kasta upp. f auglýsingum og kvikmyndum er Evu- klæðnaður, í orðs- ins fyllstu merk- ingu, mest ögrandi, þar sem athyglin er dregin að „laufblað- inu“. Það er ekkert töff að vera allsnakinn, heldur til dæmis eingöngu í skóm, eða með brjóstin ber og í pilsi og með uppháa hanska, að vísu ekki enn opinberlega en hver veit nema það verði næsta skrefið. Á almannafæri keppast konur hins vegar við að sýna sem mest af brjóstunum, hafi þær einhver á annað borð. Klæðnaður sem ís- lenskur fatahönnuður kallar Mad- onnu-hórustílinn á upp á pall- borðið meðal almennings, að minnsta kosti meðal þeirra sem þora, konur og karlar eiga að sýna það besta sem þau hafa. Hafi þau til dæmis fallegan botn eru afar þröngar, en þó ekki óþægilegar, buxur mest ögrandi. Sumsé að " ögra hinu kyninu, eða bara sínu eigin, eftir því hvemig á það er litið, er eins mikið inni og hugs- ast getur. Það eru allir að reyna ganga einu kynferðis- legu skrefi lengra en sá næsti. Samkvæmt því sem haldið er fr am um bókina sem væntanleg er með kynómm Madonnu er hálf- óhugnanlegt til þess að hugsa hvað gæti komið næst frá popp- goðinu, eða næsta poppgoði? Mörk þess hvað er sexí og hvað ekki fara stighækkandi. Það sem er töff og ögrandi í dag verður hlægilegt á morgun. Karlmennirnir í Veggfóðri sýndu nœrri allir á sér rassinn og tippið ogþessir tveir fóru meira að segja í sleik. Haldiði til dœmis að John Wayne hefði nokkurn tímafengið annað afsér en að sýna nátt- úrulausa karlmennsku? B I O B O R G I N i"L Hinir vægðarlausu Unforgiven ★★★ Clint Eastwood er verndari hins vestræna heims — að minnsta kosti þess villta. Þegar engum dettur lengur I hug að bjóða upp á vestra kemur hann með þetta meistarastykki. Rawhide veröursífellt betri. Seinn í mat Late Dinner ★★ Þetta er nokkuð skemmtileg lítil mynd lengi framan af. Hins vegar eru síð ustu tuttugu minúturnar nánast óbærilega væmnar. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg mynd úr Reykjavík; þeirri Reykjavík sem við lifum í akkúrat i dag. B I O H O L L I N Kaliforníu-maðurinn California Man ★ Að stilla saman steinaldar- manni og unglingum í Kaliforníu er ef til vill frumlegt, en Ringo Starr var betri án stuðnings ungling anna í The Caveman. Hvítir geta ekki troðið White Men Cant Jump ★ ★★ Bara nokk- uð glúrin mynd. Oft fyndin og aldrei leiðinleg. Ferðin til vesturheims Far and Away ★★★ Mynd fyrir þá sem elska stórar epískar myndir. Beethoven ★★ Góð mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru ekki komin með unglingaveikina. Á hálum ís The Cutting Edge ★★ Haldið þið að skötuhjúunum takist að vinna gullið? Eða þau nái sam- an? Tveir á toppnum Lethal Weapon 3 ★★ Því miður er mestur glans- inn farinn af þeim félögum. Þeir eru ekki eins fyndnir oq ekki eins harðir. En þeir eru miklu tilfinn- ingasamari. Það eru léleg býti. Burknagil - síðasti regnskógur- inn ★★ Mynd fyrir umhverfis- væna aðdáendur teiknimynda á öllum aldri. HASKOLABIO Háskaleikur Patriot Games ★★ Stærstu vonbrigðin við þessa mynd er hversu venjuleg hún er. Fagmannlega unnin, vel leikin og vef gerð hasaratriði. En ekkert meira. Svo á jörðu sem á himni Glæsiieg mynd og átakamikil. Álfrún Örn- ólfsdóttir vinnur leiksigur. Felix handa henni. Veröld Waynes Wayne’s World ★ ★ ökuferð drengjanna undir glymjandi tónum Bohemian Rhapsody fær báðar stjörnurnar. Stciktir grænir tómatar Fried Green Tomatoes ★★★ Hugljúf mynd um konur og fyrir konur. Góðir eiginmenn láta undan og fara með. Hefndarþorsti Renegades ★ Hvorki Kiefer Sutherland né Lou Diamond Philips ná að gera daufa og klisjukennda mynd betri. Gott kvöld herra Wallenberg God afton, Herr Wallenberg ★★★ Með skárri sendingum frá Svlþjóð þrátt fyrir þunglamalegheitin. ITOMiligiMUUfc] Töffarinn Cool as lce ★ Finnst einhverjum gaman að Vanilla lce? Ef svo er getur hann farið í bíó. Við hin sitjum heima. Ferðin til Vesturheims Far and Away ★★★ Kidman stelur sen- unni af maka sínum; honum Tom Cruise. Hreimurinn hjá honum er stærsti galli myndarinnar. Kristófer Kóíumbus Christopher Columbus — The Discovery ★ Brando vildi láta má nafn sitt af list- anum yfir þá sem unnu að gerð myndarinnar. Það er skiljanlegt. REGNBOGINN Hvítir sandar White Sands ★ Mic- key Rourke er orðinn vörumerki á vondum myndum. Nokkrir listræn- ir tilburðir ná ekki að draga fjöður yfir kjánalegt plott og holar per- sónur. Prinsessan og durtarnir ★★★ Enn talsett mynd frá Jóni Ólafssyni fyrir börnin. Ef hann græddi ekki á þessu gæti maður trúað að mað- urinn væri engill! Varnarlaus Defenseless ★★★ Ágæt spennumynd þótt áhorfend- ur séu stundum á undan sögu- þræðinum. Lostœti Delicatessen ★★★★ Hugguleg mynd um mannát. Kálum þeim gömlu H Ægilega vond mynd. Þeir sem eru ekki fyndnir eiga ekki að búa til gaman- myndir frekar en laglausir að svngja. Ognareðli Basic lnstinct ★★ Markaðsfræðingarnir fá báðar stjörnurnar. STJORNUBIO Ruby ★ Mynd fyrir þá sem enn eru ekki búnir að fá sig fullsadda af samsæriskenningum um Kenne- dy-morðið. Danny Aiello fær hins vegar stjörnu fyrir góðan leik. Queen’s Logic ★★ Enn kemur vinahópur saman á hvíta tjaldinu eftir áralanqan viðskilnað. Brokk- geng mynd og misskýrt dregnar persónur. Ofursveitin Universal Soldier ★★ Bang, bang, bang og engin mis- kunn. S O G U B Rush ★★ Mynd um fyrsta þrep alkóhólistans; um vanmáttinn gagnvart áfenginu (dópinu) og stjórnleysið. Stundum jafnraunaleg og alvörualkar og alltaf jafnniður- drepandi. Alien 3 ★★★★ Meistarlegur loka- þáttur í þessari ódauðlegu trllógíu. Gerir Batman-veröldina að hálf- gerðu Lególandi. Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★★ Nornin hefur valdið mörgum börn- um andvökunóttum, en líklega bara þeim kynslóöum sem ólust upp fyrir tlma He-man og félaga.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.