Pressan - 26.11.1992, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMBER 1992
Séð við kreppunni
Það er hægt að
gera góð kaup
víðar en í Dyflini
og Glasgow,
nefnilega í stof-
unni heima. Með
krítarkorti og
síma er hægt að
fá flest sem
hugurinn girnist
í erlendum
póstverslunum.
Undanfarin ár hafa verslunar-
ferðir til útlanda færst mjög í vöxt,
íslenskum verslunareigendum til
sárrar skapraunar. Þrátt fyrir allt
hjal um að „velja íslenskt",
kreppu og annað á þeim nótum
virðast fleiri en nokkru sinni ætla
að notfæra sér ódýrt vöruverð í
Dyflinni, Lundúnum, Glasgow og
víðar til að kaupa inn fyrir jólin.
Um það er reyndar deilt hversu
ódýrt sé að fara í slíkar verslunar-
ferðir, því ofan á sjálft vöruverðið
þarf vitaskuld að bæta fararkostn-
aði, gistingu og uppihaldi. Vin-
sældir ferðanna benda aftur á
móti ótvírætt til þess að fólk telji
þær svara kostnaði.
Hins vegar þarf engan veginn
að bregða sér út fýrir landsteinana
til að gera hagstæð innkaup, hvort
heldur er til jólanna eða á öðrum
árstímum. Leiðin til þess er að
notfæra sér alþjóðlegar póstversl-
anir, sem geta boðið gæðavöru á
lágu verði í krafti magnsins.
Erlendar póstverslanir eru fs-
lendingum reyndar ekki öldungis
ókunnugar, því hér hefur um
nokkurt skeið verið dreift vöru-
listum frá póstverslunum á borð
við Quelle, Kays, Freemans og
fleiri. Á þessurn dögunt fallandi
gengis er hins vegar rétt að hafa
augun hjá sér og velja póstverslan-
ir meðal annars með tilliti til mis-
munandi gengis. Þannig er til
dæmis mun hagstæðara að kaupa
inn frá Bretíandi en Þýskalandi
um þessar mundir.
Lengst af hafa Bandaríkin þó
verið fyrirheitna iandið í póst-
verslun. Lágt gengi Bandaríkja-
dals kemur þar við sögu, en ekki
síður sú staðreynd að Bandaríkja-
menn hafa þjóða lengst sinnt
póstverslun. Bandaríkin eru víð-
feðmt land og víða til sveita nota
menn póstverslanir á borð við Se-
ars til nær allra innkaupa nema til
þess að fá sér í svanginn. Aldraðir
hafa einnig notfært sér póstversl-
un í ríkum mæli og ekki spiliir fyr-
ir að sé varan send frá öðru fylki
er hún söluskattslaus. Almenn
krítarkortaeign hel'ur einnig verið
þessari verslun mikill hvati, sem
og tilkoma ódýrra hraðboðasend-
inga. Innan Bandartkjanna er því
hægt að panta vöru um síma að
kveldi og treysta því að hún verði
komin heim fyrir kvöldmat dag-
inn eftir. Hvað fsland varðar má
yfirleitt gera ráð fyrir að þrír eða
fjórir dagar líði frá pöntun þar til
varan berst.
Vitaskuld er misjafnt hvaða
vöru borgar sig að kaupa inn að
Vara USD ÍKR Umboð
Canon EOSIOOO* $439,99 27.983 38.900
NintendoGame boy $79,99 5.087 10.900
Sony Walkman $49,99 3.179 5.890
Levi's 501 $28,80 1.832 6.590
Macintosh LCII $2008,00 127.709 217.450
Sýnt er verð f Bandaríkjadölum, það reiknað yfir I íslenskar krónur að viðbaettum opinberum
gjöldum. Flutningskostnaður er ekki innifalinn, enda er hann mjög misjafn. Til samanburðar er
sýnt verð, sem egfið er upp af islenskum umboðum viðkomandi vöru.
* Canon EOS1000 er með innbyggðu flassi, en erlenda verðið á við Canon Rebel, sem er sams
konar vél utan þess að flassið er sjálfstaett og mun meiri aukabúnaður fylgir.
utan. Fyrst og fremst er það háð
tollum, en einnig hefur fragtin sitt
að segja og ofan á vöruverðið bæt-
ist svo virðisaukaskattur. Það seg-
ir þó kannski sína sögu að það
reyndist PRESSUNNI ódýrara að
kaupa inn Levi’s- gallabuxur frá
Bandaríkjunum, láta senda þær
hingað heim með hraðboðapósti
Federal Express, greiða fyrir toll-
skýrslugerð og gjalda virðisauka-
skatt en að kaupa þær á „spott-
prís“ þeim, sem Hagkaup svekktu
Levi’s-umboðið hvað mest með á
dögunum. Hæsta mögulegt verð
frá Bandaríkjunum var sumsé
lægra en lægsta verð á íslandi!
