Pressan - 19.11.1992, Blaðsíða 26
-V
26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
í Þ R Ó T T I R
Viku fyrir ársafmæli hinnar
frægu yfirlýsingar Earvins „Mag-
ic“ Johnson um að hann væri
smitaður af alnæmi kom ný yfir-
lýsing. Eftir allt saman sagði Mag-
ic að hann væri hættur við að
hætta við að hætta. Þessi seinni
yfirlýsing markar endalokin á
furðulegu ári í lífi eins fremsta og
ástsælasta íþróttamanns heims.
Um leið afhjúpar hún tvískinn-
unginn og hræsnina sem sjúk-
dómur Magic hefur kallað ffam.
Ákvörðun Magic um að draga
sig í hlé kemur í kjölfar þess að
hann hefur orðið að þola óvægna
og miskunnarlausa umfjöllun upp
á síðkastið.
Allir voru sammála um að með
þvf að segja frá því að hann væri
smitaður af alnæmi í fyrra hefði
Karl Malone:
Stýrir „galdraofsóknunum"
gegn töframanninum.
hann unnið mikinn sigur — sigur
sem margir töldu að markaði
upphafið að því að um sjúkdóm-
inn „ægilega“ yrði nú fjallað af
meiri víðsýni og mannúð.
VARÐ HETJA OG HÉLT
SAMNING UNUM
Tilkynning Magic 7. nóvember
í fyrra um að hann hefði greinst
með HlV-veiruna var mjög dram-
atísk og flaug eins og eldur í sinu
um heimsbyggðina. Bandaríkin
stóðu á öndinni og George Bush
forseti vottaði Magic virðingu sína
og samúð. Vorkunnin breyttist í
aðdáun á hugrekki Magic og
menn fóru fljótlega að tala um að
nú yrði hægt að hleypa umræð-
unni um alnæmi í skynsamlegan
farveg. Um leið tókst Magic að
varðveita alla auglýsingasamninga
sína og ef eitthvað var varð hann
bara enn vinsælli, dáðari og dýr-
ari!
Magic hætti að leika um leið og
þetta varð ljóst en hélt sér í þjálf-
un. Að sjálfsögðu var hann valinn
í Stjörnuleikinn í febrúar á síðasta
vetri, en liðin í honum eru valin af
áhorfendum, sem ávallt hafa
dýrkað Magic. „Endurkoman11 var
eftirminnileg; Magic sýndi alla
töfrana, skoraði 25 stig og gerði
meðal annars þrjár þriggja stiga
körfur síðustu fimm mínúturnar.
Hann var valinn maður leiksins
(Most Valuable Player) og allir
voru að springa af hamingju.
Ævintýrið hélt áfram þegar
hann tilkynnti að hann vildi leika
á Ólympíuleikunum. Hann varð
annar tveggja fyrirliða „drauma-
liðsins" og fékk auðvitað ólymp-
íugull. Honum virtist ekkert
ómögulegt — hann hafði gefið
sjúkdómnum „ægilega" langt nef
og virtist ætla að lækna heiminn af
fordómum gagnvart alnæmi á eig-
in spýtur.
ENGINN VILL LEIKA VIÐ
MAGIC
En í september fóru sprungur
að myndast í goðsögnina. Magic
tilkynnti að þetta væri allt svo
gaman að hann ætlaði að leika
SMITAÐIST HANN AF KARL-
MANNI?
En leikmennirnir segja meira,
því nú eru komnar efasemdir um
að Magic hafi smitast með þeim
hætti sem hann hefur haldið ffam.
