Pressan - 19.11.1992, Blaðsíða 24
24
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR er ífjórt-
anda sæti listans ásamt tveimur öðr-
um. Hún er hins vegar þriðja vinsæl-
asta konan ásamt Kristínu Helgu á
Stöð 2. Sigrún hefur hrapað á und-
anförnum fimm árum. Þá var hún í
sjöunda sæti og vinsælust allra
kvenna.
BJARNI FELIXSON ervinsælasti
íþróttafréttamaðurinn og deilir
sautjánda sætinu með Helga Má.
Bjarni rétt mjakast upp. Hann var í
tuttugasta sæti fyrir fimm árum.
Með sama áframhaldi verður hann
vinsælastur árið 2020.
ÞÓRIR GUÐMUNDSSON er næstvin-
sælasti erlendi fréttamaðurinn á eft-
ir Ólafi Sigurðssyni kollega hans á
Ríkisútvarpinu. Þórir er í fjórtanda
sæti listans ásamt tveimur öðrum.
INGIMAR INGIMARSSON er í þrett-
ánda sæti listans. Hann er ellefti vin-
sælasti fréttamaðurinn og sá sjötti
vinsælasti á Rfkissjónvarpinu.
EL(N HIRST er í áttunda sæti ásamt
Boga fréttastjóra. Elin er hins vegar í
öðru sæti meðal sjónvarpskvenna á
eftir Ólöfu Rún. Elfn nýtur helmings
af vinsældum Ómars Ragnarssonar.
EGGERT SKÚLASON, töffarinn á Stöð
2, er (tfunda sæti; rétt á eftir þeim
Elínu Hirst og Boga Ágústssyni. Egg-
ert er f níunda sæti yfirfréttamenn
og í því fimmta yfir fréttamenn
Stöðvar 2.
EIRlKUR JÓNSSON lendir í ellefta
sæti á listanum á eftir langri röð
fréttamanna. Eiríkur kemur ekki vel
út úr þessari könnun í samanburði
við hinn sjónvarpsmanninn sem hef-
ur fengið þátt skírðan í höfuðið á
sér, Hemma Gunn. Eiríkur er akkúrat
helmingi minna vinsæll en Hemmi
— kannski vegna þess að þátturinn
hans er meira en helmingi styttri.
ÓLAFUR SIGURÐSSON er í tólfta sæti
listans. Hann er hins vegar vinsæl-
asti erlendi fréttamaðurinn.
KRISTlN HELGA GUNNARSDÓTTIR er
f fjórtanda sæti ásamt Þóri Guð-
mundssyni og Sigrúnu Stefánsdótt-
ur. Og þar með er hún Ifka þriðja vin-
sælasta sjónvarpskonan ásamt Sig-
rúnu.
KRISTJÁN MÁR UNNARSSON er í nf-
tjánda sæti.
HELGI MÁR ARTHÚRSSON er í sautj-
ánda sæti ásamt Bjarna Fel.
HAUKUR HÓLM deilirtuttugasta
sætinu, gamla sætinu hans Bjarna
Fel„ með félaga sínum Karli Garðars-
syni.
ÓMAR RAGNARSSON er vinsœl-
asti sjónvarpsmaður landsins. Enn
semfyrr. Hann var líka vinsælastur
t skoðanakönnun sem
urinn gerði fyrir fimm
þótt Ómar sé vinsœlastur
hann ekki jafnafgerandi forystu
meðal sjónvarpsmanna og Sigurður
G. Tómasson hefur meðal útvarpjs-
HEMMIGUNN kemur rétt á hæla
Ómari og hefur rétt rúmlega 80 pró-
sent af vinsældum hans. Hemmi
stekkur upp um tvö sæti frá 1987 og
hefur skotið Ingva Hrafni Jónssyni
og Páli Magnússyni afturfyrirsig.
Páll er reyndar horfinn af listanum.
Þar sem Ómar er á Stöð 2 er Hemmi
vinsælasti rfkissjónvarpsmaðurinn.
PÁLL BENEDIKTSSON er f sjöunda
sæti og aðeins sjónarmun á eftir
Ingva Hrafni. Páll er nýr á lista enda
var hann útvarpsmaður þar til fyrir
fáeinum misserum. Páll sérhæfir sig í
slori og sjávarútvegi og hefur auð-
sjáanlega heillað landann með þvf.
SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON
deilir þriðja sætinu með tveimur
öðrum og þar sem hvorugt þeirra er
á Stöð 2 er Sigmundur öruggur með
annað sætið á Stöðinni. Sigmundur
nýtur 70 prósenta af vinsældum
Ómars félaga sfns Ragnarssonar.
BOGIÁGÚSTSSON deilir áttunda
sætinu með Elfnu Hirst. Lfkt og
fréttastjórinn á Stöð 2 er Bogi frétta-
stjóri á Ríkissjónvarpinu ekki vinsæl-
astur á fréttastofunni. Ólöf Rún,
Helgi H. og Páll Benediktsson eru
vinsælli en hann. Þrátt fyrir áralanga
reynslu er Bogi nýr á lista. Hann var
hjá Flugleiðum fyrir fimm árum.
Skoðanakönnun Skáfs fvrir PRESSUNA
VINSELRSTfl
SJÓNVHRPS-
OG ÓTVHRPS-
FÓLHIfl
ÓLÖF RÚN SKÚLADÓTTIR er vinsæl-
asta sjónvarpskonan og hreppir
þriðja sætið ásamt tveimur öðrum.
Hún og Helgi H. Jónsson eru vinsæl-
ustu fréttamennirnir á Rfkisútvarp-
inu og þar sem Helgi H. er farinn til
Washington og sést ekki lengur
nema í kyrrmynd að tala í sfma er
Ólöf sá vinsælasti.
HELGI H. JÓNSSON er f þriðja sætinu
ásamt Sigmundi Erni og Ólöfu Rún
og verður það að teljast gott af
manni i námsleyfi. Helgi H. var í átt-
unda sætinu fyrir fimm árum og er
þvf á uppleið. Það er aldrei að vita
hvert hann nær þegar hann kemur
tvfefldur úr fríinu.
INGVI HRAFN JÓNSSON er á niður-
leið en er engu að sfður meðal þeirra
vinsælustu. Fyrir fimm árum var
hann f þriðja sæti en nú er hann í þvi
sjötta. Ingvi Hrafn má þola að sjá tvo
undirmenn sína yfir sér; þá Ómar og
Sigmund Erni. Ingvi erálíka vinsæll
og 60 prósent af Ómari.
Það lifir enginn
sómasamlegu lífi
án þess að eiga sér
uppáhaldsleikara,
uppáhaldsmat,
uppáhaldsprest og
uppáhaldshitt og
uppáhaldsþetta.
Spurning dagsins
hjá PRESSUNNI er
hvert er uppáhalds-
sjónvarps- og
uppáhaldsútvarps-
fólk þjóðarinnar.
Og hér hafið þið
það.