Pressan - 26.11.1992, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMKBER 1992
Jl að getur oft verið gaman að glugga í
smáauglýsingar blaða og auglýsingarnar
geta oft á tíðum verið hreint bráðfyndnar
þótt það hafi kannski alls ekki verið ætl-
unin. Ein góð birtist í fsafjarðarblaðinu
Bcejarins besta í síðustu viku, hún hefst á
þessa leið: Óska eftirþvottavél fýrir körfú-
boltaþjálfara...
s
*
i Vestfirska fréttablaðinu er greint ffá
því að félagsmálaráðuneytið hafi dæmt
ráðningu skólabílstjóra Broddanesskóla á
Ströndum ógilda. Forsagan er sú að Sig-
urkarli Ásmundssyni, er séð hafði um
akstur skólabarna á farsælan hátt í 20 ár,
var sagt upp störfum og staðan auglýst
laus til umsóknar. Sigurkarl sótti um en
Jón Hákonarson var ráðinn og réð þar
úrslitum atkvæði tengdaföður hans, Ein-
ars Magnússonar í Hvítuhlíð, sem sæti á
í hreppsnefnd. Sigurkarl kærði til félags-
málaráðuneytisins á þeirri forsendu að
Einar væri vanhæfur til að fjalla um ráðn-
inguna þar sem tengdasonur hans væri
meðal umsækjanda.' Félagsmálaráðuneyt-
ið telur Einar hafa verið vanhæfan og því
eigi hreppsnefndin að ákveða á ný hver
skuli fá stöðuna. Uppsögn Sigurkarls og
síðar ráðning Jóns var mikið hitamál í
hreppnum á sínum tíma og var Einar sak-
aður um að beita óheiðarlegum vinnu-
brögðum til að hygla fjölskyldu sinni...
P
JL yrir um þremur vikum var krafta-
kappinn Hjalti Úrsus Ámason í keppn-
isferð í Japan. Þetta var keppni skipulögð
af japanskri sjónvarps-
stöð. Hjalti lenti í þriðja
sæti á eftir breska risan-
um Mark Higgins og
kanadískum keppanda.
Mikið umstang var í
kringum keppnina, en
Japanir hafa löngum
haft áhuga á íturvöxnum kraftamönnum.
Japanski sumo- glímumaðurinn Kyta var
kynniríkeppninni...
Nú mun vera unnið að einkavæð-
ingu Rafmagnseftirlits ríkisins og er það
Ágúst Þór Jónsson verkffæðingur sem
hefúr umsjón með verkinu. Ágúst komst í
Lokar þú augunum fyrir
jólafríi í útlöndum?
Ef svo er getur þú opnaö þau fyrir ódýru jólafargjöldunum hjá SAS, þau eru ótrúleg en sönn
og spennandi áfangastaöir bíöa þín um alla Evrópu.
*
Kaupmannahöfn
Gautaborg
Malmö
Osló
Stavanger
Bergen
Kristiansand
96
Norrköping
Jönköping
Kalmar
Vesterás
Váxjö
Kynnið ykkur SAS hótelbæklinginn sem
liggur frammi á öllum ferðaskrifstofum.
Boðið er upp á hótelgistingu á mjög góðu
verði í fjölmörgum löndum.
Lágmarksdvöl 6 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur er 33%. Flugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu veröi:
1250 kr. á íslandi, auk 630 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar.
Sölutímabil er 1. til 30. nóvember. Brottför frá íslandi þarf aö eiga sér staö í desember.
Brottfarardagar: Mánudagar, miðvikudagar og laugardagar.
Komudagar: Þriðjudags-, föstudags- og sunnudagskvöld.
Hafðu samband viö SAS
eöa feröaskrifstofuna þína.
ff/f/SAS
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi !
* Há» samþykki stjómvalda. Laugavegi 172 - Síttli 62 22 11
fréttirnar nýlega vegna „pabbamálsins“
hjá Reykjavíkurborg. Á sínum tíma hafði
hann yfirumsjón með einkavæðingu bif-
reiðaskoðunarinnar og stofnunar Bif-
reiðaskoðunar fslands. Þegar mun hafa
verið ákveðið að leggja raffangaprófun
niður hjá Rafmagnseftirlitinu en nú mun
víst svo bera við að Bifreiðaskoðun ís-
lands á að fá þennan þátt til sín...
M iklir erfiðleikar hafa að undan-
förnu steðjað að Sparisjóði Kópavogs.
Hefur sparisjóðurinn haft ákaflega lítið
svigrúm til útlána og nú hefur verið
ákveðið að taka upp nýtt skipurit og
fækka starfsmönnum. Er jafnvel talið
hugsanlegt að útibú sparisjóðsins í Engi-
hjalla verði lagt niður um leið. Útibús-
stjórinn þar mun því vera að hætta störf-
um...
P
JL rá því er greint í Suðumesjafréttum
að lögð hafi verið ffam kæra vegna vinnu
amerískra hermanna sem voru að slá upp
sökklum undir frystiklefa. Friðþór Ey-
dal, blaðafulltrúi Varnarliðsins, segir í
viðtali við blaðið að ekkert ákvæði sé um
svona í varnarsamningnum en sú hefð
væri að bjóða út stærri verk en minni verk
mættu starfsmenn hersins vinna og þar
væri bæði um Bandaríkjamenn og íslend-
inga að ræða. Ólafur Erlingsson hjá
Meistarafélagi Suðurnesja segir málið
hins vegar alls ekki snúast um varnar-
samninginn, heldur kveði íslensk iðnlög-
gjöf á um að verk sem þessi eigi að vinn-
ast af faglærðum mönnum með réttindi.
Bandaríkjamennirnir þurfi því að hafa
réttindin eða sérstakt leyfi ffá viðkomandi
fagfélögum...
u
X X æstiréttur dæmdi nýlega í máli
ákæruvaldsins gegn Sigurði Þór Sig-
urðssyrii. Hann var ákærður fyrir að hafa
stolið gúmmíbáti úr Stapatindi í ágúst
1991. Hæstiréttur staðfesti dóm undirrétt-
ar en ákærði hafði verið dæmdur fyrir
sakadómi Snæfells- og Hnappadalssýslu.
Um leið fann Hæstiréttur að vinnubrögð-
um dómarans sem ekki hafði haft fyrir
því að kynna ákærða gögn málsins að
öðru leyti en því sem kom fram í ákæru
né kalla fyrir vitni. Það kannski skipti ekki
höfuðmáJi því ákærði hafði játað, en eigi
að síður kemur slík málsmeðferð á
óvart...
FLÍSAR
Stórhöfða 17, vi& Guilinbrii
sfmi 67 48 44
StjörnusnakK