Pressan - 19.11.1992, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
27
Þorvaldur Örlygsson hefur verið
í byrjunarliði Forest undanfarið
og staðið sig þokkalega.
Þorvaldur
stendur sig
þokkalega
en Guðmundur
finnursig ekki
Þorvaldur örlygsson hefur ver-
ið fastur leikmaður í byrjunarliði
Nóttingham Forest undanfarið og
staðið sig nokkuð vel, að minnsta
kosti ef marka má einkunnagjafir
ensku fótboltablaðanna Match og
Shoot.
Ef skoðaðar eru einkunnir sem
hann hefur fengið fyrir frammi-
stöðu sína í níu leikjum nú und-
anfarið er meðaleinkunnin 6,5,
sem er alveg viðunandi.
Einkunnin sex þýðir að leik-
maðurinn hefúr staðið sig þokka-
lega og það er sú einkunn sem
Þorvaldur hefur oftast fengið eða
fjórum sinnum. Hæsta einkunn
hans er átta, mjög gott, en hana
fékk hann í bikarleik gegn Stock-
port. f þeim leik skoraði Þorvald-
ur sigurmarkið. Þrisvar sinnum
fær hann sjö, gott, meðal annars í
bikarleik gegn Crewe, en í þeim
leik skoraði Þorvaldur eina mark
leiksins. Einu sinni fær hann
fimm í einkunn sem þýðir að
hann hefúr verið slakur. I heildina
Guðmundi Torfasyni hefur ekki
gengið nægilega vel hjá Saint
Johnstone undanfarið, en erfið
meiðsli hafa sett strik í reikning-
inn hjá honum.
er Þorvaldur sem sagt mitt á milli
þess að vera þokkalegur og góður;
hefur því staðið vel fyrir sínu án
þess kannski að gera einhverjar
stórkostlegar rósir.
Gubmundur Torfason byrjaði
mjög vel hjá Saint Johnstone í
Skotlandi og raðaði inn mörkum.
Guðmundur meiddist illa fyrir
nokkru og hefur ekki náð sér á
strik eftir að hann reis úr rekkju.
Yfirleitt fær hann þó mjög viðun-
andi dóma fyrir frammistöðu
sína, sex og sjö, en virðist detta
niður inn á milli. Fyrir leik sinn
gegn Hibernian 24. október fékk
hann ekki nema fjóra í einkunn,
sem er það lægsta sem Match gef-
ur og þýðir að leikmaðurinn hefúr
verið lélegur. Guðmundur virðist
líka hafa verið langt ffá sínu besta
í leik á móti Celtic fyrir skemmstu,
en þá fékk hann einungis tvo í ein-
kunn hjá Shoot eða „absolute
stinker" eins og það heitir upp á
ensku.
í Þ R Ó T T I R
Hvererbestí
línumaðurinn ?
Geir Sveinsson er fyrsti línu-
maður landsliðsins í dag. Þor-
gils Óttar segir Geir ekki hafa
spilað betur í annan tíma.
GeirSveinson Val
BEST
„Geir er reyndasti línumaður
okkar í dag og helsti kostur hans
er hversu sterkur hann er. Honum
hefur farið geysilega mikið fram
undanfarin ár og aldrei spilað bet-
ur en nú í ár og í fyrra; hefur
greinilega náð afar miklum ffarn-
förum á Spáni. í dag er hann orð-
inn mjög alhliða línumaður hvað
varðar blokkeringar og það að
skapa sér færi og hann nýtir færi
sín vel. Geir er líka afburða varn-
ar- og keppnismaður," segir Þor-
gils Ottar Mathiesen.
„Geir ber höfuð og herðar yfir
þessa fjóra pilta og hann spilar
mjög vel fyrir liðið. Hann er einn
besti línumaður heims í dag, af-
burðavarnarmaður og hann er
líka foringi á leikvelli, sem er gíf-
urlegur kostur,“ segir Guðjón
Guðmundsson.
„Geir er hvorttveggja góður
varnarmaður og góður línumað-
ur. Hann bætti sig gífurlega sem
línumaður á Spáni og er farinn að
nýta færi sín mun betur en hann
gerði,“ segir Viggó Sigurðsson.