Blaðið Intemational Herald Tri-
bune segir að þessi orðrómur hafi
meðal annars verið rakinn til Is-
iah Thomas, bakvarðarins fræga
hjá Detroit Pistons. Er því haldið
fram að Thomas hafi látið hafa
eftir sér að Magic væri hommi og
þannig hefði hann smitast. Hvað
svo sem hæft er í þessu mun Mag-
ic hafa rætt við Thomas í einn og
hálfan klukkutíma fyrir nokkrum
dögum. „Earvin sagði að það
hefði verið gott samtal,“ sagði Lon
Rosen, talsmaður Magic, en
Thomas hefur ekkert látið eftir sér
knattspyrnutímaritsins
World Soccer er grein
þar sem fjallað er um
það hversu mikið hin
svokölluðu litlu lið í
Evrópu hafa eflst. Fjall-
að er um óvæntan sigur
Danaí Evrópukeppn-
inni í Svíþjóð í sumar
og frábæra frammi-
stöðu Norðmanna upp
á síðkastið, sem unnu
Hollendinga 2-1 íÓsló
og gerðu jafntefli við
Englendinga á Wem-
bley. Þá hafa Svisslend-
ingar vakið athygli en
Ttalir sluppu með
skrekkinn á heimavelli
sínum fyrir stuttu er lið-
in gerðu 2-2-jafntefli
en Ttalir náðu að jafna
seint f leiknum. Og þá
er það millifyrirsögnin;
„Meira að segja fsland
sýnir að engir leikir er
auðveldir." Þar segir
um íslenska landsliðið í
lauslegri þýðingu:
„Meira að segja ísland,
sem svo lengi hefur
verið eitt af þeim liðum
sem þola hafa mátt
rassskellingar, hefur
sýnt að yfir það verður
ekki valtað. Þeir sýndu
framfarir sínar með því
að vinna Ungverja 2-1 í
Búdapest í júní og fóru
síðan til Moskvu þar
sem Rússar náðu að
sigra með einu marki."
Frammistaða okkar
manna þykir góð og
sagt er að lið, sem
þóttu auðveld viður-
eignar fyrir tíu árum,
geti bitið frá sér núna
og enginn hafi efni á að
bóka sigur gegn þeim
fyrirfram.
áfram og um leið undirritaði hann
sannkallaðan draumasamning við
Lakers sem færði honum 150
milljónir á ári næstu þrjú árin. Á
sama tíma undirritaði hann nýja
auglýsingasamninga, m.a. við
Miller-bjórframleiðandann —
tákn karlmennskunnar í Banda-
ríkjunum. Eina vandamálið virtist
vera hve marga leiki hann þyldi að
leika og að læknisráði sagðist
hann ætla að leika 60 af 80 leikjum
tímabilsins. En rétt áður en tí'ma-
bilið átti að hefjast kom óvænt
yfirlýsing: Magic var endanlega
hættur.
Og ástæðan: Það vildi enginn
leika við hann! Síðan í september
hefur úrtöluröddunum vaxið ás-
megin og menn orðið sífellt gagn-
rýnni á þá ákvörðun Magic að
leika áffam. Leikmenn í deildinni
hafa dregið réttmæti þess í efa og
er Karl „póstmaður“ Malone sér-
staklega borinn fýrir því, en hann
var með Magic í draumaliðinu.
„Allir voru hrifnir af hugmynd-
inni um draumaliðið en nú verð-
um við að horfast í augu við raun-
veruleikann,“ sagði Malone og í
svipaðan streng tók Gerald Wilk-
ins, sem nú leikur með Cleveland
Cavaliers: „AUir tala um þetta og
sumir eru hræddir. Þetta gæti ver-
ið okkur öllum hættulegt en þar
sem þetta snýst um Magic taka
allir á þessu með silkihönskum,“
sagði Wilkins. Um leið hafa menn
verið að draga fram að ástæðan
fyrir gengi Magic í Stjörnuleikn-
um sé sú að menn hafi ekki þorað
að koma nálægt honum. Einnig
hefur því verið haldið fram að
frammistaða Magic í æfingaleikj-
um hafi síður en svo verið sann-
færandi. Þessi 206 sm hái bak-
vörður hefur reyndar blásið nýju
h'fi í miðvörðinn Divac með stoð-
sendingum í æfingaleikjunum
(met hans upp á 9.921 stoðsend-
ingu í NBA verður seint slegið), en
hann skoraði lítið sjálfur.
I síðasta æfingaleiknum fékk Magic smásár á handlegginn sem
blæddi úr. Hér hugar einn aðstoðarmanna Lakers að sárinu en eng-
inn í salnum gat tekið augun af blóðinu sem vætlaði úr því. Magic
viðurkenndi að atvikið hefði verið vandræðalegt.
hafa um málið. Aðrir hafa reyndar
risið upp honum til varnar, þar á
meðal Sam Bowie, miðvörður NY
Nets, sem segir að þetta stafi af því
að karlrembumar í NBA trúi því í
raun ekki að venjulegir menn geti
smitast.
