Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 40

Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 40
ýir eigendur eru nú að Jöfri hf. Á hluthafafundi um helgina var tilkynnt að þar væri nú kominn inn nýr meirihluti sem hefði lagt inn 100 milljónir króna. Um leið hafa eldri hluthafar fært niður hlutafé sitt þannig að þessir nýju aðilar hafa meirihluta. Ekki liggur enn fyrir hverjir þetta eru, en í forsvari fyrir þá er Guðjón Ármann Jónsson, einhver þekktasti innheimtulögmaður landsins... i tengslurti við málareksturinn vegna rifturtar Skandia í Svíþjóð á kaupunum á verðbréfamarkaði Fjárfestingarfélagsins er Leif Passmark, framkvæmdastjóri ScandiaLink, nýkom- inn til landsins. Hann er þungaviktarmaður í sænska fyrirtækinu og heyrum við að hann ætli ekki bara að skoða hugsanlegar blekkingar Fjárfestingarfé- lagsmanna, heldur einnig frammistöðu Gísla Arnar Lárussonar forstjóra og Ragnars Aðalsteinssonar stjórnarfor- manns Skandia íslands. Verði Leif annað en ánægður má búast við að verulega fari að hitna undir þeim Gísla og Ragnari... D -L Váðherrar ríkisstjórnarinnar stæra sig af því að lækka ríkisútgjöldin að raun- gildi um þijá milljarða. Ráðherramir gera sér um leið flestir far um að sýna sem mesta lækkun á útgjöldum eigin skrifstofa. f krón- um talið ætlar Jón Baldvin Hannibals- son að skera mest á sinni skrifstofu eða um 67 milljónir og í dómsmálaráðuneytinu ætlar Þorsteinn Pálsson að skera niður um 61 milljón. Þar býður Þorsteinn einn- ig Wutfallslega best, eða 33 prósenta nið- urskurð á skrifstofunni, en Jón Baldvin kemur næstur með 17 prósent... iðleitni ráðherranna til að skera niður hjá sér og herða þannig eigin sulta- ról er þó ekki öll þar sem hún er séð. Þannig hafa þeir tilkynnt 4 prósenta nið- urskurð á dagpeningum ráðherra erlend- is, að raungildi. En miðað við heildar- notkunina á dagpeningunum samsvarar þetta ekki nema 800 króna kjararýrnun ráðherranna... ppsagnir hafa dunið yfir þjóðfélag- ið að undanfömu og stéttarfélögin orðað áhyggjur sínar. En stéttarfélög geta líka sagt upp fólki. Þannig fengu fjórar starts- konur heilsuræktarinnar í höfuðstöðvum Starfsmannafélagsins Sóknar uppsagnar- bréf nýverið og var skipulagsbreytingum borið við. Við heyrum að ýmislegt hafí StjörnusnakK unn Sveinbjamardóttir tók við af Að- alheiði Bjarnfreðsdóttur og að þær breytingar valdi óánægju. Nefnt er að eldri Sólcnarkonur, sem hættar era störf- um, hafi fengið afslátt vegna notkunar á heilsuræktinni þótt þær greiddu ekki lengur félagsgjöld, en nú sé Þórunn búin að taka fyrir slíkt... Ársskráning kostar aöeins kr. 5.150,- eöa kr. 429,- á mánuöií Ert þú búinn aö skrá þitt fyrirtæki? Síminn er (91) 68-28-86 ANDHÆGAR *L ÝSINGAR VIÐSKIPTI ÞJÓNUSTU Bókinni verður dreift ókeypis í 50.000 eintökum, m.a. í öll fyrirtæki landsins, á bensínstöðvar, pósthús, í bókabúðir og stórmarkaði, þar sem almenningur á kost á að nálgast hana. Viðskipta- og þjónustuskráin verður einföld í notkun, eingöngu upptalning fyrirtækja undir u.þ.b. 500 þjónustuflokkum. í henni verður jafnframt umboöaskrá. Viöskipta- og þjónustuskráin verður götuð sérstaklega og getur því nýst sem fylling í allar gerðir skipuleggjara, s.s. Filofax, Time Manager og Námuna frá Landsbanka íslands. Gera má ráð fyrir að um 35.000 slíkir skipuleggjarar séu í notkun hér á landi. Hámarksfjöldi skráninga í hverjum flokki er 15. Það tryggir þeim sem vilja koma þjónustu sinni áframfæri betri svörun en ef fjöldinn væri meiri. ------------i- VIÐSKIPTAOG ÞJÓNUSTUSKRÁIN IA9 a9 a3 Handhægar upplýsingar um fyrirtæki og þ j ó n u s t u þ e i r r a íslensk útgafa hf. Yellow Pages - Gelbe Seiten - Page joune Hér er bókin I réttri stærO. Handhæg og auöveld i meöförum. Ný og öflug viðskipta- og þjónustuskrá í vasabókarbroti sem hentar öllum, hvar sem er - hvenær sem erl

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.