VERST
„Galli hans áður var sá að hann
var ekki nógu hreyfanlegur á lín-
unni og skapaði sér þarafleiðandi
ekki nægilega mörg færi sjálfur, en
þetta er breytt í dag og ég sé fáa
galla á honum nú,“ segir Þorgils
Ottar.
„Gen er mjög einhæfur í skot-
um, hann skýtur nánast undan-
tekningarlaust hægra megin við
markvörðinn og það eru menn
auðvitað fljótir að lesa,“ segir
Guðjón.
—
Fylkismaðurinn Indriði
Einarsson eða VinnyJo-
nes íslands eins og
margir vilja kalla hann
— Ninja- Vinnyerenda
uppáhaldsleikmaður
Indriðaaðokkurer
sagt — leikur nú í vetur
með Hibernians á
Möltu eins og kunnugt
er. Indriði (sem eralls
óskyldur leikritaskáld-
inu kunna) hefur staðið
sig vel hjá Hibs, eins og
liðiðer kallað, og er
fastamaður í liðinu.
Hibs er eitt frægasta og
besta lið Möltu en þjálf-
ari þess er enginn ann-
aren gamla kempan
Brian Talbot, sem hér á
árum áður stjórnaði
leikenska landsliðsins
og þótti frábær miðju-
maður.
„Hans helsti galli hefúr verið að
hann hefur skorað illa af línunni,
en það hefur hann bætt mikið,“
segir Viggó.
Birgir Sigurðsson Víkingi
BEST
„Birgir er mjög hreyfanlegur og
á auðvelt með að skapa sér færi.
Hann er geysilega sterkur og fer
auðveldlega inn með mann ábak-
inu ef því er að skipta. Birgir skor-
ar mjög mikið af mörkum aflínu-
manni að vera og er oftar en ekki
markahæstur í sínu liði,“ segir
Þorgils Óttar.
„Birgir er mjög góður leikmað-
ur — sérstaklega fyrir sjálfan sig.
Hann skorar mikið af mörkum og
er sterkur mjög. Það er réttnefúi á
hann sem Danirnir fúndu um ár-
ið, þeir kölluðu hann „ísskápinn“
og það segir eiginlega allt sem
segja þarf um Birgi,“ segir Guðjón.
„Birgir er feikiöflugur línumað-
ur og hefúr flesta kosti góðra línu-
manna. Hann skorar mikið og
nýtir færi sín ákaflega vel,“ segir
Viggó.
VERST
„Helsti galli hans er sá að hann
sinnir blokkeringunum kannski
Birgir Sigurðsson skorar mikið
af mörkum en mætti spila meira
fyrir liðsheildina.
ekki nægjanlega vel, hugsar meira
um að koma sjálfum sér í færi.
Það hefúr líka háð honum í lands-
liðinu að hann hefúr ekki náð að
tryggja sér fast sæti sem varnar-
maður í byrjunarliðinu; hefúr ver-
ið skipt inn á í sókn en út af í vöm.
Það háir honum mjög, því það er
mjög vont fyrir línumann að spila
eingöngu sókn vegna sérstöðu
línumannsins," segir Þorgils Ótt-
ar.
„Birgir skorar mikið en á
kannski bágt með að leika fyrir
liðið; spilar ekki eins mikið fyrir
liðsheildina og hann gæti gert.
Hann er afleitur vamarleikmaður
og þar kemur náttúrlega smæð
hans til. Mér finnst Birgir líka oft
mistækur á afdrifaríkum augna-
blikum," segir Guðjón.
„Hann tekur allt of mikla
áhættu í leikjum. Hann á það til að
fara inn hvar sem er, er svolítið
villtur. Þótt Birgir sé alveg ágætur
varnarmaður þá gæti vamarleikur
hans verið betri,“ segir Viggó.
Gústav Bjarnason Selfossi
BEST
„Gústav er mjög útsjónarsamur
og á auðvelt með að skapa sér færi
og nýtir þau mjög vel. Hann er
líka mjög snöggur í hraðaupp-
hlaupum, kannski sneggri en hin-
ir,“ segir Þorgils Óttar.