Almennt séð borgar sig helst að
kaupa hluti að utan, sem hvorki
eru tiltakanlega dýrir né ódýrir
hér heima. Verðmunurinn á nögl-
um og demantsfestum hér heima
og ytra er yfirleitt ekki svo mikill
að það svari kostnaði að flytja slíkt
heim á eigin vegum. Þegar ræðir
hins vegar um fatnað, rafeinda-
tæki hvers konar eða leikföng fer
hins vegar að muna verulega á
verði.
Eins og í öllum vörukaupum er
lykillinn að hagstæðum innkaup-
um sá að gera verðsamanburð.
Hægt er að hringja í póstverslan-
irnar og spyrjast fyrir um vöru-
verð að viðbættum flutnings-
kostnaði — hvort heldur er með
sjópósti, flugpósti eða hraðboða-
sendingu — án þess að í fyrir-
spurninni felist nein skuldbind-
ing. Þá er aðeins eftir að bæta við-
eigandi gjöldum við, en í töflu hér
að neðan eru gefnar reiknitölur
fyrir nokkra algenga vöruflokka.
Leggið saman vöruverð og flutn-
ingskostnað og margfaldið með
reiknitölunum.
Alm. Evrópa
Hljómtæki 1,800 1,800
Myndavélar 1,254 1,254
Fatnaður 1,442 1,254
Tölvur 1,254 1,254
Leikföng 1,379 1,254
Heimilistæki 1,524 1,385
Ath.: Gætið vel að þvi fyrirfram í hvaða
tollflokki tiltekinvaraer.
Af hverju
er allt
svona
dýrt?
Þegar grennslast er fyrir um
hátt vöruverð á Islandi verður
fátt um svör. Oft er nefnt að
smáar verslanir á ísiandi geti
ekki keppt við risavaxnar
verslunarkeðjur úti í heimi í
Ieit að hagstæðu verksmiðju-
verði. Það eitt útskýrir hins
vegar vart hinn mikla mun.
Flutningskostnaður hækkar
verðið nokkuð og þá ekki síður
sú staðreynd að tollur er lagður
á vöruverð að viðbættum
flutningskostnaði, sem er eins-
dæmi í hinum siðmenntaða
heimi. Nú er kunnara en frá
þurfi að segja að skipafélögin
veita viðskiptamönnum sínum
gjarnan afslátt, sem getur verið
mjög mismikiil. Fyrir vikið
geta tveir kaupmenn keypt inn
jafnmikið af sömu vörutegund
á sama verði frá sama seljanda
og flutt hana inn með sama
skipi. Þegar kentur að því að
greiða toll af vörunni fá þeir
hins vegar gerólíka reikninga í
samræmi við verðið, sem
skipafélagið setti upp, og það
endurspeglast vitaskuld á verð-
miðanum, sem neytandinn
veltir fyrir sér.
Við þetta bætist hærri virð-
isaukaskattur en þekkist vlðast
hvar, vörugjald leggst á ýmsar
vörutegundir, flókið tollkerfi
og skriffinnska í tollinum
lækkar ekki verðið og að síð-
ustu má nefna sjálfa tollálagn-
inguna, sem á stundum er
hreint og beint ósvífin.
KJarakaup
frá úKöndum
FJARAR UNDAN
VELDIHELGA RÚNARS
Fyrirtækið Austurvangur hf„ í
eigu Helga Rúnars Magnússon-
ar lögfræðings, hefur nú verið
lýst gjaldþrota. Félagið, sem er
með lögheimili á Austurströnd 3
á Seltjarnarnesi, hefur verið í
margskonar fjárfestingum. Hafa
hér í PRESSUNNI verið rakin
viðskipti með eignina Skipholt 7,
en það húsnæði keypti Austur-
vangur af Búnaðarbankanum í
ágúst 1989. Þrátt fyrir að hafa lít-
ið sem ekkert greitt af húsinu hóf
Austurvangur umfangsmikla
leigustarfsemi í húsinu sem kall-
aði á afskipti Leigjendasamtak-
anna.
Helgi Rúnar hefur haft mörg
fleiri félög í takinu og má þar
nefna Lögtak hf„ Rúnar hf. (en
það félag hefur átt í miklum erf-
iðleikum undanfarið og eignir
þess verið seldar á uppboðum),
Stelk hf„ Norðurvang hf. og Lög-
fræðimiðstöðina hf. Flest þessi
félög hafa verið skráð með heim-
ilisfang á Austurströnd.
Norðurvangur keypti á sínum
tíma eignina Skipholt 29, Ópal-
húsið svokallaða, og var upp-
boðsmeðferðin á því með ein-
dæmum. Brask Norðurvangs og
annars félags í eigu Helga, Stelks
hf„ með eignina Skipholt 29 varð
til þess að kröfuhafar töpuðu
verulegum Ijárhæðum. Einnig
hafa verið rakin hér í blaðinu
viðskipti Helga Rúnars við Leik-
arafélagið, en hann var lögffæð-
ingur þess og gjaldkeri. Lyktir
þess urðu þær að Leikarafélagið
kærði hann til RLR.
heima í stofu