Og það er við fleiri fortíðar-
drauga að glíma. Kona frá heima-
fylki hans, Michigan, hefur höfðað
mál á hendur honum og segir að
hann beri ábyrð á því að hún
smitaðist effir samfarir við Magic í
júní 1990. Hún heldur því fram að
hann hafi þá þegar vitað um vír-
usinn en þetta er því sem næst
einu og hálfu ári áður en hann
kom fram opinberlega. Auk þess
stangast þetta á við fyrri yfirlýs-
ingar Magic um hvernig hann
smitaðist, en hann hefur haldið
því fram að hann hafi smitast
sumarið 1991.
Það er því hart sótt að ameríska
draumasjúklingnum, enda má
segja að það hafi verið bjartsýni
hjá honum að ætla að halda áfram
eins og ekkert hefði í skorist.
Hann er jú haldinn alvarlegum
smitsjúkdómi og menn með smit-
sjúkdóma eru yfirleitt ekki á kafi í
íþróttum.
Á sínum tíma féllst hann á að
taka sæti í nefnd á vegum Bush
Bandaríkjaforseta um alnæmi.
Hann hætti þar í haust vegna
óánægju með störf nefndarinnar
og áhugaleysis Bush. Má vera að
hann taki aftur sæti þar nú þegar
Bill Clinton er á leiðinni í Hvíta
húsið, en Magic var yfirlýstur
stuðningsmaður hans.
En það er langur vetur fram-
undan hjá Lakers-liðinu, sem
verður að spila án töfrabragða
Magic. Um leið og það varð ljóst
fóru stuðningsmenn liðsins að
skila inn ársmiðum sínum — þeir
ætla frekar íbíó._____________
Siguröur MárJónsson
Ameríski draumasjúklingurinn gat ekki galdrað sig út úr vandræð-
unum þegar í Ijós kom að enginn vildi leika við hann.
Gervihnattasport
MMWITÍMM.McMIM;!
14.30 NBA-körfuboltinn Scre-
ensport. Washington Bull-
ets mætir New York Knicks.
20.30 Hollenski fótboltinn
Screensport. Leikur I hol-
lensku 1. deildinni. Klukkan
21.00 er það slðan spænski
boltinn og klukkan 22.00
verður farið á flakk um fót-
boltavelli í Evrópu.
23.00 Keila Screensport. Svip-
myndir frá alþjóðlegu móti
í Hollandi þar sem at-
vinnumenn glíma við keil-
urnar.
■ j m
14.00 Tennis SkySports. Bein út-
sending frá móti í Frank-
furt þar sem helstu stór-
stjörnur tennisheimsins
keppa um hvorki meira né
minna en 250 milljóna
króna verðlaunafé.
19.30 Mótorsport Screensport.
Klukkutíma blandaður
þáttur með allrahanda
ökutækjum og ökuþórum.
22.30 Fótboltahelgin Sky
Sports. Snillingar velta fyrir
sér leikjum helgarinnar á
Englandi. Markasyrpa ein
mikil fylgir í kjölfarið.
13.00 fþróttir á laugardegi Sky
Sports. Fimm tlma dagskrá.
Meðal annars íshokkl,
tennis og náttúrlega hinn
ómissandi fótbolti.
17.50 Brasilíski fótboltinn
Screensport. Bein útsend-
ing frá leik I Brasillu þar
sem samban ræður ríkjum.
20.00 Fjölbragðagllma Sky
Sports. Það er glettilega
gaman að fylgjast með
þegar þessir furðufýrar
berja hver á öðrum. Þótt
það sé I hálfgerðu plati.
12.30 Fallhlífarstökk Sky
Sports. Frá Spáni. Kepp-
endur leika sér heillengi I
frjálsu falli, fallhlífin er ekki
opnuð fyrr en á siðustu
stundu.
13.00 Snóker Screensport. Kapp-
ar eins og Steve Davis sýna
listir sínar með kjuðann.
18.00 Körfubolti Screensport.
Bein útsending frá leik í
þýsku Bundesligunni. Þar
spila þeir góðan körfu-
bolta.
20.00 Fótbolti Screensport. Sýnt
frá leikjum 1 hollensku,
spænsku og portúgölsku
fyrstu deildunum.
Draumurinn sem gat ekki orðið að veruleika
Ehqím
■ ■ ■ ■ ■ I