„Gústav er geysilega flinkur og
hann er góður hraðaupphlaups-
maður. Hann er efni í stórspilara
en á hins vegar margt ólært,“ segir
Guðjón.
„Gústav er góður leikmaður en
mér finnst hann þó ekki vera í
sama klassa og hinir þrír,“ segir
Viggó.
VERST
„Hann er ekki eins sterkur lík-
amlega og Geir og Birgir til dæmis
og það háir honum einna helst,“
segir Þorgils Óttar.
„Það er mín skoðun að hann
hafi ekki gott stöðumat, það sást
Gústav Bjarnason er snöggur,
lipur og góður f hraðaupp-
hlaupum en skapið er honum
fjötur um fót, segir Guðjón Guð-
mundsson.
vel í úrslitakeppninni í fýrra.
Varnarlega er hann ekkert sér-
staklega sterkur. Ég held að hann
þurfi að læra að hemja skapið
þannig að hann geti beitt sér rétt.
Án þess að ég þekki manninn
nokkuð held ég að skapið sé svo-
lítill akkilesarhæll hjá honum,“
segir Guðjón.
„Hann tekur of mikla sénsa að
mínu mati og nýtir færi sín á lín-
unni ekki nógu vel,“ segir Viggó.
Hálfdán Þórðarson FH
BEST
„Hálfdán hefúr sýnt alveg ótrú-
legar ffamfarir undanfarin ár og er
orðinn mjög sterkur bæði hvað
varðar blokkeringar og það að
skapa sér færi. Hann er mjög
sterkur líkamlega, eins og Geir og
Birgir, og fer auðveldlega inn með
mann á bakinu. Hann er sterkur
varnarmaður og einn af þeim sem
gefast aldrei upp og taka alltaf á að
fúllu,“ segir Þorgils Óttar.
„Hálfdán hefúr verið mjög vax-
andi undanfarið og hann er
kannski sá maður sem maður sér
Sigur Dana sannar að
Evrópuboltinn er lélegur
Johan Cruyjf er óumdeilanlega
ernn besti knattspymumaður sem
uppi hefur verið. Þessi snjalli Hol-
lendingur er nú einn af þekktustu
knattspyrnuþjálfurum heimsins
og lið hans, Barcelona, er eitt
besta félagslið í heimi og hefur
unnið marga stóra titla undir
stjóm Crayffs.
Cruyff hefúr ákveðnar skoðanir
á flestu sem viðkemur fótbolta og
meðal annars er hann ekki par
hrifinn af danska landsliðinu sem
varð Evrópumeistari í Svíþjóð í
sumar.
„Mér fannst danska landsliðið
ekki neitt sérstaklega gott í Sví-
þjóð og á köflum var liðið hrein-
lega lélegt. Það eina sem Danir
gerðu var að verjast og notfæra sér
síðan mistök andstæðinganna,
þeir vinna aldrei neitt aftur með
sömu spilamennsku. Það segja all-
ir að úrslitin séu það eina sem
skiptir máli í fótbolta, það er ekki
rétt. Það verður að spila leikinn á
mannsæmandi hátt. Sigur Dana í
Evrópukeppninni sýnir ^ð fót-
boltinn í Evrópu er á lágu plani
um þessar mundir; það er allt of
mikil áhersla lögð á hlaup en of
lítil á gæði,“ segir Cruyff og er ekki
að skafa af hlutunum.
Crayff hefur líka skoðun á nýju
reglunum í fótbolta: „Mér finnst
þær tóm vitleysa. Það eina sem
þær gera er að flækja málin fyrir
dómarana, þjálfarana og leik-
mennina. Þetta er dæmigerð afurð
fólks sem leikur sinn fótbolta sitj-
andi við skrifborð á skrifstofum
og hefur aldrei út á knattspyrnu-
völl komið,“ segir hann.
Ef Hollendingar ná að tryggja
sér sæti í heimsmeistarakeppn-
inni í Bandaríkjunum árið 1994
mun Cruyff stjórna landsliðinu í
keppninni. Hann hefur'þó ekki í
hyggju að hætta með Barcelona og
snúa sér alfarið að þjálfun lands-
liðsins, heldur ætlar hann aðeins
að stjórna því í heimsmeistara-
keppninni. Hann er ekkert
hræddur um að erfiðlega gangi að
Johan Cruyff hefur ekki mikið
álit á Evrópumeisturum Dana
og segir sigur þeirra í Svíþjóð
eingöngu sanna að evrópsk
knattspyrna sé í lægð.
samræma störf sín hjá Barcelona
þjálfun landsliðsins. „Meiningin
er að ég stjórni liðinu aðerns í úr-
slitakeppninni sjálfri í Bandaríkj-
unum og þá er keppnistímabilinu
hjá Barcelona lokið. Ég sé engin
vandkvæði á þessu. Ég þekki alla
hollensku leikmennina og við töl-
um sama tungumálið," segir Cra-
yff og lætur engan bilbug á sér
finna.
helstan sem arftaka Geirs. Hann
klárar færi sín mjög vel, er afburða
hraðaupphlaupsmaður og ber
boltann mjög vel uppi í hraðaupp-
hlaupum,“ segir Guðjón.
„Ég tel Hálfdán einn sterkasta
línumanninn í dag. Honum hefúr
farið mjög mikið fram, hann er
farinn að skora gríðarlega mikið
af mörkum og nýtir færin mjög
vel,“ segir Viggó.
VERST
„Hans helsti galli hefur verið sá
að hann er ekki nógu hreyfanlegur
á línunni, en það hefúr lagast mik-
ið,“ segir Þorgils Óttar.
„Hann er smávaxinn og ekki
góður varnarmaður og nýtist liði
illa varnarlega. Hann skilar varn-
arhlutverkinu að vísu ágætlega
með FH, en á alþjóðlegan mæli-
kvarða held ég að hann eigi svolít-
ið langt í land,“ segir Guðjón.
„Þótt Hálfdán sé alveg þokka-
legur varnarmaður mætti hann
bæta sig talsvert á því sviði,“ segir
Viggó.
Hálfdán Þórðarson. Kannski
verður hann arftaki Geirs en til
að svo geti orðið þarf hann að
bæta hjá sér varnarleikinn.
Um helgina
uiiúiúaa.'i'ji.m-m'ju
KÖRFUBOLTI ÚRVALSDEILD
Keflavík - Breiðablik kl. 20.00.
Keflvikingar hafa reynst ósigrandi í
vetur enda með gríðarsterkt lið.
Blikarnir hafa ekki náð að sýna sín-
ar bestu hliðar og Keflavíkurförin
veröur þeim ugglaust erfið.
KÖRFUBOLTI 1. DEILD
KVENNA
Keflavík - Grindavík kl 18.00.
Hálfgerður Derby-leikur þarna.
KÖRFUBOLTl - BIKARINN
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Snæfell - Haukar b kl. 20.00.
Snæfellingar ættu ekki að vera í
vandræöum með að vinna b-lið
Haukanna.
WMqCTiiaiKiiMm
KÖRFUBOLTI 1. DEILD
KVENNA
Tindastóll - (R kl. 14.00. Sauðár-
króksstúlkurnar eru liprar í körfu-
bolta rétt eins og strákarnir.
KHMiMiAlXlUmLI
KÖRFUBOLTI - BIKARINN
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Njarðvfk - Haukar kl. 20.00.
Haukamenn spila glimrandi körfu-
bolta þessa dagana en Njarðvík-
ingar hafa veriö hálfdaprir.
Breiðablik - Grindavík b kl.
20.00. Blikarnir ættu að vera sterk-
ari aðilinn þarna.
Valur - ÍR kl. 20.00. Valsmenn
eiga eitt sterkasta lið úrvalsdeild-
arinnar og ættu að eiga sigurinn
vísan.
Skallagrímur - Þór kl. 16.00.
Skallagrímsmenn eru f úrvals-
deildinni og geta.spilað skemmti-
lega ef sé géllinn er á þeim og
hljóta aö verða Akureyringum of-
jarl.
Keflavík - (S kl. 16.00. Stúdentar
eiga væntanlega litla möguleika á
að leggja Keflvíkinga að velli.